Hjálmar Gíslason frá Data Market var gestur Egils í Silfrinu og ræddi um framsetningu staðreynda í stjórnsýslu. Hann sýndi flott dæmi um hvernig gera má efni fjárlaga auðskiljanlegt. Hvernig klæða má sannleikann úr búningi skriffinnskunnar og sýna hann í nekt sinni.
Obama lofaði nakinni stjórnsýslu. Hann kallaði það að vísu gagnsæi og ábyrgð. Nú þegar hafa amk. tvö fylki: Texas http://window.state.tx.us/comptrol/checkup/ og Missouri http://mapyourtaxes.mo.gov opnað bækur sínar svo að skoða má brjóstahaldarakostnað ef áhugi er fyrir því. Að vísu sjá menn enn bara tölur en geta spurt frekar og spurningar manna verða beinskeittari þegar brjóta má þessar tölur niður svipað og Hjálmar sýndi okkur á sunnudaginn.
Nú er að standa sig í Reykjavík og stjórnarráði. Aldrei var meiri þörf á nakinni stjórnsýslu en nú. Borgarstjórn og ríkisstjórn eiga trúverðugleika sinn undir nöktum sannleikanum. Gagnsæi er óáþreifanlegt hugtak. Nekt er áþreifanleg og gerir menn jafna og frjálsa. Ég vil nakta stjórnsýslu.
Stefán Benediktsson
Ummæli (2)
Björgvin Valur // 27.10 2009 kl. 10:16
Hárrétt.
joi // 27.10 2009 kl. 11:35
Ríkisstjórnin á ekkert undir. Hún er búin að tapa sínu.
Bankastjórastöður afhentar flokksdindlum.
Einar Karl Haraldsson, spunameistari stjórnarflokkanna búið að ráða TVISVAR sinnum ólöglega á einu ári.
Forseti ASÍ er strengjabrúð ríkisstjórnar. Hann er bara spaugilegur í ræðustól. Það er tortóla fnykur af honum.
Frumvarpið sem átti að skera kúlulánskónga úr snörunni og var lagt fram fyrir helgi sýnir hollustu samfylkingar við þann hóp manna. Fólk veit alveg hvað klukkan slær þegar þessir tveir hópar leiða saman hesta sína. Lítið hefur breyst síðan samfylking hóf opinbera vörn sína við þennan hóp með Borgarnesræðunni makalausu.
Samfylking hefur fengið alla sína drauma uppfyllta. Davíð úr seðlabanka, ESB aðild, þétt samstarf við AGS, Vinstri stjórn….. það hefur allt verið látið eftir þeim af samstarfsflokknum. Samt er hér mesti vaxtamunur sem þekkist á byggðu bóli. Verðbólga með mesta móti. Atvinnuleysi mjög hátt. Skuldir gríðarlegar. Það hefur ekkert breyst á þeim rúmum tveimur árum sem samfylking hefur haldið um stjórnartaumana, nema hvað þjóðin er mun verr sett en áður.
Þú getur talað í frösum og kreðsum. Það er háttur krata. Raunveruleikinn er ekki mældur í frösum.
Rita ummæli