Bláberjasulta 2009


Facebook

3 dl bláber
1 – 2 dl döðlumauk eða 1/2 dl agave
1/2 tsk vanilluduft/dropar
Bláberin eru hreinsuð og skoluðu og sett í matvinnsluvél ásamt döðlumaukinu/agave og vanilluduftinu/dropunum og blandað saman (þarna getur sultan verið tilbúin og hægt að frysta hana)
Allt sett í pott og soðið í 5-10 mín, sett á glös og kælt. einnig má setja sultuna í plastílát og þá er hægt að fyrsta hana, þannig geymist hún best.

Bláber (Vaccinium corymbosum) eru ávextir bláberjalyngsins sem er af bjöllulyngs ætt. Bláberin hafa verið mikið rannsökuð undanfarin ár og komið í ljós að þau innihalda sérstaklega mikið magn andoxunarefna og þvi algjör galdur fyrir kroppinn okkar. Margir heilsusérfræðingarnir kalla þau því “superfoods” eða ofurfæða. Þau eru mjög vinsæl hjá Íslendingum, sem fara til berja sem aldrei fyrr núna í ár enda berjaspretta með eindæmum. Það er um að gera að borða þau sem mest fersk á haustin, en svo kemur að því að þau haldast ekki lengur fersk. Og þá þarf að finna einhverja góða geymslu aðferð. Einfaldast er að frysta þau og færist það sífellt í aukana og er tilvalið að endurnýta gömul box undan ís eða álíka fyrir það. Algengasta er hins vegar að sulta þau og enn eru sumir að brugga bláberjasaft. Þegar kemur að sultugerðarlistinni þá á ég ótrúlega flottan “gúru”. Það er mamma mín, Hildur Karlsdóttir, sem ég held að sé sú allra flinkasta sem til er í að búa til hollar sultur. Hún sætir þær með þurrkuðum ávöxtum og agavesýrópi í staðin fyrir hvítum sykri og sýður með vanillustöng eða kanilstöng, engiferrót, sítrónu eða appelsínuhýði og annað sætt krydd, allt eftir hvað passar hverju sinni til að gera sætt bragð og þar með að minnka sykurinn. Hún kenndi mér líka að frysta sultuna í passlega stórum skömmtum. Þannig geymist hún best þegar við sleppum hvíta sykrinum. Ég held að 50/50 ber og sykur heyri sögunni til. Einfaldasta leiðin við að minnka sykur í sultu uppskriftum er hreinlega að nota 90g í stað 100g. Svo má gera ýmislegt róttækara eins og að prófa 25% minni sykur, eða hafa til helminga sykur og þurrkaða ávexti eða sykur og agavesýróp. Ég nota stundum döðlur og agavesýróp til helminga og er það soldið vinsæl sætuefna blanda. Það er til fullt af sætuefnum sem má gera tilraunir með: döðlur, aprikósur, fíkjur, sveskjur, rúsínur, agavesýróp, hlynsýróp, hrásykur, hrátt hunang o.fl. Endilega prófið ykkur áfram.

Ummæli (5)

  1. Ibba Sig. skrifaði:

    Flott síða hjá þér Solla!

    Er með spurningu….heldurðu að það sé hægt að gera svona sultu úr bláberjum sem þegar er búið að frysta?
    Ég tíndi fullt af berjum snemma í haust og frysti þau á bökunarplötu áður en þau fóru í box. Þau eru því heil og laus og frábær í booztið á morgnana. En ég væri líka til í að sulta smá.

    8.9 2009 kl 16:43 #
  2. Sólveig Eiríksdóttir skrifaði:

    Ekkert mál að gera sultuna úr laus-frystum bláberjum Ibba:)* Ég bjó til þessa sultu í vor úr berjum sem ég hrærði með smá agave og frysti og sultan kom sérlega vel út. Gangi þer sem allra best:)*

    8.9 2009 kl 22:41 #
  3. Jón berjakarl skrifaði:

    Auðvitað má fara með bláber og eins aðalbláber margvíslega. Það sem kemur mér á óvart er að sjóða berin í 5-10 mín. Vandist í meir en 60 ár hjá mömmu og konunni að láta suðuna kom vel upp og slökkva svo. (Ekki ofsjóða og minnaví tamín innihaldið) Ekki meiri sykur en um 300gr. pr. kg. og niður í sáralítið eftir hvað er gert.
    Lausfrysting hreint afbragð á aðalbláberjum.
    Saftin frá þessum berjum er afar góð einnig og
    þá afgangur sem sulta meða að 300 gr.sykur.

    10.9 2009 kl 13:54 #
  4. Magga skrifaði:

    Þetta er alveg frábær síða :)

    12.9 2009 kl 19:59 #
  5. Kristín skrifaði:

    Frábær síða hjá þér Solla.
    Er með fullt af rifsberjum og langar að gera sykurlausa sultu/hlaup. Hefur þú prófað það? Ætli það sé gott að sæta hana með agave-eða hlynssýrópi og jafnvel þurrkuðum ávöxtum? Skiptir máli hvort að berin séu eða hafi verið fryst?

    17.9 2009 kl 22:20 #

Rita ummæli

Netfangið birtist ekki. Reitir merktir með * er nauðsynlegt að fylla út.

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og fimm? Svar: