Í Kastljósi í gær var Tryggvi Þór, frambjóðandi xD í Norðaustur, að ræða við Sigríði Ingibjörgu, stöllu mína í Reykjavík, um þá hugmynd að afskrifa 20% af öllum húsnæðisskuldum landsmanna með einni aðgerð, flatt. Tryggvi Þór, sem hlaut kosningu í annað sætið hjá Sjöllum í prófkjöri, kemur nú eins og hvítskúraður postuli, hafandi verið efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde í hruninu og boðar erindið. Og hvert er fagnaðarerindið? Að fólk sem ekki þarf á því að halda fái afskrifað til jafns við þá sem bráðnauðsynlega þurfa. Nú veit ég ekki hvað Tryggvi skuldar í sínu húsnæði en ég veit hvað ég borga af mínum lánum. Og þó það sé býsna mikið, eins og hjá flestum öðrum, sé ég enga ástæðu til annars en að við Tryggvi borgum bara okkar húsnæðislán sjálf. Í máli Tryggva kom nefnilega fram að þótt hann tryði því að enginn þyrfti að borga þessi flötu 20% myndi vitaskuld koma til kostnaðarsamra björgunaraðgerða fyrir verst stöddu heimilin. Einhver þarf sumsé að borga á endanum!
Lykilatriðið í þessari hugmynd er ekki nýtt. Það er gamalt. Það er að með því að auka velsæld í einum hópi muni allir græða því molarnir muni hrynja af borðum þeirra betur stöddu til þeirra sem minna hafa. Þann falska söng höfum við mátt hlusta á allt of lengi og gagnrýni á hann hefur verið afgreidd sem öfund.
Eða getur verið að erindi Tryggva Þórs, sem nýs frambjóðanda xD, sé að bjóða Framsókn upp í dans? Er hann daman sem býður herra Framsókn í nýja ríkisstjórn? - Á eintómum popúlisma …
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Ummæli (51)
Anna Sigrún Baldursdóttir // 17.3 2009 kl. 11:49
Þarna hittir þú naglann á höfuðið.
Þessi tillaga hefur hér með verið réttfeðruð nýfrjálshyggjunni. Sem ég hélt að væri orðin getulaus.
Bori-Gor // 17.3 2009 kl. 12:01
Hvað leggið þið til dömur til að koma í veg fyrir kerfishrun hérlendis?
Atvinnuleysið er komið í yfir 17 þús manns and still counting, fyrirtækinn eru að komast í þrot. Fólksflóttinn er brostinn á…
Eigum við að bíða eftir því að markaðurinn leiðrétti sig? Hversu margar fjölskyldur verða orðnar gjaldþrota?
Vandamálin hérlendis eru það stór að þau eru hafin yfir pólítískt þvarg?
Vinsamlegast komið með skynsamar lausnir?
Barði Barðason // 17.3 2009 kl. 12:06
Þið viljið náttúrulega frekar gera þetta kratískt :
Með tekjutengingum, eftir fjölskyldumunstri, með eftirá plástragreiðslum (sbr. hækkun vaxtabóta) í stuttu máli sagt með sértækum lausnum þar sem þeir njóta þess sem kunna að væla útúr „kerfinu“
Gísli Baldvinsson // 17.3 2009 kl. 12:14
Vonandi eru svör karlanna hér ekki dæmigerð fyrir kynið. Ég bloggaði um svipað Steinunn og minnti á hugmyndir Tryggva Þórs um niðurlagningu íbúðarlánasjóðs. Sjóðinn átti að gefa bönkunum! Við tökum á frambjóðandanum hér f. norðan. kv gb
Pétur Henry Petersen // 17.3 2009 kl. 12:19
Nú veit ég ekki hver hefur rétt fyrir sér, en það er virðingarvert hve Tryggvi og Sigríður voru opin fyrir hvors annars hugmyndum.
Ein spurning er sanngirni, er það sanngjarnt að þeir sem höguðu sér óskynsamlega í fjárfestingum sínum verði skornir úr snörum sínum á kostnað hinna? Þannig hefur líka flatur niðurskurður enginn jákvæð áhrif á þann sem að ekki skuldar.
Helena // 17.3 2009 kl. 12:29
Steinunn, ykkur og samstarfsflokki ykkar í ríkisstjórn ferst að tala um populisma. Líttu í eigin barm.
Hættið þessu skítkasti.
Tillögur framsóknar og nú Tryggva Þórs eru í það minnsta veruleiki. Og þær þarf að skoða. Tryggvi færði ágætis rök fyrir því hvernig framkvæmd þeirri gæti orðið. Jafnvel þótt sértækar lausnir komi til á síðari stigum. Tillögurnar eru í það minnsta róttækar og nýjar, eitthvað sem við þurfum á að halda núna.
Ég kalla eftir, þó ekki væri nema einhverjar tillögur frá ríkisstjórninni….hversu skynsamar sem þær kunna að verða. Því það verður að segjast að frá ykkur hefur afskaplega lítið heyrst, hvað hina margumtöluðu skaldborg um heimilin varðar!
Færsla þín er ágætis dæmi um það sem þú endar hana á því að gagnrýna: pólitískt þvarg.
Jón Tynes // 17.3 2009 kl. 12:44
Steinunn Valdís.
Samfylkingin á að hætta þessari þráhyggju. Hvernig væri að dusta rykið af samræðupólitíkinni, setjast niður og ræða málin.
Það sem m.a. kemur fram í tillögum framsóknarmanna er að lánasafn bankanna getur batnað. Þ.e. að allir græða, ef nota má lengur það orð.
Rögnvaldur // 17.3 2009 kl. 12:47
Þegar stjórnmálamenn setja fram arfavitlausar tillögur þá er sjálfsagt og nauðsynlegt að gagnrýna þær. Flatur niðurskurður myndi þýða að ég fengi gefins rúma milljón sem ég þarf bara ekkert á að halda, stend bara vel fjárhaldslega. Þeir sem þurfa aðstoð vegna hrunsins eiga að fá hana, aðrir ekki.
Svo einfalt er það nú.
GG // 17.3 2009 kl. 12:55
Instant lausn sem á að veiða atkvæði fyrir kosningar. Myndi koma margfalt í hausinn á þjóðinni fljótlega. Ég skil ekki sjallana að vilja Tryggva á þing. Hann var í eldlínunni í hrunina sem efnahagsráðgjafi forsætisráðherra! Og hvernig fór?
Góð ráðgjöf það eða hitt þó heldur. Guð hjálpi Íslandi……
Jón Tynes // 17.3 2009 kl. 13:00
Rögnvaldur.
Kannski kemur þessi hugmynd í veg fyrir að þú lendir í erfiðleikum seinna. Svona hugmyndir eru ekki settar fram bara til að leysa núverandi vanda, heldur líka til að grynka kreppu og koma hreyfingu á efnahagslífið. Líta má þessa tillögu sem hliðstæðu við útsölur. Verslunareigandinn situr uppi með óselda vöru og setur hana fram á niðursettu verði. Kúnninn hagnast eins og verslunareigandinn. Svo má ræða framsetningu og verðlagningu vörunnar.
Margrét // 17.3 2009 kl. 13:17
Steinunn segðu mér hver þarf mest á aðstoð að halda?
Getur verið að það sé það fólk sem keypti dýr hús, var jafnvel í góðri bankastöðu, átti 2-3 bíla?
Mér þykir það líklegt því það er fólkið sem er atvinnulaust núna og þarf mest á aðstoð að halda. Ertu að meina það fólk?
Er það aðstoðin við lítilmagnan sem Samfylkingarfólk hrópar um þessa dagana?
Er það réttlátt? Að við hin greiðum offjárfestingu þessa fólks. Held ekki. Þannig að ég segi komdu fagnandi Tryggvi, drífum í þessu.
Margrét // 17.3 2009 kl. 13:21
Já og eitt enn. Popúlismi hvað? Þetta lítur út fyrir að vera raunhæfar og gerlegar hugmyndir sem ættu að fá hjól samfélagsins í gang uppá nýtt. Bendi einnig á að þetta er það sem Barak Obama og hans ríkisstjórn hinum megin hafsins eru að möndla með.
Það má svo forma hugmyndina frekar. t.d. með því að setja þak, t.d. húseignin má ekki vera dýrari en 80 milljónir og aðeins ein húseign á fjölskyldu.
Þetta er ekki popúlismi.
Pétur // 17.3 2009 kl. 13:21
Er þá allt í lagi að eign mín í íbúðunni sem ég get borgað þurrkist út vegna verðbólgu. Sem verður til þess að ég get t.d. ekki stækkað við mig. Á borgaði árið 2005 35% í íbúð í blokk sem ég keypti. Ef ég sel núna er líkur til þess að ég fái ekkert út úr íbúðinni og get þar með ekki keypt mér aðra íbúð. Er það sanngjarnt?? Hvernig ætlið þið að velja þá sem fá skuldaaflausn?? er það kannski fólk sem keypti sér of stórt miðað við laun á sínum tíma, en getur ekki borgað af núna. Ekki sanngjarnt. Það sem ég er hræddur um er að samfylkingin tali um þá verst settu, en geri svo nákvæmlega ekki neitt.
V // 17.3 2009 kl. 13:27
Sprenghlægilegt að hlusta á samfylkingarþingmann tala um hvítþvott – hann var efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar sem Geir leiddi ásamt Ingibjörgu Sólrúnu.
Arnar // 17.3 2009 kl. 13:34
Þessi hugmynd er jafn fullkomlega óraunhæf og óraunveruleg og hún hljómar: 20% niðurfelling allra skulda heimila og fyrirtækja án þess að það kosti krónu!
Trixið er að gefa sér forsendur á borð við þá að staða allra fyrirtækja og allra heimila sé næstum nákvæmlega sú sama. Það er alrangt svo stórfé mun renna til heimila og fyrirtækja sem ekki þurfa á neinni hjálpa að halda án þess að aðgerðin dugi til að bjarga hinum verst stöddu. Þess vegna losna menn ekkert við að fara í sértækar og kostnaðarsamar aðgerðir eða afskriftir hjá þeim. Forsendan fyrir því að þetta kosti ekkert er því brostin eins og fjölmargir hafa bent á.
Og hver borgar þá? Ríkið, ergo skattgreiðendur.
Annað trix er að gefa sér að allar skuldir fyrirtækja og heimila hafi verið fluttar frá gömlu föllnu bönkunum inn í þá nýju með rúmri varúðarniðurfærslu. Það er líka alrangt. Mikið af skuldum er í eigu annarra aðila, svo sem Íbúðalánasjóðs, Sparisjóða og annarra fjármálastofnana. Þar þarf að borga skellinn beint svo framkvæmdin er heldur ekki einföld.
Hringja annars engar viðvörunarbjöllur þegar korter er til kosninga og almenningi eru boðnar „ókeypis“ töfralausnir sem nýtast raunar að langmestu leyti skuldugum fyrirtækjum og eigendum þeirra og er hampað af aðilum sem tengjast eða hafa tengst slíkum aðilum nánum viðskipta- eða fjölskylduböndum?
Ragnar // 17.3 2009 kl. 13:34
Steinunn hvernig væri að þú myndir segja okkur hver stefna þín og þíns flokks sé í þessu máli? Því ekki gat maður greint neina stefnu hjá ykkur eftir að hafa heyrt Sigríði Ingibjörgu tala í Kastljósi í gær.
Kv
Ragnar
p.s. Ekki segja mér samt að stefna ykkar sé að setja alla þá sem eiga í vandræðum með afborganirnar sínar á listamannalaun
Einar // 17.3 2009 kl. 13:44
Sammála þér Steinunn.
En þegar grannt er skoðað fjallar tillaga Tryggva og félaga um að gera Íslendinga að þjófum og það er alvarlegt að svona lélegar tillögur komi fram frá háskólamönnum.
Pétur // 17.3 2009 kl. 13:51
Samfylkingin gagnrýnir og gangrýnir en kemur ALDREI með neinar lausnir. Dæmigert fyrir þennan flokk. Lausnir ykkar felast í að lengja í lánum og fresta vandamálum heimila. Þetta er sú nálgun sem er hve rótækust og á skilið að skoða betur eins og Sigríður félst á að gera.
Dæmigert comment hjá fólki sem gagnrýnir þessa stefnu er að það eigi bara að hjálpa þeim sem eru verst staddir. En eins og Tryggvi bendir réttilega á þá tekur það ALLTOF langan tíma og það þyrfti að ráða örugglega 1000 þjónustufulltrúa til að aðstoða þetta fólk og við höfum bara ekki tíma til þess. Ef ekkert er gert á næstu vikum þá mun allt kerfið hrynja hér. Það þarf róttækar aðgerðir og ekki er Samfylkingin að boða þær.
Sigurður // 17.3 2009 kl. 14:02
Hvernig væri að hætta svona lýðskrumi og koma með lausnir?
Guðmundur M. // 17.3 2009 kl. 14:27
Steinunn Valdís skautar alveg yfir hugmyndina að gera vaxtagreiðslur og verðbætur frádráttarbærar frá skatti í 5 ár. Slíkt myndi auka ráðstöfunartekjur heimila til mikillar muna.
En Steinunn er Krati og þeir vilja að sjálfsögðu hafa af fólki pening og rétta því svo aftur hluta í formi bóta.
Einnig sér Steinunn,eins og aðrir Samfylkingarmenn,ekki neina ástæðu til að koma með eigin hugmyndir að lausn vandans. Bara að slá aðrar hugmyndir útaf borðinu. Segja bara já eitthvað en bara ekki þetta. Er það nú góðs viti?
Það má þakka fyrir að einhver komi þó fram með hugmyndir og er tilbúinn að færa rök fyrir þeim. Það er skömminni skárra en að hanga bara og gera ekki neitt eins og virðist vera lenskan í þeim ríkisstjórnum þar sem Samfylkingin á sæti í.
En að heyra Samfylkingar þingmann tala um Popúlisma annarra,það er skondið.
Beta // 17.3 2009 kl. 14:30
Steinunn orð þín græta mig! Við hjónin erum að missa íbúðina okkar! Í bankanum fáum við þau svör að það sé ekkert hægt að gera! a) frysting er tímabundin og leysir ekki vanda þess er glímir við atvinnuleysi. b) lenging í lánum dugar heldur ekki þeim er lendir i atvinnuleysi. c) á lán okkar hjóna hafa fallið 5 milljónir vegna verðtryggingar, viltu meina að við eigum að borga þær af því alþingi okkar stóð sig ekki á vaktinni. Varstu ekki á alþingi í mínu umboði?
Í bankanum er okkur sagt að þið í stjórn ríkisins séuð sein að vinna. Þjónustufulltrúinn okkar fussar bara þegar við spyrjum um greiðsluaðlögun og hvort við föllum ekki undir þann flokk sem geti nýtt sér hana. Greiðluaðlögunin er líka illa unnin, fyringarfresturinn er tvö ár en kröfuhafar getað rofið hann og haldið skuldinni endalaust við! Ég get ekki horft framan í það fólk sem stjórnar núna eða stjórnaði áður! Ég held að hvorki Samfylking né Sjálfstæðiflokkur geri sér grein fyrir því hve mikið af fólkinu sem áður var í þessum flokkum er komið langt frá þeim. Hér er neyð. Neyð kallar á neyðaraðstoð! Einhvern tíma get ég bent litlu dóttur minni á andlitið þitt og sagt þetta er hún Steinunn, hún var á móti öllum lausnum og kom með engar sjálf nema að aðild að esb væri málið og myndi leysa vandamálið með verðtrygginguna og fleira. Við pabbi þinn ákölluðum hana og ríkisstjórnina um hjálp en nei … þau sáu ekki vandann! Þau voru ekki tengslum við eymdina og raunveruleikann sem við hin búum við! Já dóttir góð þetta er hún Steinunn!
Kristján Elís // 17.3 2009 kl. 14:42
Tryggvið hefur ekkert útskýrt hvaða skuldir á að afskrifa, á að afskrifa allar skuldir um 20% eða ætlar hann kannski að handvelja skuldirnar sjálfur? Svo þarf hann að útskýra það hvernig hægt er að afskrifa skuldir og enginn tapar, það er ekki trúverðugt, þið ættuð að hlusta á viðtalið við Jón Steinsson í Kastljósi fyrir skömmu þar sem hann hafnaði þessari leið og mér er ekki kunnugt um að hann hafi verið innsti koppur í búri Sf.
Soffía Sigurðardóttir // 17.3 2009 kl. 14:42
Man einhver eftir kaupþingsauglýsingunni með breska leikaranum sem hrópaði uppyfir sig: „Three hundred thousand! Why don’t you give them a call?“
Það er hægt að setja almennar reglur og leysa síðan eftir þeim sértækt úr málum hvers og eins. Ef menn nenna.
En hvað sagði ekki efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde sem skýringu á því þegar hann hætti? M.a.: „Þetta varð meiri vinna en ég bjóst við.“ Hann sagðist þá líka ekki mundu héðan í frá vilja snerta á pólitík með tveggja metra priki. Kannski dró hann fram prikið þegar hann sá fram á að geta með því potað sér í náðuga daga sem stjórnarandstöðuþingmaður.
MMR // 17.3 2009 kl. 14:51
Er sammála mörgum hér um að Sigríður hagfræðingur var afar ótrúverðugur fulltrúi samfylkingunnar í Kastljósi.
Talaði langt mál og mikið en sagði lítið.
Petur // 17.3 2009 kl. 15:09
Það er kominn tími aðgerða. Ég vil benda á að með neyðarlögunum var öllum tryggð innistæða í bönkum hvort sem þeir áttu þúsund kall eða hundrað milljónir. Ekki var nú mikill jöfnuður í því. Samfylkingin verður að fara að skilja að sparnaður almennings í húsnæði er jafn mikil virði og sparnaður á sparisjóðsbók. 200 milljarðar voru settir í að borga 65-80% í peningamarkaðsbréfunum og enginn minntist á jöfnuð. Þið verðið að fara að gera eitthvað annað en að rífa niður tillögur sem virðast raunhæfar. Eina leiðin til að fá Samfylkinguna til að hugsa er að nefna hana ekki á nafn í næstu skoðanakönnun. Sigmundur Davíð og Tryggvi Þór eiga heiður skilinn fyrir að þora að setja fram aðrar tillögur en skuldafangelsis tillögur ríkisstjórnarinnar.
Beta // 17.3 2009 kl. 15:19
Já Pétur ég held nefnilega að fólkið muni kjósa með buddunni og hún er tóm!
Samfylkingin er ekki að sjá vandann eða viðurkenna hann … hún lætur nákvæmlega eins og Sjálfstæðisflokkurinn í síðustu ríkisstjórn!
Heyrir hvorki né sér!
Steinunn hefur ekki komið með aðra tillögu eða málefnalega lamið þessa út af borðinu! Við þurfum aðgerðir strax við getum ekki beðið!
HJÁLP!
Beta // 17.3 2009 kl. 15:28
Bendi á smuguna þar kemur eftirfarandi fram: Lilja Mósesdóttir leggur til að gildi verðtryggingarvísitölunnar verði fært aftur fyrir hrun bankakerfisins og höfuðstóll lækkaður til samræmis, eða um 20%. Hún telur jafnframt að grípa þurfi til enn róttækari lækkunar á gengistryggðum lánum til þess að hægt sé að færa þau á gengi krónunnar fyrir hrun bankakerfisins.
Með hverjum ætlar Steinunn í stjórn? Spurning um Framsókn og Vinstri græna´?
Petur // 17.3 2009 kl. 15:37
Beta. Eru þetta ekki hugmyndirnar sem Framsókn hefur verið að leggja til og Jóhanna forsætis og Steingrímur fjármála slógu út af borðinu án þess að reyna að skilja. Það er ekki sanngjart að taka það af Framsókn sem hún á.
Haraldur Guðnason // 17.3 2009 kl. 15:48
Steinunn: Þú hefur hreint engan rétt á að reyna að slá þig til riddara með því að kalla þetta „Popúlisma dauðans“ því að þetta fólk er þó í það minnsta að reyna að leita einhverra leiða til að takast á við ástandið … sem er gott meira en þú hefur gert.
Snögg leit í gagnagrunni Alþingis um hvaða mál þú hefur verið flutningsmaður að 2 síðustu þing:
- Umferðarlög (forgangsakreinar)
- Niðurlagning úrskurðarnefnda á sviði siglingamála
- Kynjahlutföll í stjórnum
- Tekjustofnar sveitarfélaga og gatnagerðargjald
- Loftferðir (flugvernd, gjaldtaka, EES-reglur)
- Siglingalög (uppfærsla takmörkunarfjárhæða)
- Skipan ferðamála (viðurlög o.fl.)
- Hafnalög (geymslugjald og heimild til að fresta framkvæmdum)
- Fjarskipti (hækkun jöfnunargjalds)
- Áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa
- Stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar o.fl.
- Landeyjahöfn
- Breytt fyrirkomulag á skráningu og þinglýsingu skipa
- Póst- og fjarskiptastofnun (eftirlitsúrræði og málskot)
- Gjald vegna vanrækslu á skoðun ökutækja
Þetta varst þú sumsé að dunda þér við á meðan óveðursskýin hrönnuðust upp. Eftir hrunið dundarðu þér svo við að gera lítið úr þeim sem reyna að finna lausnir á vandanum.
Segðu mér: hvað í ósköpunum fær þig til að halda að þú eigir eitthvað erindi á Alþingi?
Margrét // 17.3 2009 kl. 16:01
Steinunn ég bíð eftir svari; hverjir eru það, að þínu mati, sem þurfa mest á aðstoð að halda?
Er það fólkið með stóru lánin sem það getur ekki greitt af. Fólkið sem var í góðum stöðum, með há laun og gíraði sig upp skv. því? Því það er fólkið sem er í mestum vandanum.
Svar óskast.
Beta // 17.3 2009 kl. 17:04
Pétur það sem ég er að benda á er að það er ekki bara sjálfstæðismaðurinn Tryggvi eða framsóknarmaðurinn Sigmundur eða vinstrigræn Lilja eða samfylkingarmaðurinn Jón Daníelsson sem sjá þetta sem lausn! Það er fólk í öllum flokkum sem sér þessa lausn!
Guð hvað ég verð fegin þegar við losnum við flokkapólitík og fáum´að kjósa menn og málefni!
Lárus Sigurðsson // 17.3 2009 kl. 17:06
Þetta er svo gömul og handónýt pólitík sem þú ert að stunda Steinunn. Ég get bara ekki með nokkru móti séð hvernig fólk á að geta kosið ykkur. Allar hugmyndir sem koma eru slegnar út af borðinu án þess að skoða dæmið ofan í kjölinn. Ekkert hefur komið af viti frá flokk þínum, ekki einu sinni nýju gjaldþrotalögin, þar verður áfram hægt að halda kröfum opnum út í það óendanlega, nema núna á 2 ára fresti í stað 10. Gósentíð fyrir lögfræðinga. Ég held að þið áttið ykkur ekki á því að það verður að gera róttæka hluti STRAX , annar er mikil hætta á að algjört kerfishrun verður. Fyrir mitt leiti hef ég engann áhuga á að búa í húsnæði áfram sem bankinn er búinn að hirða af mér, eða lengja í hengingarólinni til 60,70 eða 80 ára. Nei, þá er ég farinn af landi brott. Ég er viss um að enginn einstaklingur er tilbúinn að láta pína sig út í það óendanlega. Ég og mín unnusta slitum sambandi okkar fyrir 5 vikum síðan og hún flutti til Svíþjóðar. Þetta þurftum við að gera því hún var orðin atvinnulaus og ekkert að hafa hér heima. Ég átti húsnæðið,bíl o.fl. sem ég var ekki tilbúinn að kasta frá mér, heldur reyna að bjarga þeim verðmætum eins og hægt væri. Ég er enn í vinnu og hún er komin með góða vinnu úti. Ég sit fastur í fjötrum hér heima með þær litlu eignir sem ég þó á. Ekkert hægt að selja, allt fast. Okkur fannst hreinlegra að slíta sambandinu heldur að bíða og bíða eftir einhverju sem kannski aldrei kemur. Ég er viss um að það er fullt af fólki hér úti sem hefur miklu ömurlegri sögur að segja frá. Það er búið að koma ömurlega fram við almenning í þessu landi og það kallar á róttækar leiðir. Lengingar í lánum gerir ekkert, það má þá bara taka allt mitt drasl. Það er búið að taka lífsbjörgina frá fólkinu. Ég ætla ekki að vera borga nánast öll mín laun í skuldir þar til ég fer í gröfina. ÞAÐ VAR EKKI ÉG SEM OLLI ÞESSU FÁRANLEGA ÁSTANDI.
Barði Barðason // 17.3 2009 kl. 17:12
Næstu alþingiskosningar munu vonandi verðlauna þá stjórnmálamenn sem geta hugsað út fyrir þröngt afmarkaðan kassa.
Tími smáskammtalækninga er liðinn – að minnsta kosti í bili – það þarf að gera eitthvað róttækt. Hvort að það er flöt niðurfelling á hluta skulda almennings veit ég ekki en eitthvað ALMENNT og RÓTTÆKT þarf að gera.
Og þá meina ég ekki að taka upp Evru árið 2012
Beta // 17.3 2009 kl. 17:24
Málið er að fólk eins og forsætisráðherra og fjármálaráðherra trúa því að þeirra flokkar muni hafa sigur í kosningunum! Ég veit um svo mikið af fólki sem er óákveðið og hefur kosið vinstri flokkana sem ætlar að kjósa eftir því hver er tilbúin að hjálpa því! Ég ætla að gera það! Ég ætla ekki að láta forsætisráðherra eða fjármálaráðherra komast upp með að hjálpa mér! Ég kýs þá sem hjálpa mér og hvet ykkur hin til að gera slíkt hið sama!
Nú fer að styttast í næstu byltingu það er vont að vera að missa allt sitt og fá enga aðstoð. Ég held að vinstri flokkarnir séu að gera stór mistök með því að bregðast ekki við vanda heimilana! Þau skulda líklega lítið sem ekkert og eru á góðum launum hjá okkur!
Beta // 17.3 2009 kl. 17:25
Komast upp með að hjálpa mér ekki!
oddur // 17.3 2009 kl. 17:41
Mér hugnast 20% hugmyndin betur og betur. Hefur hún ekki sömu þýðingu og ef við myndum færa vísitöluna aftur um nokkra mánuði? Er að ósanngjarnt eða óréttlátt? Eru þetta ekki peningar sem erlendir kröfuhafar hafa af afskrifað hvort eð er? Viljum við refsa okkur öllum og botnfrysta hagkerfið til langs tíma með hægvirkri handvalinni aðgerð við að velja úr þá sem “raunverulega” þurfa hjálp? Er ekki betra að við komum hagkerfinu á hreyfingu með einfaldri, hraðvirkri lausn eins og flati niðurskurðurinn sannarlega er?
Óðinn // 17.3 2009 kl. 17:47
Steinunn eins og annað sf-fólk hefur engar lausnir á einu og neinu
borkur // 17.3 2009 kl. 18:21
Pffffft.. popúlismi.
Pfffft..Tryggvi kann ekki að reka banka.
Slegið út af borðinu, málið dautt, engin rök, engin málefnaleg umræða, engar lausnir, ekki neitt. Ekta Samfylking.
Beta // 17.3 2009 kl. 18:24
b0rku pfffffffft Sjálfstæðisflokkurinn mun vinna kosningasigur af því að hann ætlar að hjálpa þjóðinni … við fyrirgefum honum í hvelli … Samfylkingin heldur bara áfram að segja arfavitlausar hugmyndir og tala fylgi sitt niður! Hún þarf enga hjálp við það! NEYÐIN KENNIR NAKTRI KONU AÐ SPINNA!
Margrét // 17.3 2009 kl. 20:26
Er enn að bíða Steinunn, hverjir eru það að þínu mati sem þurfa á hjálp að halda?
Haraldur Guðnason // 17.3 2009 kl. 20:43
Ég held að það sé borin von að hún Steinunn svari úr þessu. Nema hún sé að kynna sér hlutina til að geta svarað af viti, á málefnalegan, vel ígrundaðan og rökstuddan hátt? Það væri tilbreyting og það má alltaf halda í vonina … batnandi manni er best að lifa.
Gísli Árnason // 17.3 2009 kl. 20:49
Þér ferst Steinunn Valdís að tala um popúlisma.
Samfylkingin er sá flokkur sem sveiflast hvað mest eftir því hvernig vindar blása, stefnulaust.
Eintómur popúlismi.
SJ // 17.3 2009 kl. 20:56
Steinunn Valdís, þú starfar í gagnslausum stjórnamálaflokk og þú tjáir þig um málið án þess að nenna að setja þig inní hvað þessar tillögur snúast um. Er Samfylkingin ekki með Hagfræðinga á sínum snærum sem gætu útskýrt þetta fyrir ykkur leikmönnunum? Þið eruð algjörlega snar klikkuð og í engri tengingu við veruleikann! Kveðja, bálreiður fyrrum kjósandi samfylkingarinnar.
GT // 17.3 2009 kl. 21:08
eg spyr nu fra hvaða planetu kemur þetta folk ur Samfylkingu og VG ekki planet EARTH
enn.einn // 17.3 2009 kl. 21:19
Hér var í gangi svikakerfi sem stýrt var af bönkum og lífeyrissjóðum.Það átti sennilega að sölsa undir sig heimilin og taka stöðu gegn krónunni.Kerfissvikin leiddu til samfélagshruns. Allt átti þetta sér stað með þegjandi samþykki meirihluta Alþingis ( og margir þar fengu mola
af borðinu ), athafnaleysi ráðherra og eftirlitsstofnana.
Svikin gerðu krónuna verðlausa, kölluðu fram verðbólgu og gjaldþrot bankanna. FME tók þá yfir og
svíkur nú möglunarlaust erlenda kröfuhafa í boði Alþingis.Samfara sitja gömlu þjófagengin ( fyrir Alþingi ) enn í nýju og gömlu bönkunum og ætla nú að innheimta þýfi bankanna með handrukkun skv. lagasafni þingsins. En á meðan verið er að brjóta bakið á
fólki og snúa upp á það í bönkunum -sem greiða ekkert til baka sjálfir- þá sitja þau skötuhjú í stjórnarráðinu og kalla þessa framtakssemi bankaþjófanna ´´varðstöðu um heimilin í landinu´´.Minnir þetta ekki bara á eiturlyfjaheiminn ??
Þeir sem vilja draga handrukkarana ofan af fólki eru svo kallaðir populistar. Eru þeir ekki bara að reyna að gera það sem lögregla gerir í öðrum löndum ? skila þýfi bankanna þangað sem því var stolið ??
hey // 17.3 2009 kl. 21:53
Það er athyglisverð taugaveiklunin sem er að hreiðra um sig hjá sf! Sf hélt að heimurinn væri þeirra með því að losa sig við sjallanna og DO. Þeir eru að vakna upp við vondan draum.
Framsókn sem heldur í þeim lífi er óánægð hvernig haldið hefur verið á málum. Ekkert sem um var samið í upphafi hefur verið gert. Þetta staðfesti formaður frammara. Hversu lengi halda frammarar þessa lítillækkun út?
Bensi // 17.3 2009 kl. 22:07
Steinunn Valdís; nú brástu mér alveg. Þessi skætingur er ekki samboðinn þér . . . á meðan okkar ágæti flokkur og ráðherrar hafa ekki efnilega lausn á efnahagsmálum heimilanna . . .
Gjaldþrotameðferð (manneskjuleg greiðsluaðlögun) í boði Samfylkingarinnar er ekki viðundandi framtíðarsýn að bera á borð fyrir 30 þúsund heimili fyrir árlok 2009.
Stígðu nú eitt skarpt skref til baka og komdu inn í efnislega úrvinnslu – með okkur Tryggva og Hagsmunasamtökum heimilanna . . . . . http://www.heimilin.is til að forða gjaldþrotum tugþúsundanna. „Þjóðargjaldþrot-heimilanna“ má aldrei verða á vakt Samfylkingarinnar og „heilagrar Jóhönnu“
Jón // 17.3 2009 kl. 23:35
Þetta snýst um réttlæti. Hvernig getur eigið fé í fasteign verið ótryggð í þeim hamförum sem gengið hafa yfir á meðan inneign í banka er varin var með neyðarlögunum. Þetta eru allt sömu hamfarirnar.
Einu aðilarnir sem tapa hugsanlega á þessu eru þeir sem ekkert skulda en kerfisbundna aðgerðin kemur þó í veg fyrir frekara verðfall skuldlausra eigna og ver þar með eigið fé þeirra aðila.
Síðan ætti að leggja hugsun í það hvort ekki sé mögulegt að afnema verðtrygginguna í sama aðgerðapakkanum
Héðinn Björnsson // 18.3 2009 kl. 13:42
Hættið að gagnrýna áætlanir annarra og farið að koma með eigin áætlun.
Björn S. Lárusson // 19.3 2009 kl. 16:42
Steinunn – er atvinnubótavinna lögfræðinga sem tilsjonarmenn 40.000 heimila betri? Sértæk sænsk/kratísk leið þar sem fólk opinberar sig fyrir tilsjónarmanni ríkisins? Lestu tillögurnar og skóttu svo. Það er ekki hægt að gagnrýna þær án þess að vita um hvað þær fjalla.
Zormemohoarge // 3.5 2009 kl. 10:21
Licencofe dilmstipledep
Rita ummæli