Steinunn Valdís Óskarsdóttir

blogg á eyjan.is

Mikilvægur áfangi í kvennabaráttu

5.3 2010 | 09:22 | 22 ummæli

Í gær voru staðfest lög á Alþingi sem kveða á um jafnræði kynjanna í stjórnum stærri fyrirtækja. Á undanförnum misserum hefur mikið verið talað um mikilvægi þess að konur komi til jafns á við karla að stjórnum fyrirtækja.  Lítið hefur samt breyst og allt talið hefur ekki skilað sér í fjölgun kvenna.  Sumir hafa meira að segja viljað ganga svo langt að segja að ein skýring hrunsins hafi meðal annars verið sú að lítill hópur karla hafi ráðskast með fyrirtækin og víða hefði verið farið varlegar ef konur hefðu komið meira að stjórnun.  Auðvitað er ekkert hægt að fullyrða í þeim efnum en hins vegar sýna margar rannsóknir að konur eru almennt varkárari í fjárfestingum en karlar og ekki eins áhættusæknar.  Það sýna margar rannsóknir. 

Viðskiptanefnd Alþingis hefur fjallað um þetta mál að undanförnu og í gær var lögleiddur kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja í lok árs 2013.   Það þýðir í raun og veru að ef atvinnulífið sjálft hefur ekki tekið sig á og tryggt að hlutur hvors kyns fyrir sig skuli vera að minnsta kosti 40% í árslok 2013 þá komi ákvæðið til framkvæmda.  Hér er enn og aftur tekið mið af óskum atvinnulífsins sem hefur nú þriggja ára aðlögunartíma.  Mín skoðun er reyndar sú að ef í ljós kemur á næstu mánuðum og misserum að lítið breytist þá komi til greina að herða á þessu ákvæði.  Það er búið að tala og tala og tala endalaust um að fyrirtækin og atvinnulífið verði að fá að gera þetta sjálft en því miður hefur lítið breyst.   Það verður því spennandi að sjá hvernig atvinnulífið mun nýta þennan þriggja ára aðlögunartíma.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (22)

  •   Skepticus // 5.3 2010 kl. 09:54

    Íþyngjandi lög og misnotkun á lagasetningavaldi alþingis.

  •   fannarh // 5.3 2010 kl. 10:08

    þetta er aumingja væðing. það sem þú og aðrir eru að segja er að konur sé of miklir aumingjar til þess að geta unnið sig sjálfar upp. ég er alfarið á móti þessari skilgreiningu þinni.

    auk þess vil ég spyrja þig að einu, mun jafnréttið ganga í báðar áttir? Er ekki kominn þá tími á að setja sambærilega löggjöf í Háskólum landsins? að það verði að vera 40% nemanda í hverju fagi af öðru kyninu? ef það er skekkja þá verði nemendum sem eru af fjölmennara kyninu vísað úr námi. eða er jafnrétti i þínum hug kannski bara sérréttindi til handa konu?

  •   Einar Már Gunnars. // 5.3 2010 kl. 10:37

    Ég verð bara að segja það, að þið þarna á alþingi skulu vera að karpa um svona mál sem skiptir engu máli, þegar að fjölskyldur í landinu eru í miklu basli og er verið að selja eignir þeirra ,tja bara út af einkavæðingunni sem Davíð Oddsson kom á. Ég held að hver og einn sem á fyrirtæki geti valið þann hæfasta í starfið og á það ekki a skipta máli hvort það er karl, kona, hommi eða lespía, þetta er barnalegt, jafnvel bjánalegt. Það er kommafýla af þessu.

  •   Guðmundur Heinrich // 5.3 2010 kl. 11:03

    Guð hvað ég er sammála Fannari og Einari. Og þess má geta að ekki eru eingöngu karlmenn sem eru þessu andsnúnir, margar konur hafa bent á vitleysuna sem þessu fylgir, má ég benda á grein Erlu Óskar á eyjan.is þar sem hún dregur öll helstu atriðin saman og er ég svo hjartanlega sammála henni þar. Að það skuli vera að eyða tíma alþingis í svona þvælu er ekki til þess að auka tiltrú almennings á þessari í hæsta falli, „ágætu“ stofnun…

  •   MargrétJ // 5.3 2010 kl. 11:31

    Þetta er frábært. Eins og einhver segir hér á blogginu. Þarna er verið að gera það sama og golfarar gera með forgjafakerfinu sínu.
    Jafnvægi og jafnrétti. Gott mál.
    Svo eigum við auðvitað að stíga skrefið til fulls og gera eins og Norðmenn. Takmarka verulega aðkomu hrunverja að fyrirtækjum og stjórnum þeirra. Jafnvel banna. Skiptir engu máli hvort þeir hafa verið dæmdir eða ekki. Á meðan beðið er dóms í máli þeirra eiga þeir að halda sig til hlés.

  •   Guðjón // 5.3 2010 kl. 11:36

    Þessi lög eru fáranleg og svo sannarleg ekki verið að gera konum neitt gott með þeim. Með svona aðgerð þá munu konur sem skipaðar eru í stjórnir félaga þurfa að búa við það að ávallt sé hægt að efast um það að þær séu þar vegna þess að þær voru taldar eiga þangað fullt erindi og séu þar að verðleikum en ekki vegna þess að þær eru konur.
    Ég hélt að kvennabaráttan væri jafnréttisbarátta en með þessari aðgerð þá hefur hún orðið að einhverju allt öðru.

  •   Birna // 5.3 2010 kl. 11:48

    Teljið þið strákar að hingað til hafi „sá hæfasti“ verið valinn til stjórnarsetu? Strákarnir hafa búið við jákvæða mismunun hingað til. Þessi lög eru viðbrögð við kerfisbundinni skekkju á vali í stjórnir. Hún hefur valdið því að fyrirtækjum er verr stjórnað en ella, og þjóðin sýpur seyðið af því

  •   Einar Már Gunnars. // 5.3 2010 kl. 12:06

    Birna þetta var allt í lagi þar til Dabbi kóngur einkavæddi bankana og fl til vina sinna, ríkisstjórn þess tíma á stórann hlut að þessu hruni og fyrirtæki réðu ekki við þetta hrun, sem væru í sömu sporum þótt konur væru í stjórn. Bjöggarnir, Jón ásgeir og nokkrir fl eru ekki rjóminn af íslenskum karlmönnum. Það ætti frekar að sétja lög um að menn sem gerðu þennan skandal þurfi að vinna kauplaust í nokkur ár í heilsugæslugeiranum, td, skúra, vaska upp, svo eitthvað sé nefnt. Alþingi þarf að gera eitthvað GAGN.

  •   Sólveig // 5.3 2010 kl. 12:10

    Dapurlegt að sjá gert lítið úr mikilvægi þess að tryggja aðkomu beggja kynja að stjórnum fyrirtækja. Áratugum saman hefur heyrst að þetta komi af sjálfu sér með tímanum, en það gerir það ekki. Ég pípi á allt tal um að þessi lög verði til þess að minna hæfar konur komist áfram á kostnað hæfari karla. Tengslakerfið kringum karla er og hefur verið ótrúlega öflugt, ekki aðeins hér á landi og til þess fallið að koma óhæfum körlum að. Eða hversu margar konur áttu þátt í að koma Íslandi á hausinn?

  •   Jakob Bjarnar // 5.3 2010 kl. 12:14

    Þetta er bara sorglegt. Ég hefði viljað sjá kosið um þessi (ó)lög í þjóðaratkvæðagreiðslu frekar en þetta fáránlega Icesave-rugl. Mín tilfinning fyrir því er sú að 70% kjósenda myndu setja sig á móti þessu. Þið í Samfylkingunni eruð gersamlega að mislesa þessi háværu gól í forræðishyggjusinnuðum og femínistum sem svo að þarna sé meirihlutaskoðun. Svo er ekki. Þið eruð á góðri leið með að afhenda Sjálfstæðismönnum völdin aftur eins og nauðsynlegt er nú að halda þeim frá meðan verið er að gera þessi ósköp upp. Frjálslyndir jafnaðarmenn eru á flótta frá þessum ósköpum.

  •   MargrétJ // 5.3 2010 kl. 12:20

    @Sólveig

    HEYR HEYR !!!

  •   SG // 5.3 2010 kl. 13:45

    Þetta er svo sorglegt viðhorf, þetta er ofbeldi á einkarekin fyrirtæki.
    Forræðishyggja, femínismi, skilningsleysi, aumingjablæti og þaðanaf verra.

    Það getur engin kona né karl verið stolt af því að sitja í stjórn fyrirtækja á þessum aumingja forsendum. Konur hafa alla burði til að sýna hvað í þeim býr og á ég bæði konu og dætur sem ég hef alla trú á. Þið smánið Alþingi og þið smánið hlut kvenna með þessum lögum.

  •   Halldóra // 5.3 2010 kl. 14:09

    Ég fordæmi og lýsi furðu minni á þessari niðrandi löggjöf Alþingis. Þetta tilfelli sýnir hvernig löggjafavaldið er misnotað til þess að koma fáránlegum skilaboðum frá minnihlutavælu út í atvinnulífið.

    Var ekki hægt að senda þessi fáránlegu skilaboð á annan máta td. með þingályktun?

    Öll fyrirtæki sem hafa hagkvæmni að leiðarljósi hljóta að meta einstaka umsækjanda eftir menntun, persónuleika, hæfileika og dugnaði óháð kyni einstaklingsins eða öðru sem skiptir nákvæmlega engu máli.

    Ég lasta löggjafavaldið fyrir það að niðurlægja mig og aðrar sjálfstæðar þenkjandi konur með íþyngjandi löggjöf á viðskiptalífið.

    Ég þarf ekkert forskot, takk samt!

  •   Halldóra // 5.3 2010 kl. 14:24

    Eitt í viðbót…

    Varð Vigdís Finnbogadóttir Forseti á sínum tíma vegna kynjakvóta? Eða getur það verið að hún hafi haft áræðni, gáfur, persónuleika og hæfileika til þess að gegna hlutverki Forseta ?

  •   Heinrich Heine // 5.3 2010 kl. 14:39

    Vel að verki staðið þykir okkur hérna í Paradís. Hann Jónas minn Hall var svo einkar ánægður með Alþingið þegar við fengum okkur morgunsopann áðan hérna úti við Mímisbrunn. „Ja, bliv bare ved piger“ gall í honum (já við tölum ávallt saman á dönsku) um leið og hann snaraðist af stað á grasafjallið blessaður. Orðinn svona ljómandi góður í fætinum. Ja. Bliv bare ved.

  •   Jónas Bjarnason // 5.3 2010 kl. 16:30

    Hvernig var það, Steinunn Valdís? Fékkst þú ekki 2,6 milljónir til kosningabaráttu frá Landsbanka Íslands. – Og hvers vegna tókuð þið, Ingibjörg Sólrún og þú, þátt í því að ryðja burt Stefáni Jóni Hafstein í Reykjvík? Sú kvennabarátta, sem miðar að því að losna við hæfa karlframbjóðendur, er ekki farsæl. Hið sama á við um löggjöfina, sem þú ert að ræða um að ofan. Þið verðið að fara varlega um sinn og beita ekki löggjöf eins og sleggju í félagslegri baráttu. Eða viltu kannski auka vandræði Samfylkingar?

  •   Tryggvi Lárusson // 5.3 2010 kl. 16:42

    Lagasetning um kynjakvóta er niðurlægjandi fyrir konur.

    Það er í raun verið að staðfesta það með lögum, að konur séu óæðri, og því þurfu sérstök lög til að tryggja framgang þeirra.

    Hvað er svona eftirsóknarvert við að vera í stjórnum fyrirtækja? Hverju haldið þið konur að þið séuð að missa af?

    Eru það völd eða eru það áhrif sem þið sækist eftir?

    Eða eruð þið kannski bara ekkert betri en hinir strákarnir, þessir valdagráðugu sem riðu hér um héruð hér áður fyrr og þóttust vera miklir menn?

    Þið megið trúa því stelpur, að hér er ekkert í að físast. Þetta er ekki eins æðislegt og þið haldið. Langir og slítandi fundir, þeytingur um allan bæ, eða jafnvel út í lönd, afbrigðilegir vinnutímar, sundurslitið einkalíf, skellur þegar ábirgð fellur á ykkur þegar eitthvað kemur upp á, o.s.frv.

    Meira að segja konur á Norðurlöndunum er ekkert áfjáðar í að komast í toppstöður. T.d. hefur það verið vandamál fyrir Norðmenn og uppfylla kynjakvótana hjá sér.

    Og munið, að er kallt á toppnum.

    Og hver verður svo ávinngurinn? Útbruni, áfengisvandamál, magasár, hjartavandamál, stress, lélegt einkalíf, skilnaðir og allir þessir lífstílssjúkdómar sem hingað til hafa hrjáð karlmenn.

  •   Guðrún // 5.3 2010 kl. 16:59

    Tryggvi. Já þessi stjórnarseta og yfirmannsstöður. Þetta er allt saman alveg hundleiðinlegt. Þess vegna er best að karlmenn sjái bara um þetta. Er það ekki?

    Veistu, þetta eru sömu rök og hafa verið notuð gegn konum alla tíð. Nei þið skulið ekkert vera að fara að mennta ykkur. Það er svo leiðinlegt, erfitt. Nei þið skulið ekkert fara út á vinnumarkaðinn, það er svo erfitt, leiðinlegt.

    Best að við karlmennirnir sjáum bara um þetta.

  •   Guðrún // 5.3 2010 kl. 17:04

    Halldóra. Ef þú heldur að atvinnulífið byggist á því að ráða þann hæfasta í stjórnir og yfirmannsstöður þá ættir þú að athuga hvernig ráðið hefur verið í stjórnir og yfirmannstöður. Hérna var atvinnulífinu skipt upp á milli valdablokka og menn settu sína „menn“ í lykilstöður í stjórnum og yfirmannsstöður. Hvernig er t.d umhorfs í Skýrr núna? Þegar Þórólfur var stjórnandi var jafnt kynjahlutfall í yfirmannsstöðum. Eftir sameininguna og að honum var sagt upp voru allar konurnar í yfirmannstöðum lækkaðar í tign og karlar settir í yfirmannsstöðurnar í staðinn.

    Það er svo langt í frá að hæfni og menntun hafi verið látin ráða við kosningar í stjórnir og ráðningar í yfirmannsstöður. Hefur skipt meira máli hvern þú þekkir og hverjum þú ert skyldur en hversu hæfur þú ert.

  •   Villi Pálls // 5.3 2010 kl. 23:05

    Ég er orðinn þreyttur á þessu kvenna þetta kvenna hitt.
    Það eru sérstök kvennhlaup, sérstakir kvennafrídagar, kvennakvöld hjá verslunum, auður í krafti kvenna, konur í atvinnulífinu, flest tímarit fjalla um konur og eru fyrir konur, sérstök lög fyrir konur svo þær nái frama, og lengi mætti telja.

    Hvað með okkur karlana? Á ekkert að gera fyrir okkur? Það er verið að kvennvæða allt samfélagið.

    Konur er 65% háskólanema sem þýðir að þær munu fá öll bestu störfin í framtíðinni, á meðan karlmenn fara bara í erfiðsvinnu og öll hættulegu störfin, og vest borguðu.

    Í framtíðinni munum við sjá fullt af karlmönnum sem verða undir í samfélaginu út af þessu.
    Þeir munu ekki verða gjaldgengir á „kjötmarkaðinum“ því þeir munum einungis verða í láglauna og erfisvinnustörfum og því ekki nógu góðir og fínir skaffarar fyrir allar þær konur sem veða í hálaunastörfunum í framtíðinni.
    Vegna þessa mun fólki fara fækkandi sem og hjónaböndum, og lausnin mun verða að konurnar sem verða komnar með öll völd, munu taka þá ákvörðun að halda nokkur góð eintök af karlmönnum sem notaðir verða til undaneldis, sem einskonar sæðisgjafar, svo hægt verði að viðhalda mannkyninu.

    Hvítir, gagnkynhneygðir, miðaldra kristnir karlmenn eru á góðri leið með að verða minnihlutahópur.
    Þetta er eini hópur fólks sem má gera grín að og niðurlægja. Sjáið bara allar grínmyndir sem og auglýsingar. Þar er þessi hópur manna gerður að hlægilegum aulum sbr. Homer Simpson og Family Guy.

    Í öllum auglýsingum eru hvítir miðaldra karlmenn gerðir hálvitalegir, á meðan aðrir samfélagshópar eru gerði gáfaðir og flottir aðilar með allt á hreinu.

    Ástæðan fyrir því að þetta er svona er sú að samkvæmt pólitískum rétttrúnaðir má ekki gera grín að samkynhneygðum, og auðvitað ekki að fötluðu fólki og gömlu fólki, alls ekki að börnum, ekki gera grín af öðrum trúarhópum en kristnum, ekki gera grín að feitu fólki, ekki gera grín að öðrum kynþáttum en hvítum, því þá er maður rasisti, og ekki má gera lítið úr konum, því þá er maður að beita þær kynbundnu ofbeldi.
    Niðurstaðan er því sú, að einungis má gera grín að og lítið úr; hvítum, gagnkynhneygðum, kristnum karlmönnum á aldrinum 20-50 ára.

    Lokaaðförin að þessum hópi manna er svo að skerða réttindi þeirra með sérstökum kynjakvótum.

  •   Hörður Birgir Hjartarson // 25.4 2010 kl. 15:36

    Steinunn Valdís !

    Hér með vil ég hvetja þig , bæði til að taka þessa setningu , alvarlega , sem tekin er beint úr bankaskýrslunni , einnig hvet ég þig til að lesa bæði mitt blogg , svo og ýmsra annarra um setu þína í Þjóðarleikhúsinu :

    “ Eitt augljósasta tækið viðskiptalífsins til að hafa áhrif á stjórnmálamenn eru bein fjárframlög ,bæði til stjórnmálaflokka og stakra stjórnmálamanna .“

    Nú , næstu daga kemur bersýnilega í ljós , hvort þú sért maður eða mús .

    Í sjálfu sér er allt of seint í rassinn gripið hjá þér , en eins og máltækið segir ; seint er betra en aldrei .

  •   Árni // 4.5 2010 kl. 15:22

    Samfylkingin er sérréttindarassgat einsog hinir flokkarnir

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og einum? Svar: