Skafti Harðarson

blogg á eyjan.is

Jóhanna bugast — Steingrímur ofmetnast

7.2 2010 | 18:15 | 14 ummæli

Illa er komið fyrir tveimur aðalforystumönnum ríkisstjórnarinnar.

Í miðju annríkinu eftir synjun forsetans, tilraunum til að taka Icesave-málið upp við Breta og Hollendinga og undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslu rýkur Jóhanna Sigurðardóttir til útlanda í frí. Þetta er ekki eðlilegur tími til að fara í frí. Það blasir við að Jóhanna ræður ekki við starf sitt. Það er henni ofviða.

En áður en menn fara að vorkenna henni þarf að muna að hún hefur alltaf beitt frekju og hótunum sem ráðherra og að hún lét verða sitt fyrsta verk sem forsætisráðherra (svo að ekkert annað komst að vikum saman) að hrekja gamlan samstarfsmann sinn úr embætti seðlabankastjóra. Það var valdníðsla af verstu tegund.

Við Jóhönnu má segja það sem Harry Truman Bandaríkjaforseti sagði: „If you can’t stand the heat, get out of the kitchen.“

Steingrímur J. Sigfússon hefur hins vegar ofmetnast yfir hinum skjóta frama sínum. Hann heldur greinilega að hann sé orðinn einhver mannkynsfrelsari. Þegar bent er á mótsagnir í máli hans fyrr og nú og slaka stjórn í Icesave-málinu (sem jafnvel Samfylkingarmenn eru farnir að skrifa um) svarar hann aðeins með gagnárásum, skömmum og svívirðingum. En líklega rekur Steingrímur sig fljótlega á það að dramb er falli næst.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag · Viðskipti og fjármál | Facebook



Ummæli (14)

  •   Rósa // 7.2 2010 kl. 18:35

    Ríkisstjórnin er að leysast upp.

    Ég efast um að hún lifi mánuðinn,

  •   Kjartan Isave Gunnarsson // 7.2 2010 kl. 18:47

    Þá komumst við frjálshyggjuöfgamenn aftur til valda.

  •   X no // 7.2 2010 kl. 18:52

    Nýfrjálshyggjutalibanar til valda í boði steingríms og jóhönnu sem munu brillera í stjórnarandstöðu.

  •   Ari // 7.2 2010 kl. 19:29

    Draslgreining á stöðunni sem er full af rangfærslum og óskhyggju að þinni hálfu og að gera fólki upp tilfinningar og skoðanir. Bara ætlað til að tala niður pólítízka andstæðinga þína.

    Það þurfti annars að hrekja Davíð út þar, orðspor Íslands þurfti að reisa við og HrunDavíð gat ekki verið lengur þarna inni ef Ísland ætlaði að hafa sömu ímynd yfir sér. Maðurinn er álitinn eitt stórt djók í útlöndum.

  •   Þorsteinn // 7.2 2010 kl. 19:50

    Ó! Kvenfyrirlitningin í því að nota þessa ákveðnu tilvitnun í þessu ákveðna samhengi er einkar skemmtileg fyrir málstað þinn, hvort sem hún er meint eða ekki. Ég hreinlega verð að óska þér til hamingju!

  •   tryggvi // 7.2 2010 kl. 20:27

    Vel mælt Skapti og hárrétt greining. Steingrímur Joð er ofmetnasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar. Í raun á Steingrímur allt ruglið eftir hrun hann leiddi Indriða til valda í skattaruglinu. Hann lét Svavar og Indriða klúðra Icesave málinu gjörsamlega á allann hátt. Steingrímur passar vel upp á Svandísi sem stoppar alla atvinnusköpun í landinu. Það er alveg sama hvernig maður skoðar þetta Steingrímur og Jóhanna verða að fara frá.

  •   tryggvi // 7.2 2010 kl. 20:28

    Skafti átti þett að vera:)

  •   Björgvin Þór // 7.2 2010 kl. 20:37

    „gamlan samstarfsminn sinn“:) Fyndið hjá þér.

  •   Sig. Sig. // 7.2 2010 kl. 21:31

    Það er engan bilbug að finna á ykkur frjálshyggjumönnunum sem settu landið á hausinn.

