Steinunn Valdís Óskarsdóttir

blogg á eyjan.is

Mikilvægur áfangi í kvennabaráttu

5.3 2010 | 09:22 | 20 ummæli

Í gær voru staðfest lög á Alþingi sem kveða á um jafnræði kynjanna í stjórnum stærri fyrirtækja. Á undanförnum misserum hefur mikið verið talað um mikilvægi þess að konur komi til jafns á við karla að stjórnum fyrirtækja.  Lítið hefur samt breyst og allt talið hefur ekki skilað sér í fjölgun kvenna.  Sumir hafa meira að segja viljað ganga svo langt að segja að ein skýring hrunsins hafi meðal annars verið sú að lítill hópur karla hafi ráðskast með fyrirtækin og víða hefði verið farið varlegar ef konur hefðu komið meira að stjórnun.  Auðvitað er ekkert hægt að fullyrða í þeim efnum en hins vegar sýna margar rannsóknir að konur eru almennt varkárari í fjárfestingum en karlar og ekki eins áhættusæknar.  Það sýna margar rannsóknir. 

Viðskiptanefnd Alþingis hefur fjallað um þetta mál að undanförnu og í gær var lögleiddur kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja í lok árs 2013.   Það þýðir í raun og veru að ef atvinnulífið sjálft hefur ekki tekið sig á og tryggt að hlutur hvors kyns fyrir sig skuli vera að minnsta kosti 40% í árslok 2013 þá komi ákvæðið til framkvæmda.  Hér er enn og aftur tekið mið af óskum atvinnulífsins sem hefur nú þriggja ára aðlögunartíma.  Mín skoðun er reyndar sú að ef í ljós kemur á næstu mánuðum og misserum að lítið breytist þá komi til greina að herða á þessu ákvæði.  Það er búið að tala og tala og tala endalaust um að fyrirtækin og atvinnulífið verði að fá að gera þetta sjálft en því miður hefur lítið breyst.   Það verður því spennandi að sjá hvernig atvinnulífið mun nýta þennan þriggja ára aðlögunartíma.

→ 20 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Skýr svör forsætisráðherra vegna Evu Joly

11.6 2009 | 11:19 | 8 ummæli

Í dag  beindi ég fyrirspurn til forsætisráðherra vegna ummæla Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara í Kastljósinu í gærkvöldi.  Þar kom fram að hún teldi rannsókn á bankahruninu í uppnámi vegna þess að ekki væru veittir nægjanlegir fjármunir í rannsóknina.  Sagðist hún jafnframt ekki myndu leggja nafn sitt við áframhaldandi vinnu ef úr þessu yrði ekki bætt. 

Ég tel afar mikilvægt að taka þessar athugasemdir Evu Joly  alvarlega enda nýtur hún trausts bæði innan lands og utan fyrir störf sín.  Það er mjög brýnt að nýta krafta hennar og reynslu og það er ljóst að margir binda miklar vonir við störf hennar.  Hún telur rannsóknina á íslenska bankahruninu einhverja þá mikilvægustu rannsókn allra tíma í Evrópu og því ljóst að hér eru gríðarlegir hagsmunir í húfi.    Hún telur jafnframt nauðsynlegt að ríkissaksóknari viki með öllu vegna vanhæfis og  því vil ég jafnframt spyrja hæstvirtan ráðherra um skoðun hennar á því máli.

Það er ljóst að það er mikil tortryggni í samfélaginu og þessi rannsókn á bankahruninu er liður í því að byggja aftur upp traust milli manna í okkar ágæta samfélagi.  Hér mun aldrei nást sátt eða að hægt verði að byggja aftur upp traust nema þeir sem sökina bera verði fundnir og sóttir til saka.  Almenningur treystir Evu Joly og því er það mín skoðun að við eigum að gera allt sem við getum til að tryggja henni þá starfsaðstöðu sem hún telur ásættanlega fyrir framgang rannsóknarinnar. 

Spurning mín til forsætisráðherra var því einföld – hvað hyggst hæstvirtur ráðherra gera í málinu?

Forsætisráðherra var afar skýr í sínu svari og sagði að ríkisstjórnin myndi gera allt sem í hennar valdi stæði til að koma til móts við óskir Evu Joly og að auki lýsti Jóhanna þeirri skoðun sinni að ríkissaksóknara bæri að víkja.

Þetta eru afgerandi skilaboð um málið og verður vonandi til þess að starf Evu Joly og félaga getur gengið áfram.  Við þurfum á því að halda.

→ 8 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Girl power!

27.3 2009 | 13:12 | Rita ummæli

Það var fín stemning og fullt út úr dyrum á ársþingi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar í gær á Hótel Loftleiðum. Landsfundur verður settur síðar í dag og það er alveg ljóst eftir fundinn í gær að konur í flokknum munu láta mjög til sín taka þar. Rætt var um mikilvægi þess að konur standi saman og peppi hver aðra upp í stjórnmálum. Eftir flottar ræður nýrra kvenframbjóðenda flutti Ingibjörg Sólrún magnaða ræðu um mikilvægi kvennasamstöðu. Nú göngum við tvíefldar til landsfundar og látum til okkar taka!

Fundurinn sendi frá sér þessa ályktun:

Kvennahreyfing Samfylkingarinnar lýsir ánægju með störf Samfylkingarinnar í ríkisstjórn undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrsta kvenforsætisráðherra Íslands. Kvennahreyfingin telur brýnt að eftir kosningar verði mynduð félagshyggjustjórn sem hefur það að markmiði að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið, endurreisa atvinnulífið og tryggja velferð allra í samfélaginu. Kvennahreyfingin telur einnig mikilvægt að standa vörð um hag láglaunakvenna í þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í rekstri hins opinbera og huga að því að skapa störf jafnt fyrir konur sem karla í þeirri uppbyggingu sem framundan er.

Þá krefst Kvennahreyfing Samfylkingarinnar þess að jafnréttis sé gætt við skipan í nefndir, stjórnir og ráð hjá hinu opinbera og innan flokksins og að ekki verði endurtekin mistök síðustu vikna í þeim efnum.

Kvennahreyfingin þakkar Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, sem lætur af formennsku á landsfundi, fyrir framlag hennar til íslenskra stjórnmála og kvennabaráttu. Hún hefur unnið glæsta sigra fyrir félagshyggjufólk á Íslandi og breytt inntaki íslenskra stjórnmála. Um leið og við óskum henni góðs bata vonumst við til þess að hún snúi tvíefld tilbaka.

→ Rita ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Popúlismi dauðans

17.3 2009 | 11:25 | 51 ummæli

Í Kastljósi í gær var Tryggvi Þór, frambjóðandi xD í Norðaustur, að ræða við Sigríði Ingibjörgu, stöllu mína í Reykjavík, um þá hugmynd að afskrifa 20% af öllum húsnæðisskuldum landsmanna með einni aðgerð, flatt. Tryggvi Þór, sem hlaut kosningu í annað sætið hjá Sjöllum í prófkjöri, kemur nú eins og hvítskúraður postuli, hafandi verið efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde í hruninu og boðar erindið. Og hvert er fagnaðarerindið? Að fólk sem ekki þarf á því að halda fái afskrifað til jafns við þá sem bráðnauðsynlega þurfa. Nú veit ég ekki hvað Tryggvi skuldar í sínu húsnæði en ég veit hvað ég borga af mínum lánum. Og þó það sé býsna mikið, eins og hjá flestum öðrum, sé ég enga ástæðu til annars en að við Tryggvi borgum bara okkar húsnæðislán sjálf. Í máli Tryggva kom nefnilega fram að þótt hann tryði því að enginn þyrfti að borga þessi flötu 20% myndi vitaskuld koma til kostnaðarsamra björgunaraðgerða fyrir verst stöddu heimilin. Einhver þarf sumsé að borga á endanum!

Lykilatriðið í þessari hugmynd er ekki nýtt. Það er gamalt. Það er að með því að auka velsæld í einum hópi muni allir græða því molarnir muni hrynja af borðum þeirra betur stöddu til þeirra sem minna hafa. Þann falska söng höfum við mátt hlusta á allt of lengi og gagnrýni á hann hefur verið afgreidd sem öfund.

Eða getur verið að erindi Tryggva Þórs, sem nýs frambjóðanda xD, sé að bjóða Framsókn upp í dans? Er hann daman sem býður herra Framsókn í nýja ríkisstjórn? - Á eintómum popúlisma …

→ 51 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Til í slaginn

16.3 2009 | 14:51 | 4 ummæli

Verð að játa að ég var ansi uppgefin í gær eftir prófkjörslotuna. Var enda að taka þátt í mínu þriðja prófkjöri á jafn mörgum árum – geri aðrir betur. Niðurstaðan var sjöunda sætið og þótt ég hafi vissulega sett stefnuna ofar get ég vel við unað. Var í áttunda sæti síðast og mjakast því hægt upp á við! Þónokkur endurnýjun varð á listanum í Reykjavík og þrjú koma ný í efstu átta. Sigríður Ingibjörg, Skúli og Valgerður hlutu öll glæsilega kosningu – að ég tali ekki um rússneska kosningu Jóhönnu. Ég vil þakka öllu því góða fólki sem lagði mér lið í baráttunni og félögum mínum í Samfylkingunni fyrir traustið sem mér er sýnt eftir erfiðan vetur. En nú er þessari prófkjörstörn lokið og við tekur næsta vers sem er kosningabaráttan í vor. Mjög stutt er til kosninga og nú er viðbúið að öll framboð fari að skerpa sínar áherslur. Ég er til í slaginn og hlakka til.

→ 4 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

4000 ný störf – bara byrjunin

12.3 2009 | 09:31 | 5 ummæli

Réttur til atvinnu og tækifæri allra til að sjá sér farborða er eitt af grundvallaratriðum jafnaðarstefnunnar. Aðgerðaáætlun stýrihóps ríkisstjórnar Samfylkingar og VG til að sporna við atvinnuleysi er því aðeins byrjunin á þeim aðgerðum sem ráðast þarf í til að koma í veg fyrir að atvinnuleysisbölið sé komið til að vera til lengri tíma. Þar er gert ráð fyrir mikilvægum verkefnum í byggingariðnaði, framkvæmdum við snjóflóðavarnir, gróðursetningarverkefnum, orkuviðhaldi og orkusparnaði auk veigamikilla verkefna sem líkleg eru til að skapa hér enn fleiri störf og vinna gegn brottflutningi yngra fólks. Þar má nefna hækkun endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar hér á landi, þróunarverkefni í ferðaþjónustu, frumkvöðlasetur í Reykjavík, sérfræðinga af atvinnuleysisskrá til nýsköpunarfyrirtækja og bætta samkeppnisstöðu sprota- og nýsköpunarfyrirtækja.

Eitt stærsta atvinnuverkefnið sem við blasir er að vinna þjóðina út úr þeirri alvarlegu gjaldeyris- og fjármálakreppu sem hrun bankakerfisins hafði í för með sér. Endurheimt traust umheimsins á peningamálastjórn landsins og efnahagslífi skiptir sköpum við að vinna á gjaldeyriskreppunni sem nú er haldið í skefjum með gjaldeyrishöftum. Endurreisn fjármálakerfisins og lausn gjaldeyriskreppunnar er forsenda þess að við getum tekist á við afleiðingar fjármálakreppunnar með örvandi aðgerðum til stuðnings fyrirtækjum landsins. Trúverðug framtíðarlausn í peningamálum sem stuðlað getur að stöðugleika og auknu trausti á efnahagslífi þjóðarinnar er því afar mikilvæg í þessu samhengi. Umsókn um aðild að ESB og upptöku evru er því ekki aðeins framtíðarlausn í efnahags- og atvinnumálum heldur getur yfirlýsing um slíkt haft talsverð áhrif til skemmri tíma og unnið með okkur í baráttunni við atvinnuleysið.

Markvissar áherslur Samfylkingarinnar á efnahagsaðgerðir til lausnar kreppunni og stöðugleika framtíðar, samhliða menntun, stuðningi og hagstæðum starfsskilyrðum sprota- og nýsköpunarfyrirtækja stafa af nauðsyn. Andspænis atvinnuleysinu sem fylgir hinni alþjóðlegu fjármálakreppu duga engar töfralausnir. Ráðast verður að rótum bráðavandans um leið og grunnur er lagður að atvinnusköpun framtíðarinnar.

→ 5 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Sumarþing – ekki spurning!

10.3 2009 | 09:20 | 12 ummæli

Fjölmargir hafa haft samband við mig upp á síðkastið og haft áhyggjur af því að að loknum kosningum í lok apríl muni taka við stjórnarmyndun sem muni taka fram í maí, svo sé komið sumarfrí og ekkert gerist fyrr en í haust. Mitt svar hefur verið afgerandi, ég tel það einsýnt að þing eigi að koma saman strax eftir stjórnarmyndun og starfa í sumar. Það er ljóst að við þær aðstæður sem nú eru uppi í íslensku samfélagi er mikilvægt að þingið sýni hröð og vönduð vinnubrögð við vinnslu og afgreiðslu þeirra mála sem nauðsynleg eru til að greiða fyrir endurreisn íslensks samfélags. Um þetta ættu allir stjórnmálamenn að geta sameinast.

→ 12 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Ákvörðun Sollu

9.3 2009 | 12:59 | 4 ummæli

Ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar í gær um að hætta í stjórnmálum, að sinni a.m.k., kom á óvart. Við höfum þekkst frá árinu 1992 og vorum nánir samstarfsmenn í borginni meðan Reykjavíkurlistinn var við völd. Hún er einhver magnaðasti stjórnmálamaður sem ég hef kynnst, eldklár, fljót að greina kjarnann í málum og hefur mikið úthald. Það er því skiljanlegt að hún dragi sig í hlé ef henni finnst hún ekki hafa kraftinn og snerpuna sem þarf til að mæta verkefnunum framundan af fullum krafti. En ákvörðunin er einmitt svolítið í anda Sollu; kjörkuð og kom á óvart. En ég er jafnframt viss um að hún kemur aftur þegar hún hefur náð fyrri snerpu og styrk því íslenskir jafnaðarmenn þurfa á næstu misserum á öllu sínu besta fólki að halda. Að halda heilsu er mikilvægara en nokkuð annað og því dáist ég að þeirri ákvörðun hennar að forgangsraða rétt.

→ 4 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Frjálshyggjutilraun heimsins í boði XD

6.3 2009 | 12:00 | 14 ummæli

Í gær boðaði ég til opins fundar á Hótel Borg til að ræða hugmyndir um þrepaskiptingu skattkerfisins. Ekki hátekjuskattinn eins og við þekkjum hann frá fyrri tíð heldur réttlátt, þrepaskipt skattkerfi að skandinavískri fyrirmynd. Við þurfum að átta okkur á því að á mestu góðæristímum Íslandssögunnar trössuðu menn það að taka inn meiri tekjur fyrir ríkissjóð og við erum að súpa seyðið af því núna.

Fundurinn var býsna fróðlegur, þó ég segi sjálf frá, því þangað boðaði ég Stefán Ólafsson og Indriða H. Þorláksson sem hafa skrifað mikið um misskiptingu í samfélaginu að undanförnu. Í kjölfar framsöguerindanna sköpuðust enda góðar umræður sem stóðu langt fram eftir kvöldi.

