Það var fín stemning og fullt út úr dyrum á ársþingi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar í gær á Hótel Loftleiðum. Landsfundur verður settur síðar í dag og það er alveg ljóst eftir fundinn í gær að konur í flokknum munu láta mjög til sín taka þar. Rætt var um mikilvægi þess að konur standi saman og peppi hver aðra upp í stjórnmálum. Eftir flottar ræður nýrra kvenframbjóðenda flutti Ingibjörg Sólrún magnaða ræðu um mikilvægi kvennasamstöðu. Nú göngum við tvíefldar til landsfundar og látum til okkar taka!
Fundurinn sendi frá sér þessa ályktun:
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar lýsir ánægju með störf Samfylkingarinnar í ríkisstjórn undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrsta kvenforsætisráðherra Íslands. Kvennahreyfingin telur brýnt að eftir kosningar verði mynduð félagshyggjustjórn sem hefur það að markmiði að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið, endurreisa atvinnulífið og tryggja velferð allra í samfélaginu. Kvennahreyfingin telur einnig mikilvægt að standa vörð um hag láglaunakvenna í þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í rekstri hins opinbera og huga að því að skapa störf jafnt fyrir konur sem karla í þeirri uppbyggingu sem framundan er.
Þá krefst Kvennahreyfing Samfylkingarinnar þess að jafnréttis sé gætt við skipan í nefndir, stjórnir og ráð hjá hinu opinbera og innan flokksins og að ekki verði endurtekin mistök síðustu vikna í þeim efnum.
Kvennahreyfingin þakkar Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, sem lætur af formennsku á landsfundi, fyrir framlag hennar til íslenskra stjórnmála og kvennabaráttu. Hún hefur unnið glæsta sigra fyrir félagshyggjufólk á Íslandi og breytt inntaki íslenskra stjórnmála. Um leið og við óskum henni góðs bata vonumst við til þess að hún snúi tvíefld tilbaka.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Rita ummæli