Hannes Giss sagði í útvarpi nýverið að öll þjóðin hafi stutt útrásina nema Davíð Oddsson. Ekki getur Hannes hafa átt við Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra, því hann söng útrásinni lof og prís í ræðu sem hann hélt árið 2005. Eins og alþjóð veit var sú ræða tekin upp og leikur lausum hala á youtube.
Þetta hlýtur Hannes að vita, þess vegna tel ég líklegt að hann haldi að ég og tugþúsundir annarra Íslendinga, sem voru skeptísk á útrásina allann tímann, heitum Davíð Oddsson. En því er ekki að heilsa.
Til að firra misskiling skal tekið fram að hægriarmsmenn Samfylkingarinnar heita af einhverjum undarlegum ástæðum ekki Hannes Hólmsteinn.
Auk þess legg ég til að náhirðin verði rassskelld, eigur útrásarmanna frystar og réttað í málum þeirra hið snarasta.
Stefán Snævarr
Ummæli (15)
ronný // 25.8 2009 kl. 00:47
Vel mælt gamli.
Þú hugsar heim til Skersins á Noregsfjallagrundum.
HaHóGi er nú að mestu talinn þorpsfífl sem sem lúðar hér hlægja af.
Hann fær vonandi lausn frá embætti fljótlega.
Annað væri skömm fyrir HÍ.
ladyboy // 25.8 2009 kl. 01:49
Ég legg til að við leggjum öll í púkk til að kaupa one way ticket til Brazelíu fyrir Hannes.
Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur // 25.8 2009 kl. 06:39
http://www.youtube.com/watch?v=5egkmJRikKw
Högni Högnason // 25.8 2009 kl. 08:13
Hvað um að gefa sér eitt augnablik að HHG greini satt og rétt frá viðhorfi síns dáða leiðtoga?
Ef til vill skynjaði leiðtoginn þegar á hinum örlagaríku mánuðum frá des 2002 til febrúar 2003 að einkavæðing bankanna hefði misheppnast fyrir blekkingar Framsóknarmanna og endað í spilltri helmingaskiptapólitík?
Í annarri viku september 2003 verður leiðtoginn svo enn fyrir áfalli þegar græðgisvæddir bankarnir gera áhlaup á Kolkrabbann og höggva viðskiptaveldi Engeyjarættarinnar í spað en blóðið flýtur í kauphöllinni. Það var eins og að rífa hjartað úr Sjálfstæðisfloknum. Þeir tóku Eimskip og Icelandair og Sjóvá og Shell.
Og svo þegar sjálfur Moggi riðar til falls í samkeppni við niðurgreitt Fréttablað reynir leiðtoginn í örvæntingu að koma í veg fyrir að skorið verði á slagæð flokksins. Hann lætur semja fjölmiðlalög en þá er allt um seinan. Óvinurinn hefur náð öllum völdum og draumurinn um heilbrigt markaðassamfélag hefur breyst í martröð …. og útrásarpúkarnir ýlfra og skrækja og skrattast akandi einkaþotum og þyrlum og Hummerum um alla fjósbita alveg þar til allt fellur ofaní svarta gröf aðfaranótt 6. október 2008.
Stefán Snævarr // 25.8 2009 kl. 09:47
Högni, Davíð hélt tvær fremur en eina ræðu í apríl 2005 þar sem hann lofsöng útrásina.
Ekki held ég að honum hafi þótt neitt að útrás Landsbankans.
Högni Högnason // 25.8 2009 kl. 10:08
Davíð lét bara blekkjast stundarkorn af tali misviturra manna eins og Hannesar Hólmsteins. Þeir sögðu að íslenska bankabólan væri alvöru kapítalismi en ekki gönuhlaup óreiðumanna.
joi // 25.8 2009 kl. 10:30
Ég gef nú lítið fyrir rugl eins og það sem Högni lætur frá sér fara. Hvernig dettur honum í hug eitt augnablik að Davíð hafi látið Hannes glepja sér sýn?
Og nú þurfum við kosningar
og Davíð aftur í brúna!
Stefán Snævarr // 25.8 2009 kl. 10:59
Högni, skilgreinir þú „alvöru kapítalisma“ sem „kapítalisma sem gengur vel“?
Sé svo þá ruglarðu saman veruleika og líkana, fínu frjálshyggjulíkönin sýna að kapítalisminn hljóti altaf að ganga vel, ef illa gengur þá er það einhverju öðru að kenna en kerfinu fullkomna.
Kommúnistar hugsuðu nákvæmlega eins.
En staðreyndin er sú að stundum skilar markaðskerfið góðum árangri, stundum ekki.
C’est la vie.
Jói, Davíð á betur heima á hrauninu en í stjórnaráðinu.
Högni Högnason // 25.8 2009 kl. 11:17
Kapítalismi er ekki kenning heldur lífið sjálft og gengur svona upp og niður.
Náttfari // 25.8 2009 kl. 11:33
„Capitalism is getting f****d in the ass!“
- Tony „Scarface“ Montana
Stefán Snævarr // 25.8 2009 kl. 11:56
Högni, þetta hjá þér er tilraun til að gera tiltekið hagkerfi að sjálfssögðum hlut og réttlæta það þar með. En í heimi mannsins er EKKERT sjálfssagður hlutur.
Markaðsdýrkendur (“frjáls“-hyggjumenn) hafa með útsmognum áróðri reynt að gera hugmyndir sínar að sjálfssögðum hlut, þeir líkjast kommúnistum hvað áróðuráráttu varðar.
dormi // 25.8 2009 kl. 18:29
Fullyrðingar Hannesar um afstöðu allra Íslendinga gagnvart Útrásinni (nema Davíðs) er skemmtileg. Hann talar eins og hann þekki hug allra Íslendinga. Hleranir…? Engar smá hleranir! Það þarf meiriháttar paranormal hleranir til þess arna.
Aul þess ég man ekki betur en einhverjir hafi lýst efasemdum, þótt flestir hafi fyllst þjóðarstolti vegna „velgengni“ víkinganna. Helvítis Víkingabull í Íslendingum einatt.
Eitt er samt gott að hafa í huga, sem mönnum væri hollt að draga lærdóm af, en það er að verða ekki sjálfkrafa vinir óvina óvina sinna. Margir sem voru andsnúnir Davíð snérust til varnar Baugi vegna óvildar Davíðs.
Svona vinátta hefur margoft valdið ómældu tjóni, t.d. Bandaríkjamenn studdu Rauðu Kmerana (? stafsetning) vegna þess að þeir voru óvinir Víetnama.
dormi // 25.8 2009 kl. 18:32
Ég er ekki frá því að Fosssetinn hafi fallið í þennan pitt.
Náttfari // 25.8 2009 kl. 21:19
Brad?
Stefán Snævarr // 25.8 2009 kl. 22:19
Upp úr aldamótum tók ég að verða Davíð mjög andsnúinn en féll aldrei í Baugspyttinn, frodæmdi bæði Baug og Kolkrabba í Mogganum sumarið 2004.
Ég fann ekki snefil af stolti vegna útrásarinnar, fannst þetta lið hafa tekið völdin á íslandi, benti á það í greininni Gyltuöldin árið 2006.
Rita ummæli