„Hér á landi eru einhverjir róttækustu frjálshyggjumenn sem fyrirfinnast á Vesturlöndum,“ sagði Stefán og lýsti þeirri hlutdeild sem tíu ríkustu prósentin af Bandaríkjamönnum höfðu af heildartekjum fólks í Bandaríkjunum. Lýsti hann hvernig sú hlutdeild var um 40% árið 1917 en hækkaði í rúm 50% fram að kreppunni miklu sem hófst árið 1929. Frá 1945 til 1980 var hlutdeildin nokkuð stöðugt í kringum 35%, en eftir árið 1980 fór hún að rísa aftur og náði um 50% á síðasta ári. Ekki eru fullnægjandi gögn til fyrir Ísland en árið 1993 voru ríkustu tíu prósent hjóna á Íslandi með um 19% af heildartekjum hjóna í landinu. Árið 2007 var þetta hlutfall orðið 40%. Árið 1993 hafði ríkasta eina prósentið af íslenskum hjónum um 4,2% af heildartekjum hjóna. Það hlutfall var 19,8% árið 2007. Ríkustu tíu prósentin hafa því farið úr því að hafa 21,8% heildarteknanna í að hafa 39,4% þeirra. Á sama tíma hafa allir aðrir, þ.e. hin 90 prósentin, farið úr því að hafa 78,2% af heildartekjum í að hafa 60,6% hlutdeild í þeim.

Stefán sagði einnig að ríkasta eina prósent fólks á Íslandi hafi á árinu 2007 haft að jafnaði 18,2 milljónir í tekjur á mánuði. Það séu 615 fjölskyldur og því sé mikilvægt að muna að það hafi ekki aðeins verið í kringum þrjátíu menn sem höfðu ofurlaun hér á landi. Á sama tíma voru meðaltekjur heimila hér á landi 657.000 krónur.

Framundan er stóraukin samneysla, hvernig sem á það er litið og hvort sem okkur líkar betur eða verr. Ég er ekki hrædd við að taka umræðuna um réttláta skiptingu.

 

→ 14 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Vinstri sveifla

4.3 2009 | 15:17 | 24 ummæli

Nú eru uppi sterkar raddir um að mikil vinstri sveifla verði í næstu kosningum.  Þótt varlegt sé að telja upp úr kjörkössum áður en nokkuð er komið í ljós þá er ljóst að ástandið og afleiðingar þess hljóta að gefa sjónarmiðum félagshyggju byr undir báða vængi.  Ég hef talsverða reynslu af samstarfi félagshyggjufólks í stjórnmálum.  Fyrst í Röskvu, auðvitað, og síðar í Reykjavíkurlistanum og sú reynsla hefur verið góð.  Mín skoðun er sú að Samfylkingin eigi að ganga bundin til kosninga og gefa kjósendum þannig skýrt til kynna að valið standi um félagshyggjustjórn eftir kosningar.  Það er einfaldlega komínn tími til að gefa XD frí eftir skipbrot efnahagsstefnu þeirra eftir allt of mörg ár við stjórnvölinn. 

Daður við sérhagsmuni og græðgi mun ekki líðast hérlendis í bráð.  Við munum öll koma til með að taka á okkur auknar byrðar á næstu misserum á sama tíma og þörfin á aukinni samneyslu og samábyrgð vex.  Endurskoðun á skattkerfinu blasir því við.  Ég hef boðað til opins fundar á Hótel Borg á fimmtudagskvöld kl. 20:00 til að ræða skattkerfið, þróun þess á undanförnum árum og möguleikana á breytingu í réttlætisátt.  Gestir fundarins og framsögumenn verða þeir Indriði H. Þorláksson og Stefán Ólafsson sem öðrum fremur hafa látið þessi mál til sín taka og haldið uppi gagnrýni á íslensku skattalöggjöfina og brotalamir á henni.  Ég vonast til að fá sem flesta til að ræða þessi mál sem munu ráð miklu um það hvernig þjóðin nær sér upp úr lægðinni og byggir samfélagið upp til framtíðar.

→ 24 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .