Tryggvi Þór Herbertsson

blogg á eyjan.is

Kæri Teitur

7.9 2009 | 15:52 | 48 ummæli

Takk fyrir afsökunarbeiðnina sem var reyndar algjörlega óþörf enda snérist umkvörtun mín aðallega um áferðina almennt á skrifum þinum, s.s. að kalla kjósendur sjálfstæðisflokksins sækópata. En hvað um það. Þú ferð fram á afsökunarbeiðni við mig. Þar sem greinilegt er að hugur fylgir máli hjá þér finn ég mig knúinn til að sýna sömu einlægni og auðmýkt.  
 
Ég bið þig hér með afsökunar á því að reglugerðarverkið á Íslandi hafi verið gallað. Ég bið þig afsökunar á því að bankamenn hafi hagað sér ógætilega. Ég bið þig afsökunar á því að eftirlitsstofnanir hafi ekki verið starfi sínu vaxtnar. Ég bið þig afsökunar á því að alheimsfjármálakreppan hafi ýtt Íslandi fram af brúninni. Ég bið þig afsökunar á öllum misgjörðum stjórnmálamanna, hagfræðinga og bankamanna, heima og erlendis, síðastliðin tuttugu ár. Ég bið þig afsökunar á því að kreppan hafi leikið þig grátt. En ég ætla ekki að biðja þig afsökunar á því að vera sjálfstæðismaður.
 
Jafnframt vil ég leiðrétta eftirfarandi staðhæfingar sem koma fram í afsökunarbeiðni þinni sem eru eflaust smávægileg mistök af þinni hálfu (þarft samt ekki að biðja afsökunar). Að ég sé kúluspegúlant (aldrei fengið kúlulán hjá banka hvað þá fengið slíkt fellt niður). Að bankinn sem ég stjórnaði sé skammlífasti banki Evrópu (hann er í fullum rekstri og er með ágæta eiginfjárstöðu). Að fjármálagerningar mínir munu kosta íslenska skattgreiðendur milljarðatugi (aldrei heyrt það áður og skil ekki hvernig það mætti vera). Að ég hafi skrifað lygaskýrslu nokkrum vikum fyrir hrunið með Mishkin (skýrslan var gefin út tveim og hálfu ári fyrir hrunið og flest í henni rétt nema að við sáum ekki fyrir fjármálahrunið í október 2008 frekar en aðrir).  
 
Með góðri kveðju,
 
 
Tryggvi Þór

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (48)

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 7.9 2009 kl. 16:27

    Ætli Björgvin G. Sigurðsson noti ekki þetta blogg Teits sem sönnun þess hvernig rangfærslu, rógur og níð undir fullu nafni, sem er stundað á vefnum er stórhættulegt þjóðfélaginu og verður að uppræta strax? (O:

  •   Pétur Maack // 7.9 2009 kl. 16:38

    Hmmm,

    athyglisverð skrif Tryggvi. Stíllinn er svona „don´t hate the player, hate the game.“

    Má ég þá spyrja: Hefur þetta alltaf verið þín skoðun eða voru „góðu auðmennirnir“ (sem gerðu lög og reglur óþörf) einhvern tíma hluti af þínum hugmyndum líkt og hjá sumum samflokksmönnum þínum?

  •   Viskíprestur // 7.9 2009 kl. 16:43

    Ágæt færsla hjá Tryggva. En þetta fannst mér fyndið:

    Ég bið þig afsökunar á því að alheimsfjármálakreppan hafi ýtt Íslandi fram af brúninni.

    Var ekki Ísland logandi og stjórnlaus trukkur á leið fram af bjargi með sofandi bílstjóra innanborðs – hvað sem kreppunni líður? Í alvöru talað? Er nokkuð hægt að ýta slíku hrjótandi ferlíki í eldhafi fram af brúninni – og nota auk þess orðalag sem lýsir helst alheimsfjármálarkeppunni sem reiðum og risavöxnum eiginmanni, og Íslandi þá sem frómri og pervisinni eiginkonu sem lenti í fanti sem hratt henni ofan í örlagagljúfrið ógurlega??

    Nei, þetta gengur ekki upp. Nær engri átt. Ekki ef mann hafa haft augu og eyru opin síðastliðið ár.

  •   Jóhann // 7.9 2009 kl. 17:01

    Snillingur Tryggvi…

  •   Þórður Magnússon // 7.9 2009 kl. 17:05

    Nei Tryggvi, alheimskreppan ýtti okkur ekki fram af brúninni, við keyrðum fram af brúninni á rúmlega tvöhundruð kílómetra hraða og rannsókn á slysstað leiddi í ljós að það voru engin bremsuför.

    Annar teldi ég að þið félagarnir ættuð að fara að fá ykkur herbergi…

  •   Þórður Þ. Sigurjónsson // 7.9 2009 kl. 17:11

    Ég tek undir hjá nafna mínum og fleirum hér að ofan. Að kenna alheimskreppunni um ófarir og siðleysi íslenskra bankamanna og framlínustjórnmálamanna síðustu árin er álíka vitlaus og sú fullyrðing á skýin séu gerð úr rjómaís.

  •   Gísli // 7.9 2009 kl. 17:24

    Tryggvi, eiginlega bara ein spurning sem mig langar að spyrja (m.a. til að skapa umræðu um málið), hvað var það sem olli fjármála- og efnahagskreppunni á Íslandi ?
    Það að þú nefnir fyrst regluverk, finnst mér merkilegt, svo ekki sé meira sagt.

  •   Ísleifur Egill // 7.9 2009 kl. 17:32

    „aldrei fengið kúlulán hjá banka hvað þá fengið slíkt fellt niður“

    http://www.dv.is/frettir/2009/3/10/tryggvi-fekk-150-milljona-kululan/

    „Einkahlutafélag í eigu þáverandi forstjóra fjárfestingabankans Askar Capital, Tryggva Þórs Herbertssonar, fékk 150 milljóna kúlulán frá bankanum til að kaupa hlutabréf í bankanum sjálfum árið 2007.“

  •   SHG // 7.9 2009 kl. 17:37

    Eitt stendur uppúr hjá mér efti að hafa lesið skrifin milli þeirra Tryggva og Teits er: Hvernig geta 30% kosningabærra Ílendinga stutt Sjálsæðisflokkin eftir það sem á undan er gengið.

  •   Rikki // 7.9 2009 kl. 17:37

    Var Teitur ekki flúinn af landi brott löngu fyrir hrun?

  •   Daði // 7.9 2009 kl. 17:45

    Rosa gaman í sandkassanum.

  •   Handrukkarinn // 7.9 2009 kl. 17:46

    Hressandi að fylgjast með þessu

    Ég held að það sé algengt sentiment hjá rúmmlega 66 % íslendinga á kosningaaldri að Sjálfstæðis flokkurinn hafi ekki sýnt framm á að hafa farið í næga endurskoðnum á sínum gildum, þá svona yfirborðs gildum meina ég – eins og t.d. minna reglubákn, takamörkun á þáttöku ríkisins í atvinnurekstri, lægri skatta og svo framvegis.

    Ég er svosum ekkert hrifnari af miðstýringu, stjórnaðri af fólki sem er kosið í gegnum okkar (að mínu mati spillta) kosningakerfi. Regluleysi og eða reglugerðir stjórnsýslu stéttarinnar (og ég kalla þetta stétt af því að á íslandi er augljóst að svo sé þegar menn eru orðnir flokksbundnir áður en þeir verða tvítugir) – er bæði opið fyrir spillingu.

    Þannig að ég get ekki séð að þó að ákveðin stjórnspeki hafi brugðist okkur í þetta skiptið – að það bæti upp aðrar stjórnspekir sem eiga líka misjafna sögu.

    Hinsvegar get eg alveg tekið undir það að Sjálfstæðismenn hafi að sumu leiti verið hálf rænulausir síðan eftir hrun.
    - Sérstaklega fór í taugarnar á mér horfandi á landsfund fyrir kosningar að hver Sjálfstæðismaðurinn kom á eftir öðrum uppí pontu og talaði um „að nú væri sjálfstæðisflokkurinn búinn að ganga í gegnum rækilega endurskoðun“ vegna einhverrar skýrslu sem síðan fyrrverandi formaður reif í sig við mikinn fögnuð á sama landsfundi. Þetta fannst mér til marks um að þarna færi ekki marktækur flokkur (allavega í augnablikinu)

    Síðan heyrir maður dáldið mikið frá Sjálfstæðismönnum – eins og nýjum formanni ungliðahreyfingarinnar – að það hafi ekki verið stefnan sem brást heldur eitthvað annað („fólkið“ að mér skyllst – en samt er að er virðist eini maðurinn sem má pönkast á í sjálfstæðisflokknum Geir Haarde, og líklega vegna þess að Davíð og Hannes fíla hann ekki eftir að hann fór uppí rúm með Samfó)

    Stefnan (eins og ég segi; svona á yfirborðinu) var að rýmka reglur – og frelsisvæða atvinnulífið

    Eftir því sem ég sé best þá voru það regluverk og eftirlit sem hvað hellst klikkaði í þessari kreppu (fyrir utan náttúrulega kolruglaða buisness kalla á kókaín flippi) – þetta regluverk var rýmkað af Sjálfstæðisflokk og Framsókn í þeirri trú að Markaðir væru einhverskonar lokuð cybernetic feedback loop-a sem hefðu eftirlit með sjálfum sér.

    Það myndi ég segja að hafi verið gullin regla frjálshyggju – byggð á ósannanlegum forsendum – sem augljóslega klikkaði.

    Afhverju ekki bara að viðurkenna það? að hugmyndafræðin hafi verið gölluð – Allan Greenspan hefur viðurkennt það og Bandaríkjamenn skítu ekki nærri eins mikið á sig eins og við gerðum (miðað við höfðatölu)

    Ég held samt að ég hafi svarið við því afhverju það er ekki viðurkennt opinberlega. Þar sem stjórnskipulags-“vísindi“ eru varla vísindi þar sem ekki er hægt að gera tilraunir nema eina í einu og í rauntíma (þarafleiðandi enginn raunverulegur samanburður) þá bíða núna skósveinar/sveinkur annara hugmyndafræða í ofvæni eftir að fá að prufa sínar kenningar (og í leiðinni koma sér í þægilega stöðu – en það er aukaatriði ; ) .

    Skósveinar/sveinkur annara hugmynda girnast í viðurkenningu á að helsta antithesis við þeirra hugmyndir sé viðurkennd sem dauð og ómerk því þá er völlurinn opinn fyrir þá, þó svo að slíkt sé órökrétt (ef eitthvað er vitlaust þýðir það ekki að andstæðan sé rétt)

    Ég held að sjálfstæðismenn séu að reyna að halda uppi þeirri hugsjón að mikil miðstýrining sé af hinu vonda, þó svo að þeirra offar hafi líka verið af hinu vonda – þessvegna þora þeir ekki að viðurkenna þetta.

    Síðan að lokum er eitt sem fer í taugarnar á mér. Það er þegar Sjálfstæðismenn vilja gera mikinn greinamun á frjálshyggju og nýfrjálshyggju (sem reyndar er mikill munur á – ein stefnan hefur aldrei verið til nema á pappír og hin hefur verið stunduð útum allann heim með slöppum árangri – allavega uppá síðkastið) og síðan segjat vera að berjast fyrir frjálshyggju en ekki nýfrjálshyggju. —–

    Sko: þið getið alveg sagt það sem þið viljið (svona eins og rétt fyrir kosningar) það er samt ekki samasem og að þið séuð búinir að framkvæma það sem sagt var. Ef einhver flokkur hagar sér eins og nýfjrálshyggjusinni en talar eins og fjalshyggjusinni, þá fær hann ekki prik í kladdann fyrir það sem er í orði en ekki á borði – hitt þó miklu heldur.

    Ég held ekki að frjálshyggja sé dauð- Ég held að hún hafi háð nokkra áratuga stríð gegn miðstýringu en látið sefjast og spillst og endað sem skynlaus miðstýring sjálf sem fór offari eins
    hauslaus hæna. Ef við horfum á sögunna þá hefur vald hægt og rólega (með aukinni tækni) komist í hendur fleiri og fleiri (við byrjum með faróa – síðan keisara – síðan kónga sem afsöluðu sér smávegis vald til the court – síðan republic- síðan democracy) Það er augljóst fyrir öllum nema hörðustu beurocrötum og fasistum að síkviku kerfi verður ekki miðstýrt með góðu móti – þennig að frelsis hugsjónir, í daglegu lífi svo sem á viðskiptamarkaði mun lifa áframm. Vandamálið er að treysta því hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi einhvern skilning eða rænu til að skilja um hvað þessar hugsjónir sínar fjalla í áframhaldinu og hvort þeim takist að skýra það út fyrir okkur hinum

    Það er allavega augljóst að þeim er ekki að takast það núna.

    Bestu kveðjur

  •   Diddi // 7.9 2009 kl. 17:57

    Mér sýnist Ísleifur Egill vera að jarða Tryggva Þór.

  •   Skítlegt eðli // 7.9 2009 kl. 18:01

    30% fólks er fúst
    FLokkinn enn að velja
    sem landið hefur lagt í rúst
    og langar allt að selja

  •   Þórður Ingi // 7.9 2009 kl. 18:02

    Diddi: Ertu að tala um þennan sem vitnaði í DV? Rock solid heimildir ha…..

  •   Gunnr // 7.9 2009 kl. 18:07

    …. mér finnst þú heldur hafa sloppið vel Tryggvi minn miðað við það sem þú hefur í raun áorkað. Fengið borgað fyrir að skrifa undir heilbrigðisvottorð íslenska fjármálakerfisins 2007, verið fjármálastjóri Werners bræðra og þeirra fjármálaævintýra, og ætti engum að koma á á óvart myndu enda í fangelisdómi hvort sem það væri í Evrópu eða Bandaríkjunum. Þeir bræður hafa nú stöðu grunaðra og þetta skilst mér sé rannsakað sem sakamál. Þeir tæmdu bótasjóð Sjóvá Almennra og fylltu hann af drasleignum og alvöru skuldum og mér skilst að þú hafir í raun varið þetta. Það að FME hafi ekki gert athugasemd þýðir ekki að það sé allt í lagi eða er það? Þú hefur að lokum fengið og afskrifað kúlulán.

  •   Batman // 7.9 2009 kl. 18:10

    Diddi

    Ritstjóri DV hefur boðist til að birta leiðréttingu á þessari frétt samkvæmt Tryggva – Tryggvi afþáði

  •   Teitur Atlason // 7.9 2009 kl. 18:11

    Sæll Tryggvi. Mér er lúft og skylt að segja þér að ég er búin að laga blogggfærsluna ógurlegu í samræmi við athugasemdir þínar.

  •   tryggvi þór // 7.9 2009 kl. 18:19

    Teitur. Fínt mál! Má ég þá skrá þig í sjálfstæðisflokkinn?

  •   LS // 7.9 2009 kl. 18:21

    Teitur er drengur góður, en í vondum félagsskap..

    LS.

  •   Teitur Atlason // 7.9 2009 kl. 18:30

    Nei. Vertu ekkert að því.

    Ég er of mikill einstaklingshyggjumaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

  •   tryggvi þór // 7.9 2009 kl. 18:32

    Teitur. Hehe. ég sýni þér smám saman ljísið :-)

  •   hannes // 7.9 2009 kl. 18:43

    Góð færsla að vanda Tryggvi :)

  •   Handrukkarinn // 7.9 2009 kl. 18:47

    Ég mæli með þessum fyrirlestri Mark Pesce (fann um VRML) varðandi nettækni og notkun hennar

    Á við í sambandi við umræðu um stöðu bloggsins uppá síðkastið

    http://vimeo.com/5527261

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 7.9 2009 kl. 18:56

    Fyrir þá sem gagnrýna Tryggva fyrir að vera meðhöfundur misvísandi skýrslugerðar um ástand fjármálamarkaðsins, meira en 2 árum fyrir hrun, þá er það kannski ekki sanngjarnt að pönkast á honum fyrir það, nema að um meira en 2 ára ábyrgð er á slíkri vinnu?

    Vandræðalegri þykir undirrituðum þögn fyrrverandi viðskipta og bankamálaráðherra, Björgvins G. Sigurðssonar varðandi bloggfærslu (sem hann kannast ekki við, en undirritaður las á heimasíðunni hans) þar sem hann dáist að útrásarföntunum, bönkunum og öllu því sem þeir voru að framkvæma, og lamdi á öllum þeim sem eitthvað misjafnt höfðu um þá að segja, og fullyrti að það væri ekkert annað en öfund og rógur.

    Færslan var frá 5. ágúst 2008, 2 mánuðum fyrir bankahrunið og þá örugglega ennþá í ábyrgð.

  •   Valur B (áður Valsól) // 7.9 2009 kl. 19:02

    Þið Sjálfstæðismenn hamist við að endurskrifa söguna og finnst mér það afar óviturt. Þið hefðuð átt að fara að ráðum endurreisnarhópsins og biðja afsökunar á stjórnarstefnu Sjálfstæðisflokksins undanfarna áratugi. Auðmýkt er betri kostur en hroki og yfirlæti.

  •   Gunnar // 7.9 2009 kl. 19:10

    Það eina ranga í stefnunni var sócíalismi fjármálakerfisins. Í krafti ríkisábyrgðar gat öll þessi vitleysa gerst. Án ríkisábyrgðar hefðu þessir menn aldrei fengið þessi lán og farið á hausinn fyrir löngu.

    Eigum við svo að ræða aðeins afleiðingar stefnu sócíalísku flokkanna síðustu 100 ár?

  •   Haukur Kristinsson // 7.9 2009 kl. 19:11

    Tryggvi Þór er 2007 prototype.
    Þeir gerast varla betri.
    Hrunið var heimsfjármálakreppunni að kenna + eitthvað ísl. regluverk í smáu letri. Halló, þvílík vitleysa, og þetta kapazität senda mínir nágrannar á þing.
    Dómgreind mannsins er ekki fimm aura virði.

  •   Gísli // 7.9 2009 kl. 19:36

    Ég er ekki að pönkast, en spyr aftur Tryggvi : hvað var það sem olli fjármála- og efnahagskreppunni á Íslandi ?
    Endilega sendu inn línu þegar þú ert tilbúinn að svara.

  •   Teitur Atlason // 7.9 2009 kl. 20:00

    Af hverju þrætir þú fyrir að hafa fengið kúlulán þegar þú fékkst kúlulán?

    Ég tók út heila málsgrein á blogginu mínu vegna þess að ég var ekki 100% viss um þetta. Reyndar eru þetti mál þér tengd orðin svo mörg og svo misvísiandi að það þarf límheila til að muna þetta allt almennilega.

    Svaraðu nú Tryggvi Þór Herbertsson.

    Reyndar er pínulítið erfitt að finna ferli Tryggva einhver orð án þess að verða reiður. Kúlulánaspekúlantinum sem var einhverskonar bankastjóri

  •   Sigurður #1 // 7.9 2009 kl. 20:04

    Sjálfstæðismenn og forystumenn bankanna eru nú almennt með það á hreinu að þeir beri enga ábyrgð á þessu.

    Flokkurinn sem hefur stýrt landinu í tæp 20ár fullyrðir daglega að hafa staðið sig vel og ekkert gert rangt.

    Bankastjórarnir stýrðu líka bönkunum vel og af skynsemi.

    Þetta er allt helvítis flatskjárkaupum almennings að kenna.

    Það var í raun almenningur sem setti hér allt á hliðina með glórulausum flatskjárkaupum og því eðlilegast að senda honum reikninginn fyrir herlegheitin.

  •   Prófessor Mambó // 7.9 2009 kl. 21:51

    Tryggvi Þór er um margt merkilegur stjórnmálamaður. Hann kemur með tillögur en stundar ekki niðurrif, hann færir yfirleitt rök fyrir máli sínu, hann er vel menntaður, hann hlífir sér ekki og dæmi um það er að hann leyfir athugasemdir við bloggið sitt.

    Síðan er hin hliðin. Hann er eitt helsta birtingarform græðgi og þeirra tíma sem við viljum helst að aldrei hefðu verið.

    Það getur karlinn aldrei þvegið af sér.

  •   tryggvi þór // 7.9 2009 kl. 23:33

    Teitur. Þetta er eitthvað mixed-up hjá þér. Ég hef aldrei fengið kúlulán frá bönkunum, sjá fyrsta blogg mitt á eyjunni.

    Kúlulán „bullet“ er lán með einum gjalda þar sem vextir og höfuðstóll eru greiddir í einni greiðslu á tilteknum gjalddaga. Algengt lánsform sem m.a. ríkið hefur notað síðustu 30 ár.

    Ástæðan fyrir því að kúlulán hafa fengi á sig óorð á Íslandi er eftirfarandi: bankarnir lánuðu starfsmönnum sínum í kúlu til að kaupa hlutabréf á tilteknu verði á markaði. Hugmyndin var að hlutabréfaverðið myndi hækka og að á gjaldaga kúlunnar myndi starfsmaðurinn selja hlutabréfin, endurgreiða lán og vexti og græða afganginn. Það sem gerðist í Kaupþingi var að persónulegum ábyrgðum var aflétt af starfsmönnum – þeir þurftu ekki að borga þegar hlutabréfin lækkuðu (í hruninu) í stað þess að hækka.

    Margt bendir til að þetta hafi m.a. verið leið til að halda uppi bréfi bankanna. Nú er spurningin hver það var sem borgaði fyrst starfsmennirnir þurftu ekki að borga. Svarið er að það féll á bankanna og varð til þess að lækka eigið fé þeirra. Í Kaupþingi og Glitni leiddi þetta til þess að minna var til upp í kröfur lánardrottana (sem voru að mestu erlendir). Í Landsbankanum varð þetta til þess að minna fæst upp í Icesave skuldbindingarnar.

    Það sem lendir á íslenskum skattgreiðendum vegna þessara gjörninga er eitthvað af Landbankabixinu en tæpast af hinum bönkunum.

    Ég ítreka að ég tók á engan þátt í þessum leik sem lýst er hér að ofan eins og áðurnefnt blogg greinir frá.

  •   Teitur Atlason // 8.9 2009 kl. 05:30

    Ég veit hvað kúlulán er :) Ég held að landsmönnum sé slétt sama hvað nákvæmlega þessir gerningar hétu. Kúlulán eða kassalán. Bara þetta að fá lánaða peninga hjá vinnuveitanda sínum í laun er mörgum ofviða að skilja.

    Þar með talin er ég og þó er ég meðalsnotur. Fólk er ekki brjálað út í kúlulánin sem slík, heldur það að sumir fengu það, en flestir ekki. Þetta var e-r kúlulánaklíka. -Sem þú varst í.

    Þú veist svo örugglega betur en svo að kostnaðurinn við þetta kúlukast mun að endanum lenda á skattborgurum, með smá snúningi þó. Seðlabankinn var tæmdur til að standa straum af útlánasukki stóru og litlu fjármálafyrirtækjanna og ekkert fæst upp í þær kröfur (þetta voru um 350 miljarðar ef þú mannst það ekki – Takk Davíð)

    Já, á endanum, þegar allt verður gert upp mun þetta enda á skattborgurum landsins.

  •   Hlynur Þór Magnússon // 8.9 2009 kl. 07:33

    Núna 8. september segir umbúðalaust í einu af dagblöðunum í morgun, þar sem fjallað er um orðaskipti Teits og Tryggva Þórs hér á Eyjunni: „Tryggvi er kúlulánaþegi …“

    Er þarna þá verið að endurtaka lygina í trausti þess að hún loði við manninn eða verði að sannleika ef hún er endurtekin nógu oft? Sbr. vinnubrögð Nixons – „látum þessa andskota neita því“ …

  •   Einar Jón // 8.9 2009 kl. 07:53

    Þetta er ekki afsökunarbeiðni.
    Þú viðurkennir enga misgjörð sem þó er helmingurinn af raunverulegri afsökun
    (http://www.m-w.com/dictionary/apology = an admission of error or discourtesy accompanied by an expression of regret.) – Teitur gerði það þó.

    Þú biðst afsökunar á að reglugerðir og eftirlit hafi ekki virkað, en ekki á því að þinn flokkur bar ábyrgð á að þau væru í lagi.
    Þú biðst afsökunar á að bankamenn hafi brugðist, en ekki á þætti þíns flokks í að búa þá stétt til.
    Regnhlífarafsökun „á öllum misgjörðum stjórnmálamanna, hagfræðinga og bankamanna, heima og erlendis, síðastliðin tuttugu ár“ er eins og að biðjast afsökunar á að það sé ekki sólskin og 30° hiti núna.
    Þú biðst afsökunar afleiðingum kreppunnar, en ekki á þætti þíns flokks í að búa hana til og dýpka margfalt á við önnur lönd.

    Semsagt ekkert ykkur að kenna þó að þið hafið stjórnað – en þú ert voða sorrý yfir því að allt sé óvart í rúst. Hvað er hægt að kalla svoleiðis mann annað en vindbelg, flautaþyril og froðusnakk?

    Ef þú telur að þessi ummæli sé móðgandi, þá biðst ég afsökunar á því (þ.e. skoðun þinni – ekki ummælunum).

  •   Sigún G. // 8.9 2009 kl. 08:38

    Frábær færsla Tryggvi.
    Dáist að þolinmæði þinni við þetta súra lið – sem heldur að þylja þessa möntru sína nógu oft geri hana að sannleika.

  •   Forvitinn // 8.9 2009 kl. 10:05

    „Ég bið þig afsökunar á því að alheimsfjármálakreppan hafi ýtt Íslandi fram af brúninni.“

    Thad er nu ad koma betur og betur i ljos ad vid vorum komnir i snoruna og bara spurning hvernær yrdi hert a hnutnum….

    Thad sem eg hef aldrei skilid ad thu hafir sagt i BBC ad islensku bankarnir væru traustir i beinni viku fyrir fall theirra. Eg hugsa ad thu hafir talad gegn vitund thinni, eg trui ekki ad thu hafir ekki vitad ad vid vorum a leidinni til helvitis…

    Nafnlaus Bl(j)oggari

  •   Ari // 8.9 2009 kl. 13:17

    Eitt sem manni liggur forvitni á… hvað er Teitur eiginlega gamall?

