Egill birtir pistil tveggja Norðanmanna um Norðmenn og ‘islendinga þar sem bent er á að þeir síðarnefndu hafi safnað fé handa nauðstöddum Norðmönnum, Dönum og Finnum rétt eftir stríðslok. Þeir telja að nú sé kominn tími til að Norðmenn geri Íslendingum greiða á móti, veiti þeim neyðarlán af ofgnótt sinni olíukynja.
Ekki er ég viss að rétt sé að fara til Norðmanna, gangandi við betlistaf. En hitt veit ég að vinátta Norðmanna við Íslendinga ristir ekki djúpt. Þeir endurguldu að vísu söfnunina 1945 með rausnarlegri aðstoð við Eyjamenn.
En þeim finnst sjálfsagt að láta greipar sópa um fornsögur Íslendinga án þess að spyrja hvað þeim finnist um málið. Þeir hafa heldur engan skilning á því að þeir hafi stórgrætt á þorskastríðum Íslendinga við Breta. Íslenskir skattgreiðendur borguðu brúsann og Norðmenn græddu án þess að borga einseyring. Tvö hundruða mílna lögsagan þjónaði þeirra hagsmunum betur en annarra þjóða vegna þess hvernig landið er lagað, þeir fengu í reynd yfirráð yfir næstum öllu Íshafinu og drjúgum hluta Norðuratlantshafs.
Norðmenn sýndu Íslendingum litla tillitsemi þegar síldarstofninn féll árið 1966 og þeir héldu áfram að veiða ókynþroska síld í lögsögu sinni. Þeir hlustuðu ekki á bænir Íslendinga, Rússa og Færeyinga um að hætta þessum ósköpum. Norskur síldarfræðingur tjáði mér að ef þeir hefðu haldið þessum veiðum áfram í tvo, þrjá mánuði í viðbót hefði síldarstofninn í Norðuratlantshafi horfið með öllu.
Ofveiðarnar norsku áttu þátt í að minnka síldarstofninn svo mikið að hann þurfti ekki að leita ætis utan norsku lögsögunnar. Norðmenn slógu þvi eign sinni á hann og hrósuðu sér af að hafa byggt hann upp á nýtt. Sem sagt þeir sem áttu mestan þátt í að brjóta vasann límdu hann saman aftur og drógu þá ályktun að .þeir einir ættu hann og útdeildu kvótum upp á sitt eindæmi.
Með þessu móti er ekki sagt að íslendingar hafi hegðað sér hótinu betur gagnvart Norðmönnum. Kvótamafían sendi togara sína til Smugunnar með fulltingi Alvaldsins og það án þess að ræða við Norðmenn um málið. Alvaldinum og kvótabarónunum finnst ekkert gaman að tala við útlendinga, nema hvað sá fyrrnefndi hlustar einatt andagtur á fólk frá Guðs eigin landi, ekki síst George Bush og Donald Rumsfeld..
Norðmenn brugðust reyndar alltof harkalega við, töluðu eins og Smugan væri í lögsögu þeirra og komu fram við Íslendinga eins og þeir væru enn skattskyldir Noregskonungi. Þeir hreinlega gáfu íslenskum ráðamönnum fyrirskipanir og sýndu þjóðinni fádæma dónaskap út af fiskeríi á pinkusvæði í Íshafinu.
Viðbrögð fjármálaráðherrans Halvorsen verða lengi í minnum höfð. Hún talaði eins og lán til Íslendinga væri gjöf sem ekki kæmi til greina að gefa. Mér vitanlega hefur enginn Norðmaður gagnrýnt ráðherrann fyrir dónaskap. Yfirleitt er sama sem ekkert rætt um íslenska hrunið í Noregi.
Einu viðbrögð Noðrmanna við vanda Íslendinga eru fáránlegar undirskriftasafnanir um að innlima Ísland í Noreg. Hinn gamli draumur Norðmanna um endurheimtingu skattlandanna er við lýði.
Ekki þar fyrir að það er ágætt að vera Íslendingur í Noregi, allmennt gott að búa í þessu fallega landi olíuauðsins. Það er margt gott um Norðmenn og Íslendingar gætu lært ýmislegt af þeim. En ekki halda að Nojarar séu vinir íslensku þjóðarinnar, þeir halda sig eiga hana og maður er ekki vinur leikfangsins síns.
Auk þess legg ég til að Mogginn verði sniðgenginn, kvótaþýfið endurheimt, eigur útrásarfurstanna frystar og réttað í málum þeirra og annarra hrunvalda. Útrásargrúppíur (m..a. þær á Bessastöðum) verði rassskelldar á Austurvelli.
Stefán Snævarr
Ummæli (17)
Jóhann Guðmundsson // 28.9 2009 kl. 17:32
Betur færi ef Íslendingar tileinkuðu sér hugsunarhátt Norðmanna, að miklu leyti.
Blixa Bargeld // 28.9 2009 kl. 18:18
Laet ég thad allt vera, Jóhann!
Kristín Hildur Kristjánsdóttir // 28.9 2009 kl. 18:40
Held að eingin þjóð sé vinaþjóð þegar kemur að peningum eða hagsmunum, enda snýst allt um eiginhagsmuni og pólitík. Annars fróðlegur lestur um norsarana (hef sjálf búið í þessu ágæta landi í 11 ár) og alltaf fundið fyrir velvilja í garð Íslendinga. Mikill munur þar og í Danmörku.
Drengur Óla Þorsteinsson // 28.9 2009 kl. 20:46
Maður hefur nú tekið ýmis verk að sér og betl er svosum ekki það versta.
Kærar kveðjur frá Langnesingi.
Rómverji // 28.9 2009 kl. 22:34
Íslendingar eiga öðrum en sjálfum sér að þakka 200 mílurnar, þannig að Norsarar skulda okkur ekkert þeirra vegna.
Íslendingar voru sjálfum sér líkir í Smugunni og höguðu sér eins og villimenn.
Snati þiggjenda kvóta og Hannesarjafni (en bara Hólmsteins) var líka voðahrifinn af andlegum jafna sínum, Berlusconi.
Jón. Ekki séra Jón. // 28.9 2009 kl. 22:49
Þetta var alveg satt. Ég er bara svei mér þá alveg sammála þér. Norsarinn er oft ágætur, en hann þarf að hafa „þjóðhagslegan“ ávinning af öllu..
Og svo hleypur hann orðið svo upp í nefið á þeim olíugróðinn að þeir haga sér eins og nískur gamall karl sem ekki vill aðstoða með nema fá blowjobb í staðin.
Þeir láta meira að segja eins og þeir séu að gefa peningana ef þeir lána á okurvöxtum…
vey // 28.9 2009 kl. 23:09
Samkvæmt minni reynslu eru nojarar annað hvort á skíðum, liggja á bæn eða þá að þeir eru annað hvort að brugga heima eða að rúlla sér Tideman- sígarettur, því þeir tíma hvorki að reykja né drekka.
Vís maður sagði einu sinni: „Allir menn eru komnir af öpum – nema Íslendingar.
Þeir eru komnir af Norðmönnum“.
DROPLAUGUR // 29.9 2009 kl. 00:38
Ég var strætókall í oslo og (strætó)kennari í 2 ár.1998-99 Ég varð OFT var við að norðmenn réðu frekar íslendina þá í vinnu frekar en norðmenn. Og flestir sem ég hitti í íslendingafélaginu þá, voru á því að norðmenn sýndu okkur öllum einstaka gestrisni,,,,,,já ég heyrði MIKIÐ talað um þetta þar forðum. Sko þetta er flott sagnfræði Snævarr , en margir telja að í stríðinu 1939-1945– hafi norðmenn verið varnarveggur íslands í stríðinu,,,þ.e að varnir norðmanna hafi kostað þýska herinn það mikið m.a. skipastólinn þeirra þ,e.þjóðverja . Að hernaðaráætlanir þýska hersins um að hugsanlega að taka íslands voru látnar bíða hjá HITLER,,,,,,, eftir öll ósköpinn í noregi við andspyrnuhreyfinguna. En bretinn NÝTTI ÞÁ TÍMAN tók færeyjar og að sjáflsögðu ísland eins og flestir vita .
Þannig að söfnuninn 1945 var eiginlega, að margra áliti ,,, okkar framlag fyrir þjóð sem kom í veg fyrir að við tjónuðust í stríðinu meir en varð. Ég er á því að þetta sé sama þjóðinn þ.e ísland og noregur,,,og að þessar t.d. okkar sameiginlegi menningararfur þ.e. íslensku kálskinnshandritin hafi verið skrifaðar fyrir norskt konugsfé enda heita sumar bækurnar m.a. konungsbækur, Miklar líkur eru á því Heimskringla sé skrifuð eftir pöntun frá norska kónginum þá ,, engar beinar heimildir eru til um það, en óbeinar þó nokkuð örugglega , en beinar heimildir eru um það að snorri sturlusson hafi tekið fé fyrir að skrifa fyrir norsku jarlana þar ytra. SKO ÞAÐ ER TIL ALLSKONAR SAGNFRÆÐI ,,,EN ÞAÐ ER VARLA HÆGT AÐ SEGJA AÐ NORÐMENN SKULDI OKKUR NOKKURN SKAPAÐAN HLUT—– OG AÐ HVERJU ÆTTU ÞEIR EKKI AÐ FARA VARLEGA HVAÐ ÞÁ ENDILEGA HAFA ÁHUGA Á ÞVÍ AÐ HENDA MIKLUM PENINGUM Í ÞETTA ÓENDALEGA SKULDASVARTHOL ÍSLENDINGA!!!!!
Stefán Snævarr // 29.9 2009 kl. 03:18
Kristín Hildur, Norðmenn eru ágætir þegar þeir eiga við einstaka Íslendinga nema þegar þeir fara að tala við fullorðna íslendinga eins og börn sem ég margir aðrir höfum lent í. En þeim er skítsama um þessa þjóð nema þegar eitthvað á að taka frá henni, ekki síst fornsögurnar. Drengur sendi stutta og staðfærða þýðingu mína á bréfi sínu til Aftenpostens sem tók ekki í mál að birta það, hefði bréfið fjallað um negra sem eiga bágt hefði blaðið birt það tvisvar, slík er rétthugsunin hjá umræðuritsjóra.
Danir fyrirlíta Íslendinga og láir þeim það enginn.
Rétt Droplaugur að þeir vilja oft íslendinga í vinnu því þeir eru svo duglegir.
Vilhjálmur mynd af Norðmönnum er úrelt þeir einu sem liggja á bæn í Noregi í dag eru múslimar og ungt fólk fer helst ekki á skíði.
Þjóðverjar gátu ekki gert innrás á íslandi því Bretar sigruðu þá á höfunum, Norðmenn voru illa undir stríðið búnir með góðum undirbúningi hefði Hitler aldrei þorað í þá.
Stefán Snævarr // 29.9 2009 kl. 04:29
Var minntur á að Norðmenn hefðu stutt Eyjamenn rausnarlega eftir gos, varð því að breyta færslunni en minnti á ýmislegt annað sem betur mætti fara í samskiptum ríkjanna.
Gunnhildur Ólafsdóttir // 29.9 2009 kl. 08:50
Fyrirgefið, en ógeðslega er þetta eitthvað klikkuð umræða. Reynið nú að hætta þessu klögum og fjandans grenji alltaf. Hvað ertu eiginlega gamall Stefán?
SM // 29.9 2009 kl. 09:35
Norðmenn eru gamaldags og margir hverjir latir til vinnu, vilja bara halla sér að félagsmálabarminum.
Stefán Snævarr // 29.9 2009 kl. 09:51
Norðmenn eru í ýmsum efnum nútímalegri en Kanarnir, ekki síst hvað rafrænar greiðslur varðar osfrv. Þeir mættu vera vinnusamari en ef það að vera nútímalegur mælist í netvæðingu, tölvuvæðingu, hamborgara- og pitsuáti þá sýnir öll statistík að Norsarar eru með nútímalegustu þjóðum. Blaðrið um hallærislegheit þeirra er íslensk sjálfsblekkingarfirra.
Gunnhildur þú ert ekki skrifandi á íslensku og átt þar af leiðandi ekki heima á minni ummælasíðu.
DROPLAUGUR // 29.9 2009 kl. 09:59
Láttu ekki svona Gunnhildur ó. Þrátt fyrir harðan skráp þá er Stefán Snævar bara innst inni viðkvæm tilfinningaver, fallegur , stílfagur og bloggsálin hans náma full af gimsteinum. Hann Stefán Sn. hefur líka þann góða eiginleika ,,,, að viðurkenna mistök,,,,,,, sem er oft hans vilji, en allar blokk færslur opinberast eftir reynsluheimi grein og þroska lesandans svo ekki er víst að allir skilji. Blokkfærslur eru frekar eins og létt kaffispjall þar sem menn viððððððra skoðanir hvers annars,,, ekki endilega mjög djúpt með höfðinu en alltaf and legri sannfæringu og hjartanu. Allvega vona ég að enginn taki skrif mín svo alvarlega, að viðkomandi lesendur míns bloggs , meitli þau í bautastein ,og geymi hann þar út í sínum garði ……………………..til að opinberast fyrir barna,,börnum sínum og komandi kynslóðir.
Stefán Snævarr // 29.9 2009 kl. 10:07
Skemmtilegt Droplaugur takk. Annars er nótt hér í Kaliforníu en ég er andvaka.
Þorsteinn Úlfar Björnsson // 30.9 2009 kl. 11:08
Pabbi sálugi afgreiddi Norðmenn alltaf með sama orðinu. „Norðmenn eru grútar.“ Grútur er gott lýsingarorð.
Örn Ólafsson // 1.10 2009 kl. 14:15
Þetta var mjög góður pistill hjá þér. Ég skora á þig að þýða hann á norsku og senda Aftenposten eða VG. Þú hefur stundum áður átt greiðan aðgang að norskum fjölmiðlum og ekki veitir af að lækka þjóðrembuna og þröngsýnina í Nojurum.
Rita ummæli