Verð að játa að ég var ansi uppgefin í gær eftir prófkjörslotuna. Var enda að taka þátt í mínu þriðja prófkjöri á jafn mörgum árum – geri aðrir betur. Niðurstaðan var sjöunda sætið og þótt ég hafi vissulega sett stefnuna ofar get ég vel við unað. Var í áttunda sæti síðast og mjakast því hægt upp á við! Þónokkur endurnýjun varð á listanum í Reykjavík og þrjú koma ný í efstu átta. Sigríður Ingibjörg, Skúli og Valgerður hlutu öll glæsilega kosningu – að ég tali ekki um rússneska kosningu Jóhönnu. Ég vil þakka öllu því góða fólki sem lagði mér lið í baráttunni og félögum mínum í Samfylkingunni fyrir traustið sem mér er sýnt eftir erfiðan vetur. En nú er þessari prófkjörstörn lokið og við tekur næsta vers sem er kosningabaráttan í vor. Mjög stutt er til kosninga og nú er viðbúið að öll framboð fari að skerpa sínar áherslur. Ég er til í slaginn og hlakka til.
Til í slaginn
16.3 2009 | 14:51 | 4 ummæli
Flokkar: Óflokkað
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Ummæli (4)
Nýi Dexter // 16.3 2009 kl. 15:26
Svo kemur sumarfrí.
Björk Vilehlmsdóttir // 16.3 2009 kl. 15:47
Þú lætur mig vita um hvenær eigi að mæta með þér í kosningarundirbúning í Laugardal. Við tökum þetta því þjóðin þarfnast velferðar og áherslna á vinstrivængnum
Héðinn Björnsson // 16.3 2009 kl. 17:59
Þá er komið að því að fara að tala um pólitík aftur úr því að mannaspurningarnar er frá í bili. Því spyr ég aftur að AGS-áætluninni og uppsögnum ríkisstarfsmanna. Samkvæmt áætluninni á að minnka hallan á ríkissjóð um 90 milljarða á tímum þegar fall í tekjum ríkisins eru líklegar. Telur þú að það sé hægt að fara eftir þessum samningi án þess að til þurfi að koma stórkostleg fækkun á ríkisstarfsmönnum? Ef valið verður milli þess að fara að skilmálum AGS-sáttmálans eða segja upp 10-20 þúsund ríkisstarfsmönnum hvort munt þú þá velja?
Bensi // 16.3 2009 kl. 19:13
Stattu þig Steinunn Valdís – - í að byggja upp víðtæka samstöðu um endurreisnarstarfið. R-listamódelið er vænlegra til árangurs – - og þjóðarsáttar – jafnvel með jarðsambandsliðinu í atvinnulífsarmi Sjálfstæðisflokksins
Rita ummæli