    Er ekki nauðsynlegt að forvitnast um slíkt þar sem mig minnir að ég hafi síðast séð svona framkomu þegar ég var í grunnskóla!

    Það má eflaust gagnrýni Tryggva, en gerum við ekki þá kröfu að fólk sýni þroska, sé málefnalegt og fari með staðreyndir?

  •   Stefán // 8.9 2009 kl. 13:51

    Sæll Tryggvi Þór. Það er orðið mjög þreytt hjá ykkur Sjálfstæðismönnum að fullyrða að alheimskreppan hafi ýtt okkur fram af bjargbrúninni. Það er öllum ljóst, sem fylgjast með fréttum að við hefðum rúllað fram af bjargbrúninni hvort sem alheimskreppa hefði skollið á eða ekki. Þökk sé samflokksmönnum þínum í Sjálfstæðisflokknum sem hreiðruðu um sig í fjármálafyrirtækjum og fóru hamförum með flokkslægri græðgi sinni. Þér fór nú betur Tryggvi Þór að vera pönkari á árum áður og afgreiða punk-plötur í Gramminu, en að verja afglöp flokksbræðra þinna og kúlulán þitt.

  •   Gísli // 8.9 2009 kl. 14:15

    Fólk fari með staðreyndir ? Fékkstu lán hjá þínum banka til hlutabréfakaupa? Kúlulán eða kassalán? Hvers vegna er ekki hægt að fá svar við þessu?
    Annað, geturðu útskýrt fyrir okkur hvers vegna margir bankamenn voru með 2- 5 milljónir í mánaðarlaun Á SÍÐASTA ÁRI, hrunárinu sjálfu 2008 ? Sjá tekjublað Frjálsrar verslunar. Var það kannski „árangurstengt“ fyrir góða frammistöðu og vel unnin störf ? Var það ekki kúlulánafyrirkomulagið sem myndaði launin ?

  •   Sigríður Gunnarsdóttir // 8.9 2009 kl. 14:29

    Skilur Teitur Atlason ekki skýringar Tryggva? Það er ekki gott þegar menn hlusta ekki, nú eða skilja ekki, eins og virðist vera í hans tilfelli. Tryggvi Þór er búinn að skýra þetta alveg ágætlega og negin ástæða til að draga þær skýringar í efa.

  •   Birgir Rúnar Sæmundsson // 8.9 2009 kl. 17:01

    Tryggvi, besta afsökunarbeiðnin frá þér er að þú segir af þér Þingmennsku.

    http://www.icelandcrash.com/antisocial-personality.html

  •   Bergur Steinar G // 8.9 2009 kl. 22:18

    Sjálfstæðismenn og Sjálfstæðisflokkurinn ásamt íslenskur olígorkunum bera ekki nokkra ábyrgð á hruninu – ætlið þið ekki að fara að fatta að þetta var allt ykkur að kenna skattgreiðendur?

    Læra að þegja, borga og kjósa Sjálfstæðisflokkinn og Pollýönnu Ísland getur haldið áfram að brosa og láta eins og ekkert sé.

    Tryggvi Þór – hefðirðu snefil af manndómi segðirðu af þér þingmennsku, ásamt Þorgerði Katrínu og fleirum úr D-B-S flokkunum sem sitjið á þingi í skugga hneyksla og þaðan af verri hluta. Lýðræði má ekki byggja á lygum!

  •   Groznij // 22.9 2009 kl. 15:46

    Блог очень качественный. Вручить бы Вам награду за него или орден почета. ;)

  •   Celine Pagaduan // 8.11 2010 kl. 18:40

    Fine information. Very helpful, I absolutely enjoy reading your post.

  •   food chopper // 17.11 2010 kl. 03:33

    Whoever speaks evil to you of others will speak evil of you to others.

  •   Gorgio // 25.4 2011 kl. 14:12

    Очень ценная информация, спасибо за проделаную работу

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og fjórum? Svar: