Skafti Harðarson

blogg á eyjan.is

Hvað gengur Arion banka til?

3.9 2010 | 19:18 | 18 ummæli

Nú berast fréttir af því að Arion banki hafi gert „kyrrstöðusamning“ við Jón Ásgeir (Gaum). Það þýðir að skuldir Jóns Ásgeirs bera ekki vexti og ekki verður gengið að félagi hans á næstunni.

Hvað gengur bankanum til? Jón Ásgeir hefur hlotið dóm fyrir efnahagsbrot. Hann hefur keyrt fjölda fyrirtækja í gjaldþrot. Hann lumar greinilega á eignum erlendis, eins og nýleg uppgreiðsla hans og konu hans á lánum á lúxusíbúð þeirra í New York sýnir.

Því er vel lýst í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á bankahruninu og í stefnu Glitnis banka fyrir dómstóli í New York hvernig Jón Ásgeir og klíka hans tæmdi íslensku bankana svo að þeir stóðu berskjaldaðir þegar fjármálakreppa skall á í heiminum.

Á þessi maður að fá sérstaka meðferð? Jón Ásgeir er maðurinn sem velti því fyrir sér á sínum tíma að bera fé á þáverandi forsætisráðherra. Hann keypti Samfylkinguna í heilu lagi og suma í öðrum flokkum, jafnvel því miður í Sjálfstæðisflokknum.

Hvaða skýring er á þessu? Það er óhugsandi að Arion banki láti hann fá þessa meðferð af sérstökum mannúðarástæðum. Bankinn gengur hart fram gegn ýmsum öðrum. Því síður ráða rekstrarsjónarmið: Ef svo væri, þá hefði bankinn mestan áhuga á földum eignum Jóns Ásgeirs upp í eitthvað af tugmilljarðaskuldum hans.

Hefur einhverjum tekist að bera fé á einhvern? Hin sérstaka meðferð á Jóni Ásgeiri hlýtur að verða verkefni hins sérstaka saksóknara.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (18)

  •   Baldur McQueen // 3.9 2010 kl. 20:00

    Fínar vangaveltur.

    Framanaf.

  •   Jónsson // 3.9 2010 kl. 20:04

    Fótbolti í kassanum. Mér leiðist fótbolti. Skafti, þú hressir upp á kvöldið eins og alltaf.
    Nú bíð ég bara eftir Guðmundu 2. Gunnarssyni til að fullkomna daginn. Þið eruð toppurinn í skemmtibransanum.
    Bestu þakkir.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.9 2010 kl. 20:20

    Þetta er ótrúlegur farsi. Fyrst henda þeir Jóa kjötfarssala úr Högum með allar flottustu trakteringarnar sem hann fékk frá bankanum í nesti , og lýðurinn öskrar af gleði. Kallinn þóttist fúll til að ergja upp aðeins meiri viðbrögð. Á meðan er gengið frá þessum ótrúlega brandara sem er sagður heita samningur. Er nema von að allt fór til andskotans fyrir tæpum tveim árum. Ný föt – sama röddin.

  •   Jónas Bjarnason // 3.9 2010 kl. 20:57

    Ég þakka fyrir þennan pistil. Auðvitað eiga skuldirnar upp á tugi milljarða, eða þúsund milljarða, að skipta meginmáli. En hvað er að þessum bankastjórum? Hvaða hagsmuni eru þeir að verja? Sína eigin og uppsafnaðrar klíku í kring um sig. Þessir menn, banksterar, eru í stéttarbaráttu. Það á að hreinsa þá út úr bönkunum. Gylfi rann á rassinn með það og á eftir að sjá eftir því. En Árni Páll er enginn maður til að breyta hlutum.

  •   Serafina // 3.9 2010 kl. 21:01

    Það er nú allt í lagi fyrir ykkur í náhirðinni að muna stundum eftir Bakkabræðrum, sem tæmdu alla lífeyrissjóði landsins nánast með því að selja þeim ónýt hlutabréf í Exista.

  •   Bjarni // 3.9 2010 kl. 21:15

    Er ekki Samspilling að endurgreiða flokkstyrki JÁJ með þessu?

  •   Bjarni // 3.9 2010 kl. 21:17

    Mikið var að þú fórst að skrifa aftur Skafti hvorki þú né Hannes hafið bloggað lengi.Nú svitna Baugsarðrónarnir í Samspillingunni.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.9 2010 kl. 21:43

    Jónína S. Lárusdóttir var ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins í umboði Samfylkingarinnar, og starfar nú hjá Arion banka sem yfirlögfræðingur hans. Hún er gift Birgi Guðmundssyni, fyrrum viðskiptastjóra hjá gamla Landsbankanum í London og núverandi nefndarmanni skilanefnd Landsbanka Íslands.

    Herdísi Hallmarsdóttur hæstaréttarlögmaður sem situr í slitstjórn Landsbanka Íslands er eiginkona Magnúsar Orra Schram þingmanns Samfylkingarinnar.

    Ingvi Örn Kristinsson aðstoðarmaður fráfarandi félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, og sat/situr í umboði Samfylkingarinnar. Ingvi var framkvæmdastjóri verðbréfasviðs gamla Landsbankans. Einnig starfar hann sem ráðgjafi forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur.

    Benedikt Stefánsson var einn lykilmanna greiningardeildar gamla Landsbankans var aðstoðarmaður raðlygarans Gylfa Magnússonar sem er ekki kjörinn af þjóðinni heldur sérvalinn efnahags – og viðskiptaráðherra af og í umboði Samfylkingarinnar.

    Björn Rúnar Guðmundsson er skrifstofustjóri í efnahags – og viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í greiningardeild gamla Landsbankans. Efnahags – og viðskiptaráðuneytið er á ábyrgð Samfylkingarinnar og Árni Páll Árnason er nýtekinn við embætti ráðherra þess.

    Edda Rós Karlsdóttir er fulltrúi Íslands í AGS/IMF í umboði Samfylkingarinnar. Hún var forstöðumaður greiningardeildar gamla Landsbankans

    Arnar Guðmundsson var starfsmaður greiningardeildar gamla Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra í umboði Samfylkingarinnar.

  •   Sjalli // 3.9 2010 kl. 22:15

    Mikill munur á hvernig þessir menn eru teknir fyrir Björgólfur Thor gerir upp sýnar skuldir,Björgólfur eldri er gerður gjaldþrota.Jóhannes fær að handvelja þau fyrirtæki og kaupa fyrir milljarð + hundrað milljónir í Bónus.
    Jón Ásgeir fær að halda sýnu vaxtalaust en skuldar fimm milljarða án vaxta.
    Hvernig stendur á þessari mismunum er Safylking á bak við þetta?

  •   Ragnar2Ragnar // 3.9 2010 kl. 23:07

    Já, Skafti þetta er stórfurðulegt.

    Ég meina Jón Ásgeir fær kyrrstöðusamning en Björgólfur Thor fær ekki bara það heldur allar persónulega milljarðaskuldir sínar felldar niður.

    Á meðan skilur þjóðin ekkert í því af hverju ekki er búið að ákæra hann ásamt stjórnendum Landsbankans fyrir svikamylluna Ice-Save!

    Bæði fyrrverandi stjórnendur (m.a. Kjartan Gunnarsson) og eigendur Landsbankans er hægt að sækja persónulega og í raun taka allar þeirra eignir og peninga upp í Ice-Save skuldina sem annars lendir á almenningi.

    Landsbankinn er enn að mestu í eigu ríkisins og þar skiptir mestu að ná til baka öllu því sem hægt er því það skilar sér til okkar/þjóðarinnar.

    Sérstakur Saksóknari hlýtur að fara snúa sér að Landsbankamönnum og verja hagsmuni þjóðarinnar.

    Gerum ekki greinarmun á klíkunum sem Náhirðin stendur fyrir og hinni sem hún hatast við. Það er enginn munur á kúk og skít.

  •   Margrétj // 3.9 2010 kl. 23:25

    @Ragnar2Ragnar

    ALVEG hjartanlega sammála þér. Landsbankinn er jú eini bankinn í eigu okkar og við eigum bara heimtingu á að vita hvernig í veröldinni stendur á þessari höfðinglegu gjöf þjóðarinnar til þessara glæpamanna.

  •   jonasgeir // 3.9 2010 kl. 23:49

    Hvað er eiginlega að ykkur sem skrifið komment hér.
    Farið alltaf að tala um Björgólf.

    Hann er bara ekki að hafa afskipti af málum hér á landi eins og baugshirðin. og kaupa „góðvild“ valdhafa.
    Bara allt annar kapítuli.

  •   Pétur G. // 4.9 2010 kl. 19:42

    Já, Guðmundur 2 – góð upptalning hjá þér.

    „Samfylkingin sér um sína.“ Þetta er nýjasta kjörorð Sakfyllingarinnar, enda er þetta flokksskrífli orðin stærsta vinnumiðlun landsins.

    Ekki má heldur gleyma öllum smámennunum sem hafa fengið vinnu í gegnum þetta flokksskrífli sitt og komist þannig á jötuna hjá ríkinu.

    Hvað eru menn svo alltaf að blanda Björgólfunum inn í umræðuna?
    Björgólfur eldri er t.d. persónulega gjaldþrota, og sá yngri hefur tapað mestöllu sínu hér á landi.

    Það er nú annað með Jón Ásgeir og siðleysingjana vini hans í FL-Group, sem sviku peninga út úr þjóðinni og fóru með þá úr landi og felldu um leið krónuna.
    Svo er þessi lúser, Ólafur Arnarson, að verja gjörðir þessara manna og fær greitt frá þeim fyrir vikið.

  •   sigthor jónsson // 4.9 2010 kl. 19:50

    Veit ekki betur en að Landsbankinn hafi verið að gefa upp persónulegar ábyrgðir BTB, Björgólfur eldri var gerður gjaldþrota en lifir samt ennþá í lúxus.

    Ég er ekki að réttlæta hvernig Arion stendur að Jóni Ásgeiri það er ógeðslegt, en mér finnst furðulegt að menn séu að hafa áhyggjur af því að BTB og Björgólfur eldri fái ekki sömu silkimeðferð og JÁJ… það er bara furðulegt.

    Samt heyrir maður engann sjalla kvarta yfir því að ekki á að reyna að rifta gjörningi Kristjáns Ara og Þorgerðar Katrínar, býst við að allir Sjálfstæðismenn eigi að fá að vera höndlaðir eins og prinsar.

    Svo var það nú þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hafði bein völd í Landsbankanum, hvernig stóð á því að sá banki lánaði svona gríðarlegar fjárhæðir til JÁJ…hreinlega mataði hann og tryggði að veldi hans stæði.

    Það er furðulega réttlætiskennd flokksmanna, sama hvort þeir séu í Sjálfst. eða Samfylkingu, þeir alltaf ná að réttlæta sína menn alveg sama hversu hrikalega þeir svínuðu á þjóðinni.

  •   Thor - námsmaður // 5.9 2010 kl. 16:51

    Já það væri eflaust hægt að skrifa margar skýrslur um tengsl Jóns Ásgeirs við Samfylkinguna o.fl.

    En aftur að málum Arion banka að þá skilst mér að Jón Ásgeir og félagar séu ekki í persónulegri ábyrgð fyrir Gaumi, annars væri bankinn eflaust búinn að ganga hart gegn þeim til þess að fá upp í skuldirnar.

    Er Arion banki ekki einfaldlega að reyna að tryggja hagsmuni sína sem kröfuhafa í þessu máli sem öðrum til þess að fá allt það sem hann á inni sem kröfuhafi? Ég stórefast um að þetta sé gert vegna vinskapar við Jón Ásgeir og félaga, allavega finnst mér persónulega fáranlegt að halda því fram að einhver aðili vingist við þá sem skulda honum hvað mest.

  •   Boltinn // 5.9 2010 kl. 19:04

    Er Gaumur að fá einhverja sérmeðferð? Ég veit ekki betur en að allir íslensku bankarnir hafi verið að gera slíka samninga mj0g títt síðan kreppan skall á.

    Þýðir þetta þar að auki ekki bara tímabundin frysting láns?

    Ég held a.m.k. að Gaumur sé ekki að fá neina sérmeðferð frá Arion, enda sé ég ekki hvers vegna það ætti að vera.

    Mér skilst að með svokölluðum kyrrstöðusamningi geti kröfuhafinn (Arion banki í þessu tilviki) nálgast mikilvægar upplýsingar sem hann annars ætti erfitt með.

    Er þessi tegund samninga ekki þekkt um allan heim? Gúglið endilega hugtakið „stand still agreement“.

  •   Boltinn // 5.9 2010 kl. 20:45

    http://www.landsbanki.is/english/markets/omxinews/?NewsID=303459&orderbookid=5461

  •   future prediction // 17.11 2010 kl. 03:33

    The devil is not so black as he is painted.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og fjórum? Svar: