Andstreymis

Mitt kall er ei að svara heldur spyrja (Henrik Ibsen)

Skyrgámur!

30.7 2010 | 21:50 | 1 ummæli

Nýlega gerðist að norskt fyrirtæki tók að framleiða og selja skyr. Segja talsmenn þess að þessi íslenska frænka jógúrtsins  snarslái í gegn.

Ég er til vitnis um það, skyr er oft uppselt ef maður kemur seint í kjörbúðina á horninu. Ég er nefnilega orðinn alger skyrgámur eftir að Nojarar tóku að selja skyr, borða það á hverjum degi, held ég sé orðinn háður því (er til skyrgámameðferð?).

Ekki man ég til þess að hafa verið ýkja gírugur í skyr sem krakki, þurfti að flytjast úr landi til að uppgötva þessa guðafæðu. Borða það helst með bláberjum og sojarjóma, þrælgott og þrælhollt.

Kjörorð mitt er: Skyr gerir menn skýra.

Auk þess legg ég til að AlvaldsHringadrottinsbattaríin verði snarsniðgengin, kvóta- og útrásarþýfi hraðfryst og réttað verði í máli hrunvalda.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (1)

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og fjórum? Svar: