Við bjuggum í mörg ár við hálfgerða þöggun hér á landi. Þetta var á ,,blómaskeiði“ samstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þetta var á þeim tíma sem efnahagskerfið, sem hrundi á einni nóttu, var byggt upp. Þetta var á þeim tíma sem íslensku bankarnir voru afhentir vildarvinum stjórnmálamannanna.
Því var gjarnan haldið fram að vildarvinirnir hefðu fengið bankana fyrir slikk. Síðan hefur komið ljós að það er líklegast ekki rétt – þeir fengu bankana fyrir ekki neitt - ókeypis. Vildarvinirnir lánuðu hver öðrum fyrir bönkunum og þeir hafa ekki borgað þau lán fremur en önnur. Uppi stendur þjóðin slypp og snauð.
Þöggun.
Þöggunin fólst í því að fólki var með ýmsu móti gerð grein fyrir því að gagnrýnisraddir ættu ekki upp á pallborðið. Fólk fékk ekki vinnu og sagt er að sumir hafi hrakist úr störfum sínum vegna skoðana sinna.
Frásögn Hallgríms Helgasonar rithöfundar af fundi með forsætisráðherranum Davíð Oddssyni varð fræg. Sá síðarnefndi gaf í skyn að atvinnuöryggi ríkisstarfsmannsins, föður hins fyrrnefnda, gæti verið í hættu vegna gagnrýni sonarins.
Það var alþekkt aðferð þeirra sem höfðu tögl og hagldir að gera máflutning sem þeir voru ósammála tortryggilegan með því að gera fólki upp meiningar. Þau sem töluðu fyrir aðild að Evrópusambandinu vildu gefa útlendingum auðlindina – það er reyndar málflutningur sem tíðkast enn . Þau sem voru á móti gagnagrunninum (upplýsingum um heilbrigði og sjúkdómssögu allra landsmanna sem afhenda átti Íslenskri erfðagreiningu) voru á móti vísindum, rannsóknum og þróun – svei mér þá ef ekki líka listum. Þannig var málflutningur fólks skrumskældur og úr lagi færður.
Blessunarlega höfum við verið svo til laus við þessarar þöggunartilhneigingar undanfarna mánuði. Fólk getur um frjálst höfuð strokið og haft þær skoðanir sem það sjálft kýs án þess að óttast að vera sett í einhvers konar frysti.
Óþjóðholl umræða.
Í umræðum á Alþingi í vetur hafa þingmenn stjórnarandstöðu á stundum haldið því fram að stjórnarþingmenn hafi talað máli Breta og Hollendinga. Þetta jafngildir auðvitað ásökun um óþjóðhallan málflutning og stundum hefur fólk sín á milli haft á orði að þetta geti jafnast á við ásökun um landráð. Þingmenn hafa látið þetta yfir sig ganga, hvort heldur það hefur verið skynsamlegt eða ekki.
Nú í vikunni urðu kaflaskil í umræðu af þessu tagi á löggjafarsamkomunni. Formaður Framsóknarflokksins spurði forsætisráðherra hvort ekki væri rétt að reka Ann Sibert úr peningastefnunefnd. Ann Sibert sem er hagfræðingur birti grein á vefsíðunni voxeu.org þar sem hún greinir frá því að miðað við að hluti Tryggingasjóðs af eignum Landbankans standi undir 90 % af Icesave skuldbindingunum geri áætlanir ráð fyrir að núvirði af Icesave samningnum nemi 14 % af þjóðarframleiðslu en ekki 50 % eins og einhverjir hafa haldið fram.
Það hefur verið hávær krafa um að faglega, eins og það er kallað, sé tekið á málum. Skipun peningastefnunefndar er svar við því kalli. Í henni sitja því hagfræðingar. En þegar ,,fagleg“ niðurstaða er önnur en sú sem þóknast stjórnmálamanninum Sigmundi Davið þá skal reka hagfræðinginn. Þessi faglega niðurstaða passar nefnilega ekki inn í málflutning stjórnmálamannsins.
Ann Sibert er ekki eini fræðimaðurinn sem fer í taugarnar á formanni Framsóknarflokksins það gerir líka hagfræðiprófessorinn Þórólfur Matthíasson. Sigmundur Davíð spurði forsætiráðherrann að því hvort henni þætti ekki ástæða til að eiga orðastað við þann ríkisstarfsmann. Það rifjast óneitanlega upp fyrir konu hvað átt er við með akademisku frelsi. Það er einmitt til að tryggja fræðimönnum aðstöðu og frelsi til rannsókna og skoðana, sem kannski stangast á við ríkjandi viðhorf.
Vondar og góðar skoðanir.
Það er hættulegt þegar ein skoðun er talin rétt og önnur ekki. Það er atlaga að frelsinu hvað sem það heitir þegar ein skoðun er talin ,,betri“ eða ,,réttari“ en önnur. Við getum verið ósammála hvort öðru og orðið blá af bræði yfir skoðunum annars fólks, en við megum ekki detta í þann fúla pytt að úthýsa skoðunum vegna þess að þær séu ,,verri“ en okkar eigin. Í Sovétinu voru skoðanir sorteraðar á þann hátt og handhafar vondra skoðana voru sendir í Gúlagið.
Í þeirri erfiðu deilu sem við eigum við Breta og Hollendinga verða tilfinningar fólks heitar, ekki skal ég gagnrýna það. Í bloggheimum birtist þetta mjög skýrt og stundum hugsar kona að fólk skyldi gæta að sér áður eins það ýtir á ,,send“.
Ég man ekki hvor þeirra það var Jónas Kristjánsson eða Egill Helgason sem birti um daginn nokkur heilræði til að hafa í huga þegar bloggað er. Þetta voru góð ráð, enda báðir vanir og flottir fréttamenn - bloggarar. Þess vegna varð ég fyrir nokkrum vonbrigðum þegar ég las eftirfarandi í Silfrinu hans Egils á Eyjunni í vikunni. ,,Margir hafa gagnrýnt Þórólf Matthíasson prófessor fyrir skrif hans um Icesave málið. En hann spyr líka spurninga sem eru áleitnar, til dæmis um ábyrgð kjósenda sem ár eftir ár kjósa yfir sig vanhæfa stjórnmálamenn sem aftur raða vanhæfum embættismönnum í stöður hjá ríkinu.“
Af hverju varð ég fyrir vonbrigðum ? Vegna þess að klausan sagði mér þetta: Þórólfur er réttilega gagnrýndur fyrir skoðanir sínar á Icesave – (þær eru ekki góðar). Þórólfi er samt sem áður viðbjargandi vegna þess að hann spyr líkaáleitina spurninga (sem eru góðar). - Ég verð að segja fyrir mig að ég held að frá sjónarhorni fréttamannsins hljóti skrif Þórólfs um Icesave málið einnig að vera áleitin. Hann hefur verið eins og hrópandinn í eyðimörkinni og haldið fram skoðunum sem ,,fagleg“ þekking hans leiðir hann til þrátt fyrir vægast sagt fjandsamlegt almenningsálit. Væri ég karl og gengi með hatt tækí ég ofan fyrir Þórólfi.
Sjálf var ég þeirrar skoðunar að við hefðum átt að ganga að samningnum eins og hann lá fyrir í fyrrasumar, ég er enn þeirrar skoðunar. Ég styð hins vegar hverja þá tilraun sem gerð er til að ná betri samningum. Ég læt framtíðinni það eftir að dæma um hvaða leið hefði kostað okkur minnsta peninga. Í deilum okkar um þetta mál megum samt ekki missa sjónar á því sem aldrei verður metið til fjár en það er frelsið til að hafa og tjá skoðanir sínar, hversu vitlausar sem öðrum kann að finnast þær.
Valgerður Bjarnadóttir
Þetta er hverju orði sannara. Það er ömurlegt að stjórnmálamenn skuli ekki geta tekið þátt í málefnalegri umræðu með rökum en krefjist þess að að fólk sem er þeim ósammála verði rekið úr starfi. Það segir meira um Sigmund Gunnlaugsson og hans málefnafátækt og skort á rökum, heldur en um þá sem verða fyrir árásum hans.
Ég er sammála þér að ég tek hattinn ofan fyrir þeim fagmönnum sem halda áfram heiðarlegum málflutningi þrátt fyrir óvægnar ávirðingar. Þórólfur Matthíasson er heiðarlegur fræðimaður sem segir það sem hann telur satt og rétt og eigi erindi við almenning. Vona að hann haldi því áfram og veit að ég er ekki ein um þessa skoðun.
Já já. Það er nú svo.
Þetta tal sumra um að það sé verið „að tala máli B&H“ og að slík orðræða nái alla leið inná háttvirt Alþingi er auðvitað ótrúlegt og gerir mann verulega hugsi.
Erfitt að lýsa þessu. Veit ekki, það vantar eiginlega orð.
En menn hafa svo sem verið ofsóttir hreinlega fyrir að halda fram staðreyndum í gegnum tíðina. Sem dæmi Gallíleó.
Sæl Valgerður.
Þar sem ég er karl og geng stundum með hatt þá verð ég fyrir þessa grein (og annað sem þú hefur gert) að taka ofan fyrir þér.
Ég var að segja við konuna mína rétt áðan að ég dáist að þér fyrir gáfur og sterkt siðferði.
Eiginlega er stórmerkilegt að þú skulir þrífast innan um alla ómerkilegu skíthælana þarna niðri á alþingi (viljandi með litlu a-i)
Takk kærlega fyrir þitt starf Valgerður og megi þér verða sem mest ágengt í framtíðinni.
Vigdís Finnbogadótir sagði að skólakerfið hefði ekki kennt Íslendingum að rökræða. Margir sem hafa horft á beinar útsendingar frá alþingi segja að þeir fyrirverði sig fyrir umræðunrar þar. Álit manna á alþingi hefur aldrei verið minna! Því miður virðast margir nýir þingmenn ekki einu sinni kunna mannasiði, hvað þá skammast sín!
Á öðru bloggi hér á Eyjunni var verið að auglýsa stjórnmálaskóla F-flokksins þar sem aðalkennarinn verður Sigmundur Davíð! Ætli Siv og Guðmundur þurfi ekki fyrst að taka hann í kennslustund áður en hann getur kennt einhverjum. Ætli þessi skóli bjóði næst upp á kennslustund hjá ræðuskörungnum Vigdísi Hauksdóttur!!!!!!!!!!!! Hvernig verður orðbragð nemanna eftir það!!
Jónas frá Hriflu var þekktur fyrir að reyna að kúga skoðanir sinna flokksmanna og annarra. Hann virðist hafa endurholgast í S.D.G.
Tek heilshugar undir hvert orð í þessum pistli. Takk fyrir.
Ég verð að viðurkenna að ég fæ áfall – lýsir sér eins og yfirvofandi reiðikast -, sem ég verð að bæla, í hvert skifti sem hr. S D Gunnlaugsson opnar munninn.
Guðmundur Heiðar Frímannsson, kennari og heimspekingur á Akureyri, sagði í þættirnum Heimur hugmyndanna á Rás 1 þann 14. feb. sl. að hann væri kominn á þá skoðun eftir reynslu síðustu mánaða að ferill þjóðríkja líktist ferli mannverunnar og að því leiti virtumst við Íslendingar vera á unglingsskeiði enda ungt ríki.
