Skafti Harðarson

blogg á eyjan.is

Vel mælt hjá Braga

9.3 2010 | 18:46 | 33 ummæli

„Þjóð sem lætur völdin í hendurnar á þjófum og glæpamönnum, hlýtur að gera ráð fyrir að einhverju verði stolið frá henni.“

Þetta er úr Hænuungunum eftir Braga Ólafsson. Þetta er vel mælt. Ég ætla að vísu ekki að ganga svo langt að kalla þá sem höfðu hér öll völd 2004–208 þjófa og glæpamenn. Þeir voru hins vegar áreiðanlega óreiðumenn eins og Davíð Oddsson benti á.

En hverjir voru þeir sem höfðu hér öll völd? Það voru Baugsfeðgar og bandamenn þeirra á Bessastöðum, í dómstólum og stjórnmálaflokkum (Borgarnesræðufólkið) að ógleymdum leigupennum þeirra á fjölmiðlunum. Það var ekki fyrr en eftir 2004 sem allt jafnvægi raskaðist á Íslandi og hin gegndarlausa skuldasöfnun hófst (eins og sést þegar tölur um erlendar skuldir þjóðarbúsins eru skoðaðar; þar markar 2004 tímamót).

Mikil og hörð átök voru á Íslandi sumarið 2004. Davíð Oddsson tapaði þeim átökum. Baugsfeðgar og þotuliðið í kringum þá unnu. Dómstólar dæmdu allt of lint í málum þeirra. Bessastaðabóndinn hafði þá sem heiðursgesti í boðum sínum. Leigupennar þeirra glefsuðu eins og óðir hundar í hæla Davíðs. Margir stóðu hjá (t. d. Egill Helgason) en með því aðstoðuðu þeir í raun Baugsfeðga og bandamenn þeirra.

Núna eru Baugsfeðgar að snúa aftur með aðstoð vinstristjórnarinnar. Þeir hafa augljóslega gert samkomulag við hana um að fá að halda fyrirtækjum sínum eins og Högum gegn því að Baugsmiðlarnir og Baugspennarnir styðji stjórnina. Ekki er von á góðu ef marka má Braga Ólafsson.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag · Viðskipti og fjármál | Facebook



Ummæli (33)

  •   Dúddi // 9.3 2010 kl. 18:55

    Bjórúlfar og s hópar byrgðu DO sýn, svo hann gat ekki beitt sér að öllu afli.

  •   Lína Langsokkur // 9.3 2010 kl. 19:09

    Ég held þú þurfir að þrífa gleraugun þín Skafti. Hér réð Sjálfstæðisflokkurinn með allri sinni eyðileggjandi stefnu og óráðsíu. Ekki pistlahöfundar eða leikmenn þess kerfis sem Sjálfstæðisflokkurinn skapaði. Við skulum hafa það á hreinu.

  •   Sjalli // 9.3 2010 kl. 19:10

    Rétt mælt Egill Helgason er einn Baugspenna,Björgólfur,Kjartan og Davíð reyndu með öllum mætti að stoppa Jón Ásgeir en Baugspennarnir stóðu á móti.

  •   Sjalli // 9.3 2010 kl. 19:24

    @Lína Langsokkur

    Ert Baugspenni greinilega hvað færðu borgað mikið?

  •   Kjartan I-save Gunnarsson // 9.3 2010 kl. 19:31

    Er ég þá bæði óreiðumaður og glæpamaður?

    Ég tók jú ákvörðun um að setja Icesave reikningana í gang árið 2006 og Davíð Oddsson leyfði okkur að gera það!?!

    Hann varaði okkur ekki við (og engan annan heldur)…

  •   Karl // 9.3 2010 kl. 19:35

    Rétt greining hjá Skafta.

  •   Arnar // 9.3 2010 kl. 19:41

    Hér er manneskja sem í raun varaði við og gerði það strax 2004 enda skuldaaukningin og vöxtur bankanna þá þegar ljós:
    http://www.althingi.is/johanna/pistlar/safn/001242.shtml

  •   Sjalli // 9.3 2010 kl. 19:52

    @Arnar
    Ert Baugspenni.

  •   stefán benediktsson // 9.3 2010 kl. 20:02

    Jóni og Jóhannesi má alltaf setja takmörk með lögum, en Sjálfstæðismenn misskilja alveg hugtakið „opinber afskipti“ og halda að það nægi bara að krefjast þess að menn verði dæmdir. Það tókst ekki þá því lögin voru ekki nógu skýr og afmarkandi. Það er ekki hægt að kenna Jóni og Jóhannesi um ófullkomna löggjöf. En lögin má bæta það þarf bara að vilja það. Það voru allir af vilja gerðir að ná fram dómum þá, enda allir í Sjálfstæðisflokknum, rannsakendur og dómarar……..og sakborningar………….og verjendur.

  •   Arnar // 9.3 2010 kl. 20:06

    @Stefán Benediktsson
    Sú sem varaði við velti þessu einmitt sérstaklega upp með alvarlegan tilflutning valda í samfélaginu með einkavinavæðingu bankanna:
    http://www.althingi.is/johanna/pistlar/safn/002115.shtml

  •   Atli // 9.3 2010 kl. 20:07

    Já Bragi er góður penni en orðum hans er greinilega sóað á hann Skafta.

  •   Arnar // 9.3 2010 kl. 20:14

    @Atli
    Þetta er endurritun sögunnar sem birtist hér.

    Góður maður færði þjóð sinni frelsi sem leysti úr læðingi hið jákvæða afl fjármagnsins og skóp gífurlega hagsæld. En vondir menn voru á stjái og misnotuðu frelsið. Þegar góði maðurinn vildi taka á þeim og brotum þeirra höfðu þeir mútað og spillt heilum stjórnamálaflokki sem varði þá með kjafti og klóm svo góði maðurinn gat ekkert gert, sama hvað hann reyndi. Hann hélt áfram að reyna að vara við en enginn hlustaði og svo fór að lokum að allt hans góða starf var að engu gert vegna glæpa vondu mannanna.

    Myndi sóma sér vel í Grimmsævintýrum.

  •   Haukur G. // 9.3 2010 kl. 20:31

    Skafti hefur þú lesið borgarnesræðuna nýlega? Þetta er óður til frjálshyggjunar! Hélt þú værir hrifinn af svoleiðis. Eða ertu stjórnlyndismaður eins og Davíð Oddsson?

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 9.3 2010 kl. 20:52

    Annað stórskáld sem var í framboði hjá VG, Einar Már Guðmundsson, hefur skrifað um tengsl Baugsmanna og hinna útrásarauðrónanna, fjölmiðla, Samfylkingunnar, VG og forsetans. Skrifað 22.02.2009

    „Því má jafnvel halda fram að þetta ferli hafi hafist í fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnars Grímssonar þegar sýna átti að vinstrimenn væru ekki minni fjármálamenn en hægrimenn. Sumir hafa túlkað þetta þannig að það þyrfti bara að veðja á rétta aðila og þegar „götustrákunum“ var úthýst úr Valhöll var þeim boðið í náðarfaðm jafnaðarmanna. Svo tóku ímyndarfræðingarnir við, sömdu ræður útrásarvíkinga með annarri hendinni og kynntu stefnu Samfylkingarinnar og forsetans með hinni. Þróun forsetans er hnignun jafnaðarstefnunnar í hnotskurn og slíkt verður ekki gert upp í einni áramótaræðu. Af hverju kallar forsetinn ekki vini sína, útrásarvíkingana, til sín og skipar þeim að skila góssinu, því hagfræðingar segja að það sé ekki fræðilegur möguleiki að búið sé að eyða þeim skuldum sem stofnað var til. Þetta er eina leið forsetans til að ávinna sér traust þjóðarinnar. Í stað þess að bjóða útrásarvíkingunum í mat með amerískum fjárglæfrakonum á hann að taka þá á beinið og skikka þá til. Þannig myndi forsetinn skrá nafn sitt í sáttargerðarbók sögunnar eins og gert var á Þingvöllum fyrir um þúsund árum. Ella mun hann horfa upp á meiri stéttaskiptingu, dýpri skotgrafir og algjört vantraust, því bæði hann og jafnaðarmennirnir í Samfylkingunni tóku þátt í að blekkja þjóðina og alþjóðasamfélagið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þar liggur ábyrgðin, blaðið sem nú þarf að snúa við.“

    Rétt upp hönd sem hefur séð sannari og réttari skrif um hvernig kaupin gerðust á eyrinni fyrir hrunið.

  •   Skítlegt eðli // 9.3 2010 kl. 21:21

    AriJón telur JJ eiga að taka aftur við stjórn Haga
    35% kjósenda telur FLokkinn eiga að taka aftur við stjórn Ísl.

  •   Anna // 9.3 2010 kl. 22:00

    Skafti – þú hefur bersýnilega aldrei lesið Borgarnesræðu..

    „Stuttu fyrir kosningarnar til borgarstjórnar 1994 hitti ég gamlan skólafélaga minn sem er ábyrgðarmaður í Sjálfstæðisflokknum og áhrifamaður í stóru fyrirtæki og við höfum í sjálfu sér aldrei átt samleið, enda fara pólitískar skoðanir okkar ekki saman. Hann sagði við mig þegar leit út fyrir að við í Reykjavíkurlistanum mundum vinna þessar kosningar 1994, þá sagði hann við mig: ,,Hvernig á ég að fara að með mitt fyrirtæki ef þú sigrar í kosningunum? Hvaða fyrirgreiðslu fáum við þá hjá borginni?” Margur heldur mig sig.Svarið er bara eitt: Þið fáið þá fyrirgreiðslu sem er sanngjarnt og eðlilegt að fyrirtækið njóti. Þið fáið þá þjónustu sem fyrirtækinu ber og við getum veitt því á málefnalegum og eðlilegum grundvelli. Og þannig hefur það að sjálfsögðu verið.En það kom líka til mín fólk eftir kosningarnar 1994 þegar við höfðum náð meiri hlutanum, þá kom líka til mín okkar fólk, fólk sem er okkar megin í pólitíkinni og sagði: ,,Ja, nú er komið að okkur. Nú er komið að því að við fáum sæti við kjötkatlana þar sem sjálfstæðismenn hafa setið í hartnær 60 ár.” En það er rangt. Það var ekki komin röðin að þeim að setjast við neina kjötkatla því að það er ekki rekin nein kjötkatlapólitík, a.m.k. ef ég fæ einhverju um það ráðið. Fólk verður að keppa um störf og verkefni á grundvelli hæfni sinnar og reynslu en ekki flokksskírteina.“

  •   Raunsær // 9.3 2010 kl. 22:08

    @Anna

    Þrátt fyrir að Reykjavíkurlistinn var ekki alvondur þá var Ingibjörg dugleg við að ráða gamlar vinkonur úr kvennalistanum í störf hjá borginni.
    En hvernig fyrirtæki eins og Hiaveitan,Vatnsveitan og Rafmagnsveitan voru skemmd með því að Alfredo fékk að skemma þessi góðu fyrirtæki með OR var skandall keyptar veitur útum allt sem við Reykvíkingar niðugreiddum.

  •   Kristleifur Daðason // 9.3 2010 kl. 22:12

    HA HAHAHAAAA aaaa shjitt

    SALA BANKANNA. Hver fór með völdin þar? Hver fékk völdin yfir bönkunum?

    STJÓRN SEÐLABANKANS. Hver fór með völdin þar?

    Að skipta heiminum upp í Davíð Oddsson vs. Baug er háttur einfeldninga. En það stórkostlega fyndna við þessa skiptingu er að báðar hliðar hafa rétt fyrir sér: Bæði liðin eru full af fávitum, þjófum og glæpamönnum. Tuðið ykkur nú hása, svona í eftirmat eftir vel unnin störf, báðum megin við grindverkið.

  •   Sæi // 9.3 2010 kl. 22:18

    En góðu mennirnir eru Davíðs meginn og ljótu og vondu mennirnir eru Baugsmeginn og allir sem eru ekki Davíðsmeginn eru Baugspennar.

  •   Sjalli // 9.3 2010 kl. 22:22

    @Kristleifur

    Ert sannkallaður Baugspenni.

  •   Þorsteinn H // 9.3 2010 kl. 22:27

    Í hendurnar á hverjum létu Sjálfstæðismenn flokkinn sinn.

  •   Sigg // 9.3 2010 kl. 22:28

    Frábær pistill Skafti, gæti ekki verið meira sammála.

    Nú er það okkar að passa uppá það að lífeyrissjóðirnir okkar fjárfesti ekki aftur í Baugsfeðgum og í Högum.

  •   Einar Karl Friðriksson // 9.3 2010 kl. 22:30

    Ég gef pistlahöfundi „benefit of doubt“, að hann sé ekki hreinræktaður fáviti. Þá eru tveir möguleikar í stöðunni:
    i) Hann skrifar þessa þvælu fyrir fávita.
    ii) Hann trúir því í alvöru að í gangi hafi verið og sé enn eitt svaka samsæri „Baugsmafíunnar“ og pólitískra leiguliða hennar um að taka öll völd á Íslandi – vegna þess að þaðan sem hann kemur þá virka hlutirnir þannig. Menn eru í klíkum og koma sínum að, greiði gegn greiða, ráða sína dómara, forstjóra, ritstjóra, auðmenn kaupa sér völd…
    En Skafti, allt Ísland virkar ekki svona, þó svo „gamla Ísland“ undir stjórn þíns gamla kolkrabbaflokks hafi verið einmitt nákvæmlega svona.

  •   Bjarni // 9.3 2010 kl. 22:30

    Frábær pistill Skafti segir frá A-Ö hvernig Baugliðar arðrænu landið en einu mennirnir sem vöruðu við þeim voru þú Hannes og Davíð.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 9.3 2010 kl. 22:37

    „Borgarnesræða Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur forsætisráðherraefnis Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar vorið 2003 sló tón sem Samfylkingin hélt æ síðan. Hún nefndi sérstaklega þrjá aðila í viðskiptalífinu sem hún taldi Davíð Oddsson hafa farið illa með; Baug, Kaupþing og Norðurljós, sem þá voru í eigu Jóns Ólafssonar.

    Samfylkingin gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn almennt og Davíð Oddsson sérstaklega fyrir stjórnlyndi. Þessi taktík Samfylkingarinnar var til að sækja stuðning frá viðskiptalífinu en þar á bæ vildu menn fá meira svigrúm til athafna. Í Borgarnesræðunni gekk Ingibjörg Sólrún svo langt að taka undir með Baugsfjölskyldunni að rannsókn yfirvalda á starfsemi félagsins væri í þágu hins stjórnlynda Davíðs.

    Samfylkingin er ekki saklaus af því að hlaða undir útrásarauðmenn og grafa undan yfirvöldum sem tóku háttsemi auðmanna til rannsóknar – löngu fyrir hrun, vel að merkja.“

    http://tidarandinn.is/node/95435

  •   Sjalli // 9.3 2010 kl. 22:43

    Hérna er eitthvað fyrir Baugsliða til að lesa.

    http://www.amx.is/skjalasafn/264bb17f00e419b8e78270cff621ed14/original.pdf

  •   ala // 9.3 2010 kl. 23:16

    Skafti þettað er allt rétt hjá þér,þú ert mjög góður á þettað lið

  •   steini // 9.3 2010 kl. 23:25

    Sjalli málefnalegur. Komdu svo með það, ég bíð.

  •   Sjalli // 10.3 2010 kl. 10:03

    @Brottfluttur

    Ertu Jón Ásgeir? þvílíkt rugl og fjarri sannleika.

  •   J'on Ásgeir // 10.3 2010 kl. 10:29

    Mikið rætt hér, enda ágætur pistill.
    Eins og málin hafa þróast kemur betur og betur í ljós að Davíð er einkennisberi hógværðar í fjármálum.
    Á svipaðan hátt og kanski Garðabær, Seltjarnarnes og Vestmannaeyjar.
    Kratasveitarfélögin eru verst á kúpunni eftir óráðsíutímana. Hafnarfjörður, Álftanes o.s.frv.
    Jón Ásgeir nafni minn er augljósasta dæmi taumleysisins, og það er klárt hvaða pólitísku öfl samfélagsins hann hefur stutt.
    Og það er líka aldeilis að bjarga honum. Þetta eru öfl sem líkar ekki illa að senda reikningana hans á almenning. Og helst að fá lífeyrissjóðina til að endurfjármagna sig í þokkabót!

  •   Sjalli // 10.3 2010 kl. 11:18

    Merkilegt hve sveitarfélögin sem Sjálfstæðismenn stjórna eru öll velstæð en Kratasveitarfélöginn eru öll á hausnum.

  •   Hermann Ó. // 10.3 2010 kl. 12:13

    Eru menn ennþá virkilega að halda því fram að þessi svokölluðu Baugsmál hafi eitthvað með efnahagslegt hrun landsins að gera? Þetta voru margra ára smámál, runnin undan rifjum gamals viðskiptafélaga, sem á endanum var sjálfur dæmdur fyrir svindl. Þessi máleferli voru bara svo óskaplega ótrúverðug í ljósi þess að fram að þeim tíma hafði Morgunblaðið áratugum saman haft algjöra einokun á blaðamarkaðnum án þess að amast væri yfir því!
    Og svo þetta endalausa „Baugspenna“ tal, þetta er eins og biluð vínilplata! Það hlýtur að blasa við að þessar samsæriskenningar ganga bara ekki upp, Fréttablaðið t.d. lengi vel ritstýrt af fyrrum formanni Sjálfstæðisflokksins og núna af annáluðum sjálfstæðismanni! Hvernig er hægt að halda endalaust áfram undir með þetta „leigupenna/Baugspenna“-bull?

  •   Kristleifur Daðason // 10.3 2010 kl. 13:29

    Hermann Ó., það verður haldið áfram með þetta svo lengi sem það borgar sig. Og það verður lengi: Það verða alltaf einfeldningar til að gleypa við þessu.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af þremur og fimm? Svar: