Ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar í gær um að hætta í stjórnmálum, að sinni a.m.k., kom á óvart. Við höfum þekkst frá árinu 1992 og vorum nánir samstarfsmenn í borginni meðan Reykjavíkurlistinn var við völd. Hún er einhver magnaðasti stjórnmálamaður sem ég hef kynnst, eldklár, fljót að greina kjarnann í málum og hefur mikið úthald. Það er því skiljanlegt að hún dragi sig í hlé ef henni finnst hún ekki hafa kraftinn og snerpuna sem þarf til að mæta verkefnunum framundan af fullum krafti. En ákvörðunin er einmitt svolítið í anda Sollu; kjörkuð og kom á óvart. En ég er jafnframt viss um að hún kemur aftur þegar hún hefur náð fyrri snerpu og styrk því íslenskir jafnaðarmenn þurfa á næstu misserum á öllu sínu besta fólki að halda. Að halda heilsu er mikilvægara en nokkuð annað og því dáist ég að þeirri ákvörðun hennar að forgangsraða rétt.
Ákvörðun Sollu
9.3 2009 | 12:59 | 4 ummæli
Flokkar: Óflokkað
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Ummæli (4)
Valur // 9.3 2009 kl. 14:12
Versnaði heilsan svona mikið á einni viku?????
Magnús // 9.3 2009 kl. 14:59
Hef kostið Samfylkingu. Hefði ekki kostið hana með Ingibjörgu í brúnni. Hún var á vakt þegar allt fór í kaldakol en axlaði ekki ábyrgð.
Óska Ingibjörgu góðs bata og velfarnaðar í öllu öðru en pólitík.
Bjartur í Sumarhúsum // 9.3 2009 kl. 15:23
Magnús minn, kostið eða ekki kostið það er öllum alveg nákvæmlega sama hvað þú kostar.
Benedikt Sigurðar // 9.3 2009 kl. 16:36
Áfram Steinunn Valdís.
N’u kemur það í þinn hlut öðrum fremur að tala fyrir því að sameina alla félagshyggju- og vinstrimenn og konur – í breiðfylkingu gegn Sjálfstæðisflokknum og Frjálshyggjunni. Það þarf víðtæka og breiða samstöðu til að unnt verði að reisa úr rústunum. Samfélagssáttmáli – með meðvitaðri nálgun við velferðarríki Norðurlanda . . .
Stattu þig. . .
Bensi
Rita ummæli