Nú eru uppi sterkar raddir um að mikil vinstri sveifla verði í næstu kosningum. Þótt varlegt sé að telja upp úr kjörkössum áður en nokkuð er komið í ljós þá er ljóst að ástandið og afleiðingar þess hljóta að gefa sjónarmiðum félagshyggju byr undir báða vængi. Ég hef talsverða reynslu af samstarfi félagshyggjufólks í stjórnmálum. Fyrst í Röskvu, auðvitað, og síðar í Reykjavíkurlistanum og sú reynsla hefur verið góð. Mín skoðun er sú að Samfylkingin eigi að ganga bundin til kosninga og gefa kjósendum þannig skýrt til kynna að valið standi um félagshyggjustjórn eftir kosningar. Það er einfaldlega komínn tími til að gefa XD frí eftir skipbrot efnahagsstefnu þeirra eftir allt of mörg ár við stjórnvölinn.
Daður við sérhagsmuni og græðgi mun ekki líðast hérlendis í bráð. Við munum öll koma til með að taka á okkur auknar byrðar á næstu misserum á sama tíma og þörfin á aukinni samneyslu og samábyrgð vex. Endurskoðun á skattkerfinu blasir því við. Ég hef boðað til opins fundar á Hótel Borg á fimmtudagskvöld kl. 20:00 til að ræða skattkerfið, þróun þess á undanförnum árum og möguleikana á breytingu í réttlætisátt. Gestir fundarins og framsögumenn verða þeir Indriði H. Þorláksson og Stefán Ólafsson sem öðrum fremur hafa látið þessi mál til sín taka og haldið uppi gagnrýni á íslensku skattalöggjöfina og brotalamir á henni. Ég vonast til að fá sem flesta til að ræða þessi mál sem munu ráð miklu um það hvernig þjóðin nær sér upp úr lægðinni og byggir samfélagið upp til framtíðar.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Ummæli (24)
Héðinn Björnsson // 4.3 2009 kl. 15:47
Það væri gott ef þú skýrðir frá þátttöku þinni í REI málinu og hvort þú teljir enn að það sé best fyrir þjóðina að setja orkufyrirtæki hennar í útrásarverkefni erlendis í samvinnu við auðmenn.
ÞE // 4.3 2009 kl. 16:13
Sammála síðasta!
Guðmundur Auðunsson // 4.3 2009 kl. 16:35
Brava, Steinunn. Tek undir þetta hjá þér, tel að báðir ríkisstjórnarflokkarnir eigi að ganga bundnir til kosninga. Það er góður möguleiki að ná meirihluta á þingi og að því á að stefna.
Einar // 4.3 2009 kl. 16:36
Já það er grátlegt að Smfylkingin ásamt forsetanum sló skjaldborg um okkar fjárglæframenn og svonefndu útrásarvíkinga, stöðvuðu fjölmiðlafrumvarpið og afhentu þeim alla fjölmiðla landsins til þess að þeir gætu linnulaust úthrópað með stöðugum eineltisaðgerðum þennan heiðvirða og góða landvætt okkar Íslendinga, Davíð Oddsson.
Auðvitað var það vegna þess að Davíð var sá eini sem hafði bein í nefi til þess að vara við því sem þeir aðhöfðust.
Hann byrjaði með því að vekja verulega athygli með því að taka sparifé sitt út úr KB banka þegar þeir byrjuðu að skenkja sér ofurlaunin. Baugsmenn reyndu að bera á hann 200 millj. mútufé. Þar vanmátu þeir heiðursmanninn Davíð stórlega.
Þjóðin trúði áróðri fjölmiðlamaskínunnar þeirra og Samfylkingarinnar. Davíð skyldi tekin niður.
Árangurinn er augljós. Þjóðin dansaði með öllum heilaþvættinum, situr uppi með þjóðargjaldþrot og Samfylkingarfólk heldur áfram að sparka í Davíð liggjandi. Mikið er stolt þeirra og sómi.
Aðalsteinn Kjartansson // 4.3 2009 kl. 17:13
Glæsilegur pistill!
Til að tryggja það að félagshyggjustjórn haldist eftir kosningarnar er mikilvægt að ganga til þessara kosninga bundin því, að halda áfram stjórnarsamstarfi við VG.
Bergur // 4.3 2009 kl. 17:27
Mér finnst að ganga bundin til kosninga vera mjög gott lýðræðisskref, hins vegar hef ég áhyggjur af ESB málum sem þessi leið verður farin…
Nærtæk dæmi frá Noregi…
ESB er eina raunhæfa leiðin, engin töfralausn heldur aðstoð inn í bjartari framtíð.
Veit ekki hvort ég kýs Samfylkinguna ef VG vill halda okkur fyrir utan ESB.
Framsóknarflokkurinn er með skilyrði fyrir ESB aðild sem gera raunhæfa og góða málamiðlun fyrir Íslendinga erfiða.
Gísli Baldvinsson // 4.3 2009 kl. 17:30
Sammála þér eins og oft áður. Kv að norðan gb
Ingó // 4.3 2009 kl. 17:45
Algjörlega er ég ósammála þér Steinunn Valdís. Samfylkingin á alls ekki að ganga bundin til kosnina, það ætti reyndar enginn stjórnmálaflokkur að gera. Í mínum huga væri það eins gott að sameina þá flokka sem ætla sér samstarf að loknum kosningum ef þeir vilja binda trúss sitt við hvorn annan. Þannig nýtast „dauðu“ atkvæðin líka betur. Ég veit ekki til þess að sameining Samfylkingar og VG sé á döfinni og því ráðlegg ég þér og öðrum félögum í Samfylkingunni að ganga óbundin til kosninga.
GSS // 4.3 2009 kl. 17:52
Bjartsýni er góð fyrir sálartetrið en allt er þó best í hófi og Steinunn þarf að útskýra hlutina aðeins betur. Ef það verður reyndin að Samfylkingin og VG stefni í kosningar í nokkurs konar kosningabandalagi, þá hljóta flokkarnir að bjóða kjósendum uppá sameiginlega stefnuskrá. Annað er ekki trúverðugt. Þá vakna spurningar um erfiðu málin. Hvað verður um Evrópusambandsaðildina? Stóriðju og virkjanamálin? Umhverfismálin? Og ef flokkunum tekst að bræða saman þokkalega aðlaðandi stefnuskrá, hvers vegna er skrefið þá ekki stigið til fulls og þeir sameinaðir? Var það ekki stóri draumurinn hér í eina tíð.
Haukur // 4.3 2009 kl. 18:26
Ég myndi halda að samningsstaða ykkar yrði veikari í stjórnarmyndunarviðræðum ef Samfylkingin gefur út fyrir kostningar að stjórn með Sjálfstæðisflokki komi ekki til greina. Of miklar upplýsingar geta skemmt fyrir í framtíðinni eins og t.d. að vilja birta raforkuverð til stórkaupenda, segja á alþingi að það séu veigamikil rök gegn málstaði Íslands í Icesave málinu og svo framvegis. Þetta eru upplýsingar sem skaða þar sem þær grafa undan samningstöðu þess sem veitir upplýsingarnar þ.e. Íslands og Íslensku þjóðarinnar.
Heiður // 4.3 2009 kl. 18:51
Allaveganna verður Sjálfstæðisflokkurinn að taka sér lengra frí, eftir þessi 18 ár, get ekki hugsað þá hugsun til enda, ef þeir komast aftur til valda aftur í vor.
Arnþór Snær // 4.3 2009 kl. 19:04
Nú hef ég vonast eftir að sjá þann möguleika að geta kosið persónur umfram flokka og finnst því ekki skref til framtíðar að þurfa að kjósa um hugmyndafræði.
1. Hugmyndafræði
2. Flokkur
3. Persónur <- pant fá að kjósa á þessu stigi takk
Óli // 4.3 2009 kl. 20:00
Steinunn…..
þú ert eitthvað svo þreytt…..
Gerður // 4.3 2009 kl. 20:05
Sammála þér Steinunn, það væri væri jákvætt skref í þá átt að gefa fólki skýra valkosti ef Samfylking gæfi út fyrir kosningar að hún taki bara þátt í vinstristjórn – sem er það sem meirihltuinn vill, held ég.
Molester // 4.3 2009 kl. 20:19
Vona allavega að til þess komi ekki að þessir flokkar, sem ég kenni við lýðræði, þurfi ekki á því að halda eftir kosningar að nota framsóknarklíkuna til að mynda stjórn. Sporin hræða, reynsla undanfarinna daga er hrollvekjandi í því efni. Einnig er vonandi að fólk átti sig á þeirri yfirvofandi hættu að xD og xBmyndi saman stjórn eftir kosningar í vor. Forði okkur allar góðar vættir frá þeim örlögum.
hilmar ö // 4.3 2009 kl. 20:28
stóð r listinn sig svona vel þegar hann var við völd og hversu margir borgarstjórar voru við völd eg segji nei takk og munn ganga úr flokknum og hvet aðra til þess lika
Kristinn // 4.3 2009 kl. 21:56
Hvernig væri nú að útskýra þátt þinn í REI, og augjlóslega óbilandi trú þína á útrásarauðkýfingum sbr. „góða dílinn“
Bensi // 4.3 2009 kl. 21:59
Leggjum upp með skuldbindandi yfirlýsingu um að við stefnum að nýjum „samfélagssáttmála“ – með Framsókn og VG og þess vegna öllum öðrum en Sjálfstæðisflokknum . . . . Ekki leggja upp með minnsta meirihluta á Alþingi – heldur breiða samstöðu um nýtt viðskiptalíkan og samfélagslega ábyrgð – sem endurheimtir blandað hagkerfi og velferðarlíkan í anda Norðurlandanna
Heiða // 4.3 2009 kl. 22:34
Æ-i ég er að verða svo þreytt á ykkur í Samfylkingunni þið eruð búin að dissa okkur í VG í mörg ár en nú þegar enginn vill tala við ykkur þá ætlist þið til við gerum bandalag við ykkur um að vinna ekki með öðrum eftir kosningar. Steinunn Valdís í guðana bænum farið þið kratar nú að gera ykkur grein fyrir því að Samfylkingin væri algjörlega einangruð í ísl stjórnmálum ef ekki væri fyrir VG. Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki tala við ykkur eftir samstarfið og þið dissið Framsókn alveg stöðugt þannig að Steingrímur þarf að vera stöðugt að sleikja úr þeim svo þeir vilja örugglega ekki heldur tala við ykkur eftir kosningar. VG er eini flokkurinn sem getur myndað stjórn með öllum flokkum en Samfylkingin getur ekki myndað stjórn með neinum nema VG. Því segi ég og mun berjast fyrir því innan míns flokks að VG setji það á oddinn eftir kosningar að vinna með þeim sem eru tilbúnir að samþykkja Steingrím okkar sem forsætisráðherra. Það væri fráleitt að fara að lofa fyrirfram að lappa upp á stöðu Samfylkingarinnar sem enginn vill hvort eð er tala við nema VG. það er mikið betri kostur fyrir VG að vera húsbóndi á heimili með íhaldið sem vinnumann en að vera ráðsmaður á bæ þar sem samfylkingin gerir ekkert nema leggja til eina Jóhönnu en við þurfum að vinna verkin.
Steinunn Valdís // 4.3 2009 kl. 22:40
Bara svo því sé til haga haldið kom undirrituð ekki nærri svokölluðu Rei máli enda hætti ég í Borgarstjórn þegar ég var kjörin á þing. Rétt skal vera rétt.
Ása // 4.3 2009 kl. 22:47
Heiða, það væri þá fagur dagur í sögu lýðveldisins ef að VG ætlar í samvinnu við Sjálfstæðisflokkin til þess eins að koma formanninum í valdstól! Bíddu er ekki svona pólitík það sem kom okkur á kaldan klaka? Ef að VG verður til þess að að sjallar komast aftur til valda eru flokkurinn hræsnarar sem ekkert mark er á takandi.
Elín // 4.3 2009 kl. 23:29
VG er eini flokkurinn sem getur myndað stjórn með öllum flokkum! Já, er það, Heiða? Gott að vita að „vinstri mennskan“ er ekkert að þvælast fyrir ykkur í VG.
Björgvin Guðmundsson // 4.3 2009 kl. 23:46
Ég er sammála þér.
Kær kveðja
Heiða // 5.3 2009 kl. 00:30
Sælar Ása og Elín og líka Björgvin Guðmundsson fyrrverandi hægri krati í áratugi eða hét það eðalkrati? Við í VG erum ekki að hugsa um að koma formanni okkar í valdastól til annars en að hafa forsætisráðherra sem er vandanum vaxin og sem getur hjálpað þjóðinni að komast aftur á lappir. Steingrímur er sá eini sem getur valdið forsætisráðherraembættinu þið vitið það og verið að viðurkenna að það var Össur sprellikallinn ykkar sem framdi valdarán aldarinnar í Samfylkingunni með því að stilla upp Jóhönnu sem forsætisráðherra bara til að drepa ISG og það jafnt þó hann vissi að Jóhanna ræður ekkert við verkið. Þetta vitum við sem höfum aðstöðu til að fylgjast náið með. Jóhanna er bara leikbrúða Össurar í baráttunni við það sem Össur kallar „Röskvuliðið“ rétt eins og þið kratar eigið einkarétt á að vera með fólk í Röskvu þó sprellikarlinn spari ekki orðin við að úthúða okkur sem unnum vel og ötullega fyrir Röskvu á sínum tíma. Við í VG sáum líka hvernig „Röskvuliðið“ í Samfylkingunni ( skilgreining Össurar) var stöðugt í bakinu á íhaldinu þegar þið unnuð saman og við gerum okkur alveg grein fyrir því að ef við verðum með ykkur í ríkisstjórn þá koma helv. hægri kratarnir úr ykkar röðum og bíta okkur í hælana. Þið bara skiptist á að reyna dissa þá sem þið eigið að vera að vinna með og því treystir enginn flokkur ykkur lengur. Vandamál Samfylkingarinnar er að þið eruð ekki flokkur heldur samansafn af mörgum fylkingum sem allar hata hver aðra. Við í VG erum heilsteypt lið, við erum eina fólkið sem er trútt því að vera til vinstri meðan Samfylkingin eruð bara kratahjörð. Íhaldið er bara venjulegt íhald sem mjög auðvelt er að vita hvar maður hefur af því þeir eru bara íhald og ekkert mjög flókið við það. Samfylkinguna veit maður aldrei hvar maður hefur til þess eru of margir Merðir og Össurar þar á bæ.
Rita ummæli