    Þið viljið komast að völdum aftur til að ræna þjóðina á ný.

    Svo mikið er víst.

    Rógburður ykkar um Steingrím og Jóhönnu, sem eru heiðarlegt fólk, er ósæmilegur og til skammar.

    Þið virðist vera siðlaus lýður, réttnefnd náhirð.

  •   tryggvi // 7.2 2010 kl. 22:39

    Sig Sig

    Hver er rógburðurinn um Steingrím og Jóhönnu? Þetta eru bara staðreyndir.

    Steingrímur og Jóhanna hafa engar lausnir og eru vanhæf í öllu tilliti. Ég hef ekki áhuga á að breyta Íslandi í Austur-Berlín.

    Frekar vil ég þá fá Sjálfstæðisflokkinn aftur þó hann sé ekki fullkominn og langt því frá frjálshyggjuflokkur.

    En ég mun alltaf styðja frelsið annað en vinstri menn sem boða sífellda foræðishyggju.

  •   Skítlegt eðli // 7.2 2010 kl. 22:47

    Eina leiðin fyrir Þjóðverja til þess að geta litið í spegil eftir stríðið var að banna FLokkinn sem olli hruninu þá.
    Hvað gerum við?

  •   Comon // 7.2 2010 kl. 23:50

    Davíð var skotspónn vinstri manna – þannig að það hálfa hefði verið hellingur.

    Þeir óttuðust getu hans í stjórnmálum – og með réttu.

    Steingrímur er að verða „Davíð“ okkar hægri manna.

    Hann er mælskur í viðtölum, sterkur ræðumaður, hefur sterka stöðu í sínum flokki og ferill hans í stjórnmálum hefur verið ein samfelld sigurganga – ef frá er talinn ósigurinn fyrir Margréti í formannsembætti Allaballa.

    Þar hafði hann fráfarandi formann á móti sér – núverandi forseta!

    Steingrími skortir þó illilega gamansemina og sjarmann – sem Davíð hafði (og hefur) og þjóðin kunni vel að meta.

    Gallinn við Steingrím er að langdvöl hans í stjórnarandstöðu (19 ár) hefur gert hann ofurseldan valdinu.

    Hann getur ekki hugsað sér að fara aftur í stjórnandstöðuna – ekki frekar en tugthúslimur sem setið hefur inni í 19 ár – og fær dreypt á frelsinu – getur hugsað sér að fara aftur í klefann sinn.

    Fyrr lætur hann skjóta sig dauðann – en taka sig fastan!

    Og þá verða prínsipp léttur farangur.

    Aldrei í ESB, deilumál í þjóðaratkvæði, borgarastyrjöld frekar en Icesave og allt upp á borð – breytist í að pólitísk nauðsyn sé að sækja um aðild að ESB, Icesave sé of flókið fyrir þjóðina, Icesave sé nauðsyn og það sem þjóðin veit ekki – skaði hana ekki!

    Steingrímur verður borinn út úr Stjórnarráðinu með lappirnar á undan dragandi neglurnar eftir veggjunum…!

    Þessi staðreynd eyðileggur Steingrím sem stjórnmálamann hugsjóna – en býr í leiðinni til annan – mun hættulegri en hefðbundinn baráttumaður sósíalismans er.

    Stjórnmálamann hentistefnunnar.

  •   siðspillingin // 8.2 2010 kl. 08:44

    fattar virkilega enginn að Steingrímurér vanhæfur í Icersave málinu….. maður sem reyndi að troða þessu máli í gegn óséð, sem besta samninginn, glæsilega niðurstöðu. hann getur ekki átt að vera í forsvari fyrir nýjan og betri samning…. í öllum öðrum málum yrði krafan að Steingrímur fjármálaráðherra nýlenduríkjanna ætti a segja sig frá málinu með mikilli skömm, en ég er búinn að komast að því hver er höfuðskáld Samfylkingarinnar…. Megas “ svo böl bæta að benda á eitthvað annað „

  •   Jóhanna // 10.2 2010 kl. 14:17

    Hér þyrfti að banna alla flokka, og ráða einhvern sem verður einræðisherra.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og fjórum? Svar: