• Forsíða
  • Um

Þorsteinn Guðmundsson

talar til þín!

RSS

Fyrirgefningarbeiðni til þjóðarinnar!

25. 8. 2009 - 19:24 | Flokkur: Dægurmál | 38 Ummæli



38 ummæli

  1. 25.8 2009 kl. 22:261    Ásgeir Sigurvaldason

    Þú tekur af skarið og ég virði þig fyrir það. Þú viðurkennir að hafa haft rangt fyrir þér og biðst síðan afsökunar á því. Sumir hafa beðist afsökunar án þess að tilgreina hvað þeir gerðu rangt. Aðrir gera hvorugt.


  2. 25.8 2009 kl. 22:422    Óskar P. Einarsson

    Vellkomm bakk, dúdderínó! Þú spilar ekki lengur á gítar án þess að kunna það…


  3. 26.8 2009 kl. 00:423    Sif Ægisdóttir

    Takk fyrir viðleitnina en mér fannst vanta heilindin á bak við afsökunarbeiðina þ.a. ég er ekki viss um að ég taki hana marktæka. Ég þarf að hugsa málin.


  4. 26.8 2009 kl. 01:514    lydur arnason

    Margt einlægt í þessari eftirsjá, lagið sérlega fallegt, algert lím. Kveðja, þinn vinur, LÁ


  5. 26.8 2009 kl. 06:245    adolf

    Búnadarbankinn var traustur bakhjarl. Sagan segir ad thegar Óli Laufdal hafi verid ad renna á rassinn med Hotel Ísland tha hafi komid upp tillaga um ad merkja allt stellid thad er glos og diska og lika golf teppid med logoi Bunadar bankans og setja thar Bunadarbankinn traustur bakhjarl i stad ÓL sem stod fyrir nafni Óla laufdal enn their lanudu honum mestan peninginn fyrir hotelinu.


  6. 26.8 2009 kl. 13:486    Klara

    Takk!
    þér verður fyrirgefið………….


  7. 27.8 2009 kl. 16:077    BTG

    Til eftirbreytni….vel tilfundið..


  8. 27.8 2009 kl. 16:278    Gunnar Lárus Hjálmarsson

    Er það ekki bara aðal vandamálið við þetta kox allt saman – að það var of miklum fávitum treyst fyrir of miklu? Ég meina, þegar maður sér myndir af Magnúsi Ármanni á Buffaloskónum eða feðgunum góðglöðum með 50 cent þá svona renna á mann tvær grímur, ef ekki þrjár.
    Plís, þegar verðmætum þjóðarinnar verður úthlutað næst, ekki láta fávita hafa þær.
    Annars bara fínt lag!


  9. 27.8 2009 kl. 16:459    Kristín Björg

    Þetta og þú eruð æði!!! Bið að heilsa mömmu…..


  10. 27.8 2009 kl. 17:0210    Sigurður

    Fyrirgefið og afsakið, ég fattaði ekki að Þorsteinn gæti spilað á gítar.


  11. 27.8 2009 kl. 17:1311    Þorsteinn Guðmundsson

    Komið þið sæl og þakka ykkur öllum fyrir. Sumir fyrirgefa, aðrir ekki, sumir efast um einlægni og aðrir hafa meiri áhuga á gítarleik (ef gítarleik skyldi kalla). Allt er það í góðu lagi.


  12. 27.8 2009 kl. 19:4412    Steinarr

    Það þarf alltaf einn að taka af skarið og sýna gott fordæmi.
    Gott hjá þér.


  13. 27.8 2009 kl. 22:3113    Óli

    LOKSINS EINHVER SEM IÐRAST ……..
    já af hverju sagðiru ekkert ??? það er borðliggjandi
    eins og diskur á hlað- borði að þinn þáttur er ekki svo lítill í þessu máli !! nú getur Íslensk þjóð andvarpað léttar og haldið
    áfram til nýrra tíma… þökk sér þér og þinni iðrun.


  14. 27.8 2009 kl. 22:3714    Níels Ragnarsson

    Takk fyrir þetta, Steini Spil.


  15. 27.8 2009 kl. 22:4015    Guðlaugur

    ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ FYRIRGEFA ÞÉR


  16. 27.8 2009 kl. 22:5016    Hilmar

    Auðvitað verður að fyrirgefa þér, enda augljóst að þú hefur tekið þetta mjög nærri þér. Þú lítur afskaplega illa út, miðað við hversu áferðarfallegur þú varst. Hefur þú fitnað? Eða jafnvel grennst? Þú hefur í það minnsta elst um 20 ár síðan þú gerðir þér grein fyrir mistökum þínum.

    Það er ekki gæfulegt ef allir þeir sem bera ábyrgð fari að gera sér grein fyrir henni, það myndi leiða til ótímabærrar hrörnunar þjóðarinnar.


  17. 27.8 2009 kl. 23:0117    sjonni

    Tvö orð: Tær snilld!


  18. 27.8 2009 kl. 23:1218    Zippo

    Loksins, einhver biðst afsökunar, þér er fyrirgefið, halelúja.

    En bara fyrstu 10 er fyrirgefið hjá mér !!!

    Koma svo kúlukúkalabbar, hver að verða síðastur, bara 9 eftir !


  19. 27.8 2009 kl. 23:1419    Arnar Guðmundsson

    já ekkert mál Þorsteinn, ég ætti að segja fyrirgefið og afsakið líka en mér fannst líka auglýsingarnar sem þú komst að með John Cleese í aðalhlutverki það góð markaðsherferð að ég ákvað að gera hana að sérstöku fyrirlestursefni í skóla þar sem ég lofaði herferðina í hástert (hmm skrýtið orð) og sýndi dáleiddum samnemendum auglýsingarnar á tjaldi og tók þannig ómeðvitað þátt í að ýta undir markaðssetningu bankans.
    Já fyrirgefið og afsakið, ferlega var maður vitlaus að gleypa það að ráðning John Cleese væri sniðug en ekki bara merki um mikilmennskubrjálæði!
    KB/Kaupþing var þá gamli bankinn minn en ég hafði nýlega skipt yfir í Gli.. Ísl.. Glís.. GÍslandsbanka.
    Ég hef reyndar ekki borðað nógu mikið af fiski en var að kaupa slatta í kistuna í Krónunni.


  20. 27.8 2009 kl. 23:2420    Guðmundur St. Ragnasson

    Þetta er flott hjá þér Þorsteinn :) Þér er fyrirgefið. Til hamingju með að vera fyrsta „stofnunin“ sem biður þjóðina afsökunar af einlægni.


  21. 28.8 2009 kl. 00:0121    Solveig

    Meðtekið og fyrirgefðu sömuleiðis. Sagði lítið og gerði enn minna. En svona er þetta. Skítur skeður. Og ég er komin með lagið á heilann…


  22. 28.8 2009 kl. 00:1322    Grútur

    Hvernig var þetta annars þarna í auglýsingunni með John Cleese um árið, fannst honum fólksfjöldi hérna á Fróni ekki svo lítilfjörlegur að í stað auglýsingar væri einfaldlega hægt að hringja í alla. Kannski litlu sætu útrásasrfjörkálfarnir okkar ættu bara að hringja í hvert og eitt okkar og biðjast afsökunar? Geir Haarde og fleiri snillingar gætu svo siglt í kjölfarið. Tek þó fram að áhugi minn á slíkum samtölum væri afar takmarkaður auk þess sem þau yrðu að líkindum bæði long distance og collect.


  23. 28.8 2009 kl. 01:2123    HG

    Ég fyrirgef þér þetta og líka Glís, og Randveri meira að segja líka.

    Enn ég fyrirgef hinum ALDREI, you know …

    Svo verður þú bara að bíða eftir næsta „giggi“ þegar bankarnir verða seldir sömu fávitunum aftur.


  24. 28.8 2009 kl. 02:4524    Alla

    Já, ég skal sko bara fyrirgefa þér og afsaka.

    Einhver sagði einu sinni … að fólk er fífl. Það erum við flest einhver tíma á lífsleiðinni. En við vorum það bara öll á sama tíma… þessi þjóð. Ég var það líka og það er hræsni að halda því fram að einhverjir eigi sérstaklega að biðjast afsökunar á því. Við erum öll sek um að hafa tekið þátt með einhverjum hætti í ruglinu.

    En svo þegar maður er búinn að snappa úr ruglinu vill maður bara fá fram alvöru yfirheyrslur yfir þeim sem eru ábyrgir, dóma og afplánun…. afsökunarbeiðni er bara djók yfir þeim sem setja heila þjóð á hausinn, taka yfir fyrirtæki og knésetja þau eitt af öðru.

    Æ maður er bara ógeðsla full yfir þessari stöðu. Hærri matarreikningur, hærri lán, bensíðið kostar næstum meira en bjór ….. lægri laun og sumir engin laun. Í eftirrétt eru hærri skattar.
    Þetta er bara fokking fokk eins og einn ágætur maður sagði.

    En Þorsteinn minn, við vorum öll fávítar og vitum nú vonandi betur.


  25. 28.8 2009 kl. 05:0125    Gunnhildur

    Sek um skoðanaleti, heigulshátt og gullfiskaþenkjandi. Hef ekki einu sinni látið mér detta það í hug að biðjast afsökunar, bara skammað sjálfan mig í hljóði af því það er einfaldast. Þú maður minn ert snillingur og svo sannanlega fyrirgefið.


  26. 28.8 2009 kl. 09:2026    B@ldvin

    Ég fyrirgef þér Þorsteinn af öllu hjarta yfir máta ofurheitt :D


  27. 28.8 2009 kl. 11:2427    Matthías Ægisson

    Þetta er náttúrlega snilldin ein. Hvern gat órað fyrir græðgi bankaeigenda (varla hægt að tala um eigendur, þar sem þeir greiddu ekki fyrir bankana) og útrásarvíkinga sem hafa með græðgi sinni kollsteypt heilu þjóðfélagi. Og þeir halda sumir hverjir áfram, fara utan og veita fjármálaráðgjöf!

    Þér er hér með fyrirgefið af heilum hug. Reyndar hef ég aldrei talið þig þurfa að afsaka það að stunda þína vinnu en viðleitnin er virðingarverð í ljósi allra þeirra sem eiga um sárt að binda af þeirra völdum.


  28. 28.8 2009 kl. 11:4828    Kristín

    Þú er bara of líkur Sigmundi Erni til að koma ekki með eitthvað úr ræðustólnum á Alþingi.


  29. 29.8 2009 kl. 11:3429    Hrafn Arnarson

    Þér er algerlega fyrirgefið . Gott væri ef þjóðin ætti fleiri þína líka .


  30. 29.8 2009 kl. 16:2630    SiggiPe

    Fell alveg flatur fyrir svona meistaraverki.

    Siggi


  31. 3.9 2009 kl. 01:1831    megusta

    Haha… þetta er bæði snoturt og sniðugt :)


  32. 3.9 2009 kl. 01:1832    megusta

    …og fallegt!


  33. 9.9 2009 kl. 21:4233    jonas

    Er hægt að fyrirgefa svona svívirðilegan glæp?


  34. 12.9 2009 kl. 10:0534    Nýi Dexter

    Ef þú lofar að gera það aldrei aftur!


  35. 15.9 2009 kl. 14:2035    Kristján G. Kristjánsson

    Sjálfsagt.


  36. 15.9 2009 kl. 22:4436    Dofri Þórðarson

    Þér er fullkomlega fyrirgefið. Mér finnst þetta kómíst og skemmtilegt hjá þér, gerir smá grín að fjölmiðlum og þeirra viðleitni þeirra að draga fyrrverandi bankamenn í sjónvarp til að segja „fyrirgefið og afsakið“. Það er löngu komin tími að spíta í lófa og taka á þeim vanda sem er.


  37. 26.9 2009 kl. 12:3437    Heiðagreiða

    Ég fyrirgef þér – alveg satt – enda var ég líka svona vitlaus þá – skil allt betur núna – allt svona kvóta-eignastýring-fjármagnseigiendur-kennitölufyrirtæki-bónusgreiðslur-starfslokasamningar-…… endalaust – mun örugglega ALDREI verða svona vitlaus aftur – eða hvað ……


  38. 3.10 2009 kl. 00:0138    Olafur

    Takk fyrir að vera skemmtilegur ! Ég fyrirgef þér, á ekki fyrirgefningin að vera eitt það öflugasta sem við búum yfir.


Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og sjö? Svar:

  • Höfundur

  • Færslusafn

    • febrúar 2011
    • mars 2010
    • janúar 2010
    • október 2009
    • september 2009
    • ágúst 2009
    • júlí 2009
    • júní 2009
  • Tenglar

    • eyjan.is
    • eyjan.is/blogg
    • Heimili mitt
  • Nýlegar færslur

    • Eyjapeyi segir bless, bless
    • Líf án keppnisanda
    • Einstakt afrek forsetans
    • Hin gáfulega umræða
    • Maður kýlir mann

Hönnun: MistyLook eftir Sadish.


  • eyjan.is

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Viðskipti
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Innskráning