Stefán Benediktsson

blogg á eyjan.is

Greiðum skuldir okkar!

10.6 2009 | 00:03 | 23 ummæli

Þegar Alþingi setti lög um tryggingu „ALLRA“ innlánsreikninga í íslenskum bönkum  spurðu sparifjáreigendur í Bretlandi sig: „er ICESAFE ekki örugglega íslenskur banki?“. Þessvegna erum við ábyrg.

Erlendir blaðamenn (ekki íslenskir, nema kannski Egill) , sérfræðingar, íslenskir og erlendir, erlendir stjórnarherrar, þ.m.t. Georg Brown höfðu sagt allar götur frá 2006 : „þetta gengur ekki, þið verðið að gera eitthvað“.  Alþingi gerði ekki neitt, ríkisstjórnin gerði ekki neitt, Seðlabankinn gerði ekki neitt, Fjármálaeftirlitið gerði ekki neitt og við gerðum ekki neitt, fyrr en allt var hrunið. Þessvegna erum við ábyrg

Þeir einu sem gerðu  allt sem þá langaði til,  óáreittir,  voru eigendur bankanna og stórfyrirtækjanna. Þeir tóku lán á lán ofan og lánuðu lán á lán ofan og eigur okkar hækkuðu í verði og við tókum lán út á það. Sum okkar voru svo vitlaus að halda að þetta ætti alltaf að vera svona, sum okkar efuðust, en eins og venjulega óraði engan fyrir að atburðarásin yrði sú sem hún varð.  Við vorum andvaralaus. Þessvegna berum við ábyrgð.

Við gáfum ekki út afdráttarlausar yfirlýsingar um að við ætluðum að standa við skuldbindingar okkar, heldur lá það í loftinu að innistæður Breta í Landsbankanum myndu hugsanlega enda á Tortolla eða í höndum íslenska ríkisins. Bretar komu í veg fyrir það, að eigin mati, með hryðjuverkalögunum. Með yfirtöku íslenska ríkisins á Landsbankanum urðu innlán í ICESAFE  að skuldum íslenska ríkisins! Okkar skuldir, okkar ábyrgð.

Við berum alltaf ábyrgð á stjórnvöldum okkar og kjósum þau  til þess að útdeila  gjöldum og gæðum. Við berum ábyrgð á öllum stjórnvöldum,  líka þeim sem við ekki kusum. Ábyrgðin gefur okkur rétt til að mótmæla. Stjórnvöld, sem við berum ábyrgð á, settu fjárglæframönnunum ekki stólinn fyrir dyrnar fyrr en um seinan.  Þessvegna bera þau ábyrgð á ICESAFE og þessvegna berum við ábyrgð á ICESAFE vitleysunni. Þeirra vitleysa, okkar ábyrgð.

Það sem er alls ekki nýtt í þessari sögu er að syndir feðranna koma alltaf niður á börnunum.  Flest okkar á skattgreiðslualdri höfum verið að greiða „syndir feðranna“ alla okkar hundstíð.  ICESAFE afborganirnar þegar þær koma eftir 7-15 ár hvort sem þær verða 10 eða 100 milljarðar á ári munu bíta eins og 1 til 10 % verðbólga sem hefur verið mest notaða skattlagning síðastliðin 60 ár til að greiða syndir okkar og feðranna. Við lifum það af.  Að vísu ekki eins vel og allra síðustu ár en við lifum örugglega betur en ef við borgum ekki.

Samningur um ICESAFE var hluti af stjórnarsáttmálanum (5.liður) enginn stjórnarþinmaður gerði fyrirvara um það. Að styðja ekki ICESAFE samninginn á þingi er lýðskrum.  Engin ráð eru  í augsýn, önnur en að gera ekki neitt. Ekki er hægt að áfellast stjórnarandstöðuþingmenn fyrir lýðskrum, en að stjórnarþingmenn styðji ekki samninginn er, til viðbótar við lýðskrum, vantraustsyfirlýsing á 100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar, á fjármálaráðherrann og þar með ríkisstjórnina.  Ef samningurinn verður samþykktur bera allir stjórnarþingmenn ábyrgð á honum, alveg eins og þeir bera ábyrgð á ríkisstjórninni.  Eina leiðin til að fría sig pólitískri ábyrgð af samningnum er að segja sig í stjórnarandstöðu.  Að fela sig bak við 4 sæta meirihluta ríkisstjórnarinnar er aftur móti lúxus sem sumir ætla greinilega að nota sér í þeirri bjartsýnu von að kjósendur átti sig ekki á tvöfeldni þeirrar afstöðu.

Flokkar: Dægurmál · Stjórnmál og samfélag
Efnisorð:



Ummæli (23)

  •   Andy Kaufman // 10.6 2009 kl. 00:26

    ICESAFE heitir ICESAVE og þessi Georg Brown,
    er hann nokkuð skyldur Gordon Brown? ;)

  •   Hrönn // 10.6 2009 kl. 00:41

    Ef Gordon Brown vissi að ekki var allt í lagi með Icesave, átti HANN þá ekki að gera eitthvað ? Átti breska fjármálaeftirlitið ekki að gera eitthvað, átti enginn að gera neitt? Þetta ÞARF að fara fyrir dómstóla. Við erum smáþjóð sem eigum í höggi við þjóðir sem hafa árhundruða reynslu í að mergsjúga nýlendur sínar í Afríku og Ameríku og hafa einskis svifist í þeim efnum. Að vísu búa þessar sömu þjóðir að líklega bestu dómstólum í heimi og það eru þeir sem munu hjálpa okkur. Komist alþjóðlegur dómstóll að þeirri niðurstöðu að allt Icesave klúðrið sé á ábyrgð almennings á Íslandi , þá verðum við að borga en EKKI FYRR

  •   Héðinn Björnsson // 10.6 2009 kl. 00:53

    Engin lög hafa verið sett um tryggingu allra innistæðna. Þetta var bara tilkynning sem Geir Haarde kom með án þess að fjárveitingarvaldið hafi gefið fyrir því neitt samþykki.

    Bretar tóku yfir ICESAVE-reikningana með því að beita fyrir sig hryðjuverkalögum og eftir þeirri beitingu bera þeir á þeim alla ábyrgð.

  •   Elías Pétursson // 10.6 2009 kl. 00:56

    Með hvaða peningum á að borga þetta???????????

  •   Kjartan Ólason // 10.6 2009 kl. 01:12

    Þessi banki starfaði undir breskum lögum, og lánin voru veitt undir þessum bresku lögum…

    Ekki ætla ég að borga eitthvað sem bretar klúðruðu…

  •   Doddi D // 10.6 2009 kl. 01:24

    hvort er verið að fjalla um gagnrýni hreinnar skynsemi, tvöfeldni VG eða einfaldlega hina stóru spurningu: Viltu lofa því að lyfta 5 tonna steini?

  •   Eysteinn Kristjánsson // 10.6 2009 kl. 01:32

    Það gleður mig að sjá, í öllu moldrokinu, að enn er smá skynsemi til hjá einstaka Íslending. Við höfum einfaldlega ekki annara kosta völ en að gangast undir þennan samning.

    Bretar eru ekki nýlendusinnað gráðugt heimsveldi lengur, þeir vilja bara að staðið sé við gerða samninga. Að segja að ÞEIR hafi klúðrað þessu er della; þeir treystu íslenskum stjórnvöldum til að hafa eftirlit með því sem þau voru að taka ábyrgð á. Enda var Ísland ár eftir ár talið „minnst spilltasta lands heims“ (hversu fáránlegt sem það kann að virðast).

    ESB er heldur ekki að reyna að sölsa undir sig auðlindir okkar, þeir vilja einfaldlega að allar þjóðir innan (eða næstum innan) þess fari að lögum.

    Þessi samningur er vissulega slæmur vægast sagt, en We don’t have a choice. Svo er ég reyndar viss um að hann verður ekki jafn skelfilegur til lengri tíma litið eins og nú lítur út fyrir. Hann á eftir að verða mildaður með tímanum, og/eða endurfjármagnaður, eftir því sem efnahagur okkar vænkast aftur.

    Það koma alltaf tímar og koma ráð, en til þess verðum við því miður að skrifa undir þetta núna.

  •   Doddi D // 10.6 2009 kl. 01:39

    Það er ekkert eins óheiðarlegt og að lofa að gera eitthvað sem maður veit að maður getur ekki staðið við.

    Er það kannski orðið þjóðareinkenni?

  •   Hrönn // 10.6 2009 kl. 01:56

    Er ekki betra að leita til dómstóla núna fremur en reyna að rifta gerðum samningi síðar?

  •   Eysteinn Kristjánsson // 10.6 2009 kl. 02:00

    Doddi D: Ef ég væri álfur, og tröll stæði fyrir ofan mig og skipaði mér að fjarlægja 5 tonna bjarg STRAX úr hans garði eða hafa verra af, myndi ég nú ekki segja við hann „No fuckin way vinur, þú leyfðir mínum álfum að setja grjótið þarna! Fökk off!“

    Nei, maður myndi nú fremur reyna að semja við tröllið. „Öhh… ég á nú bara haka og skóflu núna, en ég skal byrja að fjarlægja grjótið“

    Með því mildar maður tröllið í smá stund, fær tíma til að safna saman sprengiefnum og vinnuvélum, og getur jafnvel náð í bölvaða glæpálfana sem komu manni í þessa leiðinda-aðstöðu gagnvart tröllinu.

  •   Björg F. Elíasdóttir // 10.6 2009 kl. 02:52

    Vil birta útdrátt úr grein Jóhannesar Björns á http://www.vald.org en maður sá eins og þú veist er búin að vera að vara þjóð aftur og aftur og aftur og aftur við því sem hefur verið að gerast og mun geta gerst ef við samþykkjum þessi lán.

    „Aðferðin sem sjóðurinn notaði var dæmigerð og margreynd út um allan heim. Fyrst lofaði hann láni—lét menn finni lyktina af peningunum—en neitaði svo að afhenda lánið þar til búið var að framkvæma hluti sem fræðilega komu sjóðnum ekkert við. Evrópusambandið (að virðist) kom síðan í veg fyrir að peningar bærust frá öðrum aðilum. “Sveltum skepnuna”, var viðkvæðið hjá Ronald Reagan þegar hann talaði um að skera niður félagslega þjónustu, en það var nákvæmlega aðferðin sem notuð var gegn Íslandi.

    Hlutverk AGS er þó miklu stærra í sniðum en að starfa eins og handrukkari. Sjóðurinn stundar óbeint trúboð með því að hjálpa öfgamönnum að útbreiða hugmyndafræði Milton Friedman—nýfrjálshyggjustefnu Chicago skólans—sem boðar einkavæðingu á svo til öllu og taumlausan kapítalisma. Ekkert kætir sjóðinn meira en brunaútsölur á ríkisfyrirtækjum—helst fyrirtækjum sem luma á orku eða hráefnum.“

    Greinina má finna í heild sinni á http://www.vald.org

    Er ekki kominn tími til þess að við förum að hlusta á þennan mann?

  •   Eysteinn Kristjánsson // 10.6 2009 kl. 03:49

    Er ekki kominn tími til þess að við förum að hlusta á þennan mann?

    Nei. Hann er rugludallur.

    Þó etv kunni ýmis sannleikskorn að leynast í þeim kenningum sem hann heldur fram, þá er heimurinn & mannlegt eðli flóknara en svo að slíkar kenningar gangi upp.

  •   T // 10.6 2009 kl. 05:51

    Sú kynslóð sem hefur komið okkur í þessi vandræði getur séð um málið.

    Ekki þurrka þessu yfir á börnin mín!

  •   AB // 10.6 2009 kl. 07:42

    Hvort okkur finnst við eiga að borga eða ekki borga skiptir ekki máli – vegna þess að við munum ekki geta borgað.
    Ef stjórnvöld fara ekki fljótlega að viðurkenna þá staðreynd þá verða Íslendingar fátækasta og vonsviknasta þjóð Evrópu.

  •   eiríkur // 10.6 2009 kl. 07:43

    ÞAð er helber vitleysa hjá Hrönn að ICESAVE hafi verið á könnu breska fjámálaeftillitsins. Þetta var útibú Landsbankans í London sem sá um þessa reikninga og því voru það íslensk stjórnvöld og íslenskt fjármálaeftirlit sem átti að hafa eftirlit með þeim. Af hverju halda menn að Landsbankinn hafi ekki stofnað dótturfélag í Bretlandi til að sjáum ICESAVE (eða nota dótturfélög sem hann átti þar til að sjá um reikningana)? Eina skynsamlega svarið sem ég kem auga á er að Landsbankamenn vissu að þá mundu ICESAVE heyra undir bresk stjórnvöld og fjármálaeftirlit, sem hefðu stoppað þetta strax og þá hefði spilaborgin hrunið. Og ég held að hér sé ástæðan fyrir beitingu hryðjuverkalaganna, það var leið Brata til að koma ICESAVE undir stjórn breta svo þeir gætu stoppað þessa svikamyllu, þar sem íslensk stjórnvöld höfðu ekki sýnt minnstu áhuga á að gera það. Þetta er hinn ömurlegi sannleikur sem mér þykir ekkert gaman að horfast í augu við, sérstaklega þar sem ég kaus annan þeirra flokka sem voru í þeirri stjórn sem brást svo hörmulega.

  •   Elías Pétursson // 10.6 2009 kl. 08:24

    Gott fólk,

    Þeir sem vilja borga þetta verða að segja hvernig á að gera það…..eftirfarandi er miðað við þær litlu forsendur sem eru til þá virðumst við þurfa að greiða 457.700.000.000,-, heildargreiðslan er 1.001 milljarður, frá því dregst það sem JS og SJS segja okkur að verði til og greitt á seinnihluta „gjaldfrjálsa“ tímabilsins (í þessu dæmi 83% af höfuðstólnum 655 milljörðum)

    Eru einhverjar líkur á því að við getum greitt 457 milljarða eða 57 milljarða á ári í átta ár?????

    þetta er alveg fyrir utan augljósa ósanngirni sem falin er í því að almenningur á íslandi greiði fyrir þetta klúður stjórnmála-, embættis- og bankamanna.

    þetta er líka fyrir utan það vandamál að líkur eru á endalausum málaferlum vegna mismununar kröfuhafa og öðru því sem þessi aðgerð hefur í för með sér.

  •   Ásta // 10.6 2009 kl. 08:43

    Þeir sem vilja ekki borga verða að koma með aðra lausn á vandanum….hvar eigum við að fá lán í framtíðinni ef við borgum ekki?

  •   Sigurjón // 10.6 2009 kl. 08:48

    Þetta er skelfileg saga: Dagana fyrir hrun eru Bretar alveg að fara á taugum vegna ICESAVE og hanga á símalínunum. Það liggur fyrir í breska embættiskerfinu hvað er að gerast með Landsbanka og hefur legið fyrir mánuðum saman.

    Það er óðagot á æðstu stöðum í London og símtöl milli ráðherra. Brown talar við Haarde. Darling talar við Matthísen.

    Bretanir grátbiðja og hrópa og hóta og berja í bjöllur. “Strákar, vakniði!” æpa þeir Brown og Darling í símtólin.

    “Þetta er allt að hrynja yfir hausna á ykkur, asnar. Please!” en fá bara geispann í dýrlækninum og hroturnar í Haarde til baka.

    Þegar Sigurjón digri var að búa Icesave-sprengjuna til haustið 2006 gat Haarde hafa spurt:

    “Hurðu, hvaða tæru snild ert’að búa til þarna, strákurinn?”

    Og Sigurjón SUS-ari svarar:

    “Þetta er sprengja pabbi, tímasprengja, og hún spryngur í andlitið á þér eftir tvö ár, ha, ha, ha….”

    “Góður!” segir Haarde. “Veit hann Davíð af þessu?”

    Ef til vissi Davðið af þessu en þjóðin vissi ekki og kaus þessa menn til valda. Þess vegna ber þjóðin ábyrgð á ódæðinu – en það er blóðugt.

  •   Elías Pétursson // 10.6 2009 kl. 10:57

    Þeir sem vilja borga verða að svara því hvaðan peningarnir koma, hvernig ætlum við þessi örþjóð með okkar hallarekna ríkissjóð að standa skil á þeim fjármunum sem um ræðir.

    Eru einhverjar líkur á því að við getum greitt 457 milljarða eða 57 milljarða á ári í átta ár?????

    Nú fara uþb 25% af tekjum ríkissjóðs í vexti, erlendar skuldir íslendinga stefna yfir 3.000 milljarða um áramót, vaxtakostnaðurinn er rífir 200 milljarðar og við með og verðum með halla á viðskiptum við útlönd.

    þessu verður að svara áður en lagt er af stað, alveg sam hvað einhverjum langar að gera eða langar ekki að gera……..

  •   Ólinn // 10.6 2009 kl. 14:01

    Og svo tala allir um að við þurfum þetta lán til að geta fengið fleiri lán… Af hverju erum við ekki líka að tala um hvernig í ****** við eigum að borga þau líka???

    Bless Ísland…. Halló Vestur-Evra…

  •   GG // 12.6 2009 kl. 02:57

    Voru þessir IseSave peningar ekki mest notaðir til að lána breskum fyrirtækjum ? Og bretar fengu skattinn af þessu í sinn ríkiskassa? Er ekki hægt að fá að vita hvaða skuldasafn þetta er sem Lí á þarna úti?Það eru fullt af hlutum sem við vitum ekki , vitum bara að við eigum að borga hvað sem tautar og raular….

  •   Borgarinn // 20.6 2009 kl. 03:18

    Íslenskur banki rak og bar ábyrgð á innlánsreikningum erlendis sem nefndir voru ICESAVE. Engin munur er á þessum reikningum og hefðbundinni sparisjóðsbók fermingarbarns í breiðholtsútibúi bankans.

    Með þessari markaðssetningu var bankinn að komast yfir fé til að greiða skuldir sínar við þriðja aðila og afla fjár til frekari lánveitinga til eigenda og viðskiptavina hér heima og erlendis. Bankinn var fjárþurfi og hann skorti lausafé.

    Hann þurfti að fara þessa leið vegna þess að hefðbundnir lánamöguleikar bankans voru lokaðir eða það dýrir að ekki var hægt að nota þá án þess að valda bankanum fjörtjóni. Innlánsvextirnir sem þeir þurftu að borga voru lægri en vextir af mögulegum lántökum.

    Ef þessarar fjármögnunar hefði ekki notið við hefði bankinn mun fyrr lent í erfiðleikum og jafnvel fallið fyrir lok árs 2007 eða snemma árs 2008.

    Þessu var hampað sem snilld, bjarghring ársins, en í raun var einfaldlega verið að lengja í hengingaról bankans.

    Bankinn var að reyna að snúa tapi í gróða eða að minnsta kosti halda sér á floti þar til aðstæður bötnuðu. Aðstæður versnuðu.

    Þetta spil var allt spilað fyrir opnu borði FME, pólitískra stjórnvalda, Innistæðutryggingasjóðs, Seðlabanka Íslands, greiningadeilda innlendra og erlendra banka, fræðasamfélags í Háskólum landsins, fjárfesta og annara sem hafa almennt fyrir því að þykjast hafa vit á þessu öllu saman.

    Þetta kerfi starfar allt á ábyrgð íslensku þjóðarinnar eins og Stefán bendir hér réttilega á.

    Hluti (takið eftir – aðeins hluti) af reikningnum berst nú landanum í formi Icesave samnings. Hann ber allur þess merki að gagnaðilinn beri ekki mikið traust til landans og vilji geirnegla hlutina vandlega.

    Það er erfitt að misskilja þetta enda ekki vaninn að taka þjófa einhverjum vetlingatökum.

    Hvernig væri staðan í umræðunni hér heima ef þetta mál snérist um innistæður Íslendinga í enskum eða hollenskum bönkum. Þær væru bara farnar – öllu st0lið – allar eignir viðkomandi banka þjóðnýttar og jafnframt væri aðeins enskum og hollenskum innistæðueigendum bjargað en við litlu Íslendingarnir skildir eftir ?

    Ég sé varðskipið Þór fyrir mér sigla upp Thames á með byssurnar (byssuna ?) glóandi. Stefnan sett á Englandsbanka og í kjölfarið beint upp ánna og til Westminster þar sem síðasta kúlan yrði send beint í miðjuna á Big Ben.

    Við látum ekki stela frá okkur.

  •   Lyman Stites // 9.11 2010 kl. 03:36

    I really like your info. Nice piece of info, I absolutely enjoy reading your post.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og tveimur? Svar: