Skafti Harðarson

blogg á eyjan.is

Hvers vegna teiknar Halldór ekki Jón Ásgeir?

3.9 2010 | 00:15 | 21 ummæli

Það var leiðinlegt að sjá hinn drátthafa teiknara Halldór Baldursson gerast starfsmann skuldakóngsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á Baugstíðindum. Með því missti hann mikinn trúverðugleika.
Því miður hefur hann líka ekki vikið einum einasta drætti í teikningum sínum síðustu vikur að öllum brellum Jóns Ásgeirs, föður hans Jóhannesar og viðskiptafélaga þeirra feðga, Hannesar Smárasonar og Pálma í Fons sem fjölmiðlar hafa upplýst um:
Jóhannes í Bónus fékk t. d. tvær milljónir í laun á mánuði frá Högum, á sama tíma og bankastjóri Arion banka, Finnur Sveinbjörnsson, fékk eina og hálfa milljón í laun á mánuði frá bankanum (og er það vonandi tæmandi skilagrein um greiðslur til Finns á meðan hann var bankastjóri Arion banka).
Jóhannes fékk bíl og hús og sumarhús að auki, allt með blessun bankans sem var að fara með almannafé, en þeir feðgar skulda sem kunnugt er 50 milljarða aðeins í gegnum Haga (og margfalt meira annars staðar), og munu aldrei verða borgunarmenn fyrir þessum fjárhæðum.
Viðskiptafélagar Jóns Ásgeirs, Hannes Smára og Pálmi í Fons, hafa orðið uppvísir skv. tölvuskeytum sem Viðskiptablaðið birtir núna í dag að því að hafa vísvitandi blekkt hluthafa í FL-Group. Eru háar fjárhæðir nefndar í því sambandi. Hlýtur hinn sérstaki saksóknari í efnahagsbrotum að taka mál þeirrar til meðferðar ekki síður en þau mál Jóns Ásgeirs sem kirfilega er gerð grein fyrir í ákæru Glitnis banka á hendur þessum glæframönnum fyrir dómstóli í New York.
Hvar er Halldór Baldursson? Hvers vegna deilir hann í teikningum sínum ekki á eigendur Baugsmiðla? Hvers vegna bendir hann í verkum sínum ekki á þá fáránlegu staðreynd að Jón Ásgeir einn útrásarvíkinganna fær enn að ráða miklu um skoðanamyndun í landinu? Hvers vegna hæðist hann ekki að leigupennum útrásarvíkinganna, þeim Ólafi Stephensen, Ólafi Arnarsyni og Þorvaldi Gylfasyni? Hvers vegna minnist hann ekki á það að saman reka þessir þrír menn, Ólafarnir tveir og Þorvaldur, rógsvél upp á tugmilljónir króna á ári, og malar hún látlaust á hverjum degi?
Skopteiknari verður að vera óháður valdinu og auðnum. Hann má engum hlífa. Ádeilan er annað eðli hans. Fyrir hann ber þjónkun við valdið og auðinn feigð í sér.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (21)

  •   Ragnar // 3.9 2010 kl. 02:21

    Skafti þú heldur áfram að gera þig að fífli og reynir að þagga niður í öllum þeim sem vinna ekki fyrir Náhirðina og hafa sjálfstæðar skoðanir. Hvað næst? Á að halda bókabrennu? Þetta minnir á þegar Davíð lét reka prestinn úr Þjóðhátíðarnefndinni á sínum tíma fyrir að skrifa smásögu sem hann tók til sín :)

    Nú er Davíð í atvinnubótavinnu hjá elítunni í LÍÚ við að verja hagsmuni hennar gegn þjóðinni. Ekkert nýtt þar.

    Óvinalisti Náhirðarinnar er farinn að verða eftirsóknarverður listi að komast á fyrir allar ærlegar manneskjur sem ekki hafa glatað heiðri sínum, hugrekki og almennir skynsemi.

    Jóhannesi gamla í Bónus, er bolað út úr Högum vegna kröfu Arion banka eftir mikinn utanaðkomandi þrýsting.
    Gerður er við hann starfslokasamningur enda er hann einn af eigendum fyrirtækisins og átti forkaupsrétt sem hann gaf eftir við þennan samning. Þetta var mjög góður díll fyrir Arion banka en slæmur fyrir Jóhannes! Allir vilja Bónus í dag.

    Jóhannes gat greinilega ekki náð þeim snilldarsamningum sem Björgólfur Thor náði gagnvart Landsbankanum sem hefur nú fellt allar hans persónulegu ábyrgðir niður sem voru miklu hærri en Jóhannesar.

    Hvað finnst Skafta og G2G, alias Hannesi Hó, um að Björgóflur Thor, fyrrverandi eigandi Landsbankans, sem stóð fyrir Ice-Save þjófnaðinum á sparifé saklaus fólks og almenningur á Íslandi þarf að borga. Svikamyllan mikla sem hefur staðið efnahagslegri endurreisn einna mest fyrir þrifum.

    Ég er viss um að Skafti og Skafti og G2G (Hannes Hó) eiga eftir að skrifa hvern níðingspistilinn á fætur öðrum um Landsbankann og spillinguna þar. Landsbankinn er í eigu ríkisins og allt sem kemur þar inn til baka skilar sér til baka ólíkt hinum bönkunum.

    Ég er viss um að Skafti fer fram á það í næsta pistli að slitastjórn Landsbankans verði gert að segja af sér vegna þess skandals, að Björgólfur Thor þurfi EKKI að standa skil á þeim þúsundum milljarða sem hann skuldar og er í persónulegum ábyrgðum fyrir. Skafti á eftir að krefjast þess að hann verði gerður upp og Jóhannes litli í Bónus til að allrar sanngirni verði gætt.

    Bankinn getur hæglega tekið hlut hans í Actavis upp í skuldauppgjör hans þó það dugi engan vegin til.

    Takk Skafti, fyrir að gæta réttlætis þar sem ranglæti ríkir og að vera ávallt svona samkvæmur sjálfum þér og hugsjónum þínum :)

  •   sigthor jónsson // 3.9 2010 kl. 07:24

    Er ekki hægt að segja það sama um skopteiknara morgunblaðisins, hvar eru myndirnar af seðlabankastjóranum sem heldur að hann sé forsætisráðherra?

    Menn leggjast lágt þegar þeir ráðast á skopmyndateiknara

  •   Skarpur // 3.9 2010 kl. 07:24

    Þeir hefðu betur verzlað við Deutsche Bank.

  •   Steini // 3.9 2010 kl. 07:24

    Hvernig væri að spyrja Halldór sjálfan heldur en að vera alltaf að tuða í okkur?

  •   Þorsteinn Björn // 3.9 2010 kl. 08:46

    Þið sem eruð að ráðast á Skafta fyrir skrif hans um útrásarþjófana sem stálu af þjóðinni, eruð jafn siðblindir þeir í vörn ykkuar í þeim.

    Mig grunar reyndar að þessar hatursfullu athugasemdir í garð Skafta séu einmitt settar inn af útrásarþjófunum sjálfum, eða þá af mönnum af þeirra vegum.

  •   jonasgeir // 3.9 2010 kl. 09:12

    Það er bara hreint og beint sjúklegt að lesa þessi komment sem flæða af stað um leið og Skafti gagnrýnir „gulldrenginga“ í kring um baug. Eins og þú segir Þorsteinn.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.9 2010 kl. 09:27

    Óttalega eru kommagengið hans Nonna Ásgeirs nú viðkvæmt. Er pistill sem spyr ósköp eðlilegra spurning orðin árás? Nú get ég hrellt ykkur kæru vinir með að ég fletti Fréttablaðinu ca. á hálfsmánaðar fresti svo ekki get ég talist dómbær um það sem teiknarinn er að gera, þó svo ég þykist fullviss að það er það eina sem er það sem má finna að viti. Og óumdeilanlegt er að hann er á heimsmælikvarða. Afturá móti minnist ég þess að blogglúðrasveitin hans Nonna litla hafi einmitt haldið uppi hörðum mótmælum gegn Halldóri þegar hann var á Morgunblaðinu, vegna þess að þeim fannst vanta háð um ritsjórann Davíð. En auðvitað er það allt önnur saga. Hún snérist jú um Davíð. En af hverju ætti Jón Ásgeir ekki að ritstýra því sem örugglega hans verðmætasti og sér hættulegasti starfsmaður snepilsins gerir, eins og öllum öðrum sem hýrast þar innan veggja? Menn nefna jú ekki snöru í hengds manns húsi. En það þýðir að snillingurinn getur því miður ekki skemmt þjóðinni með að nota allra besta fallbyssufóðrið sem býðst á hverjum degi. Gott að vita fyrir Nonna & Có. að Baugshyskið hefur þó ennþá efni á „vörnum“ á bloggsíðum, – þó svo að um rest og rusl er að ræða.

    Þeir sem eru ekki á launaskrá Baugshyskisins og illa mölétnir hafa örugglega gagn og gaman að kynna sér skrifin á þessari slóð.:

    http://baugsmalid.is/?k=ritskodun

    Þorsteinn Björn. Þér þarf ekki að gruna neitt. Þetta afgangs rusl er á vegum glæpamannanna sem rændu þjóðina.

  •   ABC // 3.9 2010 kl. 09:30

    Þorsteinn Björn “ hatursfullu athugasemdir „??? Nei, frekar grín eða háð. Við skulum nefna hlutina réttum nöfnum.

  •   ABC // 3.9 2010 kl. 09:36

    Þorsteinn Björn, nú kom nýr tónn, með G2G. Ég segi ekki meir. ;)

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.9 2010 kl. 09:41

    Helvítis ólán að Nonni hafi ekki lagt mölétna starfsmanninum sínum til einhverjar alvöru myndir um sig með smá vott um að stingi. Sú eina sem minnir á að gera slíkt er sú síðasta, en þar er Nonni litli í algeru aukahlutverki. Hinar eru eins og pantaðar af aðal og mætti nota sem jólakort frá Baugsfjölskyldunni. Óvenju bitlausar fyrir minn smekk, svona miðað við hvernig teiknarinn hefur tekið á öðrum í gegnum tíðina, en að vísu eftir minni. Það væri áhugavert að sjá myndir sem fjalla um menn eins og Björgólf Thor og Davíð til samanburðar, til að átta sig á hvort ritstýring er í gangi.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.9 2010 kl. 09:54

    Ætli þessi teikning meistarans segi ekki allt um ritskoðunina á Baugsmiðlunum.:

    http://blogg.visir.is/halldorbaldurs/?p=49#respond

  •   Ragnar // 3.9 2010 kl. 10:22

    Hvorki Skafti né G2G, alias Hannes Hó, minnast á Björgólf Thor enda má ekki minnast á „snöru í hengds manns húsi“ (þjóðin verandi sá hengdi).

    Ríkisendurskoðandi og samkeppniseftirlitið hlýtur að fara skoða atvinnubótavinnu Davíðs á Morgunblaðinu og tapið blaðinu sem óeðlilega fyrirtgreiðslu/styrk til Sjálfstæðisflokksins.

    Má Sjálfstæðisflokkurinn taka við svona háum styrk (tapið á blaðinu sem er þá niðurgreitt) án þess að gefa hann upp?

    Á meðan Baugsfeðgar eru gerðir upp þá sleppa þeir viðskiptamenn sem ollið hafa þjóðinni lang mestu tjóni: Björgólfsfeðgar.

    Davíð gaf þeim Landsbankann og lét síðan lána þeim fyrir „gjöfinni“ og þeir borguð aldrei lánið. Það má vissulega segja að þeir hafi borgað fyrir sig (sjaldan launar kálfurinn ofeldið) með því að ræna erlenda sparifjáreigendur, Ice-Save, og láta íslenska þjóð síðan borga tjónið sem af því hlaust.

    Nú er búið að fella niður ALLAR persónulegar ábyrgðir á hendur Björgólfi Thor en það er þó ekki hægt að útiloka það að hægt verði að stefna honum fyrir vanrækslu og þjófnað við rekstur bankans. Ekki nema skilanefndin hafi samið um það líka?

    Nú veit ég að Skafti og Skafti og Hannes Hó munu skrifa pistil eftir pistil um um Landsbankann og gagnrýna það að bankinn ætli að falla frá þúsund milljarða kröfum á hendur Björgólfi Thor í stað þess að ganga að því sem hann þó á og yfirtaka t.d. hlut hans í Actavis.

    Koma svo Skafti og Hannes Hó og restin af Náhirð Davíðs sem er í atvinnubótavinnu hjá Kvótagreifunum sem gera upp í evrum en krefjas þess að þrælarnir haldi áfram að fá laun og borga skuldir sínar með ónýtri krónu :)

  •   Ragnar // 3.9 2010 kl. 10:41

    Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður KB banka benti á það (sem allir furðuðu sig á) af hverju Ice-Save væri ekki rannsakað sem sakamál?

    Sigurður er með allt niðrum sig en hann hitti þarna naglann á höfuðið. Ef KB banki eða Glitnir hefðu verið með Ice-Save svikamylluna í gangi þá sætu þeir allir inni núna og hefðu gert það frá því í lok árs 2008 þegar Davíðshrunið átti sér stað.

    En þar sem að „réttir“ aðilar (Landsbankamenn) frömdu glæpinn þá eru þeir ekki meðhöndlaðir á sama hátt og aðrir. Á Íslandi virðast menn nefnilega ekki vera jafnir fyrir lögunum.

    Ef allt væri eðlilegt þá væri þegar búið að stefna fyrrverandi eigendum og stjórnendum Landsbankans fyrir Ice-Save svikamylluna og dómur líklega fallinn.

    Skafti, teiknaðu þá mynd sjálfur eða máttu það kannski ekki, kútur? Er það ekki á To Do lista Náhirðarinnar af því að það varpar skugga á foringjann?

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.9 2010 kl. 11:55

    Hvernig er þetta. Hefur Jón Ásgeir ekki efni nema á blogglúðurslúserum sem hafa greindarvísitölu á við meðal kvenskónúmer? Ljótu kálfarnir. Hver er að ráðast á Halldór? Hann er frábær í því sem hann gerir og á heimsmælikvarða eins og ég benti á að ofan. Aftur á móti býr hann við ritskoðun eiganda ykkar, sem er ekkert nýtt og þið þekkið best. Það drepur alla skapandi listamenn, en auðvitað er ykkur það ánægjuefni, enda úr brókarnásnyrtihirð glæpamannsins. Hundurinn geltir fyrir eigandann. Hann má ekki blómstra innan glæpagengisins.

    Drullið ykkur nú til að lesa það á slóðinni sem ég sendi ykkur sem ég er viss um að það hafið aldrei gert. Reynið að finna ykkur aðrar tölvur ef eigandinn fylgist með ykkar. Bókasöfnin bjóða víst upp á slíka þjónustu og varla er hann þar. Mölkúluna bið ég að afsaka pungsparkið, en miðað við annað getur það ekki hafa skaðað neitt að ráði. Hefur ekki beint þótt áreiðanlegasta heimildin þegar málefni eigandans eru annarsvegar. Tjáir hann sig um eitthvað annað? Leitt að hann hafi þurft að gera svona illa í brók. (O:

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.9 2010 kl. 12:27

    Sá mölétni úr Baugsbrókinni skilur ekki muninn á þegar verið er að gagnrýna eigandann en ekki verkfærið. Halldór er snillingur, en þarf að brauðfæða sig og sína, og er einfaldlega afar óhreppinn með vinnuveitandann. Það þvælist ekki fyrir mölétna að draga rangar niðurstöður af einföldustu hlutum frekar en fyrri daginn. Fyrir hina bendi ég á síðu sem lýsir nákvæmlega ritskoðun Jóns Ásgeirs, sem ku vera mun verri í dag en þegar hún var gerð. Sá mölétni fær ekki að lesa neitt nema Baugstíðindi, svo það er ekki hægt að halda uppi rökræðum um ritskoðun og ritstýringu eigandans við snillinginn.

    http://baugsmalid.is/?k=ritskodun

  •   Ragnar2Ragnar // 3.9 2010 kl. 12:42

    Skafti, AMX, G2G, Hannes Hó, svarar engu um tískinnungslega málflutning sinn.

    Það kemur ekkert á óvart.

    Náhirðin ætlar að púkka undir Björgólf Thor eins og hún gerði þegar hún gaf honum Landsbankann. Björgólfur Thor og stjórnendur Landsbankans (Kjartan Gunnarsson) færðu okkur Ice-Save.

    Davíð Oddsson og Náhirðin ber ábyrgð á þessum mönnum og hægt er að þakka Davíð og vinum hans fyrir Ice-Save.

    Náhirðin hefur séð til þess að Bónusfeðgar sleppi ekki (gott mál þannig) en þeir ætla einnig að sjá til þess að Björgóflur Thor sleppi og eignir hans verði ekki gerðar upptækar….þrátt fyrir Ice-Save og ljóst sé að auðvelt sé að fá hann dæmdan.

    Davíðsæskan stendur fyrir sínu :)

    Á meðan situr meistarinn í atvinnubótavinnu hjá LÍÚ og berst gegn hagsmunum þjóðar sinna (aftur) svo að þrælarnir fái nú örugglega ekki að brjótast út úr hlekkjunum sem Davíðshrunið flækti þá í.

    Snilld :)

  •   hb // 3.9 2010 kl. 13:16

    Þið eruð hálfvitar! Björgólfur er verri en JÁJ, nei! Davíð er verstur, Nei! Björgólfur er… Allir þessir menn eru bullandi sekir, ALLIR! Það er sorglegt að lesa kommentin hérna.

  •   Ragnar2Ragnar // 3.9 2010 kl. 13:58

    Staðreyndin er sú að Náhirð Davíðs vill ekki að réttlætið nái fram….ekki nema bara fyrir suma (Jón Ásgeir).

    Björgólfur Thor, Kjartan Gunnarsson og Davíð Oddsson eiga að sleppa og ekki vera mældir eftir sömu stikum og aðrir.

    Nú erum við komin með nýjan Dómsmálaráðherra, það má vel vera að hann láti eitt yfir alla ganga.

    Ice-Save lendir á þjóðinni vegna klúðurs Björgólfs Thors, Kjartans Gunnarssonar og hinna stjórnenda Landsbankans. Þetta var svikamylla frá A-Ö og um það er ekki deilt.

    Af hverju eru þessir menn ekki ákærðir?

    Lög heimila að stjórnendur/ábyrgðarmenn bankans séu persónulega sóttir til saka.

    Af hverju gilda önnur lögmál í Landsbankanum en Glitnir og Arion?

    Af því að Náhirðin er búin að ákveða það.

    Ekki má komast upp um glæpi foringjans sem liggur í fleti LÍÚ og er þar í atvinnubótarvinnu.

    Náhirðin hlýtur að vera stolt af sjálfri sér :)

  •   Ergo // 3.9 2010 kl. 16:51

    Af hverju gagnrýnir Skafti aldrei Davíð?

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.9 2010 kl. 18:05

    Getur verið að Skafti hafi lagalegan rétt að gagnrýna þá sem honum hugnast án þess að taka við pöntunum frá Baugshyski um hverja hann má og á að skrifa. Baugshyski sem heldur úti stærstu fjölmiðlasamsteypu þjóðarinnar á hennar kostnað, heldur úti bloggræflum eins og Bubba og Ólafi Arnars og „fræðimanninum“ Þorvaldi Gylfa til að lemja á mönnum og málefnum eftir pöntun. Merkilegt að ekki hefur heyrst múkk frá neinum þeirra eftir Big Joe var hent út úr Högum.

    Vissulega eru skiljanleg þessi miklu sárindi ykkar varðandi brottvarps Bónushyskisins úr Högum af Arion, fyrir tilstuðlan og dunað manna eins og Skafta sem hafa aldrei gefið eftir tommu í málinu. Þó svo að blogglúðrasveit Baugsbrókanásnyrtanna hafa tröllað hann allt frá upphafi með útburðarvæli eigandans. Rammfalskir Blogglúðrar sem hafa aldri farið í boltann en einbeita sér að manninum, eins og heiglum er von og vísa. Benda í allar áttir frá því óþægilega.

    Hverju veldur að þið eruð ekki fullfærir um að blogga um alla sem ykkur hugnast á eigin vettvangi? Verður það of áberandi afgreiðsla pöntunar eigandans? Ekki veitir að að einhverjir geta velgt öðrum glæpamönnum undir uggum, eins og Skafta hefur tekist. En það þarf dug og þor, en ekki pissudúkkur og grátkerlingar. Ef að Björgólfur, Davíð, Hannes, Sigurður og allir hinir meintu fantarnir hafa brotið lög og eða fá óeðlilega afgreiðslu mála stjórnvalda eins og Baugshyskið fær frá Arion ríkisbankanum, þá drullist til að reyna að gera eitthvað gagn fyrir utan að hald Skafta glottandi við efnið, að gera það sem fer verst með ykkur og eigendurna. Hafið samt þökk fyrir ykkar þátt, og fyrsta skurðgoðið ykkar er hrunið.

    Einn Baugssnillingurinn vill eigna Sjálfstæðismönnum afrek stjórnvalda á að hygla Björgólfi Thor og þá væntanlega annarra ólánsmanna sem vaða uppi tilbúnir að taka aðra umferð á landsmönnum og þá líka ósmurt. Lengi er von á einum snillingnum á framfæri glæpamannanna, þas. ef þetta er ekki enn einn fjölnikkungurinn til að sýna sjálfum sér samstöðu. Hinir opinberu Baugssnillingarnir þrír hélt maður að væri meira en nóg.

    Nú vill svo til að það er hin tæra vinstri stjórn sem sér alfarið um stjórnun landsins og bankakerfisins. Það vill svo til að hún sótti sitt fólk úr Samfylkingunni 1 & 2 til að leiða endurreisnarstarfið. Gott dæmi eru eftirtaldir hvaðan fjármálasnilldin er sótt.:

    Jónína S. Lárusdóttir var ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins í umboði Samfylkingarinnar, og starfar nú hjá Arion banka sem yfirlögfræðingur hans. Hún er gift Birgi Guðmundssyni, fyrrum viðskiptastjóra hjá gamla Landsbankanum í London og núverandi nefndarmanni skilanefnd Landsbanka Íslands.

    Herdísi Hallmarsdóttur hæstaréttarlögmaður sem situr í slitstjórn Landsbanka Íslands er eiginkona Magnúsar Orra Schram þingmanns Samfylkingarinnar.

    Ingvi Örn Kristinsson aðstoðarmaður fráfarandi félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, og sat/situr í umboði Samfylkingarinnar. Ingvi var framkvæmdastjóri verðbréfasviðs gamla Landsbankans. Einnig starfar hann sem ráðgjafi forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur.

    Benedikt Stefánsson var einn lykilmanna greiningardeildar gamla Landsbankans var aðstoðarmaður raðlygarans Gylfa Magnússonar sem er ekki kjörinn af þjóðinni heldur sérvalinn efnahags – og viðskiptaráðherra af og í umboði Samfylkingarinnar.

    Björn Rúnar Guðmundsson er skrifstofustjóri í efnahags – og viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í greiningardeild gamla Landsbankans. Efnahags – og viðskiptaráðuneytið er á ábyrgð Samfylkingarinnar og Árni Páll Árnason er nýtekinn við embætti ráðherra þess.

    Edda Rós Karlsdóttir er fulltrúi Íslands í AGS/IMF í umboði Samfylkingarinnar. Hún var forstöðumaður greiningardeildar gamla Landsbankans

    Arnar Guðmundsson var starfsmaður greiningardeildar gamla Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra í umboði Samfylkingarinnar.

    Listinn er langt því frá tæmandi, og allar ábendingar um undarlegar mannaráðningar núverandi stjórnvalda, sem sérstaklega geta komið fyrrum vinnuveitendum hrungengi auðróna eru vel þegnar. Yfir helmingur allra ráðninga núverandi stjórnvalda til hins opinbera, eru einkavinavæddir flokkshestar stjórnarflokkanna. Með því hefur þeim tekist að setja nýtt Íslandsmet hvað slíka spillingu varðar, samkvæmt rannsókn Háskóla Íslands undir stjórn talsmanns Samfylkingarinnar og stjórnvalda, Gunnars Helga Kristinssonar.

  •   Gulli spanjòl // 3.9 2010 kl. 18:47

    Jaeja Skapti, thú faerd ad heyra thad og oftar en einu-sinni hjá sumum!!!! Ekki skil ég hvernig menn geta tekid upp hanskan fyrir Baugs-fólkid, ekki thad ad ég aetli ad segja neitt um thad fólk EN ALDREI mundi mér detta í hug ad VERJA thad. Annad hvort er thessum mönnum ílla vid thig (Skapti) eda fá borgad fyrir kommentin, nema hvortvegga sé ;) ) Góda helgi landar.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og þremur? Svar: