Hið ágæta veftímarit Andríki nefnir í dag að Þorvaldur Gylfason er af sumum talinn hafa séð bankahrunið fyrir. En Andríki rifjar upp að hann var ekki meiri spámaður en það að hann sagði í Silfri Egils 5. október 2008 að Reykjavíkurborg gæti selt lóðir í Vatnsmýrinni fyrir að minnsta kosti 70 milljarða króna. Þetta var sömu dagana og bankarnir voru að hrynja.
Augljóst er að Þorvaldur hefur ekki haft hugmynd um hvað var að gerast.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Þorvaldur reynist vera lítill spámaður. Hann sagði t. d. í Lesbók Morgunblaðsins 23. nóvember 1996 í grein um hagstjórn í Taílandi: „Taílendingar hafa á skömmum tíma náð aðdáunarverðum árangri af eigin rammleik og heilbrigðu hyggjuviti. Sjálfir berum við Íslendingar með sama hætti einir ábyrgð á því, hversu kjörum okkar hefur hrakað síðustu ár miðað við margar aðrar þjóðir fjær og nær.“
Skömmu seinna hrundi allt í Taílandi í Asíukreppunni svonefndu. Efnahagslífið dróst saman um 10% næsta ár (þ.e. 10% neikvæður hagvöxtur var).
Á sama tíma hafði hafist á Íslandi langt og samfellt góðæri. Þetta góðæri var ekki byggt á erlendum lántökum, amk. ekki til 2004, enda urðu þær ekki tilfinnanlegar fyrr en eftir það.
Sannleikurinn er sá að Þorvaldur boðaði yfirvofandi kreppu allt frá 1996 þegar hann gaf út bókina Síðustu forvöð. Auðvitað hlaut spáin að rætast einhvern tímann. Því miður gerði hún það haustið 2008.
En ummæli Þorvaldar sem Andríki rifjar upp sýna að sjálfur gerði hann sér enga grein fyrir þessu. Er ekki kominn tími til að hætta að kynna þennan mann sem einhvern spámann? Jafnvel vinstristjórnin treysti sér ekki til að gera hann að seðlabankastjóra!
Skafti Harðarson
Ummæli (7)
ala // 5.2 2010 kl. 23:49
Því miður er Þorvaldur haldinn heilkennum eins og svo margir
Þórarinn Einarsson // 6.2 2010 kl. 00:11
Hann Þorvaldur opinberaði nokkuð einfalda heimsmynd sína þegar hann varði AGS og afneitaði dauðakossinum „kiss of death“.
Hann virðist óspar á að gefa sér forsendur sem ekki eru til staðar.
HG // 6.2 2010 kl. 00:38
ÞAÐ ER ALLT RÉTT SEM
þORVALDUR GYLFASON HEFUR SAGT.
ÞAÐ TEKUR ENGIN MARK Á YKKUR
HRUNVERJUM !
Hannes Hrun // 6.2 2010 kl. 01:00
Þetta er tómt bull hjá þér Skafti.
Þú ert alveg út úr heiminum.
Kjartan Icesave Gunnarson // 6.2 2010 kl. 01:02
Þorvaldur er vandaður hagfræðingur og vel gerð manneskja.
Engin von er til að þið frjálshyggjumenn kunnið að meta hann.
Hann segir nefnilega satt!
Guðmundur 2. Gunnarsson // 6.2 2010 kl. 01:27
Það er aldrei að vita nema að prófessor Þorvaldur kveiki á perunni og spáir um í einhverjum vikulegu pistlum sínum sem hann hefur haldið úti í 7 ár gegn greiðslu fyrir Fréttablaðið, að maður nokkur að nafni Jón Ásgeir Jóhannesson, sem og allir hans vinir og öll þeirra umsvif hafi hugsanlega haft eitthvað annað en gott að segja hvað þróun mála fyrir og eftir hrunið varðar. Ástæður og afleiðingar, sem og almennt viðskiptalíf og viðskiptasiðferði. Og jafnvel fattar prófessorinn að það var eini bankinn sem var í einkaeign sem var fyrstur að falla, og að eigendur höfðu skilað inn röngum gögnum varðandi stöðu hans þegar þeir sóttust eftir risaláni frá Seðlabankanum, og var í mikið verri stöðu en Jón Ásgeir gaf upp. Þegar það gekk ekki eftir öskraði sami Jón Ásgeir á torgum að um stærsta bankrán sögunnar væri að ræða, og reif upp viðskiptaráðherra Samfylkingunnar upp úr rúminu til að krefjast þess að hans vilji yrði virtur eins og gert er ráð fyrir í kaupsamningnum á Samfylkingunni. Aldrei að vita nema prófessorinn eigi eftir að fjalla um þessa hlið hrunsins og þá hverjir bera hugsanlega ábyrgðina?
Eða hættir þá Jón Ásgeir að borga honum fyrir vikulega gagnrýni og spádómspistlana sem sýna alla aðra en hann, hans og Samfylkinguna í vondu ljósi?
Egill M // 6.2 2010 kl. 09:59
Augljóslega getur enginn hagfræðingur spáð fyrir efnahag ríkis með 100% vissu. Ef slíkt væri hægt væri heimurinn aðeins öðru vísi. Ég held að Þorvaldur hafi heldur ekki séð fyrir sér hrunið á Íslandi í þeirri stærð sem það varð.
En að halda því fram að hann hafi ekki haft hugmynd um hvað var að gerast. Þá minn kæri veistu ekkert hvað þú ert að tala um. Ég mæli með að þú farir yfir upprifjunarpunkta Baldurs um hann Þorvald: http://www.baldurmcqueen.com/index.php/2008/%C3%9Eorvaldur-Gylfason.html
Þarna kemur allt frá árinu 2005 aðvaranir frá Þorvaldi um skuldasöfnun á Íslandi. Auðvitað getur einhver spáð kreppu í mörg ár sem á endanum kemur. En þá er mikilvægt að skoða forsendur þess spádóms. Forsendur Þorvaldar reynast algjörlega réttar.
Rita ummæli