Skafti Harðarson

blogg á eyjan.is

Samkomulag í sjónmáli?

6.2 2010 | 11:24 | 4 ummæli

Nú í dag skrifar Fréttablaðið að samkomulag kunni að vera í sjónmáli í Icesave-málinu. Hollendingar og Bretar leggi aðeins áherslu á að fá höfuðstólinn greiddan, en séu reiðubúnir til að semja um vexti og afborgunartíma. Þeir vilji hins vegar ekki fara dómstólaleiðina. Líklega fáist meira upp í Icesave-skuldina með sölu úr búi Landsbankans en áður hafi verið talið.

Þessar fréttir eru afar athyglisverðar. Í fyrsta lagi þarf að spyrja: Hvers vegna vilja Bretar og Hollendingar ekki fara dómstólaleiðina? Auðvitað vegna þess að þeir eru hræddir um að niðurstaðan yrði þeim ekki í hag. En það merkir að Þórólfur Matthíasson, Friðrik Már Baldursson, Þorvaldur Gylfason og aðrir spekingar sem hafa varað við dómstólaleiðinni eru líklega að fara með fullkomið fleipur.

Í öðru lagi er eins og glæpurinn mikli í Icesave-málinu sé að gufa upp, ef Landsbankinn á fyrir Icesave-skuldunum sem Bretar og Hollendingar eru að reyna að leggja á Íslendinga. Samt hafa eignir bankans vitanlega rýrnað mikið af því að Bretar settu hann á lista yfir hryðjuverkasamtök. Þeir bera höfuðábyrgð á því að eignirnar seljast ekki á eins háu verði og búast hefði mátt við og eiga sjálfir að bera skaðann af því.

Í þriðja lagi blasir við af þessu að íslensku samninganefndarmennirnir í Icesave-málinu, Indriði H. Þorláksson og Svavar Gestsson, náðu verri samningum en unnt er að ná við Breta og Hollendinga. Þessir samningar voru staðfestir með atkvæðum flestra stjórnarliða.

Ef eitthvað reynist til í þessum fréttum, þá eru það stjórnarandstæðingar og Ögmundur Jónasson sem höfðu rétt fyrir sér allan tímann um að Svavar og Indriði hefðu samið af sér. Getur verið að liðið í kringum Jóhönnu sjái þetta sama og hafi þess vegna ákveðið að láta hana segja í Kastljósi nýlega að líklega hefði verið skynsamlegra að hafa vanari samningamenn en þessa tvo?

Auðvitað sömdu þeir Indriði og Ögmundur af sér. Þeir fóru til að semja, en komu aðeins heim með reikninginn frá Bretum og Hollendingum! Og Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir tóku fulla pólitíska ábyrgð á samningnum.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (4)

  •   Sigurður Sigurðsson // 6.2 2010 kl. 12:32

    Ég mæli með því að menn lesi vandlega grein Kristrúnar Heimisdóttur, ef hún hefur rétt fyrir sér þá hefur Steingrímur ekki fylgt eftir þeim markmiðum sem sett voru í upphafi. Litið framhjá Brussel markmiðunum og klúðrað samningunum big time. Svavar og Indriði höfðu undarlega sýn á samningsmarkmiðin og virðast ekki hafa haft fyrir því að reyna að tala máli íslands. Megi þeir hafa ævarandi skömm fyrir

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 6.2 2010 kl. 13:51

    Við skulum ekki gleyma að nánast allir stjórnarliðar voru tilbúnir að rústleggja þjóðfélagið með að samþykkja Icesave glæsilegu niðurstöðu Svavars og Steingríms án þess að hafa minnstu hugmynd um út á hvað hann gekk.

    Sömu aðilar hafa barist með kjafti og klóm að það náist ekki betri samningur hvað sem það kostar. Ma. er sendur grínfígúra í dulargerfi hagfræðiprófessors í víking til Noregs til að reyna að eyðileggja þann möguleika að þarlendir sem hafa opnað augun fyrir fáránleikafarsa Jóhönnu og Steingríms, leggi fram hjálparhönd. Svo grenja þessi þorpsfífl vegna þess að einhverjir vilja meina að afbrygðilegar hermdarframgöngur slíkra ólánsmanna er kölluð landráð og viðkomandi Quislingar. Er nema von að hagfræðin spilaði jafn stóra rullu og er ábyrg fyrir hörmungum þjóðarinnar fyrir hrun, ef slíkir ofvitar eru þeir sem kenna hagfræðinemum við æðstu menntastofnun þjóðarinnar? Það væri áhugavert að fá að vita hvort að fjármálaráðuneytið hafi aðstoðað prófessorinn með að greiða kostnað við að rakka niður þjóðina og hagsmuni hennar, á meðan að Stefán Már Stefánsson lagaprófessor og Lárus Blöndal hrl. eru ekki virtir viðlits varðandi það að fá sínar rannsóknir birtar erlendis við að kynna málstað þjóðarinnar. Það hentar ekki ríkisstjórninni sem vill ekki betri samning.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 6.2 2010 kl. 15:01

    Af gefnu tilefni, spurði Andrés Magnússon blaðamaður fyrir nokkrum mánuðum á bloggsíðu sinni hvort að einhver samningamaður sem tóku þátt í að landa samningnum „hafi haft nokkra reynslu af alþjóðalegri samningsgerð?“ Sennilega er réttara að spyrja hvort einhver þeirra hafi haft reynslu af samningsgerð yfirleitt? Nú hef ég heyrt að spurningin hafi upprunalega komið frá einum samninganefndarmannanna sem var afar óánægður með vinnubrögð stúdentsins, nefndarformannsins, og ekki síst að að vera bendlaður við óskapnaðinn glæsilega sem Svavar tók að sér að leysa á eigin spýtur vegna leti, eftir nákvæmlega 1 fund samninganefnda landanna þriggja. Ekki er ósennilegt að sá sami samninganefndarmaður er sá sem bjargaði þjóðinni frá stórkostlegum skaða með að leka samningshroðanum glæsilega til fréttastofu RÚV og InDefence, og þar með fékk þjóðin og þingheimur að sjá leynisamninginn ótrúlega.

    Það er ekki síður ástæða að sérstök rannsóknarnefnd verði sett á laggirnar til að rannsaka Icesave ógæfustörf núverandi stjórnvalda og allt áróðurs og lygabatteríið sem hefur verið rekið á kostnað þjóðarinnar, og hvort að þar komi ekki örugglega skýrt í ljós að menn hafi farið ansi frjálslega með að túlka stjórnarskrá og þá lög sem fjalla um landráð? Ekki síður þörf á slíkri rannsókn eins og sú þeirri sem hefur verið í gangi um aðdraganda hrunsins.

  •   ala // 6.2 2010 kl. 15:46

    Kemur ekki til greina að semja sig frá dómstólaleiðinni

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og einum? Svar: