Svanur Sigurbjörnsson

blogg á eyjan.is

Djúsdagafokk – Jónína Ben lofar 1/2 kg á dag

15.10 2009 | 14:54 | 39 ummæli

„Pardon my French“ en nú er aldeilis borið í bakkafullan lækinn!  Jónína Ben heldur áfram ákafri auglýsingaherferð sinni fyrir detox prógramminu sínu og auglýsir nú m.a. á vísir.is með vefauglýsingu þar sem hún segir „Taktu djúsdaga – þú missir 1/2 kg á dag“.  Aðeins verulega fávitandi fólk um heilsufar og heilsuvernd myndi setja svona rugl í auglýsingu.  Aðeins fólk sem er að leita að skjótfengnum gróða myndi setja svona glepjandi markmið í auglýsingu.  Hvað heldur Jónína að losni á þessum djúsdögum úr líkamanum sem léttir hann um hálft kílógram?  Hversu lengi heldur Jónína að það endist að hægt sé að losa hálft kg daglega?  Það vita allir sem hafa farið í megrun að það losna 1-2 kg á fyrstu 4-7 dögunum vegna þess að garnainnihaldið minnkar við það að minnka fæðuinntöku.  Með því að fara á fljótandi fæði (djúsdaga) eingöngu er þessari losun hraðað og að sjálfsögðu getur þá hálft kíló farið daglega í nokkra daga – en hvað svo?  Mér kæmi ekki á óvart að Jónína myndi þá ráðleggja ristilskolun því eftir fljótandi fæði er ágætt að fá nokkra þúsundkalla fyrir að soga öll hin gríðarlegu meintu eiturefni úr ristlinum.  Eiturefni sem enginn hefur sýnt fram á að séu til.  Líkaminn er fullkomlega fær um að losa sinn úrgang gegnum lifur og nýru. 

Það að drekkja sér í djús og láta svo soga saur úr endaþarminum skilar bara þeirri blekkingu að maður hafi farið í meðferð og að maður sé léttari.  Vissulega verður maður léttari – af saur, en það er fitan sem fólk á að losna við og hún verður ekki hrakin út með djússkolun eða endaþarmssogi.  Þess utan er djús fullur af hröðum kolvetnum (sykri) sem heldur uppi insúlíni í blóðinu og er því ekki hentugur til þess að megrast. Það tekur marga mánuði að losna skynsamlega við allt fitufjallið, því megrun umfram hálft kg af fitu á viku er óskynsamleg og eykur einungis líkur á því að maður fitni strax aftur og verði á endanum jafnvel enn þyngri 3-6 mánuðum eftir að átakinu lýkur.  Vilji fólk drekka ávaxtadjúsa vegna andoxunarefna í safanum þá er hollt að gera það í hófi í tengslum við hollt mataræði sem er stillt að magni miðað við útreiknaða orkuþörf líkamans og haft í jafnvægi á milli helstu fæðuflokkanna, kolvetna, próteina og fitu.

Manni blöskrar þessi ósvífni Jónínu að auglýsa svona gervilausnir og rugl sem ætti ekki að bjóða nokkru fólki.  Hún er íþróttakennari að mennt og er starfsgrein sinni til skammar.  Maður hefur séð svona tálsýnir auglýstar í amerískum tímaritum allt frá 7. áratug síðustu aldar og hefur þótt það mikill kostur fyrir Ísland og Íslendinga að slík fáviska og frat væri ekki boðið hérlendis.  Því miður er það orðin staðreynd og maður verður að kyngja því líkt og öllu öðru hruni raunverulegra gæða sem hefur átt sér stað undanfarinn áratug.

Flokkar: Heilsa | Facebook



Ummæli (39)

  •   Sævar Helgi // 15.10 2009 kl. 15:31

    Langar bara til að benda á viðtalið sem ég átti við þig um Detox í Vísindaþættinum á Útvarpi Sögu. http://www.stjornuskodun.is/visindathatturinn#detox

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 15.10 2009 kl. 15:44

    Takk fyrir það Sævar Helgi. Ég var búinn að setja það á föstu vefsíðuna mína en hún liggur niðri núna vegna útrunnins léns.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 15.10 2009 kl. 15:48

    Takk fyrir mjög áhugaverð blogg.

    Þetta er ljótt, og það þarf engan atvinnumann að sjá fáraánlegheitin í svona kuklskrípaæfingum og þá skaðann sem þær gætu hugsanlega valdið fólki sem er ekki vel á sig komið líkamlega fyrir svona ofbeldisaðgerðir gegn líkamanum.

    Áhugavert væri að sjá góða samantekt á öllum þessum töfralausnum sem hafað verið í tísku í gegnum aldirnar, sem sennilega hófust með sölu „snákaolíunnar“ í vesturheimi fyrir langt löngu.

    http://en.wikipedia.org/wiki/Snake_oil

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 15.10 2009 kl. 15:58

    Sæll Guðmundur
    Já einmitt, ég á bók sem heitir „Snake-oil science“ og fjallar um kukláráttuna. Á bara eftir að lesa hana. Takk fyrir hlekkinn.

  •   Helgi Briem // 15.10 2009 kl. 16:16

    Ég var einmitt að klára Snake-oil Science. Frábær bók og tímabær.

  •   Gunnar Jóhannsson // 15.10 2009 kl. 16:26

    Sæll Svanur,
    Ég er einn af þeim sem ákvað að prófa aðferð Jónínu Ben en ekki beinlínis til að grennast heldur til að sannreyna það sem hún segir um t.d. blóðþrýsting. Flestir læknar sem ég hef talað við um þetta eru sammála um mataræði komi blóðþrýstingi takmarkað við. Ég er semsagta með háþrýsting og hef verið á lyfjum vegna þess en þegar ég hafði borðað grænmeti og ávexti í öll mál í eina viku (sleppti lyfjunum) var þrýstingurinn orðinn fullkominn. Auðvitað hækkaði hann aftur smátt og smátt eftir að ég fór að borða „venjulega“ en eftir stendur að þetta virkaði svona hjá mér a.m.k. Kanntu skýringar á þessu?

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 15.10 2009 kl. 16:44

    Sæll Helgi. Takk – ég þarf að drífa mig í að lesa bókina.

    Sæll Gunnar.
    Með því að losa vökva úr líkamanum, t.d. með skertri fæðuinntöku í marga daga og borða þvaglosandi mat, t.d. ávexti sem eru ríkir af C-vítamíni, má lækka blóðþrýsting tímabundið. Einnig með því að forðast salt (og lakkrís) má minnka vökva í æðum dáltið. Að forðast mat með harðri fitu (kjöt landdýra) í, má lækka magn fitusýra í blóðinu og það er gott fyrir æðarnar, því hörð fita eykur spennu í sléttvöðvafrumum slagæða og eykur þannig örlítið viðnám í æðunum (minnkaður radíus) og hækkar blóðþrýsting.
    Blóðþrýstingur er í réttu hlutfalli við rúmmál vökvans í æðakerfinu og því er hægt að „slá“ hann niður með hálf-svelti og þvaglosandi efnum. Málið snýst um að gera þessa hluti á skynsamlega vegu. Svelti gengur ekki, og við verðum að fá eitthvað kjöt til að fá B12 (er ekki í grænmeti og ávöxtum) og járn (er lítillega í grænmeti). Þannig er því best að borða „kjötgjafa“ með góðum fitusýrum eins og í fiski, eða mögrum eins og í eggjum (án rauðu) og skyri. Forðast pæklaðan, brenndan og verkaðan mat (skinka o.fl.) nema til hátíðabrigða því að þarna geta leynst krabbameinsvaldar.
    Það er hægt að borða hollar upp á lækkun á blóðþrýstingi og ná e.t.v. lækkun um 5-10 mmHg, og síðan má ná meiri árangri ef maður nær að megra sig hægt og rólega niður í kjörþyngd. Háþrýstingur lagast ekki alltaf við þessa hluti því orsakir geta verið margbreytilegar.
    Allar aðferðir sem kynntar eru til sögunnar sem blóðþrýstingslækkandi þurfa að halda vatni í marga mánuði og sýna sig gera það hjá nógu mörgum til að um marktæka meðferð sé um að ræða. Vonandi svarar þetta einhverju fyrir þig Gunnar. Takk fyrir einlægt innlegg.

  •   Pétur Maack // 15.10 2009 kl. 17:27

    Takk!
    Þetta er kjarnyrtur og góður pistill

  •   Elísabet // 15.10 2009 kl. 18:36

    Hressandi að sjá svona tæpitungulausa umfjöllun um „töfra“ stólpípunnar og djúsþambs. Mér er fyrirmunað að skilja hversu ginnkeypt fólk er fyrir innistæðulausum skyndilausnum.

  •   Matti // 15.10 2009 kl. 19:38

    Hefur hún [Jónína] drepið einhvern eða skaðað alvarlega?

    Góð spurning. Væri ekki ráðlega að spyrja Jónínu hvort einhverjir hafi þurft að leita læknisaðstoðar í meðferð hennar. Það væri afar forvitinlegt að vita hvort einhverjir hafi t.d. verið sendir með sjúkrabíl á bráðamóttöku.

  •   Erna Magnúsdóttir // 15.10 2009 kl. 20:20

    Vá, Hrönn, ertu að gefa það í skyn að gagnrýnin sé ekki réttmæt nema Jónína hafi hreinlega drepið einhvern? Er það þar sem mörkin eru sett?

    Áfram Svanur!

  •   Bjarni Jónsson // 15.10 2009 kl. 22:11

    Kjarnyrtur og góður að vanda. Mikið voðalega er ég ánægður að einhver úr hópi vísindamanna / lækna taki á svona máli. Það þurfa fleira að gera slíkt.

    Ég sá auglýsingu frá Jónínu þar sem hún lofar bót á ýmsum kvillum. Síðast þegar ég vissi er óheimilt að auglýsa slíkt! Er það ekki rétt hjá mér?

  •   Páll J. // 15.10 2009 kl. 23:12

    Hmm… Mér sýnist kommentinu mínu hafa verið eytt, ég sem passaði mig sérstaklega að vera eins ókurteis í garð Jónínu og ég gæti verið án þess að brjóta gegn meiðyrðalöggjöfinni.

    Jæja, ég er a.m.k. ekki aðdáandi umrædds kvenmanns.

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 15.10 2009 kl. 23:18

    Sæl öll og takk fyrir innlegg.
    Ég vil ítreka að ég bið alla um að nota fullt nafn hér, ellegar verða teknar út færslur viðkomandi eftir um sólarhring hafi nafnið ekki verið gefið upp, sama hvort að ég er sammála innihaldinu eða ekki. Meiðandi ummælum eða bulli mun ég eyða strax.

    Sæl „Hrönn ? dóttir“
    Þú sagðir: „Er ekki jákvætt að fólk geti minnkað lyfjaskammta með því að bæta líferni sitt og mataræði? Er ekki jákvætt að fólk kosti sig sjálft á námskeið til að læra slíkt og taki ábyrgð á eigin heilsu?“

    Þú virðist sætta þig við rugl svo fremi sem það skaði ekki. Stundum skaðar rugl ekki, eins og t.d. nær innihaldslausar remidíur hómeópata, en það getur vissulega skaðað að missa hálft kg á dag í marga daga, sérstaklega ef um mikið vökvatap er að ræða. Nýlega dóu tvær manneskjur í gufubaðsmeðferð í Arizona eftir að hafa fastað fyrir gufubaðið sem var í 2 klukkustundir. 16 aðrir fóru á sjúkrahús. Það er auðvitað jákvætt að fólk geti minnkað lyfjaskammta eða fækkað lyfjum ef að það er raunverulegur bati á bak við slíkt. Ég skýrði það út í svari til Gunnars hér að ofan.

    svo sagðirðu: „Einnig finnst mér allt of lítil sjálfsgagnrýni hjá læknastéttinni.“
    Það er sjálfsagt aldrei nóg af sjálfsgagnrýni, en vöntun á henni hjá læknum gerir ekki kukl og skrum sjálfkrafa að góðum valkosti. Ég sé akkúrat enga sjálfsgagnrýni hjá kuklurum. Geturðu bent mér á einhverja? Læknar gagnrýna eigið fag iðulega í læknatímaritum og setja t.d. upp umræðugreinar með andstæðum sjónarmiðum tveggja lækna. Hefurðu lesið einhver læknatímarit?
    Svo talarðu um „lyfjaógöngur“. Hvers konar lyf ertu að tala um? Geðlyf? Önnur? Svo varðandi nikótínlyf – viltu ekki frekar að fólk taki nikótín, en að reykja ofan í sig alla tjöruna með krabbameinsvaldandi efnum reyksins? Auðvitað er best að vera án nikótínsins einnig, en hefurðu hugsað út í að það er mikið unnið með því að losna við reykinn?
    Svo segirðu Hrönn ? dóttir: „Það er margt sem má laga í eigin ranni áður en ráðist er að öðrum. Svo má líka gagnrýna á kurteisari hátt en hér er gert“. Það væri kjörstaða fyrir kuklara að læknar væru svo lamaðir yfir áhyggjum af eigin ófullkomleika að þeir þyrðu ekki að gagnrýna ginningartilboð og mögulega skaðlegar meðferðir sem auglýstar eru í þjóðfélaginu. Hver er annars að „ráðast á“ í þessu tilviki? Er það ekki ákveðin árás gegn heilindum í þjóðfélaginu að auglýsa svona rugl eins og „þú missir hálft kg á dag“. Er ekki með því verið að ráðast að fólki sem setur traust sitt á landsþekkta manneskju sem áður var mikils metinn íþróttakennari? Varðandi kurteisina þá er stundum best að gefa hlutunum viðeigandi nafn til að sýna hvað er hæfandi einkunn. Þetta rugl hjá Jónínu Ben á ekki betra nafn skilið en „djúsdagafokk“, rétt eins og þráseta fyrri ríkistjórnar og stjórnmálaflokks eins sem átti mestan þátt í græðgisvæðingunni var réttilega nefnd „helvítis fokking fokk!“

    Ég bið þig um að koma með fullt nafn Hrönn svo að ég viti hvern ég er að tala við, annars stroka ég út athugasemdina á morgun. Það á við aðra hér einnig.

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 15.10 2009 kl. 23:21

    Sæll Páll J.
    Ég eyddi ekki „kommenti þínu“ en mun gera það ef að þú skrifar ekki undir með fullu nafni.

  •   Sigurður Jónsson // 16.10 2009 kl. 00:18

    Þetta er áhugavert að heyra mann úr læknastéttinni ganga fram fyrir skjöldu og gagnrýna það með gildum rökum þegar fólk er haft að ginningarfíflum. Það hefur alltaf verið gróðavon í því að selja fólki aflausn og lækningar og sjálfur frelsarinn aflaði sér frægðar og frama með handayfirlagningum og lækningastíl sem menn eins og Benny Hinn hafa tileinkað sér og gert að féþúfu. Rétt að vara við því. Staðreyndin er hinsvegar sú að Íslendingar eru illa haldnir af skorti á því sem kalla mætti sjálfshollustu-greind og ekki færir um — eða nenna ekki — að afla sér réttra upplýsinga og menntast. Þeir eru ginnkeyptir fyrir skyndilausnum og „gimmikki“ sem leysir málin og þar eru detoxmeðferðir besta dæmið auk alls ruslfæðisins sem fólk lætur inn fyrir sínar varir. Hvenær hefur einhver hlotið bót meina sinna með slöngu í rassinum og drekkandi djús? Djúsmeðferðin var til sölu í Hagkaupum um árið og var kallaður „Hollywood-kúrinn“ . Ekkert nýtt þar á ferð og örugglega margir sem eru til í að prófa. Þótt það hafi ekki virkað í fyrra skiptið.

  •   Hafrún Kristjánsdóttir // 16.10 2009 kl. 00:59

    Takk!

  •   Valur B (áður Valsól) // 16.10 2009 kl. 01:11

    Takk fyrir þennan pistil, þessi vísa er aldrei of oft kveðin, svona poppsálfræði og mombó djombó bull shit á ekki heima í upplýstum heimi. Við eigum ekki að sætta okkur við að gráðugt fólk farai um og seilist ofan í vasann á fólki sem veit ekki betur. Þetta er afar ógeðfelt þessi megrunaraðferð og úrgangssugu þjónusta, vægast sagt. Mér finnst að neytenda samtökin eigi að grípa inn í og það sama ætti við um miðla og aðra kuklara sem hafa fé af veiku fólki.

    Kveðja
    Valur B

  •   Jón Grétar // 16.10 2009 kl. 08:08

    Er það bara ég Svanur eða eru commentin meira civilized hér heldur en á moggablogginu? :)

  •   Jóna Ingibjörg Jónsdóttir // 16.10 2009 kl. 10:52

    Allt sem sagt er virka vel, eins og töfralausn, ætti að klingja varúðarbjöllum í huga almennings.

    Það er með þetta eins og „tippastækkunar“tækin, svonefnd fullnægingarkrem og fleira. Þessu er pakkað inn í gervivísindafroðu og selt auðtrúa fólki, fólki sem hefur ekki forsendur til að sjá í gegnum fullyrðingar sem bornar eru á borð fyrir það.

    Limurinn hefur t.d. enga beinagrindarvöðva og er því ekki hægt að stækka með tækjum og þótt húð limsins sé teygjanleg skreppur hún saman á ný.

    Það er heldur ekkert að blóðrás kvenna í kynfærum og svonefnd fullnægingarkrem hafa því ekkert að segja (fyrir utan lyfleysuáhrifin og „nuddið“ sem er sagt æskilegt þegar kremið er borið á).

    Neytendasamtökin hafa ekki skipt sér af slíkum tækjum og kremum þrátt fyrir lagaákvæði og Lyfjastofnun bendir á aðra. Lyfjastofnun segir að fullnægingarkremin eru flokkuð eru sem snyrtivara og því erfitt að aðhafast nokkuð.

    Jónína meinar eflaust vel en tekur gagnrýni á dextoxið afar illa hefur mér sýnst, tekur þá gagnrýni allt of persónulega. Þú hefur áður gagnrýnt detoxið hennar þegar þú varst á moggablogginu og þá voru hennar athugasemdir í þinn garð frekar rætnar.

    Vil benda á eftirfarandi vefsíðu:
    http://www.senseaboutscience.org.uk/

    Þar er líka fjallað um detox.

  •   Sævar Helgi // 16.10 2009 kl. 11:33

    Það einkennir oftast kukl og gervivísindi að þeir sem stunda það, hvort sem er sem seljendur eða kaupendur, taka allri gagnrýni mjög illa og persónulega.

    Mér finnst það augljós merki um dapran málstað. Það ætti að vera auðvelt að benda á sönnunargögn, máli sínu til stuðnings.

    Það gerir Jónína Ben ekki, ekki frekar en hómópatar og aðrir í sama geira.

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 16.10 2009 kl. 11:45

    Takk fyrir góð innlegg öll.
    Ég hef hafnað þeim athugasemdum þar sem aðeins eitt nafn (án vísunar í vefsíðu), skammstöfun eða dulnefni var notað. Ég leyfi athugasemdir með fornafni og upphafsstaf eftirnafns og ef að með fornafni fylgir hlekkur á síðu viðkomandi þar sem fullt nafn kemur fram sbr. Matta, Sævar Helga og Elísabetu hér að ofan. Það er fúlt að vera í einhverri síun á þessu en ég ætla að sjá hvort að þetta lagist ekki smám saman.

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 16.10 2009 kl. 11:47

    Hér eru flest af þeim kommentum sem ég hafnaðir. Ég birti þau til aðlögunar nú en mun ekki gera það síðar meir.

    steina

    Verst er að hún hvetur fólk til að hætta að taka lyfin sín, sem er hrikalegt, stórskrítið að þetta skuli leyfast.
    Úr Djúsdagafokk – Jónína Ben lofar 1/2 kg á dag, 15. október 2009 kl. 16:55

    Hrönn

    Án þess ég vilji verja Jónínu eða detox, þá er mér spurn: Hefur hún drepið einhvern eða skaðað alvarlega? Hún er sjálfsagt að freista væntanlegra kúnna með þessum tölum um 1/2 kg á dag. Er ekki jákvætt að fólk geti minnkað lyfjaskammta með því að bæta líferni sitt og mataræði? Er ekki jákvætt að fólk kosti sig sjálft á námskeið til að læra slíkt og taki ábyrgð á eigin heilsu?
    Ég hef sjálf reynslu bæði af hefðbundnum og óhefðbundnum lækningum. Mesti munurinn finnst mér vera sá að hefðbundnir læknar horfa á mann sem tilfelli fremur en manneskju og að maður sé fremur þiggjandi þjónustu en samstarfsmaður. Þetta gildir þó örugglega ekki um alla lækna. Einnig finnst mér allt of lítil sjálfsgagnrýni hjá læknastéttinni. Hvað eru t.d. margir á ári sem fara í lyfjaafvötnun, fólk sem er komið í ógöngur vegna neyslu lyfja sem öllum hefur verið ávísað á viðkomandi af menntuðum læknum? Hvað með apótek sem selja níkótín sem “lyf” til aðstoðar nikótínfíklum?? Það er margt sem má laga í eigin ranni áður en ráðist er að öðrum. Svo má líka gagnrýna á kurteisari hátt en hér er gert.
    Úr Djúsdagafokk – Jónína Ben lofar 1/2 kg á dag, 15. október 2009 kl. 19:29

    HP
    “Jónína, ég hef ekki fundið fyrir MS-sjúkdómnum og held mig við ráð læknisins. MS inn er farinn.” – Kata, 25 ára
    “Þarf ekki að nota blóðþrýstingslyfin.” – Lolla, 41 árs
    “Sykursýkin hvarf eftir þrjá daga í meðferðinni, ég þarf ekki á lyfin, jibbí!” – Anna, 48 ára
    -af detox.is
    Þó ég efist ekki um að þessir aðilar trúi því sem þeir skrifa þá myndi ég samt (í besta falli) kalla það ábyrgðarlaust að setja þetta á heimasíðuna. Það er ekki eins og þetta sé kvikmyndagagnrýni.
    Úr Djúsdagafokk – Jónína Ben lofar 1/2 kg á dag, 15. október 2009 kl. 20:25

    Rósa
    rosasturlu@
    Sæll Svanur,
    Ég er alveg sammála og finnst með ólíkindum hvernig fólk hefur gleypt við þessu detoxi hennar Jónínu. Einu vil ég samt koma á framfæri og það er að maður verður ekki að borða kjöt til þess að fá B-12. Það er alveg hægt að fá það vítamín úr eggjum og mjólkurvörum. Ég hef til nokkurra ára verið grænmetisæta og mér hefur aldrei liðið betur.
    Úr Djúsdagafokk – Jónína Ben lofar 1/2 kg á dag, 15. október 2009 kl. 21:07

    krissi

    Carls Atlas mælti með ristilhreinsun gerði hana sjálfur á sér.Margir fara í fitusog og húð og fita eru skorinn af stundum mörg kíló í einu.Sogað hefur öll fita úr rottu sem var 50% of þúng á einu bretti og varð ekki meint af.Hver segir að það sé hættulegt að léttast fljót dæminn sanna annað.

  •   Elly Sigfúsdóttir // 16.10 2009 kl. 18:13

    Verð að koma Jónínu til hjálpar þar sem enginn annar virðist gera það. Mikill misskilningur að „detoxið“ gangi aðeins út á stólpípur og djúsþamb. þetta flokkast undir óhefðbundnar lækningar sem læknastéttin hefur yfirleitt ekki verið hlynnt. Þarna er í raun verið að kenna fólki hvað er hollt og þá um leið óhollt. Öll aukaefni í mat ætti maður að forðast, svo og sykur og hveiti. Auðvitað veit maður það en annað að kunna að velja rétt. Ef maður fylgir þessu í stórum dráttum eftir meðferðina er maður í góðum málum. Ef, hins vegar, maður tekur upp sömu neysluvenjur og áður þá þarf ekkert að fjölyrða um árangurinn. Það er því undir þér sjálfum komið en ekki Jónínu. Hún heldur bara í hendina á þér í 2 vikur, og gerir það mjög vel og fagmannlega.

  •   Björn Ómarsson // 16.10 2009 kl. 19:03

    Ég vill benda Elly Sigfúsdóttur á að „vísindalega þenkjandi“ einstaklingar (s.s. læknastéttin) hafa ágætis ástæðu fyrir því að hafna óhefðbundnum lækningnum. Ástæðan er að óhefðbundnar lækningar eru skilgreindar sem meðferðir sem:

    a) ekki hefur verið sýnt fram á að virki (s.s. Detox )

    b) sýnt hefur verið fram á að virki ekki (s.s. hómeopatía og nálastungur)

    Reyndar eru þessi ummæli Ellyar ágætis dæmi um hvernig heilbrigð skynsemi (“Ef, hins vegar, maður tekur upp sömu neysluvenjur og áður þá þarf ekkert að fjölyrða um árangurinn“, „Þarna er í raun verið að kenna fólki hvað er hollt og þá um leið óhollt“) er notuð til þess að dulbúa kjaftæði (“Öll aukaefni í mat ætti maður að forðast, svo og sykur og hveiti“).

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 16.10 2009 kl. 19:16

    Sæl Ellý
    Eflaust má finna eitthvað gott sem Jónína Ben er að gera, en þegar hún auglýsir prógram undir fölsku flaggi (segir þetta læknismeðferð) og setur fólk á nær-sveltikúra, heldur á lofti kuklhugtökum eins og detox og hvetur fólk til að fara af lyfjum án þess að ráðfæra sig við lækni sinn, þá er ærið tilefni til að gagnrýna. Það telst ekki til mikilla afreka að gera bara eitthvað gott þegar það er pakkað inní pakka ginningartilboða og kukls. Það er aðeins tímaspursmál hvenær einhver eldri manneskja mun verða fyrir miklu heilsutjóni eða deyja í meðferð hjá henni, með þessu áframhaldi.

  •   Guðmundur Pétursson // 16.10 2009 kl. 19:25

    Það er aðeins tímaspursmál hvenær einhver eldri manneskja mun verða fyrir miklu heilsutjóni eða deyja í meðferð hjá lyflækni….. æji sorry, það hefur þegar gerst.

  •   Elly Sigfúsdóttir // 16.10 2009 kl. 19:29

    Ég vil benda Birni Ómarssyni á að dómharka er aldrei gæfusöm. Hún tilheyrir „the dark ages“. Ef það að forðast sykur og hvítt hveiti er dulbúið kjaftæði þá segir skynsemi Björns sig sjálf……..

  •   Björn Ómarsson // 16.10 2009 kl. 19:47

    Elly, þú sagðir hveiti, ekki hvítt hveiti. Það er munur. Orðrétt sagðiru:

    „Öll aukaefni í mat ætti maður að forðast, svo og sykur og hveiti“

    Reyndar er ég sammála þér að kjaftæðið í þessari setningu er aðallega í fyrri hlutanum, seinni hlutinn er ekki svo slæmur.

    Dómharka er ekki bara gæfusöm heldur fullkomnlega nauðsynleg þegar kemur að heilsu fólks. Regluverkið í kringum alvöru lækningar ber þess vitni . Fólk á ekki að bjóða sjúklingum upp á lækningar nema sýnt hafi verið fram á gildi hennar í alvöru klínískum rannsóknum. Þegar meðferðaraðilar kalla sig „óhefðbundna“ lækna eru þeir að reyna að komast undan þeirri sönnunarbyrði. Svanur stendur sig vel í að fræða fólk um kukl í krafti raunverulegrar þekkingar.

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 16.10 2009 kl. 20:11

    Sæll Guðmundur
    Hefur það nú þegar gerst? Mikið heilsutjón eða dauði eða bæði? Ég veit til þess að fólk hafi þurft að fara á bráðamóttöku spítala eftir vistina hjá Jónínu, en ekki vegna mjög alvarlegra hluta.

    Þú misskilur Elly hann Björn. Hann er ekki að segja það að forðast sykur og hvítt hveiti sé dulbúið kjaftæði, heldur að kjaftæðið sé dulbúið innan í eða utan um slík almenn atriði. T.d. er selt inn á þetta sem detox-prógram (búningurinn) þegar það sem raunverulega gerir mögulega gagn í því eru þessi gömlu traustu heilsuráð.

  •   Björn Ómarsson // 16.10 2009 kl. 20:27

    Upphaflega innleggið mitt var augljóslega ekki nógu skýrt, þannig að ég ætla að reyna að leiðrétta það:

    Það sem ég átti við er að ráðleggingin „forðast á öll aukaefni í mat“ er ekki á rökum reist. Efni sem bætt er í mat þurfa að fylgja mjög ströngum reglum og eru yfirleitt fullkomnlega hættulaus, og í sumum tilfellum mjög góð fyrir heilsuna (t.d. D-vítamín bætt mjólk í USA, sem hafði mjög góð áhrif á lýðheilsu þar). Ég ákvað að láta seinni hlutann á setningunni fylgja með því þar varar Elly við öllu hveiti, ekki bara hvítu hveiti. Heilhveiti var mjög hollt seinast þegar ég vissi…

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 16.10 2009 kl. 20:40

    Jónína Ben hefur víst boðið mér í detox án þess að bjóða mér. Af örlæti sínu lýsti hún þessu yfir á Fésbókarsíðu sinni sem ég hef ekki aðgang að. Síðan talar hún um „vanþekkingu“ mína án þess að færa fyrir því nein rök. Ætli hún haldi að… með því að vera svo frökk að bjóða mér í detox prógrammið, þá haldi fólk að hún hafi ekkert að fela og fólk telji hana því hafa rétt fyrir sér? Sérkennilegt. Enn furðulegra og óviðeigandi er að hún varar síðan fólk við því að ég sé trúlaus og botnar með því að kalla mig „Ræfillinn“, svona eins og að hún vorkenni mér og líti niður á mig. Er hún þess umkomin að kalla fólk ræfla?
    Hér er hlekkurinn á síðu Matthíasar þar sem hluti af Fésbókarfærslu Jónínu er birt.
    http://www.orvitinn.com/2009/10/16/18.15/#comment-28760

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 16.10 2009 kl. 20:44

    Mikið rétt hjá Birni varðandi aukaefnin og sýnir hvernig vísindalega hugsandi fólk gætir varúðar og nákvæmni í orðum sínum. Annað dæmi um gott „aukaefni“ í mat er viðbætt járn í mjólk fyrir ungabörn í svokallaðri stoðmjólk.
    Þó að flókin kolvetni séu betri en sykur og heilhveiti betra en hvítt hveiti, er ekki þar með sagt að sykur og hveiti í hófi séu skaðleg heilsunni. Of langt að fara djúpt í þetta hér.

  •   Rakel Erna Skarphéðinsdóttir // 16.10 2009 kl. 21:39

    Ég er ein af þessum fávitandi aðilum sem hef notfært mér Detox Jónínu Ben..
    bæði í Póllandi og á Vellinum….
    Ekki veit ég hvað hefur gerst annað en það að síðan ég fór fyrst í Detox fyrir 1 ári síðan hef ég misst tæp 15 kg….hvort það hefur allt verið vatn eða garnaskítur veit ég ekki ..en kílóin eru farin…og koma vonandi ekki aftur ..einfaldlega vegna þess að í Detoxinu lærði ég hvað ég á að láta ofan í mig og hvað ég á að varast…það og svo margt annað lærði ég í þessarri „meðferð“ sem ég er að nýta mér fyrir heilsu mína…
    Einnig losnaði ég við andlegan skít (þunglyndið var að drepa mig)..og það sem ennþá betra er ..ég henti þunglyndislyfjunum ásamt nokkrum öðrum tegundum af óþarfa lyfjum….það var pólskur læknir sem vinnur náið með Jónínu (yndisleg kona sem er hámenntaðurr innkyrtlasérfræðingur) sem ráðlagði mér að minnka við mig þessi lyf hægt og hægt…og það tókst ,,,húrra húrra…önnur lyf sem ég þarf að taka áfram ráðlagði hún mér eindregið frá að hætta við…..
    Læknirinn Svanur segir að Jónína sé stétt sinni til skammar…..ja hérna hér…ég er nýbúin að láta hafa eftir mér í blaðaviðtali (Víkurfréttir 08.10) að það sé kraftaverk að Detoxið sé komið hingað til að vera og Jónínu og hennar fólki aðeins til sóma…og það meina ég svo sannarlega….
    Einfaldlega vegna þess að Detox Jónínu Ben. bjargaði líi mínu .
    Síðan ætla ég að skreppa upp á völl seinna og taka 2 Djúsdaga…því það er meiriháttar að gera það uppfrá og nota sér allt sem er í boði með…göngutúra, jóga,sauna, heita pottinn, fyrirlestrana og kvöldvökurnar, allt þetta er svo gott fyrir okkur með djúsnum…ummmmm nammmm…
    Eitt er enn að áður en ég fór í Detoxið fyrir ári var ég alltaf með kvef og flensur….en viti menn 7,9,13,…ég hef ekki fengið svo mikið sem nasakvef síðan…þar hjálpar einnig til þetta undursamlega Citrosept sem Jónína selur í Detoxinu sínu..og svo öll þessi hreinsun…ulla bjakk…
    Þannig að íþróttakennarinn Jónína Ben. er búin að finna upp varanlega lausn fyrir mig og fjölda fólks sem ég þekki..ekkert rugl eða gervilausnir….eða endalaust lyfjaát…(sem er reyndar oft líka nauðsynlegt) hvað hefur Jónína ekki oft lýst því opinberlega yfir…
    Ég held að þetta fólk sem hatast svona út í hana og hennar starf ætti bara að skella sér í Detox upp á Ásbrú sem fyrst….það kostar einhverja þúsundkalla..en ég og mínir vinir sjá ekki eftir eini einustu krónu af þeim…
    Það verða allir betri menn af því að kynnast henni og hennar yndislega starfsfólki …
    Verið svo góð..því lífið er yndislegt..
    Rakel Erna

  •   Davíð Arnar Sverrisson // 17.10 2009 kl. 13:51

    Ljómandi vel skrifað Svanur, og þarft. Langt er síðan ég sannfærðist um tilgangsleysi bloggs, en þú færð mig til að efast um þá afstöðu mína. Pínu.

    Eitt sinn rabbaði ég við mann, sem hafði þá nýverið tekið upp á því að sofa með höfuð sitt út um svaladyrnar. „Á hálfu ári sem höfuð mitt hefur sofið utandyra“ sagði hann, „þá hefur heilsa mín batnað, lundin er upplyft og aukakíló hafa fokið í buskann.“

    Sannarlega gleðiefni!

    Sönnun þess að haus-út-um-svaladyr aðferðin sé „da shiznitz“? Varla.

    Einsog þeir segja í myrkum afkimum internetsins, uppá enska tungu: „Anecdotal evidence is anecdotal.“

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 17.10 2009 kl. 16:44

    Sæl Rakel Erna
    Vonandi veistu það hvort að 15 kílóin voru vatn, garnainnihald eða fita. Ef að þú hefur haldið þeim árangri er líklegt að þau séu fita, en hugsanlega einnig eitthvað vöðvar ef að þú misstir þau mjög hratt (meira en 0.5 kg á viku).
    Til hamingju með þennan árangur. Vonandi tekst þér að halda honum. Það er erfitt og fáir ná að halda því sem þeir ná af sér, samkvæmt rannsóknum. Það má eflaust nýta sér ýmislegt í prógrammi Jónínu Ben sem hlýtur að hafa einhverja plúsa fyrst að margt fólk er ánægt með það. Það breytir hins vegar ekki því sem ég hef verið að gagnrýna. Hið góða í prógramminu afsakar ekki kukl og ginningarboð. Eins og Davíð Arnar hér bendir á, þá hafa einstaka sögur ekki vísindalegt gildi til að meta heildar myndina. Það þýðir ekki að það eigi að loka eyrunum fyrir þeim, heldur að það megi ekki oftúlka þær. „Einmal ist keinmal“ segja t.d. Þjóðverjarnir. (einu sinni er engu sinni).
    Gangi þér vel í áframhaldandi heilsubót.
    Kveðja – Svanur

  •   Svanur Sigurbjörnsson // 17.10 2009 kl. 17:02

    Sæll Davíð Arnar
    Takk. Góð saga!
    Akkúrat þetta með kvef og pestarsögurnar. Margt fólk áttar sig ekki á því hversu mikill munur getur verið á vetrum hjá sömu manneskjunni hvað smit varðar og því er ályktun um 1-2 vetra miða við 1-2 á undan algjörlega ómarktæk.
    Kveðja – Svanur

  •   Iris Erlingsdóttir // 19.10 2009 kl. 19:53

    Íslendingar eru alltaf að leita að „the easier, softer way…“ út úr öllu, sama hvort um er að ræða fitu eða fjármál. Þessi pistill minnir mig annars á annan sem ég skrifaði fyrir nokkrum árum á icelandreview.com (The Herbalife Hepatitis Club) http://www.icelandreview.com/icelandreview/search/news/Default.asp?ew_0_a_id=262337
    um vinsæl „bætiefni“ á Íslandi; varð á endanum að loka tölvupóstinum tengdum greininni vegna rætinna haturspósta frá sölufólki „bætiefnanna.“

  •   Hjördís Óskarsdóttir // 20.10 2009 kl. 18:56

    Takk fyrir góðan pistil Svanur.

    Er annars ekki best að ganga eftir hinum gullna meðalvegi?

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):