Andstreymis

Mitt kall er ei að svara heldur spyrja (Henrik Ibsen)

Enginn, Hannes og Haukur Már

17.8 2010 | 10:07 | 42 ummæli

Í maíhefti Rósturs birtist prýðileg grein eftir Hauk Má Helgason sem ber heitið „30 ára stríðið um tunguna“. Þar segir réttilega Hannes Gissurarson og félagar hafi ráðið ferðinni í íslenskri umræðu og meira að segja markað stefnu tungumálsins. Hann  hefði getað nefnt hvernig þeim tókst að þurrka út munin á merkingu orðanna „frjálshyggja“ og „frjálslyndisstefna“.

Hann hefði líka getað nefnt að hugmyndafræðilegur aulaháttur íslenskra vinstrirótttæklinga  á mikinn þátt í þessu, þeir hafa aldrei veitt Hannesi almennilega mótspyrnu enda draumlyndir, rakafælnir fagurkerar flestir. Laxness var þeirra mikla fyrirmynd og hann var meira  fyrir „retorík“ en rökfærslu.

Ekki heyrðist bofs frá þessu liði þegar Hannes gagnrýndi vinstrikenningar um samfélagið en þegar Kristján Kristjánsson leyfði sér að gagnrýna hinn kúla póstmódernisma rak “róttæka“ sveitin upp ramakvein.  Að leyfa sér að gagnrýna draumlynda  pm-spekinga og þeirra kúlu „retórík“, ekki nema það þó!

Haukur Már  gefur í skyn að  íslenskir  heimspekingar séu ekki saklausir  af  hólmsteinsku. Enginn íslenskur heimspekingur hafi haft fyrir því að svara Hannesi. Því sé ekki furða þótt hann hafi vaðið uppi.

Enginn benti á árið 1979 að Karl Popper væri ekki eins heilagur og Hannes vildi trúa.

Enginn skrifaði greinaflokkinn „Eymd frjálshyggjunnar“ í DV árið 1982.

Enginn benti á að Hannes hefði misskilið kenningar Karls Poppers, Thomasar Kuhns og Josephs Schumpeters.

Enginn skrifaði greinina „Er TINA flagð?“ í TMM árið 2002 þar sem bent er á að George Soros og ýmsir vinstrihagfræðingar telji líklegt að meiriháttar fjármálakreppa væri  í aðsigi.

Enginn benti á í Lesbók 2003 að hagfræðin væri ekki eins heilög og hólmsteinarnir héldu.

Enginn gagnrýndi frjálshyggjuheimspekinginn Robert Nozick í grein í Skírni haustið 2004.

Enginn gaf í skyn í bókinni Ástarspekt að útrásar-Ísland væri orðið auðvaldsríki.

Enginn háði  Lesbókraritdeilu um jöfnuð við Hannes haustið 2007.

Enginn háði Fréttablaðsritdeilu við Hannes um hvort frjálshyggjuöfgastefnan í Nýja Sjálandi hefði bætt eða skaðað efnahaginn þar syðra.

Enginn gagnrýndi Hannes og félaga í Skírnisgreininni „Frjálshyggjan, sjöunda plága ísalands“ vorið 2009.

En enginn var ekki fínu klíkunum, enginn sat ekki á Kaffibarnum með kúlþráttarblik í augum. Enginn fór sínar eigin leiðir, krókótta stíga um garðana opnu.

Auk þess legg ég til að AlvaldsHringadrottinsbattaríin verði snarsniðgengin, kvóta- og útrásarþýfi hraðfryst og réttað verði í málum hinna hólmsteinsku hrunvalda.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (42)

  •   jonas // 17.8 2010 kl. 10:16

    Hvar værum við ef þín nyti ekki við?

    Sennilega öll flutt til Noregs. ;)

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 10:22

    Ég er gull og gersemi, guði sjálfum líkur…

  •   Helgi // 17.8 2010 kl. 10:27

    Sjálfhælni. Einhver göfugasti eiginleiki mannskepnunar.

  •   páll vilhjálmsson // 17.8 2010 kl. 10:29

    Enginn pillar betur í sundur lokaðan heim vinstrielítunnar á Íslandi.

  •   Öngvinn // 17.8 2010 kl. 10:30

    Frelsið til að ljúga og spila á nýjungagirni.

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 10:33

    Helgi, sjálfsháð.

  •   Sig. Kári // 17.8 2010 kl. 10:45

    Góð grein hjá Stefáni Snævari og góður ferill.

    Hann stendur uppi með pálmann i höndunum.

    Hann þarf að jarða hólmsteinskuna að fullu. Það er löngu tímabært.

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 10:45

    Reyndar hefði ég getað nefnt prýðilega gagnrýni Þorsteins heimspekings Gylfasonar á frjálshyggju. Nú virðist vera risinn upp flokkur málefnalegra og hugsandi vinstrigagnrýnanda á frjálshyggju, þeirra helstir eru feðgarnir Stefán Ólafsson og Kolbeinn Stefánsson. Sá síðarnefndi ritstýrir nýútkominni bók um frjálshyggju.

  •   ABC // 17.8 2010 kl. 10:54

    Þó ég sé aðeins leikmaður án bakgrunns á þessu sviði þá játa ég sekt mína sem einn úr hópi almennings. Skilyrðislaust. En menn eiga sér málsbætur, þó litlar séu. Átti stutt kynni við manninn fyrir mörgum áratugum. Maðurinn bullaði út í eitt. Svo mikið að viðmælendur þreyttust, sáu sitt óvæna og leituðu skjóls frá orðaflaumnum. Þetta er taktík eins og Skaftabloggið ber með sér þar sem hinn athyglisverði Guðmundur 2. Gunnarsson beitir orðaflaumnum af mikilli einurð.

    En hvað skal gera með þjóð sem greinilega hefur verið heilaþvegin?

    http://eyjan.is/2010/08/17/vaentingavisitala-helst-merkilega-i-hendur-vid-fylgi-sjalfstaedisflokksins/

  •   Bjarni Kjartansson // 17.8 2010 kl. 11:13

    Auðséð er af skrifum þínum hér Stefán, að þú hefur ekki setið Landsfundi Sjálfstæðisflokksins.

    Alloft var einmitt tekist á um, hvort ekki væri rétt, að yppa þeirri staðreynd, að við sem værum af hinum upplýsta og ræktaða hópi Íhaldsmanna, værum alls ekki Frjálshyggjumenn af þeim kaliber, sem HHG vildi stimpla á okkur.

    Við værum Íhaldsmenn, frjálshuga og frelsisunnandi, með þeim viðurkenndu girðingum sem ætíð bæri að virða og er lýst í grunn kenningum okkar. Frelsi eins má ekki verða helsi annars.

    Við vildum ekki vald götustráka sem töldu allt falt, bara ef talan væri nægjanlega há. Við bentum á Höfuðsyndirnar Sjö sem varúðarmerki og eftir því skyldi jafnan hyggja, því ella væri vá fyrir dyrum og gættum öllum.

    Kommaliðið hefur aldrei skilið frelsi, hvorki til hugar eða handa. Það er eitur í þeirra beinum og nú hafa þeir sem eru með slíka tendensa, flykkt sér í einhverskonar nám, þar sem koma má fyrir kennisetningum, allsendis ósönnum frá kögunarhóli Raunveruleikans eða vísinda við hann kennd. Þar rembast þeir við, að koma á pólitískri ,,rétthugsun“ algerlega lausri við krítikk eða skoðun horskra manna.

    Ég hef stundum kallað þetta ,,égvildiaðþettaværibarasvona“ heimsmynd.

    Þakka plássið.

    Miðbæjaríhaldið

  •   Stráksi // 17.8 2010 kl. 11:19

    @Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 10:45
    Er þetta ekki svipað og ef skrattinn ritstýrði bók um himnaríki?

  •   Erling // 17.8 2010 kl. 11:32

    Blessaður enginn. Við þurfum að taka þig í guðatölu.
    Í heimi alhæfinganna eru margir enginn.
    Þú ert samt betri en enginn. Kveðja….

  •   Hrafn Arnarson // 17.8 2010 kl. 11:40

    Þetta eru ágæt skrif en titillinn hefði átt að vera Hannes og ég. Þá hefði verið samræmi milli efnis og titils.

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 11:58

    Erling ég skal skila þessu til Einskis. Hann verður örugglega kátur. Enginn er miklu betri en ég.
    Hrafn, þú ert ekki að fatta djókið svo ég skrifi eins og sannur kúlverji.
    Bjarni, ég nefndi ekki Sjálfsstæðisflokkinn auktateknu orði í færslunni enda var ég ekki með hann í huga, frjálshyggjan er líka vandamál í Samfó, til skamms tíma óð frjálshyggjuliðið uppi í Samfylkingunni, varaformaðurinn Ágúst Ólafur var nánast hreinræktaður frjálshyggjumaður og át frasana upp úr Hannesi um að gera Ísland að einhverri alþjóðaviðskiptamiðstöð. Enginn hakkaði þá dellu í sig í visisbloggi sínu.
    En það gleður mig ef alvöruíhaldsmenn eru teknir að mega sín meir í Sjálfsstæðisflokknum en þetta peninga-frjálshyggjulið. Vonandi eflast frjálslyndir jafnaðarmenn í Samfó á kostnaði peninga-frjálshyggjusveitarinnar.

  •   Bjarni Kjartansson // 17.8 2010 kl. 12:06

    Mæltu manna heilastur um það Stefán.

  •   María Kristjánsdóttir // 17.8 2010 kl. 12:18

    Ég verð að bæta örlitlu við þennan góða pistil, sennilega um miðjan tíunda áratuginn sat ég á risastórum fundi sem haldinn var á Hótel Loftleiðum þar var mætt gáfuð kona frá Nýja-Sjállandi sem lýsti því hvernig nýfrjálshyggjuliðið hefði samkvæmt velútfærðu plani tekið yfir nýsjálenskt þjóðfélag. Hverjir héldu þann varnaðar fund? Jú BSSR og hinn hataði Ögmundur Jónasson.

  •   Pétur Vélstjóri // 17.8 2010 kl. 12:45

    Svona eins og vinstrisinnaður framsóknarmaður, afsakið blótsyrðið

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 12:47

    Takk fyrir þetta, María. Jú, jú auðvitað var visst andóf í gangi, t.d. stóðu þeir Stefán Ólafsson, Birgir Björn og núverandi forseti sig vel í sjónvarpsrökræðu við Friedman 1984. En einhvern veginn var þetta ómarkvisst. Hafirðu lesið það sem ég skrifaði um Nýja Sjáland u.þ.b. 2002-2007 þá sérðu að konan á fundi BSRB hefur haft góðar og gildar ástæður til að óttast þróunina. Nú gengu andfætlingar miklu lengra í frjálshyggjuátt en Davíðsliðið, kannski megum við vera þakklát fyrir það.

  •   Hrafn Arnarson // 17.8 2010 kl. 13:31

    Stefán, ég tel mig hafa fattað djókið en varð að hætta á að segja eitthvað sem passaði ekki með þessari athugasemd. Grein Hauks gefur nefnilega tilefni til að taka stórt málefni fyrir á skynsamlegan hátt. Málefni væri þá saga hugmyndafræðilegrar baráttu hér á landi á undanförnum áratugum. Ástandið einkennist þá af því að margvíslegar nýfrjálshyggjuhugmyndir hafa nánast algert forræði. Fjölmagir gera tilraun til að rókræða við Hannes Hólmstein svo það dæmi sé tekið. Hannes er fræðimaður en fyrst og fremst trúboði og pólitískur áróðursmaður. Hann hefur reyndar náð svo langt að vera dæmdur fyrir róg. Stefán Ólafsson andæfði nýfrjálshyggjunni með því að rannsaka félagslegar afleiðingar stefnunnar. Hann sýndi fram á að misrétti í tekju-og eignadreifingu óx hröðum skrefum. Annars er ég almennt sé sammála því sem þú segir. Andóf vinstri manna var máttlaust og ómarkvisst og hægrimenn fengu að ráða sviðinu og umræðuefnunum. Vinstri menn voru t.d. ekki nógu virkir í því að fá þekkta erlenda fræðimenn á vinstri kantinum til að koma til landsins á fundi og til að halda fyrirlestra.

  •   Daði // 17.8 2010 kl. 13:49

    Birgir Björn Sigurjónsson gaf út bókina Frjálshyggjan sem var gagnrýni á stefnuna og var svo geymdur í borgarkerfinu.

    HHG gaf út alls konar bull og vitleysu og var settur í Háskólann.

    Slefberi Sjálfstæðisflokksins klikkar ekki í trúboðinu:

    http://fridjon.blog.is/blog/fridjon/entry/89128/

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 14:27

    Daði, ég reyndi að lesa þá bók en gafst upp. En henni var bókstaflega ekkert hampað. Ekki heldur bók Harðar Bergmanns Umbúðasamfélagið, ég las reyndar aðeins grein í TMM þar sem hann kynnti meginhugmyndirnar, en bókmenntakommarnir höfðu engan áhuga á hans visthneigðu andhagvxatarhyggju. Ef Hörður hefði kveðið hagvaxtarrímur þá hefði liðið sperrt eyrun.
    Rétt Hrafn að lítið hefur verið um stórfræðimannaboð nema menningarspekinga eins og Zizek sem passa inn í kramið hjá pm-liðinu. En gott og vel, Stiglitz kom.

  •   Hrafn Arnarson // 17.8 2010 kl. 15:40

    Gleymum ekki Anthony Giddens og þriðju leiðinni.

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 16:28

    Kom hann ekki til íslands fyrir rúmum áratug? Ég held að jafnaðarmenn á Íslandi hafi ekki vitað af komu hans sennilega aldrei heyrt hans getið. Hann hefði sagt eins og Jesús, „Ég kom og vitað eignar minnar en þér þekktuð mig ekki“.

  •   ph // 17.8 2010 kl. 17:11

    Bókin Barnagælur eftir Óttar M. Norðfjörð er mögnuð ádeila á frjálshyggjufól.

  •   Anna María // 17.8 2010 kl. 18:27

    Það er gott að benda á merk skrif, jafnvel þó þau séu eftir mann sjálfan :)

    Annars játa ég mig seka. Ég flaut sofandi að feigðarósi einsog svo margir þó ég hugsaði mitt, líka einsog svo margir. En ég gerði ekkert sem rataði út fyrir minn litla heim. Þetta á við um stóran hluta okkar pöpulsins, sem nú er að vakna en er ótrúlega ómarkviss, reiður og áttavilltur (ég sjálf þar á meðal) af því það er einhvernvegin ekkert skýrt leiðarljós, bara tvístruð veröld. Hjá mörgum okkar eru einungis brotakenndar hugsanir og tilfinningar. Þess vegna þakka ég innilega fyrir þessar fínu ábendingar um lesefni og vonast eftir meiru. Þó ég sé auðvitað ofboðslega gáfuð (meira sjálfshól) :) þá er aldrei nóg af góðum pælingum sem gætu hugsanlega hentað til að þróa áfram farveg eigin hugsana.

  •   Snæbjörn // 17.8 2010 kl. 18:47

    Mér finnst komment miðbæjaríhaldsins fyndið. Hafa ekki stefnumál sjálfstæðisflokksins verið stefnumál frjálshyggjunar seinustu ár. Hví gagnrýndu hófsamir íhaldsmenn ekki Hannes á opinberum vettvangi?

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 18:54

    Þú verður að eiga það við Bjarna, Snæbjörn.
    Takk Anaa María.

  •   Hrafn Arnarson // 17.8 2010 kl. 19:05

    Anthony Giddens kom til landsins í mai 1999 . Hann hélt m.a. fyrirlestur hjá ReykjavíkurAkademíunni. Á fundi þaar voru meðal annarra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Margir fjölluðu um Giddens og kenningar hans. Nefna má Ögmund Jónasson og Benedikt Sigurðarson en báðir fjölluðu um Giddens í bloggi sínu. Fjölmargir aðrir fjölluðu um Giddens í rituðu máli m.a. ritaði hinn þekkti fjölmiðill Mbl. leiðara um hann. Af þessu má sjá að stór hluti íslenskra jafnaðarmanna þekkir og þekkti til Giddens og hugmynda hans. Hvort hugmyndir hans hafi haft raunverulega mikil áhrif á stefnu og starfshætti Samfylkingar skal ósagt látið.

  •   Stefán Jón Hafstein // 17.8 2010 kl. 19:06

    Sæll nafni, hef ekki lesið grein Hauks Más, kann að vera að hann hafi kryddað sterkt. En þú átt fullan rétt á að minna á Engann. Þeir eru fleiri. Ein vitleysan í kringum Hrunið er að það hafi verið ,,tíðaranda“ að kenna, alltaf hittir maður fyrir þennan ,,tiðaranda“. Fjöldi fólks var alls ekki hluti af þessum meinta anda og líkast til meirihluti Íslendinga. Þar til annað verður sannað held ég að falskt gengi krónunnar hafi sent skilaboð til þorra landsmanna um að hegða sér – taku eftir – RÉTT, miðað við röng skilboð. Kaupmátturinn var ógnarlegur, New York á kr 59 USD! Svo skammast þetta lið sem trúir á markaðinn yfir ,,tíðaranda“ og jafnaðarmenn sem kalla sig lýsa þessu sem einhverju altæku yfirþyrmandi ástandi sem ALLIR voru sekir um. Rangt. Giddens var auðfúsugestur og margir aðrir andæfðu með ýmsum hætti. En með dollar á 59 ísl. krónur hefði Marx sjálfur gefist upp á rökræðunni. Enginn á Íslandi er á móti dollar á undir sextíu, nema framleiðslu- og útflutningsgreinar. Efnishyggja, já.

  •   Stefán Snævarr // 17.8 2010 kl. 19:12

    Takk, það er auðvitað margt sem fram hjá manni fer þega rmaður býr erlendis, gott að vita að Giddens hafi slegið svona í gegn. Jú jú hann á marga aðdáendur á Íslandi þar á meðal Benedikt Sigurðsson.
    Nafni minn, þakka snöfurleg ummæli en ég hef aldrei ásakað neinn tíðaranda fyrir ástandið heima, auðvita voru margir efins um allt þetta útrásarvesen en ég held að við sem í útlöndum búum höfum verið síður blekkt því við sáum ekkert gull glitra í peningaveskinu.
    Faðir minn sálugi bjó nú á íslandi en hafði enga trú á þessu útrásarstandi. Við vorum algerlega sammála feðgarnir um að útrásarmennskan væri fífldirfska. Hann sagði tæplega níræður „það er ekki hægt að kaupa hálfan heiminn fyrir lánsfé eitt“. Yngri menn hefðu mátt hlusta á hinn aldna þul.

  •   Anna María // 17.8 2010 kl. 22:57

    Jú auðvitað spilaði téður TÍðARANDI inn í þetta allt saman og spilaði bara töluverða rullu. Það er ekkert hægt að henda því út að þó einhverjir spekúlantar hafi hugsað og sagt hitt og þetta þá var veruleiki hins almenna manns ekkert endilega í nákvæmum takti við háspekúleraða fyrirlestra þessarra eða hinna. Mér sýnist dálítið mikilvægt núna að minna á að stærsti hluti þessarar þjóðar er ekki dag og nótt pælandi í ritrýndum skrifum hagfræði eða heimspeki spekúlanta. Stærsti hluti þjóðarinnar var bara að reyna að díla viSumum var það meira að segja bara helvíti erfitt þó aðrir hefðu það gott. Og tíðarandinn umtalaði kallaði á fjarskalega margt sem krafðist og krefur enn fólk til að standa sína plikt hvað varðar efnahagslega afkomu og allt þetta sem henni tengist. Mér finnst dálítill hroki felast í því að segja tíðarandann ekki spila neina rullu í málinu. Venjulegt fólk reynir að lifa sínu lífi í sæmilegum takt við það sem telsts normal á hverjum tíma nefnilega. það eru bara tvær týpur sem fara aðrar leiðir. Annars vegar þeir sem hafa nægilega belgingslegt álit á sjálfum sér til að hafa kjark til að fara aðrar leiðir og þeir sem eiga ekki aðra kosti og þurfa að bása út á sér brjóstið til að halda haus. (Kannski er ég að misskilja Stefán Jón og óska þá eftir andmælum)

  •   Anna María // 17.8 2010 kl. 23:02

    Díla við veruleikann einsog hann var átti víst að standa þarna þar sem óskiljanleg orð mætast. Ég bið forláts.

  •   Haukur Már Helgason // 18.8 2010 kl. 00:34

    Hér er umrædd grein: http://www.this.is/haukurmar/?p=1590

  •   Mara // 18.8 2010 kl. 00:54

    Á hér sér virkilega stað uppbygglileg umræða?

  •   Mara // 18.8 2010 kl. 01:17

    Gott hjá þér Stefán !!!
    Það voru margir hræddir að andmæla Hannesi af því að Davíð – ástin hans – var jú við völd og hefnigjarn fyrir hallmæli mjög ..

  •   Stefán Snævarr // 18.8 2010 kl. 07:42

    Anna María var ekki tíðarandinn einn margar samvirkandi þátta?

  •   Bjarni Kjartansson // 18.8 2010 kl. 09:22

    Nú verð ég að verða ókurteis og svra Snæbirni á vetvangi sem annar á. Það er vegna þess, að ég þekki ekki aðferð til að svara honum beint, á eigin svæði.

    Snæbjörn talar um, að ekki hafi heyrst mikið úr ranni hófsamra og þjóðlega þenkjandi Íhaldsmanna. Það er ekki allskostar rétt. Margar greinar voru skrifaðar í Morgunblaðið og miklu bleki varið í umvandanir vegna þeirrar stefnu sem einkavæðingin tók, þrátt fyrir marg yfirlýstan vilja DO á, að eignarhald yrði dreyft.

    Andóf mitt við bullinu um ,,kjölfestufjárfesta“ kafnaði auðvitað í hálærðum greinum og ræðum Prófessora, Lektora, Hagfræðinga og VIðskiptafræðinga um brýna nauðsyn slíkra fjárfesta. Ég og fleiri settum fram áhyggjur um, að líklega væri þetta ,,eigið fé“ tekið að láni annarstaðar og væri því rangnefnt eigið fé. Það kom svo upp úr dúrnum.

    Ragnar Önundarson þorði, einn bankamanna, að benda á hætturnar, í greinum í Morgunblaðinu, strax um 2003 . Þetta varð að líkum til þess, að hann hætti í því kerfi, fyrst hjá Íslandsbanka og svo hjá Europay. Um þetta leiti, hertist mjög tök götustráka á bankakerfinu og mannabreytingar nokkuð örar. Alkunna er, að óknyttamönnum þykir ekki gott, að hlusta á aðfinnslur eða að menn séu að vara við því sem þeir hyggjast fyrir.

    Svo er það mín skoðun, að besti staðurinn til að segja flokki sínum til vamms er, Landsfundur viðkomandi flokks.

    Með þökk

    Miðbæjaríhaldið

  •   Kristján G. Kristjánsson // 18.8 2010 kl. 11:33

    Það er slæmt að þú notir ekki millinafn Hannesar Hágréts Gissurarsonar í pistlinum, því að fattleysingjar eins og ég tengja ekki fyrr en í miðjum pistli.

  •   Stefán Snævarr // 18.8 2010 kl. 12:30

    Takk Kristján, skal muna nafnið næst.

  •   Anna María // 18.8 2010 kl. 17:43

    Auðvitað var tíðarandinn einn samverkandi þátta Stefán. En hvað er það sem skapar tíðaranda?

  •   JSH // 19.8 2010 kl. 20:03

    Þegar reaganistar og thatcheristar íslenskir voru að undirbúa að taka völdin
    vorum við vinstrimenn uppteknir í hugmyndafræði fjöldamorðingja.

  •   Jeane Schissler // 17.11 2010 kl. 14:26

    Awesome post, hey I found this post while googling for lyrics. Thanks for sharing I’ll email my friends about this too.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og fimm? Svar: