Steinunn Valdís Óskarsdóttir

blogg á eyjan.is

Skýr svör forsætisráðherra vegna Evu Joly

11.6 2009 | 11:19 | 8 ummæli

Í dag  beindi ég fyrirspurn til forsætisráðherra vegna ummæla Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara í Kastljósinu í gærkvöldi.  Þar kom fram að hún teldi rannsókn á bankahruninu í uppnámi vegna þess að ekki væru veittir nægjanlegir fjármunir í rannsóknina.  Sagðist hún jafnframt ekki myndu leggja nafn sitt við áframhaldandi vinnu ef úr þessu yrði ekki bætt. 

Ég tel afar mikilvægt að taka þessar athugasemdir Evu Joly  alvarlega enda nýtur hún trausts bæði innan lands og utan fyrir störf sín.  Það er mjög brýnt að nýta krafta hennar og reynslu og það er ljóst að margir binda miklar vonir við störf hennar.  Hún telur rannsóknina á íslenska bankahruninu einhverja þá mikilvægustu rannsókn allra tíma í Evrópu og því ljóst að hér eru gríðarlegir hagsmunir í húfi.    Hún telur jafnframt nauðsynlegt að ríkissaksóknari viki með öllu vegna vanhæfis og  því vil ég jafnframt spyrja hæstvirtan ráðherra um skoðun hennar á því máli.

Það er ljóst að það er mikil tortryggni í samfélaginu og þessi rannsókn á bankahruninu er liður í því að byggja aftur upp traust milli manna í okkar ágæta samfélagi.  Hér mun aldrei nást sátt eða að hægt verði að byggja aftur upp traust nema þeir sem sökina bera verði fundnir og sóttir til saka.  Almenningur treystir Evu Joly og því er það mín skoðun að við eigum að gera allt sem við getum til að tryggja henni þá starfsaðstöðu sem hún telur ásættanlega fyrir framgang rannsóknarinnar. 

Spurning mín til forsætisráðherra var því einföld – hvað hyggst hæstvirtur ráðherra gera í málinu?

Forsætisráðherra var afar skýr í sínu svari og sagði að ríkisstjórnin myndi gera allt sem í hennar valdi stæði til að koma til móts við óskir Evu Joly og að auki lýsti Jóhanna þeirri skoðun sinni að ríkissaksóknara bæri að víkja.

Þetta eru afgerandi skilaboð um málið og verður vonandi til þess að starf Evu Joly og félaga getur gengið áfram.  Við þurfum á því að halda.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (8)

  •   Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir // 11.6 2009 kl. 11:42

    Vel að verki staðið, Steinunn.

    Gott að ganga hreint til verks og fá fyrirætlanir stjórnvalda skýrt fram sem allra fyrst. Við lifum á viðkvæmum tímum. Þakka þér fyrir, Steinunn.

  •   ÞG // 11.6 2009 kl. 12:09

    Hvers vegna ekki löngu löngu fyrr Steinunn. Eva er búin að afhjúpa vitleysuna sem hefur verið í gangi hjá núverandi ríkisstjórn. Af hverju þarf alltaf að skella í tönnum svo eitthvað sé gert?.

  •   Héðinn Björnsson // 11.6 2009 kl. 12:15

    Gott skref en þið verðið að fara að átta ykkur á að við lítum svo á að þið farið með ríkisvaldið. Því eigum við erfitt með að skilja að þegar þeir sem fara fyrir meirihluta Alþingis segjast munu gera allt sem í þeirra valdi stendur að þá skuli ganga svona illa að koma því í framkvæmd.

  •   Eyleifur // 11.6 2009 kl. 13:03

    Eins og þú veist best sjálf Steinunn er þessi fyrirspurn þín populismi af verstu gerð. Valtýr hefur fyrir löngu lýst sig vanhæfann en þið gerðuð ekkert í málinu. Fyrir löngu lágu kröfur Evu fyrir en þið gerðuð ekkert í málinu. Af hverju gerðuð þið ekkert í málinu fyrr en Eva hafði hótað að hætta? Svo reynir frú Jóhanna að gera Valtýr tortryggilegan, manninn sem fyrir löngu var búinn að lýsa sig vanhæfan.

  •   Barði // 11.6 2009 kl. 13:17

    Ætlaru ekkert að blogga um 100+ milljónirnar sem Samfylkingin fékk árið 2006

    Ef einhver hefur áhyggjur af því að þetta sé ekki í samhengi við upprunalegu færsluna þá eru augljósu tengslin hversu mikil tregða er við að rannsaka hrunið og þeir sem væru til rannsóknar eru sömu mennirnir og dældu peningum í alla flokka.

  •   Sveinbjörn Árnason // 11.6 2009 kl. 16:08

    Því fyrr sem flokkakerfið og ALþingi Íslendinga verður lagt niður og ‘island stjórnað af erlendum óspilltum sérfræðingum því betra fyrir heila þjóð.

  •   hey // 11.6 2009 kl. 21:43

    Þetta eru ítrekanir á kröfum Evu sem ættu allar að vera komnar í gang.
    Það er látið sem að þetta sé eitthvað nýtt.
    Það er rétt hjá þér að svörin eru skýr og hafa alltaf verið.
    Það er hins vegar efndirnar sem eru ekki af sama gæðaflokki og svörin.

  •   magnús steinar // 13.6 2009 kl. 11:21

    Efndirnar eru eingar,hver heldur að samspillingin hafi áhuga á að sannleikurinn komi í ljós.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og fjórum? Svar: