Tryggvi Þór Herbertsson

blogg á eyjan.is

3.524 Íslendingar með ofurlaun…

10.3 2011 | 10:12 | Lokað fyrir ummæli

Í gær fjallaði ég aðeins um ofurlaun og ætla að bæta smá við í dag.

Lilja Mósesdóttir (VG) og Ólína Þorvarðardóttir (S) hafa fallið í faðma yfir hugmyndinni um að „ofurlaun“ þau er borguð eru bankastjórum viðskiptabankanna kalli á „ofurskatta“. Spámenn eins og Þráinn Bertelsson (B, BH, VG) og fleiri hafa tekið heils hugar undir þessa kröfu opinberlega.

Tvær skilgreiningar á ofurmánaðarlaunum hef ég tíðast heyrt í umræðunni. Annars vegar 1 milljón og þar yfir og hins vegar 1,2 milljónir og þar yfir. Lilja vill að settur verði 60-70% skattur á ofurlaunin og Ólína 70-80%  sem viðbrögð við því að einn bankastjóra þjóðarinnar er með 1,1 milljón í tekjur á mánuði, annar með 2,4 milljónir og sá þriðji með 2,9 milljónir.  Þingflokkur VG hefur tekið undir heils hugar að slíkum ofurlaunum verði að mæta með „viðeigandi sköttum“.

Nú er það svo að 3.524 íslendingar voru með meira en 1 milljón í laun á mánuði og 2.082 með meira en 1,2 milljónir á síðasta ári.

Hversu mikið vit er í að innleiða eignaupptökuskattþrep eins og Lilja, Ólína, Þráinn og þingflokkur VG vilja vegna launa þriggja einstaklinga?

Flokkar: Óflokkað