Andstreymis

Mitt kall er ei að svara heldur spyrja (Henrik Ibsen)

Ópera um Samstöðu

28.9 2009 | 04:37 | Rita ummæli

Ég geri ekki endasleppt við Pólverja í dag, hóf daginn á færslu um hinn pólska Polanski, lauk honum með að fara á heimsfrumsýningu á stuttóperu um Samstöðu. Hún er eftir breska tónskáldið Patrick Dailly en hans hafði ég ekki heyrt getið fyrr. Hið alvitra Net getur upplýst menn um afrek hans.

Hvað um það, ekki þótti mér þessi ópera merkileg, tónlistin var í lagi en óperan var alltof stutt, endaði nánast í miðju lagi, það vantaði dramatíska hátinda. Til að gera illt verra var mannskapurinn of fáliðaður og sviðið of lítið. Leikur og söngur ekki nema í meðallagi, vantaði tilfinningu fyrir hinni magnþrungnu atburðarrás í Póllandi á árunum 1980-1982.

Samstaða kollvarpaði kommúnismanum, óperan um hana mun ekki valda aldahvörfum  í sögu söngleikjanna.

Auk þess legg ég til að Mogginn verði sniðgengin, kvótaþýfinu skilað, eigur útrásarfurstanna frystar og réttað verði málum þeirra um leið og einkavinavæðendur verði rassskelldir opinberlega.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



  • .

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):