Mér finnst þetta einmitt lýsa sér í því hvernig þeir félagar og foringjar í stjórnarandstöðu og ýmsir skoðanabræður, aðallega lögfræðingar og talnakúnstnerar, auk þessa fyrirbæris InDefence, hafa laðað fram þessa eiginleika hjá þjóðinni og beinlínis sóað meiri hluta þingtímanns síðastliðna 8 mánuði, eða svo, í Icesave og valdið þjóðinni út á við og inn á við ómetanlegum skaða.
Sæl Valgerður og mikið er ég sammála þér.
Eitt lítið dæmi vil ég nefna um þessa þöggun, en það var þegar Falun Gong kom til landsins á sínum tíma til að vekja athygli á harðneskju kínverskra stjórnvalda gegn andófsmönnum í Kína í tilefni af opinberri heimsókn kínverska forsetans, Jiangs Zemin, til Íslands í júní 2002. Davíð Oddsson var forsætisráðherra þegar þetta var.
Hannes H. Gissurarson, prófessor, var þá enn í hópi vina minna. Hann vildi setja nafn sitt á auglýsingu til að mótmæla framkomu íslenskra stjórnvalda gagnvart Falun Gong. Þú manst, þeir fengu ekki að koma til landsins og voru jafnvel settir í einhvers konar búðir í Njarðvík, áður en þeim var snúið til baka, þeim, sem á annað borð komust til landsins. Mótmæli Falun Gong felast í ákveðnum æfingum og eru án ofbeldis.
Hannes hringdi í mig vegna þess að hann óttaðist um sinn hag. Ef hann myndi setja nafn sitt á auglýsinguna myndi hann falla í ónáð hjá leiðtoga sínum, Davíð Oddssyni. Ég sagði honum, að Davíð gæti ekki og mætti ekki hafa þau áhrif á hann, þennan mikla andstæðing kommúnisma og fasisma, lærisvein Hayeks, að hann þyrði ekki að standa með sannfæringu sinni gegn ofríki kommúnismans. Okkur bæri skylda til að taka stöðu með andófsmönnum kommúnismans. Davíð hlyti að skilja þetta. Hannes væri einn helsti hugmyndafræðingur íslenskrar frjálshyggju um langt árabil. Ég hvatti hann eindregið til að setja nafn sitt á auglýsinguna. Hannes gerði það líka og ég fylltist stolti fyrir hans hönd, þegar ég sá nafn hans á auglýsingunni skömmu síðar. Fannst það sterkt hjá honum.
Nokkrum dögum síðar hringdi Hannes grátandi, ég meina ekki kjökrandi heldur háskælandi í mig vegna þess, að hann næði engu sambandi við Davíð Oddsson. Davíð svaraði ekki skilaboðum, tæki ekki símann og virti hann ekki viðlits. Mér brá. Var þetta virkilega Hannes H. Gissurarson, vinur minn og félagi í baráttunni gegn hinum alþjóðlega kommúnisma? Maðurinn, sem ég hafði litið upp til öll þessi ár? Var þetta þá styrkurinn, sannfæringin? Grátandi af ótta við að missa stöðu hjá leiðtoga sínum?
Ég sagði Hannesi þá skoðun mína, að hann yrði að herða upp hugann og standa á sannfæringu sinni. Ef Davíð Oddsson væri ekki stærri maður en þetta, ef hann skyldi ekki stöðu Hannesar gagnvart svona einföldu máli, þá yrði hann að una því. Davíð væri þá einfaldlega ekki stuðnings okkar virði.
Ég heyrði ekki frá Hannesi í nokkra daga eftir þetta símtal, en það er mér minnisstætt. Það er erfitt að hlusta á fullorðinn mann gráta. Örfáum dögum síðar hringdi Hannes aftur og þá lá vel á honum. Hann sagði, að hann hefði loksins náð sambandi við Davíð, sem hefði skammað sig hraustlega fyrir að taka stöðu með andstæðingum sínum (Davíðs) með því að mótmæla meðferðinni á Falun Gong. Það skyldi hann ekki gera aftur. Hann hefði hlaupið á sig. Að sjálfsögðu hefði verið nauðsynlegt að taka hart á þessu fólki, þessu Falun Gong liði. Íslensk stjórnvöld gætu ekki með öðrum hætti tekið á svona mótmælendum. Hefðu hvorki mannafla né annan viðbúnað til þess. Hannes var ekki frá því að þetta gæti verið rétt hjá Davíð. Honum leið að minnsta kosti vel, að vera kominn í náðina á nýjan leik.
Þetta er ekki eina sagan af þessu tagi, sem ég kann og leiddi til þess að leiðir okkar Davíðs gátu ekki legið saman.
Að lokum þetta: Sjálfstæðisflokkur Davíðs Oddssonar breyttist í skrímsli þöggunar og kúgunar vegna þess að menn á borð við Hannes H. Gissurarson létu brjóta sig undir agann, þeir þorðu ekki að standa á sannfæringu sinni og hætta stöðu sinni gegn leiðtoganum þegar mest á reyndi. Því fór sem fór.
Með kveðju,
Hreinn Loftsson.
Sel Valgerður, aðeins ein spurning varðandi fjárhagsstöðu þjóðarinnar. Afhverju er ekki endurvakin óháð stofnun eins og Efnahagsstofnunin var ætlað að vera samkvæmt frumvarpi Steingríms J o.fl frá okt, 2008?
http://www.althingi.is/altext/136/s/0004.html
Núna virðist Seðlabankinn vera framlenging af stjórnarráðinu og tölur sem varða ríkisfjármál umdeilanlegar. Hvernig geta alþingismenn talað af ábyrgð um Ríkisfjármál og tekið afstöðu til mála eins og Icesave þegar svona er í pottinn búið?
Stórmerkilegur pistill, þakka þér fyrir Valgerður.
Takk Valgerður fyrir frábæra grein.
Frásögn Hreins er svo það sem hægt er að kalla með rentu… rúsínan í pylsuendanum. Þvílíkt og annað eins! Vissi að HHG væri í einkennilegu sambandi við goðið sitt en þessi saga segir allt sem segja þarf um Sjálfstæðisflokkinn og Leiðtogann Mikla.
Afskaplega fróðlegt Komment frá Hreini Loftssyni og lýsir eflaust Sjálfstæðisflokknum, Davíð og hjarðmennskunni sem þar ríkir betur en margt annað.
Sæl Valgerður. Takk fyrir mjög góða grein og greiningu á því fyrirbrigði í stjórnmálum nútímans sem ber nafnið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hann er svo eft búinn að ganga fram af mér undanfarna mánuði að ég hef ei á því tölu. Hvað þá með ykkur þingmenn sem hafið setið undir hans málfluttningi dagana langa. Stjórnarandstaðan hefur valdið ómældum skaða undanfarna mánuði.
Innlegg Hreins Loftssonar er mjög gott og athyglisvert. Þarna talar maður sem hefur verið í innsta hring einvaldsins og þekkir vel til.
Þöggun hefur verið gríðarleg í þjóðfélaginu og nú þegar stýflan er brostin, flæða fram miklar tilfinningar í bland við rökræður. Reiðin og skammirnar eru líka gríðarlegar sem er skiljanlegt. En það er persónulegt nýð sem veður nú uppi og er mjög skaðlegt og ljótt. Ég hef verið á moggablogginu og nú á síðustu vikum hef ég lokað á 2 einstaklinga eftir að þeir sendu mér ítrekað skilaboð sem innihéldu árásir á mig sem persónu.
Takk fyrir þessa stórgóðu grein Valgerður. Innlegg Hreins Loftssonar er allrar athygli vert.
Sæl höfðingi ! Þessi grein er svo yfirveguð, fagleg og mannleg – og svo rétt.
Umræður í kjölfarið mjög góðar og gott að sjá Hrein Loftsson taka þátt í umræðunni með okkur öllum hinum.
Ég hitti þig á fundi um daginn og pikkaði í þig og þakkaði afmæliskveðjur – við eigum hann þann 13.
Í þessu skelfilega umróti – þessum vondu tímum þar upplýsingar eru í svo gífurlegu magni – þá ber þessi grein af.
Valgerður – þeir eru ekki margir stjórnmálamenn sem ég ber traust til í dag – og það þykir mér vont – en þú ert svo sannarlega ein af þeim sem ég treysti sem þingmanni og persónu.
Takk fyrir þessi skrif.
Frábær pistill Valgerður og ekki síður er innlegg Hreins Loftssonar athyglisvert .
Því miður fer það ekki framhjá neinum að Davíð Oddsson hefur á ný tekið öll völd í Sjálfstæðissfllokknum.
Það þarf að halda því á lofti að 5 aðalsökudólgarnir í Icesave
eru .
1. Davíð Oddsson sem gaf Björgólfsfeðgum Landsbankann.
2.Björgólfur Guðmundsson formaður bankaráðsins.
3.Kjartan Gunnarsson varaformaður bankaráðsins.
4.Halldór Jón Kristjánsson bankastjóri .
5.Sigurjón Þ Árnasson bankastjóri.
Allt innmúraðir og innvígðir Sjálfstæðissmenn ef einhverjir eru landráðamenn eru það þessir 5 einstaklingar.
Það verður að komast til skila að ríkisstjórnin á enga sök á Icesave.
Sjálfstæðissflokkurinn á þar hinsvegar alla sök í raun væri sanngjarnara að þessir 50 þúsund einstaklingar sem sagðir eru vera í flokknum tækju á sig þá 600 milljarða sem icesave og gjaldþrot Seðlabankans er talið kosta þjóðina heldur en að öll þjóðin þurfi að bera þann kostnað.
Ég er ekki að mæla með því að sú leið verði farinn að þvinga þá til að borga enda gengur það ekki í Lýðræðissríki.
það er hinsvegar sjálfsagt að reyna að höfða til samvisku þeirra og skora á þá að borga þetta eru rétt um 12 milljónir á hvern flokksbundinn Sjálfstæðismann.
Sæl Vala
Kjarnmikil grein sem ér er sammála og þarf að dreifast víðar.
Var innleggið frá Hreini Loftssyni ekta?
Ég er hætt að treysta flestu sem ég les úr þeim hópi.
Vonandi tekst okkur að komast út úr þessum ólestri sem við erum stödd í núna. Ég er alveg á nippinu að fara burt! Ég get valið um vinnu víða erlendis. Það berast atvinnutilboð daglega.
Ég vil helst verða um kyrrt og sýna samstöðu og taka þátt. En hvernig á maður að geta samþykkt bullið i kringum það að grunaðir glæpamenn haldi áfram að stjórna fyrirtækjum sem þeir settu svo kyrfilega á hausinn og hafi líka forgang í að kaupa þau fyrir slikk og rétta þau við? Eða hvað ætla þeir að gera. Mig langar ekki að eiga viðskipti við þessa kauða.
Senda svo reikninginn á okkur skattborgarana? Við getum engan vegin lifað í svona gegnumspilltu samfélagi. Þið stjórnmálamenn verðið að sannfæra okkur borgarana um að það verði virkilega tekið á þessum spillingamálum og stutt við bakið á þjóðinni sem á auðvitað alltaf að vera í fyrsta sæti.
Hér verður að taka til svo um munar.
Sæl Vala og takk fyrir góða grein. Ekki veitir af að hafa konu á Alþingi Íslendinga sem er heiðarleg, óspillt og réttsýn. Ég gleðst alltaf við skrif þín og óska þess að þú megir sitja sem lengst og vaka yfir velferð okkar.
Frábær grein Valgerður. Og gaman verður að fylgjast með framhaldinu á innleggi Hreins Loftssonar.
Það er skelfilegt í lýðræðisþjóðfélagi sem rétt svo er að komast undan hælnum á davíð oddsyni að heyra Sigmund Davíð tala. Í hans huga virðist allt vera rangt sem ekki kemur frá honum, eða samræmist hans skoðunum. HANN HEFUR RÉTT FYRIR SÉR, ALLTAF, ALLTAF.
Vona að sumir þingmenn fari að hugsa sinn gang í málefnalegri umræðu. Eins og, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir ofl.
Hér eru allir með sömu skoðun. Góða skoðun þá eða hvað ?
Ágæta Bogga það er þitt að meta hvort heldur er. Enda öllum frjálst að tjá sig. Davíð er farinn þér er óhætt að opna þig.
frábært innlegg…Sigmundssonurinn vill líklega innleiða Berufsverbot.
Þessi anekdóta Hreins á eftir að rata í margar sögubækur framtímans.
Þrælmennskan þekki enga sæmd.
Hún hefur aldrei haft efni á henni.
Helga er hann sigmundur ómálefnalegur, getur þú valgerður svarað henni, að í Icesave málinu var hann með rök á móti í 73 liðum?? hann kom með efnahagstillögur í feb í fyrra í 18 liðum? vað vantar uppá Helga, að þú fylgist með?
Hólmfríður, stjórnarandstaðan er búin að valda óbætanlegu tjóni!!! á þá fyrri stjórnaranstaðan ekki töluvert í hruninu, ef andstaðan hefur svona mikil völd? en mjög gott að þú vðurkennir að hér hafi orðið tjón með Jóhönnu semskipstjóra, en trúðu mér, þetta klúður (icesave, skjaldborg um fjármalafyrirtækin, gjöf til sömu eigenda, ofl ofl)eigið þið sjálf,
helga valgerður og hólmfríður
1. ætlið þið aðsegja já eða nei í atkvæðagreiðslunni
2 teljið þið að það sé hægt að hita kált vant með því að frysta það?
sumir sögðu meðal ykkar að Ísland yrði fyrst úr kreppunni (vegna gæða landsins og gengi gjaldmiðilsins ofl.) af hverju erum vi? orðin síðust?
3. af hverju eru þið með óþol gagnvart Sigmundi, en klappið fyrir indriða, þórólfi og önnu sibert? eru þið ekki með okkur íslendingum í liði… á móti uk og hollandi
Sæl Valgerður,
Þetta er frábær grein. Það átti að samþykkja samninginn í fyrrasumar en ríkisstjórninni mistókst það. Því miður. Ég var að vona að hægt væri að fella þessar skuldbindingar niður eftir 5-8 ár þegar um hægist eftir Hrunið og aðrir menn væru komnir til valda. En stjórnarandstaðan og forsetinn hafa nú fest Icesave um háls þjóðarinnar með málþófi og neitun. Nú fáum við samning „á okkar nótum“ í skjóli stjórnarandstöðunnar og þurfum að klára allt dæmið.
Þjóðin virðist ekki vilja skilja að bankahrundið er á ábyrgð B- og D – flokka sem sigldu okkur í strand með óvönduðum vinnubrögðum þegar bankarnir voru afhentir vildarvinum þeirra. Bankavinavæðingin var mikið óheillaspor og verst að þjóðin fékk ekki andmælarétt á skýrslu einkavæðinganefndarinnar.
Hverjum datt eiginlega í hug að hægt væri að græða meira en einn milljarð á hlutabréfaeign í íslenskum banka á tuttugu árum? Hvers vegna var fólk að taka íbúðarlán þegar svona vildarkjör buðust?
Og enginn virðist eiga að bera ábyrgð á þessu Hruni nema þeir sem hvergi komu nærri þessu eða sauðsvartur almúginn sem enn mærir D-flokkinn. Það var tekið veð í holdi okkar og blóði, barna okkar og barnabarna að okkur forspurðum.
Siðspilling !
Þú segir “ í Icesave málinu var hann með rök á móti í 73 liðum, hann kom með efnahagstillögur í feb í fyrra í 18 liðum“
Gott og blessað en munurinn á honum og flestum öðrum er að hann getur ekki skilið að hans tillögur eða rök eru ekki endilega réttari en annað.
Hann getur ekki skilið að aðrar skoðanir eða rök geta verið jafn rétt eða réttari en hans.
Athugaðu svo það að ganga frá samningi við breta og hollendinga í fyrra var ákvörðun um að lágmarka tjón sem hlýst af töfum á að ganga frá Icesave, og hefur hlotist. Það er ekki að vera á móti þjóðinni eða vera með bretum og hollendingum. Það er að reyna að gera sem best úr slæmum arfi frá framsóknar og sjálfstæðismönnum.
Frábær grein og innlegg Hreins Loftssonar mjög gott. Það er orðið alltof sjaldséð blogg þar sem fólk ræðir samann og er ekki með skítkast út í þá sem eru ósammála í einhverjum þáttum.
Það verður stór reikningurinn sem lendir á þjóðinni frá Forsetanum Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, Indefence hópnum og trúðunum í forustu Framsóknar og Sjálfstæðisflokknum. Það er mjög vafasamt að forsetinn hafi þennan rétt þegar hann var búin að skrifa undir samsvarandi lög í sumar og tími til kominn að koma þessum málskotsrétti á hreint með því að lagfæra stórgallaða stjórnarskrá landsins í þessum efnum.
En haltu ótrauð áfram þinum störfum því þú ert einn af fáum stjórnmálamönnum sem þjóðin ber trú og traust til.
Ég er karl og geng ekki með hatt. En tek samt ofan fyrir þér fyrir þessa grein.
Góð lesning
Mjög nauðsynlegt að hafa kurteisi í huga í okkar litla samfélag og get deilt skoðunum.
Kona spyr hversvegna á ekki að að reyna á lagalegu hlið í þessu Icesave máli einsog öðrum málum það skil ég bara ekki.
Kona spyr hversvegna hjólar þessi ríkisstjórn í sömu hjólförunum og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn með að gera ekki neitt í því að leiðrétta stöðu almennings í þessu landi.
Kona spyr hversvegan leyfir þessi Ríkisstjórn áframhaldandi ábyrgðaleysi og vonleysi , tekur ekki á spillingarmálum í bankakerfinu og skilanefndum … sukkið heldur áfram bara í öðru formi.
Kona spyr hvernig geta Ráðherrar og þingmenn horft upp á endalaust sukk í þessu litla þjóðfélgi og ekki gert neitt nema að argast um einhverjar blogg greinar og hvað var gert 2007.
Kona spyr það er 2010 hvað hefur breyst til batnaðar og þá hvar í okkar góða þjóðfélagi.
Hvernig stendur á því að manni finnst þetta mál sem tröllriðið hefur allri umræðu á landinu í meira en ár vera eins og björgunarhringur sem stjórnmálamenn halda dauðahaldi í og velta upp aftur og aftur kannski til að þjóðin sem er bálreið beini ekki reiði sinni að þessum einstaklingum sem hafa með athöfnum og stundum skorti á viðbrögðum, komið okkur í þessa „fordæmalausu“ stöðu. Er ekki búið að teygja þennan helvítis lopa nóg?
Þetta er bara reikningsdæmi og verður leyst sem slíkt. málið dautt.
nepótisminn verður ekki minni eftir að þetta mál verður gleymt og grafið. Það verður áfram sama djöflulsins klíku og fyrirgreiðslupólitíkin eftir sem áður og það er VANDINN
Ljómandi grein.
Frábær grein hjá þér Valgerður. Takk fyrir.
Innlegg Hreins Loftssonar er mjög merkilegt. Loksins er staðfest það sem margir hafa haldið fram. Hann hélt sínum flokksmönnum og sérstaklega meðreiðarsveinum eins og HHG í gíslingu skoðanakúgunar. Og er enn að. Og meðreiðarsveininn passar sig nú að segja „rétt frá fyrir foringjann“. Það var á þessum ástæðum sem þetta samfélag féll. Sjálfstæðisflokkurinn er eins og liðið lík eftir þessa tíma. Enginn gagnrýnin hugsun, málin er rædd málefnalega, heldur með skítkasti og gera andstæðinginn tortryggilegan. Það sama gildir um Framsóknarflokk Sigmunds Davíðs Oddssonar.
„Sjálf var ég þeirrar skoðunar að við hefðum átt að ganga að samningnum eins og hann lá fyrir í fyrrasumar, ég er enn þeirrar skoðunar. “
Tek undir þetta með þér og er sjálfur sama sinnis.
Takk fyrir öflugan pistil.
LILJA
vALA,KOMDU FAGNANDI, ER ENN AÐ BURÐAST MEÐ SKOÐANIR,
OG
ÞESS HÁTTAR, SEM ÞÚ ENDURSPEGLAR
SVO EINSTAKLEGA VEL,BESTU ÞAKKIR,BARÁTTUKVEÐJUR.
Mjög góð, rökföst og málefnanleg grein. Vona að eftirfarandi ályktun sé nokkurn vegin rétt og verði höfð að leiðarljós í allri stjórnmálaumræðu:
„Blessunarlega höfum við verið svo til laus við þessarar þöggunartilhneigingar undanfarna mánuði. Fólk getur um frjálst höfuð strokið og haft þær skoðanir sem það sjálft kýs án þess að óttast að vera sett í einhvers konar frysti.“
Atarna var allt á skiljanlegri íslensku. Takk fyrir.
Frábær pistill valgerður – orð í tíma töluð. Mér finnst innlegg Hreins athyglisvert en þarf að fá staðfestingu á að þetta sé hann sem skrifaði þetta, áður en ég legg mat á það.
icesave samkomulagið = samfylking- allir sammála!!
ESB = samfylking- allir sammála!!
ekki hægt að að afskrifa t.d. 20% á alla = samfylking- allir sammála!!
er þetta ekki kallað Þöggun??
arri, ég var bara að rifja upp fyrir Helgi , að hann væri ekki ómálefnalegur, svo getum við öll verið sammála eða ósammála
en ætlið þið öll hér að ofan að segja já 6. mars?
valgerður?
Helga?
arri?
Hólmfríður?
Jón Gunnarsson?
er þöggunin svo mikil í ykkar flokki að þið segið enn já, þrátt fyrir að betri samningur munbjóðast??, er flokkshollusta svona gífurleg hjá ykkur
Er það kannski lýsandi fyrir Samfylkinguna að ráða í Seðalabankann Englending sem talar gegn sjálfstæði Íslands?
Aðstoðarmanni forsætisráðherra er ekki jafn umhugað um málfrelsi Evu Joly þegar hún talar máli Íslands eins og þessa furðulega Englendings, sem nýtir sér stöðu sína í bankanum til að draga taum bresku stjórnarinnar í deilunni um Æsseif.
Ég er hlyntur málfrelsi og auðvitað á Samfylkingin að velja sér alla þá talsmenn og fulltrúa sem hún vill.
Mikið gladdi það mig að sjá að það er til greind kona í Vesturbænum.
Siðspilling
Það er ekki þöggun þó einhver hópur sé sammála. Sé einstaklingum hinsvegar hótað eða þeir þvingaðir til að hafa ákveðna skoðun er það þvingun.
Í þeim tilvikum sem þú talar um er ekkert sem bendir til að einhvert afl reyni að þvinga einn eða neinn.
Það væri mitt síðasta að gefa upp hvað ég kýs og spurningar þína til ákveðinna einstaklinga er ólýðræðisleg.
Þó svo að ég telji að þeir samningar sem voru í boði sl. sumar hefðu átt að samþykkja, og hefði verið hagkvæmast fyrir þjóðina, þá tek ég auðvitað fagnandi betri samningi ef hann býðst.
En athugaðu það að þrátt fyrir að við næðum eitthvað betri samningum nú hefði samþykkt samningsins sl sumar orðið þjóðinni mun hagkvæmari vegna þess að biðstaðan hefur kostað okkur ógrynni fjár, og staða okkar væri að öllum líkindum miklu betri í dag ef við hefðum getað farið að koma hjólunum í gang þá.
Takk fyrir góða grein Valgerður!
). Þin vegna er samfélag okkar betra en ella.
Réttar skoðanir eða rangar? Ég vildi óska að þú ættir fleiri skoðanasystkini (þá er ég ekki að tala um flokkssystkini
NR39! Éger vissum að sumir myndu biðjennar ef þeir væru ekki þegar búniraðí!
Frábær pistill Valgerður – takk fyrir hann!
Skoðanir sem ekki má hafa:
1. Vera á móti giftingum homma og lesbía
2. Vera með virkjunum.
3. Vera framsóknarmaður
4. Vera með greiðslu Icesave reikninga
5. Hafa meðaumkun með útrásarvíkingum
6. Vera með ESB aðild
7. Vera á móti innflutningi fólks.
8. Vilja reka „flóttamenn“ úr landi
9. Hafa samúð með Hannesi Hólmsteini.
10. Koma ekki auga á skjaldborgina og velferðarbrúna.
11. Vilja selja Jóhannesi í Bónus Haga.
Með kveðju
Björn S. Lárusson
Takk fyrir þetta Valgerður. Sammála þér og vildi eins og fleiri hér á undan að þú ættir fleiri skoðannasystkyni. Mig langar samt að minna þig á fund sem við vorum saman á sl. haust og situr í mér vegna þess að ég upplifði hann sem skoðannakúgun. Skoðannakúgun felst í því að koma í veg fyrir að aðrar raddir heyrist – fyrir það fékk HHG refsinguna. Refsingin var að ýta honum út (tímabundið) þó D.oddson ætti allt undir því að fæla hann ekki frá sér.
Hinn nýi Framsóknarflokkur predikar fasisma. Það er ekkert hægt að orða þetta öðru vísi.
Allar skoðanir sem ekki samræmast skoðunum formanns Framsóknarflokksins eru óíslenskar, hættulegar og ætti helst að banna. Alla vega að reka þá úr starfi sem dirfast að halda þeim fram.
Þeir sem héldu að nýr tími væri að renna upp þegar yngri maður var kosinn sem formaður þessa gamalgróna flokks, hafa vaknað upp við vondan draum.
Sigmundur Davíð er helsti arftaki nafna síns Davíðs Oddssonar, hvað varðar gífuryrði og skoðanakúgun. Hversu lengi ætla góðir og gegnir Framsóknarmenn að sætta sig við það?
44. BLÁR.
Að öllu leyti sammála þér, nema no. 8.9. lið.
Það er afar fróðlegt að sjá hvað skoðanafrelsi Englendingsins í peningastefnunefnd Seðlabankans eru ykkur heilagt.
Heiðarlegra væri þó að viðurkenna að þessi persóna talar sem fulltrúi Seðlabankanas og Samfylkingarinnar á opinberum vettvangi gegn eftirfarandi
a) Sjálfstæði Íslands
b) Betri kjörum fyrir íslenska þjóð á Ísklafanum
Auðvitað eiga aðrir flokkar ekki að skipta sér af hvaða fulltrúa Samfylkingin skipar en þeir geta haft skoðanir á því.
Sigurður Þórðarson, er 19.öldin enn við lýði hjá þér? Mega Englendingar ekki hafa skoðanafrelsi á íslenskum málefnum? Eða er skoðanafrelsið bara fyrir Íslendinga. Kannski talar hún einmitt með sjálfstæði okkar lands þar sem hún lýsir staðreyndum. En það hefur ætíð farið illa í margan landann, að horfast í augu við staðreyndir. Þess vegna hrundi nú allt saman. Stjórnmála- og viðskiptalífið gat ekki feisað að hér var bankakerfi sem stóð á brauðfótum með ekkert back-up kerfi. Bara, það mátti ekki segja það, því þá voru menn „tala niður bankana“. Gegn þjóðarhagsmunum. Þvílíkt endalaust sjálfstæðisraus um ekki neitt.
Ég er algerlega ósammála Sigmundi um að segja eigi upp þessum enska fulltrúa Samfylkingarinnar enda er þetta þeirra fulltrúi sem þeir eru gríðarlega sáttir við og „líkir fiskar spyrðast best.“Best hvhvað fngin hætta á að viðkoma
takk fyrir bloggið valgerður, vona að þeir sem hafa kosið sjálfstæðisflokkinn aftur og aftur í kosníngum til alþingis, hugsi sinn gang.
Eitthvað var þetta endasleppt hjá mér.
Það verður alltaf til undarlegt fólk í útlöndum sem finnst að Ísland eigi eða geti alls ekki að vera sjálfstætt en ef það sé sjálfstætt geti það vel borgað háa vexti af umdeildri upphæð.
Þetta fólk má auðvitað hafa sínar skoðanir en manni finnst sérkennilegt af Samfylkingunni að leita það uppi til að setja í trúnaðarstöður
Hún er athyglisverð þessi Samfylkingarumræða.
Þjóðin þarf hins vegar að gera sér grein fyrir atburðarásinni,
sem fyrst var undir stjórn B og D. Síðan D og S. Núna S og VG og framtíðin að hluta óráðin.
Atburðarásin leiðir hins vegar til þess að fullkomið rán verður framkvæmt á þjóðinni ef ekki verður gripið inn í á afgerandi hátt.
1. Þjóðbankarnir voru gefnir í heilu lagi.
2. Bankarnir voru skuldsettir upp í rjáfur.
3. Fjármunir voru lánaðir til útrásarfyrirtækjanna gegn veðum sem oft voru léleg eða engin.
4. Fjármunir töpuðust og fóru í ofurlaunakjör og alls kyns sóun.
5. Peningar sem lánaðir voru til útrásarmanna fóru í fyrirtækjaviðskipti, þar sem gera má ráð fyrir að ákveðin fyrirtæki þeirra sömu manna t.d. á Tortólu hafi fengið þóknanir fyrir hverja hreyfingu. Þarna vantar upplýsingar.
6. Bankarnir ríkisvæddir, en síðan einkavæddir að miklu leiti til útlendinga, sem áttu þá að vísu þá þegar.
7. Bankarnir hálf gefa stórfyrirtækin, en innheimta stökkbreyttra lána almennings rukkuð að fullu.
8. Gríðarlegar skuldbyndingar lagðar á almenning vegna Icesave til þess að erlend ríki verði ekki fyrir tjóni vegna framferðis einkafyrirtækja, sem slógu ekki slöku við innheimtuna hjá þeim sem nú eiga að borga fyrir þá.
9. Nýju bankarnir geta valsað með peningana óáreittir, en með ríkisábyrgð á innlánum.
Hverjir ætla að grípa inn í þessa atburðarás ? Samfylkingin ?
Samfylkingin þarf þá að fara að líta til hagsmuna almennings hérlendis, en ekki bara hagsmuna fyrrverandi nýlenduvelda.
Þakka þér fyrir frábæra grein!
Það sem vekur mig til umhugsunar, eftir að hafa lesið ummælin hér á síðunni, er þessi fjöldi sem ekki þorir að hafa skoðun og standa við hana, slíkur er óttinn enn eftir ógnarstjórn Davíðs að þetta fólk þorir ekki að koma fram undir nafni.
Þó að margt sé að breytast hvað varðar frelsi fólks til þess að hafa skoðanir, þá eru enn mörg ljón á veginum hvað það varðar.
Þinn flokkur er langt í frá að vera einhver engill í því máli. Ráðherrar ykkar mættu með sprengjubeltin á ríkisstjórnarfundi og hótuðu að sprengja ríkisstjórnina ef Ögmundur hefði ekki sömu skoðun og þau í Icesave.
Ég er hinsvegar alveg sammál þér hvað varðar Icesave, það átti að samþykkja fyrsta samninginn strax og snúa sér að uppbyggingunni, sem Sigmundur Davíð og Bjarni Ben, ásamt flokkum þeirra hafa tafið og kostað okkur mikið meira en það sem hugsanlegur skárri samningur gæti fært okkur til baka.
Athyglisvert er að SDG hefur ekki rökrætt niðurstöður Ann Sibert.
Hann hefur ekki bent á hvað er rangt í því, sem hún hefur sett fram.
Heil og sæl Valgerður og þakka þér góða grein.
Viðbrögð formanns Framsóknarflokksins vegna skrifa Ann Silbert eru í anda Jónasar frá Hriflu. Pilturinn hlýtur að hafa kynnt sér sögu flokksins og tileinkað sér það sem hann taldi skárst til eftirbreytni. Þöggun hefur verið landlæg í okkar kæra landi frá „ómunatíð“. Ég held þó að Davíð Oddsson hafi gengið lengst á þessum vettvangi, þegar hann lagði niður heila stofnun af því honum geðjaðist ekki talnalegum staðreyndum, sem frá henni komu. Frá 15 ára blaða- og fréttamannsferli kann ég að segja frá mörgum þöggunarmálum. Læt það bíða betri tíma. – En ég nota þetta tækifæri til að spyrja hvort einhverjir lesendur síðunnar muni eftir jákvæðri orðræðu hins unga formanns Framsóknar. Ef svo er, væri mikils virði að rifja hana upp. Svo fágæt væri hún.
B.k. ÁG
Many people like to back burberry handbags , Because They think it can appear more Noble . But some people prefer burberry bags , Also some people just look for a brand , if They like the words on the Gucci handbags , Gucci brand on the prolonged use of words , no Matter how the tense changes , and They Preferences is not easy to change . They think providing not only allow They own qualities and more , can also embody Drugs They own , so dazzling in front of They own . Also some people like to feature on the point of putting on shoes , such as ugg boot , Even though it is the world ’s most Ugly shoes , but is very comfortable to Wear , Felt Wear it very personal .