Andstreymis

Mitt kall er ei að svara heldur spyrja (Henrik Ibsen)

Færslur fyrir: júlí 2009

Ég á mér draum

31.7 2009 | 14 athugasemdir

Ég á mér draum um að eigur útrásarmannanna verði frystar sem fyrst.

Ég á mér draum um að þeir verði sóttir til saka hið snarasta.

Ég á mér draum um að einkavinavæðendur axli ábyrgðina á gjörðum sínum og verði dregnir fyrir lög og dóm hafi þeir brotið lög.

Ég á mér draum um að útrásardindlarnir  hverfi af þingi og úr ríkisstjórn.

Ég á mér draum um að útrásarleppar í stjórnsýslunni taki pokana sína.

Ég á mér þennan draum í dag, ég mun eiga hann á morgunn líka.

Drauminn okkar allra.

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta.

Flokkar: Óflokkað

Enn um psýkópata

30.7 2009 | 10 athugasemdir

Gleymdi einu mikilvægu í færslu minni um psýkópata og pataveldið íslenska. Patar telja sókn bestu vörnina, beita hótunum til að hræða fólk. Ein aðferðin er að hóta lögsókn.

Þetta mátti ég reyna þegar ég glímdi við psýkópatann starfs-“bróður“ minn og hélt velli eins og Jakob þegar hann glímdi við engil Guðs. En þessi var engill djöfulsins.

Hann hótaði mér  meiðyrðamáli.

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta.

Flokkar: Óflokkað

Náhirð vestanhafs

30.7 2009 | 11 athugasemdir

Bandatríkjamenn hafa eignast sína náhirð, það er alveg satt! Hirðstjórinn heitir Kjartan Björn Cheney, hann hefur til fulltingis sér Óla Björn Limbaugh og fleira stórmenni.

Sá dansar Limbaugh-dans  fjandans á öldum ljósvakans.

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta.

Flokkar: Óflokkað

Vader-bræður verja heiður sinn

29.7 2009 | Ein athugasemd

Flestir þekkja þann merka mannvin Darth Vader. Færri vita að hann á þrjá íslenska syni, þá Bjögga, Magga og Kalla Vader. Þeir eru sómakærir eins og faðirinn, setja heiður sinn ofar öðru. Enda hyggjast þeir nú fara í mál við fjölmiðla sem vanvirt hafa heiður þeirra.

Betur væri að fleiri væru jafn sómakærir og þessir heiðursbræður.

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta.

Flokkar: Óflokkað

Frá Jómfrúreyjum til Jómfrúreyja

28.7 2009 | 16 athugasemdir

Einn forfeðra Davíðs Oddssonar kom frá Dönsku Jómfrúreyjum.

Útrásarauðurinn lenti í skattaskjóli á Bresku Jómfrúreyjum.

Tilviljun?

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta.

Flokkar: Óflokkað

Ísland og einræði psýkópatanna

28.7 2009 | 39 athugasemdir

Skömmu eftir stríð skrifaði norski sálfræðingurinn Ingjald Nissen merka bók sem bar heitið Psykopatenes diktatur, á íslensku Einræði psýkopatanna. Þar segir að í sérhverri stofnun, félagi eða samfélagi sé stöðug hætta sé á því að psýkópatarnir taki þær yfir hægt og sígandi.

Psýkópatar séu belgfullir af valdagirni en kunni að leyna því enda einkar snjallir að villa á sér heimildir. Þeir séu ævinlega skrefi á undan venjulegu fólki. Þeir kunni á venjulega manninn en hann ekki á þá.

Mín spurning er: Getur verið að pólitík og viðskiptalíf á Íslandi hafi verið tekin yfir af psýkópötum á undanförnum árum? Ekki verður séð að útrásarherrarnir hafi nokkuð sem minni á samviskubit og það sama má segja um ýmsa þá sem vaðið hafa uppi í stjórnmálalífi landsins. Athugið að þetta fólk neitar algerlega að viðurkenna að það hafi gert neitt rangt en slíkt er einmitt meðal kennimarka  psýkópatíunnar.

Sumar af helstu samfélagsdeilum undanfarinna ára virðast hafa verið rimmur milli pata, þetta fólk þráir völd meira en nokkuð annað og þolir því ekki samkeppni.

Sjálfur lenti ég eitt sinn í átökum  við psýkopata og hélt mínu eins og Jakob í glímunni við engil Drottins. En þrekaður var ég eftir viðureignina.

Við skulum vona að venjulegt fólk á Íslandi hafi betur í viðureign sinni við psýkópataveldið en við ramman reip er að draga. Þjóðin verður þrekuð eftir rimmuna.

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta.

Flokkar: Óflokkað

„666, tala ESB“

27.7 2009 | 12 athugasemdir

Þungarokksaðdáendur þekkja smell Iron Maidens, „Number of the Beast“ en viðkvæði þess er „666, the number of the Beast“. Og eins og alþjóð veit er ekki  um að ræða hvaða kvikindi sem vera skal heldur sjálfan Antikrist, í Opinberunarbókinni er talan 666 sögð „tala Dýrsins“, þ.e. þess í neðra eða Antikrists (mörkin milli þeirra virðast óskýr).

Færri vita að þegar Norðmenn tókust á um aðild að forvera ESB, Efnahagsbandalagi Evrópu, þá hélt heittrúarpokaprestur því fram að Efnahagsbandalagið væri téð Opinberunarbókar-skepna Var þetta haft mjög í flmtingum en kom í ekki veg fyrir ósigur Efnahagsbandalagssinna.

Huggun þeirra var sú að tungutal prestsins var svanasöngur heitrúarmennskunar norsku, eftir „stunt“ hans hverfiðist heittrúin í pólitíska rétthugsun. En ummæli hans urðu að orðtaki í Noregi.

Andstæðingar ESB á Íslandi tala reyndar einatt eins og það sé Dýrið í Opinberunarbókinni, samanber þá staðhæfingu  Árna hins vammlausa Johnsen að ESB væri sama súpan og Sovétríkin. Þau ríki voru nefnilega af ýmsum málsmetandi mönnum talin vera títtnefnd kvikindi.

Ég skora á Árna að grípa gítarinn og syngja lag Iron Maiden með mínum íslenska texta. Viðkvæðið er náttúrulega „666, tala ESB, 666 tala ESB“.

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta.

Flokkar: Óflokkað

Brüno blífur!

16.7 2009 | 5 athugasemdir

Fór í gærkvöld að sjá Brüno og varð ekki fyrir vonbrigðum. Satt best að segja skellihló ég allan tímann.

Ég tók eftir því að Brüno er látinn segja að einhverfni sé inn, klamydia úti. Enda eru persónur Sascha Baron-Cohens ekki eilítið einhverfar. Eitt er fyrir sig að atferli einhverfra kitlar oft hláturtaugarnar, samanber Mr. Bean sem mörgum (ekki mér) þykir ógnar fyndinn. Annað er að föðurbróðir Sascha, sálfræðingurinn Simon Baron-Cohen, hefur unnir brautryðjendastarf í rannsóknum á einhverfni.

Hann segir að einhverfir séu „hugblindir“ (“mindblind“), þeir skilji ekki að aðrir geti haft huga og upplifanir, þar með taldar tilfinningar. Eiginlega skynja þeirr ekki sjálfa sig sem hugverur. Ennfremur segir hann að einhverfir einstaklingar séu ofur-karlar í þeim skilningi að heilinn sé gegnsósa af karlhormónum. Enda eigi karlmenn oft erfitt með að skilja tilfinningar og annað sem huganum viðvíkur, þeir séu með allan hugann bundinn við hluti sem hreyfast.

Það eru einhverfir líka, þeir þeirra sem eru velvirkir og teljast hafa Asperger-heilkenni eru oft mjög slyngir í stærðfræði og náttúruvísindum, að kanna hluti sem hreyfast eru þeirra ær og kýr.

Enda hefur Brüno ekki eilítinn áhuga á æfingahjólum með áföstum, hreyfanlegum gerviti…!

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta

Flokkar: Óflokkað

Posner um kreppuna

15.7 2009 | 2 athugasemdir

Fyrir nokkru nefndi ég Richard Posner í bloggi, bandarískan dómara og fjölfræðing. Hann var lengi samherji hins frjálshyggjusinnaða Chicagoskóla en breytti um skoðun í kreppunni.

Í nýjustu bók sinni A Failure of Capitalism viðurkennir þessi gamli frjálshyggjujálkur að kreppan sé frjálsari markaðsháttum að kenna.  Afreglunin (deregulation) í fjármálageiranum hafi verið helsti kreppuvaldurinn. Hún olli því að skynsamlegt var fyrir banka og bankaígildi að taka æ meiri áhættur. Þeir sem engar áhættur tóku töpuðu í samkeppninni. Áhættusæknin leiddi til ófarnaðar, bankakerfið hrundi og allir töpuðu þótt þeir hafi haft upplýsta eigingirni að leiðarljósi við tiltölulega frjálsar markaðsaðstæður.

Svoleiðis lagað á ekki að geta gerst samkvæmt formúlum frjálshyggjunnar. Annað dæmi sem ekki hæfir formúlunum er sú staðreynd að á krepputímum er skynsamlegt fyrir einstaklinginn að spara en slæmt fyrir heildina.

Annar kreppuvaldur var sú staðreynd að erfitt var að meta verðmæti allra hinna furðulegu efnahagsnýjunga, það er afleiða (derivates) og annars slíks. Ekki bætti andvaraleysi hagfræðinga úr skák, fæstir þeirra sáu hvað í vændum var. Til dæmis sagði nóbelshafinn Robert Lucas í september árið 2007 að hann efaðist um að undirmálslánin myndu sýkja hagkerfið. Ári síðar sagðist hann vera efins um að hagkerfið væri á leið í niðursveiflu (!!!!). Posner segir að blaðamenn hafi séð kreppuna betur fyrir en hagfræðingar.

Þrátt fyrir þetta heldur Posner tryggð við ýmislegt í frjálshyggjunni, hann segir t.d. að út af fyrir sig hafi verið rétt að afregla á ýmsum sviðum samfélagsins en ekki í fjármálageiranum. Flugsamgöngur má gjarnan afregla enda hafa þær ekki eins örlagarík áhrif á efnahagslífið og fjármálageirinn. Þessu er ég út af fyrir sig alveg sammála, mín vegna má afregla landbúnaðinn all hressilega.

En verra þykir mér þegar Posner ræðst á verkalýðshreyfinguna með þessu vanalega frjálshyggjupípi, ég hef svo oft svarað því að ég nenni ekki að endurtaka það. Skrítið þykir mér líka þegar Posner gagnrýnir Keynes en viðurkennir um leið að sparnaður í kreppu sé skaðvænleg heildinni þótt hún sé skynsamleg fyrir einstaklinginn. Keynes sagði jú að einmitt þess vegna þyrfti ríkið að auka eftirspurnina. En Keynes var ekki hafinn yfir gagnrýni, of mikill lögmálssinni fyrir minn smekk.

Posner vísar á bug þeirri staðhæfingu að svindl og aðrar lögleysur hafi átt þátt í kreppunni. En hann sér ekki að fjármagnsvæðing hagkerfisins hlýtur að hafa auðveldað svikahröppun að athafna sig, eins og Íslendingar ættu að vita öðrum mönnum betur. Þótt menn séu allir af vilja gerðir þá eru klár takmörk fyrir því hve mikið er hægt að svindla og svíkja í framleiðslugeiranum. Ef mjólkin er eitruð þá er líklegt að kúnninn uppgötvi það fljótlega, ekki er nándar nær eins auðvelt að uppgötva eitruð lán í ógnarflóknu fjármálakerfi.

Spurningin er líka hvort Posner ofmeti ekki skynsemi markaðsgerenda. Nú er í tísku að tala um dýrseðli (animal spirits) sem áhrifavald í efnahagslífinu. „Ef ein beljann mígur, þá míga þær allar“, menn hlaupa líka í sömu átt á mörkuðum, fylgja hjörðinni umhugsunarlítið. Ég hef líka áður tekið undir ýmislegt af því sem Dahrendorf segir um það hvernig  breyttur hugsunarháttur (aukin lánamennska) hafi átt þátt í hruninu mikla.

Út af fyrir sig er bók Posners ekki ýkja frumleg, hann er svo lítið í því að finna upp hjólið, segja ýmislegt það sem miðju- og jafnaðarmenn hafa hamrað á lengi.  En hann  er skynsamur maður sem þorir að viðurkenna að hann hafi farið villur vegar. Þora íslenskir frjálshyggjumenn það?

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta

Flokkar: Óflokkað

MacNamara: Tölva með lappir krasjar

14.7 2009 | 4 athugasemdir

Tímasetning var aldrei sterkasta hlið Robert MacNamara, hann fann upp á þeim ósóma að hrökkva upp af mitt í gauragangnum út af dauða  Michaels Jackson með þeim afleiðingum að láti hans var lítill gaumur gefinn.

En eins og gefið er í skyn í heiti þessarar færslu eru áhöld um hvort tala beri um „lát“ hans. MacNamara var nefnilega kallaður „tölva með lappir“ og því betra að segja hann hafa krasjað eða verið tekinn úr sambandi af almættinu.

MacNamara var tækniræðismaður fram í figurgómana (griptengurnar?) , hann trúði því að öll vandamál mætti leysa með reikningslist. Í síðari heimsstyrjöld sat hann með sveittann skalla og reiknað út hve margar sprengjur ætti að kasta á japanskar borgir til að knésetja Japani. En vélmennið MacNamara tók náttúrulega ekki með í reikninginn að sprengjuárásirnar myndu gera japani staðfastari í vörn sinni. Staðfesta og hefndarhugur voru ekki til í reiknilíkönunum.

MacNamara gerði nákvæmlega sömu skyssuna í Víetnamstríðinu. Hann lét nota einhver reiðinnar býsn af tölvum til að reikna út hve sennilegt væri að si og svo margir vopnaðir kommar gerðu hitt og þetta þá og þegar. En mannlegi þátturinn gleymdist, tímasetning MacNamara var vond að vanda.

 Í bókum á borð við The New Mandarins leiddi Noam Chomsky sannfærandi rök að því að stríðsrekstur BNA í Víetnam hefði byggst á hinni svonefndu atferlisstefnu en samkvæmt henni er hegðun okkar að miklu leyti skilyrt atferli. Við látum stjórnast af umbun og refsingu, hægt er að skilyrða menn til að gera allan andskotann með umbun og refsingu.

Bandaríkjamenn hafi reynt að skilyrða Víetnmana með umbun og refsingu en gleymt að menn eru ekki eins og rottur sem stjórnast með svona einföldum hætti.

Það fylgir svo sögunni að Chomsky tókst að ráða niðurlögum  atferlisstefnunnar, einu sinni ríkti hún ein í sálfræðideildum, nú er hún horfin og sakna hennar fæstir. Þannig olli Chomsky byltingu í tveimur fræðigreinum, fyrst í málvísindum, svo í sálarfræði. Því miður hefur þessi mikli snillingur festst í fáránlegri vinstriöfgastefnu, varði meira að segja Rauðu Khmerana. Sú stefna er ekki hótinu skárri en atferlismennska og reiknishyggja MacNamara.

Hvað reiknismennsku áhrærir þá lifir hún enn í ýmsum myndum, samanber fáránlegar tilraunir Evrópumannsins mikla til að reikna meintan kostnað af íslensku. Kannski ætti að nota atferlisstefnu til að venja Íslendinga af þeim ósóma að tala íslensku, þeir fengju t.d. rafstuð í hvert sinn sem þeir mæltu á því máli, sleikipinna ef þeir töluðu ensku.

Andi MacNamara svífur enn yfir vötnum víða, illu heilli.

Auk þess legg ég til að eigur auðkýfinganna verði frystar og réttað verði í málum þeirra hið snarasta

Flokkar: Óflokkað