Ég hef eins og allir aðrir heyrt sagt á kaffistofum og í kaffihúsum: „Björgólfsfeðgar fengu Landsbankann gefins. Þeir borguðu ekki einu sinni fyrir hann, heldur tóku lán í Búnaðarbankanum fyrir honum og skulda enn það lán. Þeir komu ekki með neitt fé inn í landið.“ Þetta hef ég heyrt aftur og aftur.
Nú er komið í ljós að Björgólfsfeðgar greiddu að fullu umsamið verð fyrir bankann, 48,1 milljónir dollara í febrúar 2003 sem þeir greiddu með fé frá útlöndum, 48,3 milljónir í apríl 2003 sem þeir greiddu með láni frá Búnaðarbankanum og 42,7 milljónir í desember 2003 sem þeir greiddu með fé frá útlöndum.
Þeir greiddu lánið frá Búnaðarbankanum að fullu upp í apríl 2005. Það var þriðjungur kaupverðsins. Hinir tveir þriðju komu frá útlöndum eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Þegar fullyrðingar um að Björgólfsfeðgar hefðu ekki greitt fyrir bankann sem þeir keyptu komu fyrst fram, reyndu þeir að svara munnlega, en höfðu ekki gögn þar sem þau voru undir stjórn skiptastjóra í þrotabúum. Þeir voru ekki teknir trúanlegir.
Þótt Landsbankinn hefði verið ótrúlega og raunar óskiljanlega duglegur að lána Jóni Ásgeiri Jóhannessyni fé í ævintýri hans (að ógleymdri lystisnekkju hans, einkaþotu og skrauthýsi), lét Jón Ásgeir miðla sína og leigupenna halda uppi hörðum árásum á Björgólfsfeðga í þessu máli og öðrum, eflaust til að draga athyglina frá eigin bralli.
Munu ekki einhverjir blaðamenn nú stíga fram og leiðrétta eigin skrif?
Skafti Harðarson
Ummæli (17)
Karl // 10.3 2010 kl. 12:05
Satt er það, þetta vekur furðu.
Sjálfur legg ég engan trúnað á þetta fyrr en staðfest hefur verið af slitastjórn bankans.
Hvers vegna leita fjölmiðlar ekki staðfestingar á þessu?
Raunsær // 10.3 2010 kl. 12:15
Afhverju er ekki löngu búið að leiðétta þetta?
Magnús // 10.3 2010 kl. 12:37
Það breytir því ekki að þeir borguðu fyrir bankan með lánsfé og notuðu þá innlán til að borga Búnaðarbankanum/Kaupþing.
Þeir tóku Óla í Olís á Landsbankan! – Þetta var leveraged takeover(skuldsett yfirtaka). Gefinn út gúmmítékki fyrir eign og lausafé í eigninni notuð til að borga eigninna sjálfa.
Það þessi gjörningar sem gagnrýnin snýst um. Þeir áttu aldrei fyrir bankanum í upphafi og fengu hann þar af leiðandi gefins.
Rétt er rétt í þessu máli. Sjálfstæðismenn með Davíð Oddson í fararbroddi gáfu auðmönnum Landsbanka Íslands.
Kristófer Már Kristinsson // 10.3 2010 kl. 12:57
Guð láti á gott vita, nú er hægt að taka þá í sátt og skila bankanum. Biðjast kannski afsökunar og fara aftur í útrás, senda Bjarna Ben í Garðabæinn og láta Davíð fá lyklana að Stjórnarráðinu?
Páll Lárus Atlason // 10.3 2010 kl. 13:21
Þetta er rétt hjá þér Skafti. Auðvitað borguðu Björgúlfsfeðgar lánið sitt eftir að hafa greitt fyrir bankann með því, enda búnir að hagnast vel á starfsemi bankans, leyst krafta hans úr læðingi. Eiginfjárstaða bankans var enda einstaklega góð allt þar til Samfylkingarmaðurinn Gordon Brown setti hryðjuverkalögin á bankann.
Sjalli // 10.3 2010 kl. 13:29
Nú er blogglúðrasveit samfylkingar og Baugspennar í vanda hverju skal fundið uppá nú?
KKB // 10.3 2010 kl. 13:35
Magnús segir:“Það breytir því ekki að þeir borguðu fyrir bankan með lánsfé og notuðu þá innlán til að borga Búnaðarbankanum/Kaupþing. “
Bankar virka einfaldlega þannig að þeir nota það fjármagn, sem til verður við innlán og vaxtahagnað af útlánum, til að reka bankann, borga laun, skuldir og annan kostnað, þannig að varla er hægt að gera athugasemd við það að bankinn hafi borgað skuld með tekjum af innlánum.
Lánið var fyrir 1/3 af kaupverði bankans, þannig að 2/3 voru greiddir út strax við kaupin.
Það má alveg deila um það í mörg ár hvort kaupverðið á bankanum hafi verið gjöf eða ekki. En það breytir því samt ekki, að uppgjöri vegna kaupana sjálfra, lauk þegar þetta lán fyrir 1/3 af kaupvirði bankans var greitt upp í topp.
Það lýsir í raun þeirri stöðu sem Finnur Sveinbjarnarson, bankastjóri Arionbanka hefur tekið með, þeim sem vilja gera þessi viðskipti sem tortryggilegust, vegna þess að ekki hafi verið greitt fyrir þau að fullu; að Finnur hafi gefið þá yfirlýsingu, að það væri ekki bankans, sem hefði umrætt lán ( sem nota bene var tekið nokkrum árum eftir að lánið til kaupa á Landsbankanum var tekið), undir höndum að það lán væri ekki lánið sem tekið var til þess að fjármagna 1/3 af kaupverði Landsbankans á sínum tíma.
Sigurður Sveins // 10.3 2010 kl. 13:58
Frjálshyggjumenn segja aldrei sannleikann.
Hugmyndaheimur ykkar er grundvallaður á lygi og græðgi.
Guðmundur 2. Gunnarsson // 10.3 2010 kl. 14:01
Mikill djöfull. Þar fauk spunakenningin magnaða að Dabbi ljóti hafi gefið Björgólfunum Landsbankann. Og auðvita stökkva spunatrúðar Baugsfylkingarinnar til og „vita“ að ekkert er að marka upplýsingarnar. Nema hvað. Lygar og svindl, eins og þeir þekkja manna best frá eiganda Samfylkingarinnar, Jóni Ásgeir Jóhannessyni hinum stálheiðarlega.
Ef allt frá eiganda flokksins og flokknum um hans skítamál og ótrúlegustsu draugasögurnar í björtu hvað fjármál og hyglun eins og í tilfelli Haga og Arion Finns sýnir er unnið með þeim hætti, því þá ekki þetta útspil Björgólfana?
Blogglúðra og spunasveit Samfylkingunnar og Baugs hefur ekki hentað að spyrja sérráðin spunameistara og (Liars for Hire) Björgólfana, Samfylkingarþingmanninn í fríi, Ásgeir Friðgeirsson, að þessu máli, enda gæti sá vondi átt sér málsbætur. Það hentar blogglúðrasveitinni og flokknum ekki. Frekar en að fari hátt að nánast allir aðstoðarmenn ráðherra og lykilmenn ráðuneytanna eru ráðnir úr rústum stjórnarliðs Landsbanka Björgólfana.
Í dag er Vilhjálmur Þorsteinsson Samfylkingarstjórnandi á bak við tjöldin að tryggja sér og sínum afar áhugavert nýsköpunartækifæri með engum öðrum en stór vini og mútugreiðanda Samfylkingarflokksins, sjálfs Björgólfs Thors, í gagnaverinu á Keflavíkurflugvelli.
Vonandi að Björgólfur Thor þurfi ekki að líða fyrir að hafa mokað opinberlega miljónatugum í söfnunarbauka frambjóðenda, þingmanna, ráðherra og sjálfa Samfylkinguna þegar ákvarðanir um hverjir fá hvað eru teknar af stjórnvöldum. Hvað hefur farið af órekjanlegum peningum er ekki gott að vita?
Úr afar athyglisverðri fréttatilkynningu:
„Stjórnendur Boreas Capital gagnrýna „blogglúðrasveit“ Samfylkingarinnar harðlega.“
„Við erum sagðir vera fyrrum samstafsmenn Björgólfs Thors og reynt að gera okkur tortryggilega þannig. Þá er vert að spyrja „spunavél Samfylkingarinnar“ hvort hún telji þessa fyrrum „samstarfsmenn“ og starfsmenn Bjögólfs Thors hjá Landsbankanum vera tortryggilega og ótrúverðuga? Svo teljum við ekki vera en getum þó bent á eftirfarandi:
• Ingvi Örn Kristinsson er aðstoðarmaður Félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, en hann var framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans. Einnig starfar hann sem ráðgjafi Forsætisráðherra.
• Benedikt Stefánsson var í Greiningardeild Landsbankans og er núna aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Efnahags- og Viðskiptaráðherra.
• Björn Rúnar er skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans
• Edda Rós er núna fulltrúi Íslands í AGS í gegnum Samfylkinguna. Hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans
• Arnar Guðmundsson var í Greiningardeild Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra.
Það er hollt og gott fyrir alla duglega, vinnandi íslenska menn og konur að sjá hvernig „spunavél Samfylkingarinnar“ starfar og gaman að sjá hvernig þessi flokkur ætlar að endurreisa Ísland. Þess má svo geta að við hefðum allir getað farið á þessa fundi með hvaða íslenska stjórnmálaflokki og þingmanni sem er, enda ekkert nema ánægjulegt að geta tekið þátt í því að aðstoða íslensku þjóðina á þessum erfiðu tímum. Það virðist yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar að notaeingöngu embættismenn og sjálfskipaða sérfræðinga úr háskólum landsins í baráttu sinni og halda þjóðinni óupplýstri.
Einnig er sorglegt að horfa á einn íslenskan stjórnmálaflokk, Samfylkinguna setja ESB, AGS og Icesave ofar hagsmunum Íslands.“
http://eyjan.is/blog/2009/10/12/stjornendur-boreas-capital-gagnryna-%E2%80%9Ebloggludrasveit%E2%80%9C-samfylkingarinnar-hardlega/
Bjarni // 10.3 2010 kl. 14:13
Afhverju varstu svona lengi að svara þér sem Guðm 2 Skafti?
Guðmundur 2. Gunnarsson // 10.3 2010 kl. 14:40
Bjarni. Af hverju ert þú jafn illa til þess fallinn að taka þátt í umræðum á spjallvef og raun ber vitni.
Brottfluttur // 10.3 2010 kl. 16:20
Voff Voff
Björgólfsfeðgar fengu víst Landsbankann að gjöf en með þeirri kvöð að bankanum væri fjarstýrt úr Valhöll og Kjartani Gunnarssyni sem átti sæti í stjórn bankans.
Þeir borguðu ekki þetta lán heldur framlengdu lánið með því að taka annað lán sem þeir síðan borguðu ekki. Same Same. Enginn spuni getur breytt því enda er verið að sækja þá fyrir þessi lán.
Smá söguskýring fyrir þá sem eru seinir að fatta:
Davíð Oddsson, er sökudólgur og arkitekt hrunsins enda hrunið frá því í október 2008 helst kallað DAVÍÐSHRUNIÐ.
Davíð gaf Björgólfsfeðgum Landsbankann gegn því að hann gæti fjarstýrt honum í gegnum Kjartan Gunnarsson. Landsbankinn var gjarnan kallaður Sjálfstæðisbankinn í banka-og fjármálaheiminum.
No surprise þar.
Steingrímur Ari, heiðvirður Sjálstæðismaður, sagði sig úr einkavæðinganefndinni vegna þess að honum ofbauð spillingin sem var í gangi hjá Davíð.
Landsbankinn eða frekar Sjálfstæðisbankinn svipti þjóðina fjárhagslegu sjálfstæði sínu og eyðilagði orðspor hennar um ókomna tíð með Ice-Save.
Takk Davíð og náhirðin…
Afleiðingarnar eru hrikalegar fyrir almenning: kjaraskerðing, atvinnuleysi, kaupmáttarrýrnun o.s.frv.
Takk Davíð og náhirðin…
Svo týndist lánabókin.
Surprise
Davíð eyðilagði Sjálfstæðisflokkinn þegar hann hertók flokkinn fyrir tveimur áratugum með öfgaklíku innan flokksins.
Fall þjóðarinnar og Sjálfstæðiflokksins hófst þegar Davíð Oddsson steypti Þorsteini Pálssyni af stóli formanns.
Það eru tvær meginfylkingar í Sjálfstæðisflokknum:
1. Davíðshirðin sem er í dauðateyjunum. Þessi fylking lætur sig sjálfstæðisstefnuna engu varða enda gjörspillt og úrkynjuð í aðferðafræði sinni. Eða eigum við ekki að segja aðferðafræði ærulausa háskólaprófessorsins Hannesar Hó, sem var troðið inn í Háskóla Íslands á sínum tíma af Davíð Oddssyni.
Meginþorri Sjálfstæðismann fyrirlíta kjarna þessarra klíku, þá: Davíðs Oddsson, Hannes Hó og Kjartan Gunnarsson. Fylgi þessarra öfga og ógæfumanna er rúmlega 10% á meðal almennra Sjálfstæðismanna.
2. Meginþorri, 80-90 %, kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Þessi main stream armur flokksins er ekki spilltur og lítur til manna eins og Þorsteins Pálssonar sem góðs og farsæls leiðtoga og Bjarna Ben núverandi formanni. Þarna innan um eru alvöru Sjálfstæðir menn og konur sem trúa á einstaklingsframtakið og standa undir sjálfum sér og gjörðum sínum (sem fyrri klíkan gerir ekki). Þetta er hófsöm main stream fylking sem hefur engan áhuga á öfgum Davíðsarmsins og Náhirðarinnar en var dregin með nauðug/viljug á tímum Davíðs.
Síðarnefndi armurinn hefur skömm á þeim fyrri en sá fyrrnefndi, Davíðs Náhirðin, á allt sitt undir að geta AFTUR dregið main stream fylkingun út í sínar destructive öfgar. Þeir eru líka orðnir gamlir menn.
Þjóðin vill ekki sjá Sjálfstæðisflokk Davíðs Oddssonar, Kjartan Gunnarssonar og Hannesar Hó enda veit hún að þeir ollu mestu tjóni, bæði fjárhagslegu og siðferðislegu.
Þjóðin bíður þess að Bjarni Ben og hófsamari (skynsamari) armur flokksins, hin fjölmenna frjálslynda fylking, taki af skarið og skeri æxlið af Sjálfstæðisflokknum.
Við vitum hvert æxlið er, hvar það er staðsett og hvernig á að losna við það.
Spurning er bara: Hvenær verður það gert? Ef ekki fljótlega þá smitast meinið út um allan flokkslíkamann og ekkert verður við ráðið líkt og áður- og flokkurinn verður dæmdur til að sitja á hliðarlínunni næstu árin.
Bjarni Ben, do what needs to be done.
Guðmundur 2. Gunnarsson // 10.3 2010 kl. 16:35
Neeiiiii,……. mannvitsbrekkana brottflutta kanna að copy/paste.
En eitthvað vefst það fyrir honum þegar menn greiða fyrir hluti, þá kaupa þeir þá. Þegar menn greiða ekki fyrir hluti, þá annað hvort fá þeir þá gefins eða stela þeim. Á þessu er mikill munur, sem og hvar sannleikurinn liggur í skrifum þess brottflutta sem illu heilli flutti sannleikann ekki með sér.
En geltir hann ekki örugglega fyrir Baugsfylkinguna og eiganda flokksins Jóns Ásgeir?
Raunsær // 10.3 2010 kl. 17:52
Væri gott að lánabók LÍ yrði gerð opinber fljótlega þar mun ýmislegt koma í ljós.
En hef trú á því að pólitíkusar og ýmis stór nöfn á Íslandi muni með öllum ráðum reyna að hindra að henni verði lekið.
Dúddi // 10.3 2010 kl. 18:01
dv.is segir þetta rugl og arion sé að rukka lánið sem standi í 5 billum.
Erna Ólafsdóttir // 12.3 2010 kl. 16:35
Jájá. Davíð er fórnarlamb, að ég tali nú ekki um Icesave Bjöggana. Guð minn á himnum, hvenær á að viðurkenna glæpina sem þessir menn frömdu í OKKAR nafni?? Hvenær??
Sjalli // 12.3 2010 kl. 17:56
@Erna
Davíð og Bjöggarnir eru saklausir af hruninnu.Ertu í blogglúðrasveit Samspillingar og Baugspenni?
Rita ummæli