Valgarður Guðjónsson

Rokkjavík 2
Ég verð að fá að halda áfram að fjalla um skemmtilega hugmynd Belgíska læknisins Wim Van Hooste – þeas. að halda hljómleika í tilefni af 30 ára afmæli Rokk í Reykjavík – sem er um það bil að verða að veruleika á Gauk á Stöng, næsta fimmtudag, 24. maí 2012.

Dagskráin verður:

20:00 Rímur

20:05 Sudden Weather Change

20:40 Morðingjarnir

21:15 Æla

21:50 Hellvar

22:15 Hlé: Sigurvegari úr Videó samkeppni kynntir – Spjall frá Wim Van Hooste

22:30 Mosi frændi

23:05 Dr. Gunni

23:40 Q4U

00:15 Fræbbblarnir

01:00 (lýkur)

Og ég veit af að minnsta kosti einu óvæntu atriði sem ég lofaði að segja ekki frá.

Fyrir áhugasama þá verður prógram okkar Fræbbbla byggt á gömlu efni að mestu leyti, væntanlega:

Ljóð

Police & Thieves

CBGB‘s

Nekrófíll í Paradís

Þúsund ár

Lover Please

A Message To You, Rudy

Bjór

Hippar

Judge A Pope Just By The Cover

Æskuminning

Í nótt

Með þeim fyrirvara að eitthvað gæti breyst ef tímaáætlun stenst ekki.

Helgi Briem verður fjarverandi á bassann en ný endur-inngengir meðlimir spila, Þorsteinn Hallgrímsson á bassa og Ríkharður H. Friðriksson á gítar.

Þá eigum við von á að hluti blásarasveitar hinnar frábæru Ojba Rasta detti inn í eitt eða tvö lög með okkur.

Skattur á auðtrúaða
Það er oft sagt að lottó og önnur fjárhættuspil séu skattur á þá sem kunna ekki að reikna.

Á sama hátt má segja að kukl-, hjávísinda-, heilunar-, detox-, álfa-, miðla-, drauga- og hómopataiðnaðurinn sé skattur á þá sem eru auðtrúa.

Það var ágætis samantekt á þessu í DV um daginn.

Það er nefnilega þannig að ef ekki er hægt að sýna fram á með hlutlausum tilraunum að eitthvað virki – þá er lang líklegasta skýringin sú að það virkar ekki.

Blogg eða blöð
Ég var að ræða við fræðimann áðan um ákveðið deilumál, sem skiptir ekki máli. Hann taldi sig hafa fært rök fyrir sinni skoðun sem enginn hefði hrakið. Ég benti á að ég hefði þvert á móti hrakið þessi rök vel og vandlega. Hvar spurði hann. Nú í bloggfærslu.

Það þótti honum fullkomlega verðlaust. Að þetta hafi ekki verið prentað í gamal dags prentmiðlum þýddi að skoðanirnar voru nánast verðlausar.

Ég er á því að skoðanir eigi að meta eftir því hversu góð rök eru færð fyrir þeim. Ekki eftir því hver heldur þeim fram. Og þaðan af síður hvort þær hafa birst í einhverjum prentmiðlum eða ekki. Það er ekki endilega staðfesting á því að skoðanir séu einhvers virði að þær fáist birtar í prentmiðlun.

En kannski sendi ég einhverju blaðinu viðkomandi grein til birtingar. Þá hljóta skoðanir mínar að vera rosalega mikils virði. Að minnsta kosti í huga einhverra…

Til hamingju HK
Ég á víst varla að kalla mig Kópavogsbúa eftir að hafa búið 29 ár í Reykjavík. En mitt lið er Breiðablik og mér fannst frábært þegar liðið náði loksins Íslandsmeistaratitli í karlaflokki 2010. Og einhvern veginn er ég alltaf Kópavogsbúi þegar kemur að íþróttunum og er nýlega farinn að æfa Karate hjá Breiðabliki þrátt fyrir háan aldur, þannig séð. En ég hef aldrei samþykkt þennan ríg milli Kópavogsfélaganna. Þegar ég vann fyrir Breiðablik í fótboltanum hafði ég meiri áhuga á samstarfi og mér fannst frábært að Kópavogur ætti tvö lið í efstu deild karla í fótbolta.

Nú var HK að færa Kópavogsbúum fyrsta Íslandsmeistaratitil bæjarins í handbolta. Frábært. Til hamingju HK!

Gullbrúðkaupsafmæliskveðjur
Ég þarf rétt að fá að óska tengdaforeldrunum til hamingjum með gullbrúðkaupsafmælið í dag.. Fimmtíu ár.

Þá eigum við Iðunn 29 ára brúðkaupsafmæli í dag.

Það var eiginlega nokkuð klókt hjá okkur að velja sama dag fyrir tæpum þrjátíu árum. Við höfum haldið saman upp á daginn nánast á hverju ári (fyrir utan 2-3 skipti þegar einhver er ekki á landinu) og átt virkilega góða brúðkaupsafmælisdaga saman.

Og kannski er við hæfi að óska mér sjálfum til hamingju með að hafa kynnst þessari frábæru fjölskyldu.

Gagnrýni eða bannárátta
Mikið rosalega er þreytandi að mega aldrei hafa skoðanir á einu eða neinu án þess að fá stöðugt á sig „þú vilt bara banna og þú vilt ritskoða“..

Ég man ekki til að hafa viljað banna heimskulega hluti. Þvert á móti finnst mér mikilvægt að (fullorðið) fólk hafi fullt frelsi til að taka heimskulegar ákvarðanir svo framarlega sem þær bitna ekki (úr hófi) á öðrum. En á meðan ég greiði fyrir hluti, ýmist beint eða í formi skatta, þá vil ég hafa eitthvað um það að segja hvernig þeim fjármunum er varið. Ég vil fá að hafa skoðun án þess að fá svona skítkast til baka.

Ég geri mér ekki alveg grein fyrir hvort þeir – sem gera þessar athugasemdir, ýmist í athugasemdakerfinu hér eða í eigin bloggfærslum – eru raunverulega svona treggáfaðir („með rökhugsunarlega áskorun“?) eða hvort þetta er hrein „sandkassa“ (bið krakka sem hafa gaman af sandkössum afsökunar)  illkvittni til að vera með skítkast.

Ég skrifaði um daginn færslu þar sem ég velti upp því hvort RÚV ætti að sýna mynd sem stenst illa skoðun. Aðallega gerði ég athugasemd við kynningu RÚV á myndinni og sem betur fer tók RÚV mark á þessu og breytti kynningunni.

Viðbrögðin hafa að lang mestu leyti verið jákvæð en það eru alltaf nokkrir sem koma með „þú vilt bara fá að ráða því einn hvað er sannleikur“ og „þú vilt banna allt á YouTube sem þér hentar ekki“ – þeas. ef ég leyfi mér að sameina nokkrar athugasemdir.

Ég velti því sem sagt fyrir mér hver tilgangurinn er með svona athugasemdum. Einhverjar hugmyndir?

Spurning til Valitor
Mig langar að beina opinni spurningu til Valitors, fyrst þeir svara ekki beinum fyrirspurnum frá mér.

Forsagan er að ég keypti gallaða vöru, eða réttara sagt, ég fékk afhenta aðra vöru en ég var að kaupa.

Ég reyndi að skila, en söluaðilinni harðneitaði að taka til baka, sagði ýmist að ég hefði fengið það sem ég átti að fá, eða að hann hefði aldrei sagt að ákveðin atriði ættu að vera til staðar. Ég læt vera að fara út í smáatriði, en ég á reyndar mjög skondna upptöku af sölumanninum að reyna að ljúga sig út úr þessu.

Nú var ekki sjálfgefið hvað rétt væri að gera. Ég hafði greitt með Visa korti frá Valitor og hringdi í þjónustuver Valitors og fékk þau svör að ég yrði að skila vörunni til að eiga möguleika á endurgreiðslu. Það er rétt að taka fram að engu var lofað og tekið fram að þetta gæti orðið erfitt. En viðkomandi starfsmaður ráðlagði okkur samt að skila vörunni þrátt fyrir að ljóst væri að við fengjum ekki kvittun fyrir skilunum.

Ég ákvað að láta á þetta reyna og tók upp „video“ á símann þegar ég afhenti vöruna.

Þegar á reyndi var vonlaust að fá endurgreiðslu. Upptökur af svikunum skipta engu máli og það eitt skiptir máli að við skrifuðum undir sölunótuna.

Það sem mér finnst verra er að Valitor tekur enga ábyrgð á þeirri ráðgjöf að segja okkur að skila vörunni til að eiga möguleika á endurgreiðslu, þegar fullljóst var að við ættum enga möguleika á endurgreiðslu nema fá kvittun.

Nokkrar fyrirspurnir hafa engu skilað nema fara fram hjá þessu aðalatriði og síðustu tveimur fyrirspurnum hafa þeir ekki látið svo lítið að svara. Sú seinni var, „fannst ykkur þetta eðlileg ráðgjöf og mynduð þið veita okkur sömu ráð ef við lentum aftur í þessari stöðu?“.

Mig langar rosalega að fá svar.

Á RÚV að sýna svona rugl?
Ég sé að RÚV hefur sett mynd á dagskrá hjá sér á miðvikudagskvöld (2. maí) sem þeir kynna sem „Heimildamynd um nýjar uppgötvanir sem breyta skilningi fólks á því hvernig á að halda heilsu og kraftaverkalækningar sem ekki er hægt að útskýra með hefðbundnum vísindum.“

Nú má RÚV eins og aðrar sjónvarpsstöðvar sýna hvaða rugl sem er mín vegna. Eða kannski ekki. Kannski á að gera meiri kröfur til ríkisrekinnar sjónvarpsstöðvar. En burtséð frá því.

Hvernig dettur mönnum þarna á bæ að kynna svona þvælu sem „heimildamynd“? Það hefur aldrei verið sýnt fram á með nokkrum hætti að einhvers konar kraftaverkalækningar hafi í einu einasta tilfelli virkað. Aldrei. Þess vegna er einfaldlega ekki hægt að gera „heimildamynd“ um þetta.

Nú má fólk trúa hvaða vitleysu sem er mín vegna og taka heimskulegar ákvarðanir um eigin heilsu. Mín vegna. En ég geri athugasemdir við að breiða út trú á einhverja dómsdags vitleysu. Og ég er eiginlega verulega reiður að sjá hvernig almannafé er varið í svona bábiljur.

Þetta stuðar mig kannski sérstaklega vegna þess að ég hef talsvert kynnst og unnið með starfsmönnum RÚV og sjaldan séð annað en mikinn vilja til að vinna af fagmennsku.

Nokkrar spurningar:

Gerir RÚV engar kröfur til innihalds þess sem er sýnt?

Eru engar viðmiðanir um hvað má kalla heimildamynd?

Horfði einhver á þessa mynd áður en ákveðið var að taka hana til sýninga?

Kynnti einhver sér gagnrýni á myndina áður en ákveðið var að setja hana á dagskrá?

Það má sjá gagnrýni á myndina hér http://www.sciencebasedmedicine.org/index.php/the-living-matrix-a-movie-promoting-energy-medicine-beliefs/

Eins og í mörgum svona „heimildamyndum“ þá er öllu grautað saman, engar sannanir fyrir fullyrðingum sem þar eru settar fram. Ekkert hefur verið prófað. Engar tilraunar hafa farið fram. Þetta eru samhengislausar „reynslusögur“ án nokkurra staðfestinga. Listinn yfir rangfærslur er ótrúlega langur, ýmist fullyrt án sannana eða beinlínis fullyrt eitthvað sem löngu hefur verið afsannað.

Af hverju er mér ekki sama? Jú, þetta er nefnilega ekki bara áróður fyrir heimsku. Þetta er beinlínis lífshættulegt.

Svo er fjallað um þetta hér http://www.vantru.is/2012/05/02/13.30/

Rokk í Reykjavík – taka tvö
Þá er dagskráin á Rokk í Reykjavík afmælishljómleikunum að mestu klár, svona með einhverjum fyrirvörum. Og lítur óneitanlega rosalega vel út.

Þarna verða Sudden Weather Change, Q4U, Æla, Mosi frændi, Morðingjarnir, Dr. Gunni, Hellvar og Fræbbblarnir.

Hljómleikarnir verða 24. maí á Gauknum og það má sjá meira á http://rockinreykjavik.blogspot.com/

Almannatengslaráðgjöf…
Mig dreymdi aðra hliðina á skondun símtali um daginn. Kannski er ég skyggn, þeas. ég héldi það kannski ef ég tryði á svoleiðis vitleysu.

Já, MOKA góðan dag… jú, það er rétt við sérhæfum okkar í almannatengsla ráðgjöf fyrir þá sem eru í verulegum vandræðum  og þurfa einmitt að „moka“ út. Það má segja að við séum með tilbúinn pakka.

Nei, nei, þetta er frekar einfalt, við getum afgreitt þetta í gegnum í síma. Í fyrsta lagi er lykilatriði að vera reiður og móðgaður. Þú gerir bara lítið úr öllum andstæðingum þínum og öllum sem eru þér ekki sammála. Öfgafólk, hatursfullir einstaklingar, pólitískar andstæðingar og þar fram eftir götunum. Og gera alla að andstæðingum sem ekki hafa tekið afdráttarlausa afstöðu með þér. Og þú gerir auðvitað lítið úr þeim öllum.

Nú, nú, skipuðuð þið þetta fólk sjálfir? Og hvað, samherjar til margra ára? Það skiptir engu, hver heldurðu að muni eftir því? Bara hamra á því að gera lítið úr þeim.

Nei, hlustaðu. Þú ræðir ekkert málefnalega og svarar engu um efnisatriði. Vertur reiður, vertu sár og vertu móðgaður.

Jú, jú, auðvitað geta alltaf einhverjar fréttamenn þráast við að spyrja um efnisatriði. Ef þú kemst ekki mögulega hjá spurningum um efnistatriði málsins, þá er bara að benda á eitthvað annað. Einhver annar sem hefur gert eitthvað svipað. Segja að þetta hafi nú alltaf verið svona. Benda á einhver mistök sem einhver annar hefur gert.

Vertu ekki með þennan barnaskap, það skiptir ekki nokkru máli þó það finnist ekkert sambærilegt dæmi, bentu bara á eitthvað, helst nógu langsótt og gamalt sem enginn man eftir. Þeir geta ekki rekið eitthvað ofan í þig sem þeir muna ekki eftir.

Bara muna: „hinir“ eru hatursfullt öfgafólk.

Náðu svo í eintak af rökvillubók Michael LaBossiere, “42 Fallacies“. Hún er reyndar skrifuð fyrir þá sem vilja sjá í gegn um rökvillur, en þú lest hana auðvitað með þveröfugu hugarfari. Það er fullt af fínum hugmyndum þarna sem hafa reynst vel.