Andstreymis

Mitt kall er ei að svara heldur spyrja (Henrik Ibsen)

Fámiðlar

15.3 2010 | 22:39 | 4 ummæli

Á Íslandi eru ekki lengur til fjölmiðlar, aðeins fámiðlar. Það ríkir fá-keppni, fá-ræði og fá-tækt andans í „fjöl“-miðlabransanum. Einna skást er ástandið í Netmiðlaheiminum enda er hann ekki alveg á valdi hins flærðarfulla íslenska auðvalds.

Blöð og ljósvakamiðlar eru notaðir eins og peð í tafli auðjöfranna, blaðamenn og ritstjórar meðhöndlaðir eins og skepnur. Hvaða uppreist, hugsandi manneskja nennir að starfa við íslenskan fámiðil?

Talað er nú um auðvalds- og útrásarbrellur í sambandi við sölu á DV, „húsameistari auðvaldsins, ekki meir, ekki meir“. Kaupi káta kvótaekkjan blaðið þá ættu sumir að dusta rykið af fjölmiðlalögunum sálugu. En fyrr mundi himinn hrynja en svo yrði.

En ekki má gleyma vonarstjörnunni, blaðinu Róstur, þessum vísi að auðvaldslausu blaði í Reykjavík. Ég gerðist áskrifandi um daginn, vonandi er ég ekki einn um það. Heill Róstri, þrefalt húrra fyrir hinum hugrökku útgefendum hans!

Auk þess legg ég til að kvótaauðvaldsnepill Alvaldsins verði sniðgengin, einnig auðvaldsbattarí Hringadrottins og hans fámiðlar, kvóta- og útrásarþýfi snarfryst og réttað verði í málum hrunvalda.

→ 4 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Fordæmi Gústa

14.3 2010 | 07:05 | 4 ummæli

Tómas à Kempis var miðaldamunkur sem samdi þekkt trúarrit, Fordæmi Krists (Imitatio Christi). Menn ættu að fylgja  fordæmi Krists, leitast við að lifa eins og hann. Það fylgir sögunni að Laxness hélt þessu kveri  mjög á lofti á sínu kaþólska skeiði. 

Klappstýrur útrásarinnar ættu nú að fylgja fordæmi Ágústs heitins Ólafs og láta sig hverfa úr pólitík, hætta þátttöku í allri útrásarumræðu. Ágúst sálugi þekkti sinn vitjunartíma, klappstýrurnar ekki.

Þetta gildir jafnt um klappstýrur Hringadrottins sem Alvalds/Bjargvarga.

Auk þess legg ég til að títtnefndur snepill og títtnefnt battarí verði sniðgengin, útrásar- og kvótaþýfi fryst og hrunvaldar dregnir fyrir lög og dóm, klappstýrur þeirra rassskelltar.

→ 4 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Sankti Voffi (stjúphundurinn sannar tilveru Miklavoffa)

13.3 2010 | 19:25 | Rita ummæli

Þegar ég kom úr vinnunni um daginn sat stjúphundurinn í gluggakistunni og spangólaði eins og óður enda fullt tungl.

Ég: Æ góði, hættu þessu spangóli, þú ert að gera mig brjálaðann!

Stjúphundur: Heyrðu, ertu á móti trúarfrelsi? Ég er einfaldlega að biðja bæna minna, biðja Miklavoffa um aðstoð við klekkja duglega á feita fressinu hinum meginn við götuna.

Ég: Þetta eru aldeilis kærleiksrík trúarbrögð sem þú aðhyllist. En hvernig geturðu sannað að þessi Miklivoffi sé til?

Stjúphundur: Sko það er auðvelt, ef þú skoðar tungl í fyllingu þá sérðu strax að það hefur hundstrýni.

Ég; Eru þetta einu rökin sem þú hefur fyrir tilveru kvik…ég meina Miklavoffa.

Stjúphundur: Áður en lengra haldið, það eru örgustu helgispjöll að kalla Miklavoffa „kvikindi“. Þess utan hef ég fleiri rök og öll sótt til reynslunnar, eins og ég sagði áðan þá sýnir reynslan að Miklivoffi býr í tunglinu, þú hreinlega sérð hann með berum augum. Auk þess má telja ljóst að allir hlutir eru skapaðir fyrir okkur hunda og það hlýtur mikill hundur að hafa gert. Af hverju eru menn til? Augljóslega til að þjóna okkur hundum, gefa okkur að éta, veita okkur húsaskjól og læknisþjónustu, fara með okkur út að labba og svo framvegis. Af hverju eru skógar til? Til þess að við voffar getum sprangað um þá, gengið örna okkar o.s.frv. Sem sagt reynslan sýnir að Miklivoffi er til og hefur skapað allan heiminn handa okkur voffunum.

Ég: Þú beitir svipuðum rökum og hinn heilagi Tómas af Aquinas en hann tók reynslurök ein alvarlega þegar Guðsannanir voru annars vegar, hægt væri að sanna tilveru Guðs með hliðsjón af reynslunni. Og hann var tekinn í heilagra manna tölu, kannski þú verðir tekinn í heilagra hunda tölu, verðir kallaður „Sankti Voffi“.

Stjúphundur: Mér lýst þrælvel á það en eigum við ekki að skella okkur út að labba?

Ég: Yðar heilagleiki, orð yðar eru mér lög.

Og við skelltum okkur út.

Auk þess legg ég til að Alvalds-auðvalds-snepillinn og Hringadrottinsbattaríið verði sniðgengin, útrásar- og kvótaþýfi fryst og hrunvaldsvoffarnir dregnir fyrir lög og dóm.

→ Rita ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Samræður við stjúphundinn um Miklavoffa, ketti o.fl.

13.3 2010 | 11:10 | 2 ummæli

Ég var nýkominn úr vinnunni og hálffúll út í einn starfsbróður minn. Ég sagði voffa farir mínar ekki sléttar og lét dæluna ganga um ávirðingar þessa manns.

Ég: Sko hann beitir algerri hundalógík, setur svo undir sig hundshaus ef maður andmælir honum. Svo er hann hryllilega tíkarlegur á allan hátt. Fyrr skal ég hundur heita en að samþykkja vitleysuna í honum.

Stjúphundur: Aaa, enn og aftur voffameiðandi ummæli, þú ert haldinn hundahyggju (sbr kynþáttahyggju).

Ég: Æ fyrirgefðu voffi, þetta skrapp bara út úr mér. Hvað get ég gert til að bæta fyrir brot mitt?

Stjúphundur: Þú gætir til dæmis gefið mér almennilega steik að éta. En  dýralæknirinn segir að ég megi ekkert éta annað en sérfæði og alls ekki fá bita milli mála. Svo ég mæli með hressilegum göngutúr, þér veitir ekki af að hreyfa þig, þú ert feitari en helvítis fressið í nágrannahúsinu.

Ég: Gott og vel,  en með þeim skilyrðum að þú farir ekki í bananagöngu (go bananas) í hvert sinn sem þú sérð kött. Ég er leiður á að bjarga lífi kattanna í hverfinu.

Stjúphundur: Það er nú bara skylda hvers hunds að hrella  ketti, þetta eru viðurstyggileg kvikindi.

Ég; Skrítinn skylda að tarna! Eru ekki kettir sköpunarverk Guðs rétt eins og hundar? Hafa þeir ekki fjórar fætur, klær, feld og rófu eins og þið?

Stjúphundur: Ef þú með „Guð“ átt við „Miklavoffa í tunglinu“ þá er svarið „nei“. Við hundar höfum komist að þeirri niðurstöðu að Miklivoffi hafi skapað allt nema ketti. Þeir voru skapaðir af Risakisu sem býr í risastóru tré undir jörðinni og er lífshættuleg öllum hundum. Hún skapaði ketti til þess eins að skaprauna okkur. Þegar við hundar spangólum og horfum á fullt tungl þá erum við biðja bæna, biðja Miklavoffa í mánanum ásjár, ekki síst um aðstoð í eilífu stríði okkar við kisulórurnar.

Ég: Ekki vissi ég að þú værir trúhundur. Ég hef heyrt talað um hindúisma en ekki hundisma. En þú svaraðir ekki spurningunni um allt sem voffum og kisum er sameiginlegt.

Stjúphundur: Sameiginlegt, minn rass! Við höfum fallegan feld, þeir ljótan, fagra rófu, þeir ljóta o.s.frv.

Ég: Þetta eru engin rök. Hvað gerir ketti svo viðbjóðslega í þínum augum?

Stjúphundur: Sko allir vita að kettir eru andstyggilegir vegna þess….af því að… æ þetta er bara í genunum okkar hunda, við verðum hlýða boði náttúrunnar og ráðast á kisurnar.

Ég: Við getum að einhverju marki haldið ásköpuðum hneigðum í skefjum. Góði, reyndu nú að halda aftur af þér næst þegar þú rekst á kött.

Stjúphundur: „Jæja þá í þetta sinn“ en náðu nú í ólina mína svo við getum farið að spássera.

Ég; Skal gert, yðar hátign, nú skulum við skella okkur út.

Stjúphundur: Voff, voff, endilega!

Og við skelltum okkur í göngutúr.

Auk þess legg ég til að Alvaldssneplar sem ekki eru hundum bjóðandi verði sniðgengnir, allt apparat Hringadrottins líka, útrásar- og kvótaþýfi skilað og réttað strax í málum hrunvalda áður en allt fer í hund og kött á Íslandi.

→ 2 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Annað samtal við stjúphundinn

12.3 2010 | 16:17 | 8 ummæli

Það var fimbulkuldi í Lillehammer í ársbyrjun, 20-30 stiga frost  dag hvern. En voffinn lætur ekki slíkt aftra sér, hann vill ólmur út að ganga þótt skítkalt sé úti. Eftirfarandi samtal átti sér stað um miðjan janúar:

Stjúphundur: Voff, voff, eigum við ekki að skella okkur út í göngutúr? Fínt gönguveður.

Ég: Nei voffi, það er hundkalt.

Stjúphundur: Abbababb, þetta er mjög hundfjandsamleg ummæli, rétt eins og að kalla litað fólk alls konar uppnefnum.

Ég: Jæja, svo þú ert bara orðinn pólitískt rétthugsandi. Gott hjá þér! En finnst þér ekki þú vera mannfjandsamlegur þegar þú kallar mig „alfavoffa“.

Stjúphundur: Gott og vel, við gerum samning, þú notar ekki framar orðið „hundkalt“ og ég kalla þig ekki „alfavoffa“ framar. Díll?

Ég: Díll!! (og hefði gefið fimm ef voffi hefði fingur).

Stjúphundur: Eitt skil ég ekki, látum það vera þótt þið alf…úps menn hafið nánast ekkert lyktarskyn en af hverju hafiði ekki feld? Ég meina, þið eruð pinku mislukkuð á vissum sviðum.

Ég: Það er vegna þess að forfeður okkar voru hárlausir apar sem bjuggu í Afríku og vöppuðu um á sléttunum þar í rosahita. En þínir forfeður voru úlfar í hinni hund…úps hrollköldu Síberíu og urðu að hafa feld til að lifa af.

Stjúphundur: Jú en af hverju getiði ekki bara grætt á ykkur feld? Þið megið eiga að þið eruð uppfinningasöm, kvenmenn græða á sig brjóst og fá sér ný fés, karlmenn stækka á sér þú-veist-hvað  o.s.frv. Af hverju ekki feld?

Ég: Voffi, ég verð að hugsa þetta aðeins nánar. Veistu, ég bara skelli mér í lopapeysuna og við skellum okkur út að ganga?

Stjúphundur: Já, það skulum við gera, voff, voff, voff!

Og við skelltum okkur út.

Auk þess legg ég til að alfavoffarnir sem ollu hruninu verði dregnir fyrir lög og dóm.

→ 8 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Hið illa á hvítu tjaldi

11.3 2010 | 23:18 | 13 ummæli

Ég hef séð hið illa í þrennum myndum í þremur kvikmyndum. Fyrst skal nefnd  mynd Michael Hanekes, Hvíta borðann (Das Weisse Band). Hún sýnir hið illa sem fall af stjórnlyndi, stigveldi og gleðisnauðri hræsnishreintrú. Teprulegur hreintrúarprestur í litlu þýsku þorpi rétt fyrir fyrra stríð bindur hvíta borða um handleggi barna sinna, borðarnir eiga að minna þau á sakleysi bernskunnar. En hafa öfug áhrif.

Næst skal rædd The Road, byggð á skáldsögu Cormac McCarthys. Hún sýnir hvernig skortur getur gert menn að skepnum sem éta hver aðra. Og hvernig ljós getur leynst í grimmdarmyrkri.

Síðust skal nefnd Shutter Island, mynd Martin Scorseses. Hún sýnir hvernig skelfileg reynsla getur breytt venjulegum manni í villidýr. Og þó, hvað er sýnd og hvað er reynd  í þessari mynd? Kannski sýnir hún annað, hið illa í boði ríkisofurveldis.

Fátt  er magnaðra enn að sitja í bíómyrkrinu og sjá hið illa á hvítu tjaldi. Þó ekki verra að sjá gæskuna birtast í öllu sínu veldi á tjaldinu hvíta.

Auk þess legg ég til að hinir illu hrunvaldar verði dregnir fyrir lög og dóm hið allrasnarasta.

→ 13 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Björgólfur Thór, sérfræðingur í marxisma

10.3 2010 | 22:59 | 6 ummæli

Eins og alþjóð erum við hér í Noregi aftarlega á merinni, gamaldags. Þess vegna var heimildamyndin Guð blessi Ísland ekki sýnd hér í sjónvarpi fyrr en í fyrra kvöld.

Bjargvargur ungi hélt þar mikla tölu um peninga sem si sona bara hurfu, millilentu ekki einu sinni á Tortóla eyjum á leið sinni inn í tómið. Að trúa öðru væri marxísk hagfræði og hún væri af hinu illa. Augljóst er að viðskiptahöldurinn er mjög vel að sér í fræðum marxismans  enda hefur hann dvalið langdvölum í Rússlandi þar sem marxismi þreifst vel í eina tíð.

Mér þætti  gaman að vita hvaða skoðun Bjargvargur ungi hefur á kenningu Marx um blætiseðli vörunnar. Telur hann  það vera rétt sem franski marxistinn Louis Althusser segir um þekkingarlegt rof (“rupture epistemologique“) sem átt hafi sér stað þegar Marx gafst upp á æskukenningum sínum um firringu? Hvað segir ICESAVE-hugsuðurinn um ríkiskenningu marxismans? Vantar ekki marxismann eiginlega ríkiskenningu? Er arðsránskenningin prófanleg?

Allt um það, framferði Bjargvargs unga og hinna auðherranna færði mér heim sannir um að það væri sannleikskjarni þeirri kenningu Marx að markaðsskipulag einkenndist af auðvaldi. Ég hélt að sú kenning væri röng.

Auk þess legg ég til að snepill kátu kvótaekkjunnar og auðvaldsbattarí Hringadrottins verði sniðgengin, kvóta- og útrásar-auðvalds-þýfi snarfryst og réttað í málum hrunvaldenda.

→ 6 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Hamskiptin (taka tvö)

7.3 2010 | 14:23 | 3 ummæli

Ég held uppteknum hætti og sný út úr heimsbókmenntunum. Nú tek ég fyrir fræga sögu Franz Kafka Hamskiptin. Hún segir frá Gregor Samsa sem vaknar einn morgun og uppgötvar að hann er orðinn risastór padda. Hér kemur ný útgáfa af sögunni:

Þegar Georg Samsonarson vaknaði einn morgun var honum fyrirmunað að mynda einfalda setningu á íslensku. Sama hvað hann reyndi, hann gat ekki annað en talað ensku. Fljótlega sætti hann sig við þetta, gladdist réttara sagt og hugsaði „cool, I have at last gotten ridden of this fucking wart called Icelandic“.

Fagnandi stormaði hann út og ætlaði að aka í humarjeppa sínum í beltabúðina að kaupa nýtt, kúl belti. En sem hann gengur út fær hann múrstein í hausinn, á samri stundu segir löngu gleymdur pólitíkus „Guð blessi Ísland“.

Er ekki að orðlengja að Georg getur ekkert talað lengur nema gullaldaríslensku. Hann lætur jeppann eiga sig og fer gangandi í fyrsta sinn í áratug, tautandi „Þél höggr stórt fyrir stáli, stafnkvígs á veg jafnan“.  

Kemur svo  í beltabúðina og segir við afgreiðslustúlkuna „hvort fást hér megingjarðir?“ Stúlkan rekur upp skaðræðisvein, hringir í lögguna og segir „það er brjálaður maður hér, hann talar alveg óskiljanlega!“

Auk þess legg ég til að Alvaldssnepillinn, Hringadrottinsbattaríið og enskusnobbhænsnafyrirtækin verði sniðgengin, útrásar- og kvótaþýfi fryst og réttað strax í hrunvaldsmálum.

→ 3 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Hr. Hagsmunnur og veruleikinn

6.3 2010 | 14:44 | 14 ummæli

Muniði hann herra Hagsmunn, manninn sem var handviss um að efnahagslegir og pólitískir hagsmunir væru á bak við allar gjörðir manna? Menn stjórnist bara  af upplýstri eigingirni. Móðir Theresa hefði  bara verið í góðgerðastarfsemi til að öðlast frægð, hún hafi viljað  frægð vegna eigingirni og hefði veirð nógu upplýst til að finna leið til að ná markmiðinu. Þetta segir hr. Hagsmunnur í ábúðamiklum tóni, bindið hristist meðan hann talar. Ábyrgðin býr í bindinu, viskan í jakkafötunum.

En hr. Hagmunnur hefur ekki alltaf verið með bindi og í flottum jakkafötum með merki FLokksins í barmi. Eitt sinn var hann ungur kommi með ógnarsítt hár, í íslenskri úlpu utan yfir hippamussunna. Þá hallaði hann undir flatt og hnyklaði brýrnar og sagði í ábúðamiklum tóni „það eru sko stéttarhagsmunir á bak við allar gjörðir manna“. Hárið hristist meðan hann talaði. Sannleikurinn bjó í úlpunni, vitið í hippamussunni.

En hinn napri veruleiki er ekki alltaf í samræmi við hinar goðumlíku kenningar herra Hagsmunns. Mikil hungursneyð varð í Bengal árið 1944 og lágu glorsoltnir Bengalir á gangstéttum fyrir framan búðaglugga sem fullar voru af matarvörum. En hinn sveltandi múgur lyfti ekki litlafingri til að krækja í góssið heldur dó drottni sínum á gangstéttinni.

Frá þessu segir indverski Nóbelshagfræðingurinn Amyarta Sen en láist  að skýra atferli landa sinna frá Bengal. Ég held að  skýringuna sé að finna í trúarbrögðum hindúa, hugmyndum þeirra um að „eigi megi sköpum renna“, örlögunum verði ekki breytt. Hrökkvi menn upp af hungri þá er það vegna þess að þeir hafi slæmt karma, þeir hafi gert eitthvað af sér í fyrra lífi.

Nasistar notuðu feiknin öll af  tækjum og auðlindum til að murka lífið úr Gyðingum og það eftir að halla tók á þá í stríðinu. Járnbrautalestir, hersveitir, verðir og allur andskotinn annar var notaður til þess arna í stað þess að beita þeim á vígstöðvunum. Þeir hefðu getað framlengt stríðið, jafnvel bjargað sínu skinni, hefðu þeir ekki verið svona uppteknir af því að útrýma Gyðingum. En útrýmingin var hugsjón þeirra, kannski sú eina, því létu þeir allt í sölurnar til að ná þessu  “göfuga“ markmiði sínu.

Reyndar held ég að Þjóðverjar hefðu getað unnið stríðið ef þeir hefðu látið Gyðingana í friði.  Flestir þeirra vísindamanna sem hönnuðu atómsprengjuna amerísku voru miðevrópskir Gyðingar, ónasískt en heimsvaldasinnað Þýskaland hefði getað eignast fyrstu bombuna og gersigrað andstæðinga sína. Þannig hefði Hitler breytt ef hann hefði látið upplýsta eigingirni stjórna gerðum sínum, ekki bjánalega fordóma og frumstætt hatur.

Nýlega misskildi hr. Hagsmunnur grein í The Economist all gróflega og hélt að þar stæði að ný rannsókn sýndi að  mönnum væri græðgi í blóð borinn, menn væru aldrei ánægð’ir með það sem þeir hefðu en vildu alltaf meira. En það stóð ekki aukatekið orð um þetta í tímaritsgreininninnui, Hagsmunni langaði að trúa þessu því hann var á launum við að verja útrásarherra nokkurn. Undirskilið í staðhæfingu Hagsmunns: „Hann gat ekkert að þessu gert, blessaður strákurinn, það er sko vísindalega sannað að græðgi hans sé  meðfædd“.

En aumingja hr. Hagsmunnur skilur ekki að mannkynið hefði dáið út fyrir löngu ef það þjáðist af taumlausri grægði. Þá hefðu menn fyrir  löngu eyðilagt þau vistkerfi sem þeir bjuggu í og horfið eins og risaeðlurnar. Þess utan sýna rannsóknir á svokölluðu frumstæðu fólki að það skilur yfirleitt ekki að hægt sé að bæta kjör sín með róttækum hætti til langframa.

Félagsfræðingurinn frægi, Max Weber, sagði frá tilraun sem landeigendur í Prússlandi gerðu á nítjándu öld. Landbúnaðarverkamenn fengu tækifæri til að vinna í uppmælinmgu.  En í stað þess að hamast áfram til að bæta kjör sín þá luku þeir sínum vanabundnu verkum fyrr og fóru svo heim. Eins og Bengalirnir voru þeir þrælar vanans, svona höfðu menn alltaf unnið og enginn sá ástæðu til að breyta því.

Vissulega breyttu þeir í samræmi við upplýsta eigingirni, kusu frítíma fremur en meira fé. En þeir voru ekki í því að auka lífsgæðin stöðugt með kerfisbundnum hætti eins og sá sem þjáist af hamslausri græðgi. Breytni þeirra réðist miklu fremur af hefðum, hið sama gildir um velflesta menn í formóderni samfélögum.

Herra Hagsmunnur má vita að nýjar rannsóknir sýna að bindishnútar  draga  úr flæði blóðs til heilans. Þar eð velflestir frjálshyggjumenn og businesstossar ganga með bindi ætti þessi rannsókn að skýra andlegt ásigkomulag þeirra. En ekki hugsun herra Hagsmunns, hann klæddist jú mussu alllengi.

Auk þess legg ég til að Alvaldssnepillinn og Hringadrottinsbattaríið verði sniðgengin, þjónn þeirra hr. Hagsmunnur verði rassskelldur, útrásar- og kvótaþýfi fryst og réttað í málum hrunvalda strax.

→ 14 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Samræður við stjúphund minn (I)

2.3 2010 | 21:38 | 10 ummæli

Ég er svo heppinn að eiga stjúphund, hund sem bjó hjá mér um nokkurt skeið og sem ég passa við og við. Þetta er sérdeilis vingjarnlegur  hundur sem gegnir nafninu „Gaia“, tík  af húsi og kynþætti Parsons Jack Russell Terrier.  Einn varaþingmanna Samfylkingarinnar getur vottað að hvuttinn sé vingjarnlegur en hann  gerði heiðarlega tilraun til að sleikja varaþingmanninn  í hel, gestkominn hjá mér. Ekki er nóg með að hvutti sé vingjarnlegur, hann er líka mjög  greindur. Svo klár er hann að við ræðum saman um heima og geima þegar hann er í pössun. Eftirfarandi samtal átti sér stað um daginn.

Stjúphundur: Veistu hvað?

Ég: Nei, ég veit ekki hvað.

Stjúphundur: Ég held ég sé all ógnvekjandi voffi.

Ég; Bíddu nú við, ef þú með „ógnvekjandi voffi“ meinar „vinalegur og krúttlegur hvutti“ þá má kannski taka þessa staðhæfingu alvarlega.

Stjúphundur: Æ þú tekur mig aldrei alvarlega, á hverjum morgni þegar blaðberinn kemur þá gelti ég eins og vitlaus og það bregst ekki að hann lætur sig hverfa. Hann hlýtur að vera skíthræddur við mig.

Ég: Ég er ansi hræddur um að þú hafir misskilið eitthvað, hann snýr við því hann hefur lokið erindi sínu.

Stjúphundur: Ertu alveg viss, ertu viss um að hann myndi ekki brjótast inn ef ég gelti ekki á hann?

Ég: Ég er alveg viss.

Stjúphundur: Kannski er þetta sem þú segir satt frá sjónarhorni ykkar alfavoffanna, ekki okkar þessara venjulegu voffa.

Ég: Heyrðu góða, ég er maður, ekki alfahundur.

Stjúphundur: Frá mínu sjónarmiði ertu alfavoffi því ég bregst við þér eins og þú værir leiðtogi hjarðarinnar. Ég skynja heiminn í krafti viðbragða, þú í krafti hugsunar. Af hverju skyldi mitt sjónarhorn (réttara sagt lyktarhorn)  vera verra en þitt?

Ég: Voffi, ég held þú sért orðinn afstæðishyggjuhundur, þú virðist telja að menn og hundar hafi hvor sínar hugkvíar sem virki eins og lituðu gelraugu sem við erum fædd með án þess að vita það.

Stjúphundur: Afstæðishvað? Hughvað?

Ég: Eitt getum við verið sammála um, það er afar gaman að fara í göngutúr. Og við skulum skella okkur út nú!

Stjúphundur: Voff, voff, ég botnfíla það, fljótur, þeysum út!

Hvað við og gerðum.

→ 10 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .