Það var fróðlegt að lesa það hjá Eiríki Jónssyni að þeir Hallgrímur Helgason, Egill Helgason og Helgi Seljan hefðu verið saman í morgunkaffi á Kaffifélaginu 1. febrúar.
Hallgrímur skrifaði fyrir skömmu grein í DV sem átti augljóslega að vera byrjunarskotið í kosningabaráttu Samfylkingarinnar. Hún var ein samfelld persónuleg og auvirðileg árás á Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og kom ekkert nýtt fram í henni. Bjarni hefur svarað henni í góðri grein í Morgunblaðinu.
Egill tók undir árásir Hallgríms í bloggi sínu, og Silfur Egils notar hann aðallega til að koma hugðarefnum sínum á framfæri, ekki til að leiða fram fólk sem hefur eitthvað merkilegt að segja um þjóðfélagsmál. Þetta sést mjög vel hér.
Helgi Seljan gætir vel hagsmuna Samfylkingarinnar í Kastljósi enda er hann fyrrverandi kosningastjóri flokksins. Áberandi er hversu nærgætinn hann er við vinstrimenn, en nærgöngull við hægrimenn. En mest áberandi er þó þögn hans um mál sem eru óþægileg fyrir vinstrimenn. Hvers vegna hefur þessi vígreifi rannsóknarblaðamaður ekki gengið á Jóhönnu og Steingrím vegna stefnu Más Guðmundssonar á hendur Seðlabankanum? Hvers vegna hefur hann ekki gengið á Vilhjálm Þorsteinsson og Margréti Björnsdóttur vegna hinna dularfullu fjármála Samfylkingarinnar?
Skafti Harðarson
Ummæli (13)
Guðmundur // 2.2 2012 kl. 16:47
Góður Skafti,þú heldur þessum ruglukollum til vinstri við efnið
Haukur Kristinsson // 2.2 2012 kl. 17:33
Rétt Skafti, Það „kom ekkert nýtt fram“. Við vissum þegar að Bjarni Ben var á kafi í braskinu fyrir Sjallahrunið. Á bólakafi. Svar Bjarna í Mogganum var í svipuðum dúr og þegar Baldur Innherji var að réttlæta sig. Jú, hann frétti í einhverju blaði að allt væri að fara fjandans til. Í einhverju blaði!
Emil Zola // 2.2 2012 kl. 17:35
Gott að upp komst um samsærismennina.
Annars skil ég ekkert í þeim að vera að rotta sig saman í alfaraleið.
Það er nú ekki svo langt út í Öskjuhlíð.
Sjalli // 2.2 2012 kl. 17:58
Baugsliðarnir að skipuleggja sig.
fridrik indridason // 2.2 2012 kl. 17:59
bullið í þér skafti hefur sjaldan verið verra en þetta.
Geiri // 2.2 2012 kl. 18:19
Þetta hlýtur að eiga að vera kaldhæðni sem að er ekki að skila sér, annars er vænissýkin komin úr böndunum hjá einhverjum.
Hefur einhver farið á Kaffifélagið á morgnanna? Þarna eru milljón grilljón þjóðþekktir einstaklingar oft á tíðum á svipuðum tíma.
Mörg eru samsærin ef að það að hittast fyrir tilviljun á kaffistað er farið að flokkast sem slíkt.
pollus // 2.2 2012 kl. 18:46
Go´na Git You Sucka
Karl // 2.2 2012 kl. 20:30
Virðist vera hræðilegt kaffihús.
Krímer // 2.2 2012 kl. 23:15
Ánægður með þig Skafti, en hvað er að frétta af honum Skapta bróður þínum?
Dóra // 2.2 2012 kl. 23:23
Æ góði Skafti – grow up!!!!
Hermann Ólafsson // 3.2 2012 kl. 00:25
Þetta er nú meira steypubloggið hjá þér. Nægir að renna yfir ca. 10 síðustu fyrirsagnirnar á pistlum þínum. Ráðlegg þér að geyma pistlana þína í einn dag áður en þú hraunar þeim út!
Gísli // 3.2 2012 kl. 12:31
Þetta blogg sýnir og sannar að þú ert vænisjúkur og tapsár hægri-últrasinni. Svona eins og liðsmaður í teboðshreyfingunni bandarísku. Allar þínir pistlar eru eins og þetta, hreint rugl og áróður fyrir foringjann. Gegn ímynduðum óvinum sem hæla gamla valdinu ekki nógu mikið. Þvílíkt grey ertu !
Sigrún // 15.2 2012 kl. 23:16
Snilldarpistill Skafti, þó ekki nema væri til að við pöpullinn getum forðast þessa litlu kaffiskonsu. Þar eru bara milljón grilljón þjóðþekktir sem troðast hver um annan þveran eldsnemma á morgnana til þess eins að fá sér sæmilega gott kaffi að heiman og sýna sig og sjá aðra þjóðþekkta. En alls ekki til að tala saman greinilega, hvernig getum við látið okkur detta önnur eins fásinna í hug!
Rita ummæli