Tryggvi Þór Herbertsson

blogg á eyjan.is

Rottur

1.8 2011 | 14:02 | Lokað fyrir ummæli

Milli þils og moldarveggja

man ég eftir þeim,

ljótu rottunum

með löngu skottunum

og stóru tönnunum,

sem storka mönnunum,

sem  ýla og tísta

og tönnum gnísta

og naga og naga

nætur og daga.

.

Fjöldi manna

felur sig bak við tjöldin.

Þeir narta í orðstír nágrannanna,

niðra þeim, sem hafa völdin,

eiga holu í hlýjum bæjum,

hlera og standa á gægjum,

grafa undan stoðum sterkum,

stoltir af sínum myrkraverkum.

Allar nætur, alla daga

er eðli þeirra og saga

að líkjast rottunum

með löngu skottunum

og naga, naga.

.

Höf.: Davíð Stefánsson

Flokkar: Óflokkað