• Forsíða
  • Áherslumálin
  • Til í slaginn!
  • Um

Skúli Helgason

blogg á eyjan.is

RSS

Flokkur auðmagnsins

21. 3. 2009 - 21:31 | Flokkur: Óflokkað | 27 Ummæli

Smám saman er gagnsæi að aukast í okkar stjórnmálalífi.  Lögin um fjármál flokkanna eru farin að hafa áhrif, flokkarnir þurfa nú að lúta reglum um fjáröflun og birtingu uppgjörs á rekstrar- og efnahagsreikningum.  Ríkisendurskoðun birti í gær opinberlega yfirlit yfir fjárhag allra flokka á árinu 2007 og sundurliðunar á öllum framlögum frá fyrirtækjum til hvers flokks.  Þessu ber að fagna, í fyrsta sinn í stjórnmálasögunni fær almenningur upplýsingar um fjárhag allra flokka, þó nokkrir þeirra þar á meðal Samfylkingin hafi um árabil birt helstu lykiltölur í ársreikningum sínum á vefsíðum sínum.

Það staðfestist í þessum gögnum sem flesta hefur grunað að Sjálfstæðisflokkurinn hefur gríðarlega fjárhagslega yfirburði gagnvart öðrum flokkum.  Hann sækir tvöfalt meira fé til fyrirtækja en sá flokkur sem næst kemur, heildartekjur hans eru hærri en heildartekjur Samfylkingar og VG samanlagt og framlög einstaklinga til Sjálfstæðisflokksins eru nær 10 milljónum króna hærri en framlög einstaklinga til allra annarra flokka samanlagt!

Þegar efnahagsreikningar eru skoðaðar, kemur yfirburðastaða Sjálfstæðisflokksins enn betur í ljós en eigið fé flokksins nam 385 milljónum króna árið 2007 meðan allir hinir flokkarnir voru með neikvætt eigið fé. 

Af framansögðu er ljóst að aðstöðumunur Sjálfstæðisflokksins annars vegar og allra annarra flokka hins vegar er himinhrópandi hvað varðar aðgang að fjármagni.



27 ummæli

  1. 21.3 2009 kl. 21:471    Gústaf

    Og? Ertu að færa rök fyrir hærri ríkis(skattborgara-)framlögum til stjórnmálaflokka? Afgreitt á kvöldfundi rétt eftir kosningar?

    Hvað segir þetta með peninga til XD okkur? Er þetta ekki bara mæling á því að fólk hefur verið tilbúnara að styrkja þá en t.d. ykkur, þótt fólk hafi raunar óbeint verið látið styrkja ykkur í krafti prívatákvarðana verkalýðsforystunnar?

    Er öfund lykilatriði í þessum pistli þínum?


  2. 21.3 2009 kl. 21:482    Slembilukka

    Það er ekkert skrýtið við það að Sjálfstæðisflokkurinn taki til sín mesta styrki, enda langstærsti flokkurinn sé miðað við úrslit síðustu kosninga.

    Það væri mun eðlilegra að reikna þetta per atkvæði.

    Og viti menn, sé það gert er ljóst að Framsókn er með ótrúlega mikil framlög per atkvæði. LANG mestu Framlögin.

    Ef maður hugsar eins og fyrirtæki í markaðssetningu, þá er lang óhagkvæmast að styrkja Framsókn, því hvert atkvæði skv. þessu er lang lang „dýrast“ þar.

    Og þá er líklegt að hægt sé að álykta á þann veg að ástæða þess að fyrirtæki séu tilbúin að púkka svona upp á þennan örflokk sé sú að þau mörg hver fái eitthvað beint til baka í sporslum einhvers konar. En hvað veit ég.


  3. 21.3 2009 kl. 21:533    Hannes H. Gissurarson

    Sá flokkur, sem gekk lengst í þjónkun við auðjöfra, var Samfylkingin. Í hinni alræmdu Borgarnesræðu sinni í febrúar 2003 nefndi forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar sérstaklega þrjú fyrirtæki auðjöfra, sem sættu ómaklegum árásum. Með þessu lagði hún sitt lóð á vogarskálina með fullkomnu gagnrýnisleysi gagnvart þeim. Eini maðurinn, sem þorði að gagnrýna auðjöfrana, var Davíð Oddsson. Hann varaði við fákeppni á matvörumarkaði. Hann tók inneign sína út úr banka í mótmælaskyni við ofurlaun. Hann lagði fram frumvarp til að tryggja dreift eignarhald á fjölmiðlum.


  4. 21.3 2009 kl. 22:144    Kristján Elís

    hér blaðrar HHG einu sinni enn, Borgarnesræðan var ekki varnarræða fyrir Bau og það vita allir sem hafa lesið hana. En HHG hefur verið duglegastur við að dreyfa þeiir lýgi í von um að fáir hafi lesið þá ræðu. Hún fjallaði um samtrygingu á pólitísku og efnahagslegu valdi á Íslandi á undanförnum áratugum og þá meinsemd sem sú samtrygging hefur verið. Fólk sem kann að lesa og skrifa og hefur nennt að fylgjast með þjóðmálum á lýðveldistímanum veit að þessi ræða var sönn. Komdu nú HHG með einhverjar sannanir fyrir tengslum ISG við JÁJ aðrar en svona blaður eins og Sf. hafi gengið lengst í þjónkun o.sv frv Hver var á fundum við Björgólf alltaf þegar hann elit við á landinu og dagana fyrir hrunið? hvar varst þú? hvað þarf að setja mörg myndmönd hér inn á þennan vef þar sem þú mærif útrásarvíkinga og hugmyndafræðina að hruninu til þess að þú farir að skammast þín, hvað þarf ég lengi að borga þér kaup???


  5. 21.3 2009 kl. 22:165    Kristján Elís

    biðst afsökunar á öllum innsláttarvillunum


  6. 21.3 2009 kl. 22:316    GG

    Neyðin hefur verið stærst hjá Sjálfstæðisflokknum skv. yfirliti Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 300 þúsund – ætli það hafi verið fleirri hjálparsamtök sem hjálpuðu þeim að reka Valhöll og co.


  7. 21.3 2009 kl. 22:477    ms

    Come on, Baugs þrælar !!


  8. 21.3 2009 kl. 22:578    vilhjálmur

    Fékk Sjálfstæðisflokkurinn máske fé frá Hjálparstofnun Kirkjunar.Ég hef beðið Guð að fyrirgefa mér að ég kaus Sjálfstæðiflokkinn síðast, ég geri engum svo ílt að gera það aftur.


  9. 21.3 2009 kl. 23:019    Beta

    Á þessu pistill að hjálpa heimilum í landinu? Er engin stjórnmálamaður með lausnir? Ég legg til að fólk skoði Borgarahreyfinguna! Þar er að finna fólk með hugsjónir sem lætur eigið egó ekki stjórna ferðinni!


  10. 21.3 2009 kl. 23:5810    Ragnar

    Þetta er rétt hjá þér Beta.
    Skúli, hættu að eyða tíma þínum í eitthvað svona þvaður. Fólk er nennir ekki að velta sér upp úr þessu. Við viljum sjá lausnir. Ekkert pólitískar bendingar í allar áttir.

    Þú ert fyrrum framkvæmdastjóri, komdum með einhverjar lausnir eða alla vega hugmyndir til að hjálpa fyrirtækjum og heimilum í landinu. Hættu að eyða verðmætum tíma þínum í eitthvað svona…gerðu það fyrir okkur landsmenn. Við þurfum á hjálp að halda.


  11. 22.3 2009 kl. 00:3311    joi

    Ekki koma núna og segja að SF hafi ekki reynt að verja baug fram í rauðan dauðann? Það gengur ekki upp. Ástæðan er einföld. Davíð Oddsson var á móti baugi og þá þurfti SF að verja baug. Allt sem Davíð sagði gat SF sett sig upp á móti. Þetta „aðveraámótiöllusemdavíðsegir“ prinsipp SF var svo heiftugt að þeir gátu varið hvað sem var, bara til að vera á móti Davíð.

    Þessi fjárhags uppgjör stjórnmálaflokkanna eru bara húmbúkk skúli minn. Þú veist það vel sjálfur. Þessar tölur stemma aldrei. Það vantar allt inn í þetta. Fólki er talin trú um að þessi framlög séu það sem flokkarnir hafi haft úr að spila í sinni kosningabaráttu. 20 þús kall hér, 100 þús frá neyðarlínunni o.s.frv. fólk heldur að þetta séu nokkrar kúlur sem er verið að díla með.

    Það vantar alla ríkisstyrki. Það vantar alla afslætti frá fjölmiðlum, prentsmiðjum, auglýsingastofum og öðrum.

    Líklega er rekstrarkostnaður á stórum stjórnmálaflokki í einni kosningabaráttu nokkur hundruð milljónir. Blöðin fjalla auðvitað ekkert um þetta, enda fá þau alltaf fína innspýtingu í formi auglýsinga með reglulegu millibili þegar koma kosningar. Fjölmiðlar styggja ekki sína góðu kúnna. Kosningabarátta kostar samtals yfir milljarð ef aðili úti í bæ ætti að borga fyrir því sem lagt er út fyrir. Ég fullyrði það og get auðveldlega rökstutt það.

    Þingmennirnir skammta úr sínum hnefa til sjálfs síns (flokkanna sem þeir vinna fyrir) í starfið frá alþingi. Hvað eru eiginlega háir styrkir veittir til stjórnmálaflokkanna á ári hverju?

    Alls kyns hagsmunaaðilar gefa góða afslætti til að eiga von á góðum bitlingum eftir kosningar. Fólk er til í að gera eitthvað, og fá svo kannski gott jobb eftir kosningar. Kannski ferðamálastjóri, orkumálastjóri, sendiherra eða eitthvað þægilegt sem flokkurinn getur dælt í þá sem hafa verið þægir. Það er þó gott að þetta sé orðið gegnsærra. SF hefur nefninlega ekkert verið að fela þessa bitlinga sína sem hafa ekki verið í neinum smáskömmtum síðan þeir komust að kjötkötlunum.

    Þessi málflutningur hjá þér skúli er eins og frá valgerði sverrisdóttur, en ekki einhverjum nýjum og ferskum stjórnmálamanni. Þú ert næstum því farinn að tala eins og öldungurinn síungi sem situr á formannsstól framsóknar.


  12. 22.3 2009 kl. 00:3812    i

    Einkennilegt að Björn Bjarnason og Sjálfstæðisflokkurinn voru í boði Baugs og Stoða á kosningaárinu 2007!!


  13. 22.3 2009 kl. 00:5313    Ólafur I Hrólfsson

    Tek undir orð Hannesar Hólmsteins og Gústafs.
    Það vill svo til að styrktarmannakerfi Sjálfstæðisflokksins skilar flokknum háum upphæðum á hverju ári. Aðrir flokkar geta sem hægast gert slíkt hið sama. Málið bara það að stuðningsmenn þeirra eru vanari því að betla fé af því opinbera og eru ekki til í að fjármagna eitt eða neitt – setja bara fram kröfur.

    Ólafur I Hrólfsson


  14. 22.3 2009 kl. 01:4914    Kristján Elís

    joi er greinilega innvíklaður í sjálfstæðisflokkinn, á kafi í svínariinu og heldur auðvitað að allir séu eins. Það er stórmannlegt að taka undir með Hannesi Hólmsteini eða hitt þó heldur, hefurðu lesið allt það sem til er hér á vefnum með HHG, Ólafur? allt það sem hann hefur sagt til dýrðar útrásar snillingum og hvernig á að búa til peninga? Hefur það reynst eitthvað vit í því?


  15. 22.3 2009 kl. 01:5215    Kristján Elís

    ms það er það eina sem þið getið skrifað þessir nafnlausu vesalingar, Baugsþrælar“ það er málefnalegt


  16. 22.3 2009 kl. 02:3216    Rúnar

    Af hverju fjallarðu ekki um skuldahliðina. Skuldir VG eru ótrúlega háar miðað við tekjur og það á líka við um Framsókn.
    Eru þessir flokkar trúverðugir í að koma þjóðinni úr skuldahalanum?


  17. 22.3 2009 kl. 05:0617    hey

    Hvaða bull er þetta. Einstaklingar borga meira til sjalla! Samfó sækir þetta bara í gegnum stéttarfélögin án þess að meðlimirnir séu spurðir.
    Aðeins að hugsa áður en fullyrt er.


  18. 22.3 2009 kl. 10:4918    olie

    Ekki lengur flokkur peninga, þeir eru búnir og bara yfirdrátturinn eftir :) ,enda er þessi flokkur komin í langt frí og hrein blóðskömm að kjósa hann.

    Flokkur ónýtra hugsjóna og er svo sem búin að fremja harakíri og blæðir hratt.
    Eitt sem þarf að gera er að senda fréttaviðtölin síðustu ár við Hannes Hommstein Gissurarson á alla tölvupósta á sem flest email rétt fyrir kosningar.
    Að auki senda landmönnum gíróseðil frá xD og xB um skuldir búnar til af þessum flokkum sl 10 ár.


  19. 22.3 2009 kl. 11:5119    joi

    Kristján Elís ætti að svara málefnum frekar heldur en að hoppa á einhvern rökleysuvagn. Það koma engar upplýsingar frá honum nema áhyggjur yfir að hann geti ekki stafað nöfn þeirra sem skrifa hérna rétt.

    Hélt að Skúli Helgason ætlaði að einbeita sér að málefnum og koma með tillögur sem ættu að koma fólkinu út úr þeim vandamálum sem er búið að koma okkur í. Það fer nú frekar lítið fyrir því. Það byrjar ekki vel.

    Hins vegar fær Skúli prik fyrir að leyfa fólki að svara skrifum sínum. Það mættu margir stjórnmálamenn taka sér til fyrirmyndar. Til skamms tíma var t.d. engin, ekki einn einasti af þessum frjálshyggjuboltum í sjálfstæðisflokknum með þann möguleika. Þessir guttar vildu geta farið niður í sjoppu og keypt sér einn Gato Negro með steikinni, en þeir gátu ekki hugsað sér að leyfa fólkinu í landinu að hafa skoðun á því sem þeir voru að skrifa um. Það eru frávik í svoleiðis málflutningi.

    Annars er skrýtið að heyra engan úr SF tala um að VG hafi ekki minnst orði á ESB á landsfundinum núna um helgina!!!! Sjálfstæðisflokknum var stillt upp við vegg og SF vildi ráða hvaða mál yrði rætt um á landsfundi sjálfstæðisflokksins um næstu helgi, en gera engar athugasemdir um að VG skuli ekkert breyta um sína stefnu að vera á móti ESB!!!!!!


  20. 22.3 2009 kl. 14:2020    Bragi

    Það er stórmerkilegt að þrír flokkar hafa valið sér að vera í mínus, þrátt fyrir allt góðærið í áraraðir, með himinháum opinberum styrkjum.

    Það er þannig að til þess að fá styrki frá fyrirtækjum, þá þarf að bera sig eftir þeim. Það er útilokað að Sjálfstæðisflokkurinn hefði náð að úthluta öllum þessum fyrirtækjum almennilegum bitlingum sem eru að styðja hann.

    Eigum við von á árframhaldandi mínus á Samfylkingunni? Það hlýtur að vera nauðsynlegt núna að flokkarnir hætti að flytja sinn hallarekstur yfir á ríkissjóð.


  21. 22.3 2009 kl. 14:3121    Petur Henry Petersen

    Aumar eru ykkar athugasemdir
    Talið í hringi meðan að þjóðarskútan sekkur


  22. 22.3 2009 kl. 14:4622    Einar

    Og?

    Hvað er málið?

    Sjálfstæðisflokkurinn er duglegastur flokka að safna að sér styrkjum. Er það vandamálið sem þú sérð?

    Ég veit nú ekki betur en að Samfylkingin hafi falboðið sig hæstbjóðanda hvar sem tækifæri gafst og staðið grimmilega vörð um t.d. hagsmuni Baugs í skiptum fyrir fréttastofur sem voru fullkomlega handgengnar flokknum. Það var nú dægilegur styrkurinn sem Samfylkingin fékk frá Baugi í gegnum Stöð 2/DV/Fréttablaðið/Bylgjuna… og gaman við tækifæri að skjóta á hversu mikils virði sá styrkur var í raun og veru virði.

    Eða er það kannski tilviljun að „fréttamenn“ Baugsmiðla eru nú í framboði fyrir Samfylkinguna hér og þar, t.a.m. Róbert Marshall og Sigmundur Ernir, að ekki sé talað um Heimi Má Pétursson, eðalkomma og fyrrum frambjóðanda, sem einokar pólitísku fréttirnar á Stöð 2. Gott að hafa svoleiðis styrki, Skúli.

    Ef einhver flokkur er konungur spillingar á Íslandi þá er það Samfylkingin. Loftbóluflokkur umbúðanna. Hugmyndafræðin er engin. Umbúðirnar eru það eina sem kemst að. Samfylkingin er einnota flokkur sem hægt er að fá afnot af fyrir slikk og henda svo í ruslið, því það er nákvæmlega ekkert varanlegt við ykkur.

    Þið ætlið að sameinast VG fyrir næstu kosningar (kallið það „að ganga bundin til kosninga“) og hafið þannig kokgleypt alla ESB umræðu. Fyrir 2 mánuðum síðan var það brottgangssök úr ríkisstjórn að fresta því deginum lengur að ræða ESB af alvöru. Nú leggið þið lykkju á leið ykkar til að ræða EKKI ESB, vitandi það að núverandi samstarfsflokkur (og sá eini sem kærir sig um starfa með ykkur svona í ljósi þess hversu óáreiðanleg þið eruð) mun aldrei, aldrei, aldrei samþykkja umræðu um ESB, hvað þá meira.

    Nú er ESB allt í einu orðið aukaatriði.

    Svona mætti áfram telja. „Fagra Ísland“ sem þið kynntuð með lúðraþyt fyrir 2 árum var varla komið úr prentaranum þegar þið stunguð því plaggi undir stólinn. Þessir örfáu umhverfisverndarsinnar sem eru í ykkar flokki geta hins vegar kæst nú, því eins og með svo að segja allt annað þá ræður VG för og þið hafið engar skoðanir á einu eða neinu, og nú verður allt sem heitir virkjun og stóriðja bannað.

    Þið ætlið að hækka hér skatta upp úr öllu valdi strax eftir kosningar, að kröfu VG. Ekki viljið þið skera niður í útbólgnu og ofvöxnu ríkisbákni (því það er ekki skemmtilegt og ólíklegt til vinsælda).

    Samfylkingin sem eitt sinn sagðist ætla að vera miðjuflokkur, krataflokkur, Evrópuflokkur, er orðin að útibúi VG og mun ráðast í skipulega útrýmingu á fyrirtækjum hér á landi, skattahækkanir sem munu leggja millistéttina í rúst, og snúið baki við Evrópu. Þið eruð orðin flokkur hafta, banna, einangrunar. Nú á að banna allt sem ekki verður sérstaklega leyft. Nú á að hefta möguleika einstaklinga og fyrirtækja til að standa á eigin fótum (og auka þess heldur áhersluna á þá sem ýmist geta ekki eða nenna ekki að standa sjálfstætt), og loka landinu gagnvart öðrum þjóðum.

    Þar sem VG virðist slá tóninn í því fyrir hvað Samfylkingin stendur fyrir, þá skulum við rifja upp samþykktir VG frá í gær um hvað Samfylkingin ætlar að gera á næstu árum: Takmarka innflutning á svo til öllu og fara þess í stað að ríkisstyrkja skipaiðnað, kornrækt, ullariðnað, sementsframleiðslu og svo framvegis.

    Í stað þess að stunda eðlileg milliríkjaviðskipti þá ætlum við að loka landinu og framleiða á óhagkvæman hátt (í ríkisfyrirtækjum eingöngu, að sjálfsögðu) brýnustu nauðþurftir – annað verður bannað að kaupa og eiga. 1960… alveg upp á nýtt.

    VG er flokkur afturhalds og haftastjórnmála, það vita allir. Það má vera móðins hjá einhverjum sem halda að slíkt sé lausn vandans í fávisku sinni. En sökin er ykkar, í Samfylkingunni, að leiða VG til valda og láta þann flokk ráða för í einu og öllu.

    Samfylkingin mun bera höfuðábyrgð á því að við erum á fyrstu mánuðum 10 ára langrar niðursveiflu sem verður sú svæsnasta sem Vesturlönd hafa séð frá stríðslokum. Það verða áratugir þangað til við verðum búin að vinda ofan af þeim hörmungum sem hræðslubandalag VG og Samfylkingar eru í þann mund að kalla yfir okkur.

    Landflótti

    Skattpíning

    Samdráttur

    Ríkisvæðing

    Lífsgæðarýrnun

    Atgervisflótti

    Þetta er það sem þið standið fyrir, Skúli.


  23. 22.3 2009 kl. 14:5423    joi

    Og hugmyndafræðingurinn á bakvið þetta allt saman, akkerið í þessum ólgusjó og umróti stjórnmálanna, maðurinn sem stendur eins og klettur í stefni SF skútunnar, sjálfur Össur Skarphéðinsson er að fá eina þá lúsalegustu kosningu sem um getur í nokkru prófkjöri. 30% kosning í sætið sem hann sóttist eftir, og líklega einn í framboði. Árni Johnsen fékk þó tæp 50% í 2. sætið þar sem hann bauð sig fram!!!!!

    Líklega gerir sagan Össur Skarphéðinsson upp sem einn mesta tækifærissinna íslenskra stjórnmála fyrr og síðar. Það er aumt fyrir samfylkinguna að þurfa að stóla á svoleiðis kóna.

    Nýja fólkið í SF veldur einnig vonbrigðum. Þeir sem lásu pistil Einars Más í Mbl í sunnudagsblaðinu, þar sem hann tekur Sigmund Erni og rappar hann í sig er ekki falleg lesning um mann sem er að hefja sinn pólitíska feril. Sigmundur hagar sér þarna skv. lýsingu Einars Más sem versti framsóknarmaður þegar kemur að því að segja ósatt, skipta um skoðun og hugsa um eigið skinn.

    Þjóðin á ekki von á góðu ef þetta fólk er á leið upp á dekk. Kannski getur skipstjórinn Jóhanna eitthvað fiskað út á útsjónarsemina, en það er hætt við að hásetarnir á dekki eigi eftir að þvælast fyrir henni. Það er ekki nóg að skipstjórinn í brúnni viti hvernig eigi að bera sig að við veiðiskapinn ef hásetarnir kunna illa til verka og skipið illa búið veiðarfærum.


  24. 22.3 2009 kl. 19:5924    Orn

    þetta er sorgleg umfjöllun hjá Samfó……það er reynt að slá ryki í augu fólks með því að láta að því liggja að eitthvað óhreint mjöl sé í pokahorninu hjá XD. þá á ekki sem sagt að skipta máli hvar XS sæki sína peninga….það er bara slæmt að XD fékk meiri og því er þetta eitthvað slæmt hjá þeim en í lagi hjá XS….
    Nú skulum við muna….þetta er væntanlegur þingmaður okkar allra hvar í flokki sem við stöndum….maður sem getur ekki rætt málefni heldur frekar að standa að rógburði, niðurrifi og lygum….og því miður eru margir sem taka undir þetta…..sama fólkið og rakkar niður fólk sem studdi XD og segir það styðja flokkinn í blindni…gangi fyrir björg fyrir hann…….gerir akkúrat það sama fyrir XS…..hlustar ekki á hina hliðina…..vill ekki málefnalega umræður…..heldur bara flykkist um sitt fólk í blindni og gengur fyrir björg.


  25. 22.3 2009 kl. 20:2825    Valur

    Hannes Hólmsteinn þú gleymir að segja frá því að Ingibjörgkom líka með þá tillögu í Borgarnesræðu sinni að þessum og öðrum fyrirtækjum yrðu settar reglur til að fara eftir, en því miður hlógu Sjálfstæðismenn þær tillögur út af borðinu með þeim afleiðingum að landið fór á hausinn. Annars, ert þú ekkert orðinn þreyttur á því að Ingibjörg taki svona mikið pláss í hausnum á þér? Svo ætla ég að nota tækifærið og þakka þér fyrir ekki neitt í leiðinni. Landið er nánast gjaldþrota.


  26. 23.3 2009 kl. 15:5026    Guðmundur

    Framlög til stjórnmálaflokka

    Skoðað frá fleirri sjónarhornum.

    Framlög í hlutfalli af heildartekjum
    XD Samfylk. VG Framsókn
    Ríki og sveitarfélög
    52 % 75% 63 % 60 %
    Lögaðila / Fyrirtæki
    18 % 12% 21 % 16 %
    Einstaklingar
    15% 8 % 12 % 9 %
    Aðrar tekjur
    15 % 5 % 3 % 10 %

    Eða ef að skoðað er að VG fá 30 % af sínu framlagi frá lögaðilum frá fyrirtækjagrúppum sem tilheyra Kaupþingi, Glitnir og Landsbankanum sem sjá má í yfirlitinu og skoða verður í samræmi við eignarhald fyrirtækjana eins og það var 2007. Og jafnframt eru þetta 15 % af tekjum VG eingöngu frá þessum fyrirtækjum.Síðan mætti skoða þetta með tiliti til atkvæðamagns eða þingmannafjölda. En ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn er með tæpan helming af rekstri og frjálsum framlögum meðan hinir flokkarnir reiða sig á hið opinbera í allt að 75%.
    Svo mætti skoða þetta í ljósi útgjalda og þá hversu háðir flokkar eru einstökum framlögum eða ekki, það er ljóst að 3 millj. niðurskurður hjá t.d. VG hefur mun meiri áhrif þar en það hefði t.d. hjá XD.


  27. 13.4 2009 kl. 00:2127    Skorrdal

    Þessu umræða er svolítið skondin hérna, og hún átti sér stað tveimur vikum fyrir mesta hneigsli í íslenskri pólitík. Alveg merkileg umræða.


Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og sex? Svar:

  • Höfundur

      Skúli Helgason
      Nánar um höfund ...
  • Nýlegar færslur

    • Ábyrgðarlaus forseti
    • Tvær steingeitur
    • Þörf fyrir nýjar lausnir í orkumálum
    • Við þurfum ábyrgan orkugeira!
    • Ábyrgðarleysi
  • Tenglar

    • Dofri
    • eyjan.is
    • eyjan.is/blog
    • Helga Vala
    • Jóhanna
    • Mörður
    • Nýja ríkisstjórnin
    • Oddný
    • Össur
    • Róbert
    • Samfylkingin
    • Skúli Helgason á Facebook
    • Ungir jafnaðarmenn
  • Færslusafn

    • janúar 2010
    • október 2009
    • september 2009
    • ágúst 2009
    • júlí 2009
    • júní 2009
    • maí 2009
    • apríl 2009
    • mars 2009
    • febrúar 2009
  • Tækni

    • Innskráning
    • Færslur með RSS-veitu
    • Athugasemdir með RSS
    • WordPress.org
  • Nýlegar athugasemdir

    • Maria Smith: Ábyrgðarlaus forseti
    • Val Tonne: Ábyrgðarleysi
    • Adrianne Pratte: Besta leiðin
    • Susannah Brophy: Sannfæringin
    • Beula Lankster: Þörf fyrir nýjar lausnir í orkumálum
  • Efnisorð

Hönnun: MistyLook eftir Sadish.


  • eyjan.is

  • Forsíða
  • Fréttir
  • Viðskipti
  • Pennar
  • Silfrið
  • Orðið
  • Innskráning