Grænn djús fyrir 2
1 agúrka
2 sellerístilkar
1 límóna
smá biti fersk engiferrót
1-2 dl vatn
Skerið grænmetið í passlega bita og setjið í blandara ásamt vatninu, blandið þar til allt er vel maukað. Sigtið með því að setjið grisju/spírupoka (fást í Ljósinu Langholtsvegi 43) í könnu og hella blöndunni í, kreistið allan vökvann vel úr til að nýta hráefnið sem best, setjið hratið á safnhauginn og hellið djúsnum í glas:)*












Ummæli (9)
Þetta lítur vel út – er flott framsett hjá þér – og verður klárlega prófað!
Jón Garðar
28.8 2009 kl 10:40 #takk
* og verði þér að góðu!
28.8 2009 kl 10:45 #flottar myndir! núna er ég loksins búin að fá búslóðina mína hingað til danmerkur og bý nú til líter af djús á hverjum morgni, heldur mér alveg gangandi í skólanum á daginn
28.8 2009 kl 12:58 #Flott.. ég prófa…
28.8 2009 kl 14:56 #Hvar færðu annars góðan blender… þarf að endurnýja minn og er að leita að góðum og sterkum.
kv. Agla Huld
Hrönnsa – líst vel á þig – knús til Danaveldis:)*
28.8 2009 kl 18:54 #Agla – ég er annars vegar með Vitamix (frá Kælitækni) og hins vegar á ég Blend Tech (frá IK-kerfi) – báðir alveg sérlega góðir, kraftimiklir og telja styrkinn í hestöflum……
28.8 2009 kl 18:57 #síðan hef ég heyrt fólk láta vel af Solis blöndurunum (bræðurnir Ormson) og Kitchen aid (hér og þar):)*
ég keypti mér blandara frá Solis hjá bræðrunum ormson og hann er algjört æði
mæli með honum (ég átti ekki alveg aura fyrir vitamix, það verður síðar
))
28.8 2009 kl 19:38 #Takk fyrir þetta
)
29.8 2009 kl 22:59 #Ég er svo heppin að eiga Solis safapressu, mæli sannarlega með henni líka.
Ef maður á góða safapressu þá er maður sko ríkur:)* Það fást t.d. frábærar safapressur upp á Lambhaga fyrir mjög sanngjarnt verð!
30.8 2009 kl 07:51 #Rita ummæli