Skafti Harðarson

blogg á eyjan.is

Lygi ársins í bók ársins

3.12 2009 | 09:21 | 25 ummæli

Út er komin bókin “Þeirra eigin orð í útrásinni” sem er frábært safn tilvitnana í stjórnmálamenn, útrásarvíkinga, álitsgjafa og fleiri í samantekt Óla Björns Kárasonar, blaðamanns. Öll ummælin tengjast með einum eða öðrum hætti útrásinni og þess sem síðan hefur gegnið á í kjölfar hrunsins.

Í þessu safni má finna ummæli sem við lestur í dag verða afkáraleg, hlægileg, hrein fásinna, merkileg framsýni og þar fram eftir götum. Margir eru afhjúpaðir fyrir að hafa farið farið með rangt mál, nú eða spáð rétt fyrir um framtíðina, eða, eins og t.d. forsetinn; að hafa nánast aldrei brugðist röngum málstað.

En stjörnur bókarinnar eru í mínum huga Davíð Oddsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Steingrímur J. Sigfússon, þó með ólíkum hætti sé. Oftar en ekki reyndist Davíð forspár, Ólafur Ragnar hið gagnstæða, og Steingrímur J. er nú talsmaður alls þess sem hann áður talaði gegn.

Í bók Óla Björns er t.d. tilvitnun í Steingrím J. sem er viðeigandi að endurtaka nú þegar sér fyrir endann á Icesave umræðunni. Hér er á ferðinni lygi ársins:

“Það er verið að reyna að koma í gang formlegum samningaviðræðum en þær eru ekki hafnar heldur eru könnunarþreifingar eða könnunarviðræður í gangi. Ég held að ég geti fullvissað hv. þingmann um að það standi ekki til að ganga frá einhverju samkomulagi á morgun eða einhverja næstu daga og áður en til slíks kæmi yrði að sjálfsögðu haft samráð við utanríkismálanefnd og aðra þá aðila sem þingið hefur haft til að fylgjast með framvindu þessara mála. Staða málsins er sú að það eru könnunarviðræður eða könnunarþreifingar í gangi.”

Steingrímur J. Sigfússon svarar Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni3. júní 2009 eða tveimur dögum áður en Icesave-samningar voru undirritaðir.

Kannski við stæðum ekki frammi fyrir jafn skelfilegum samningi ef Steingrímur hefði staðið við allt það samráð, sem þarna var lofað.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (25)

  •   Jakob Bjarnar // 3.12 2009 kl. 09:48

    Hefði ekki fyrirsögnin – Lygi ársins er þessi bók – verið nær lagi? „Oftar en ekki reyndist Davíð forspár, Ólafur Ragnar hið gagnstæða…“ Af hverju kemur þetta ekki á óvart í tilvitnanabók eftir Óla Björn Kárason?

    Úr þessum amx ranni hafa komið ítarlegar „fréttaskýringar“ um hvernig „Baugsmiðlar“ eiga að hafa falsað fréttir með áherslum sínum. Og svo kemur þetta! „Takes one to know one.“ Eða kannski öllu heldur: Margur heldur mig sig. Hvernig í ósköpunum má það vera að maðurinn sem hér hafði tögl og haldir við stjórnun landsins um tveggja áratuga skeið, eða þar til allt hrundi, megi heita forspár? Maðurinn sem sagði belgingslega við allri gagnrýni: Ætlar þú að bera ábyrgð á því að kjafta niður góðærið? Maðurinn sem var eignað hið innistæðulausa „góðæri“ – en þær raddir reyndar snarþögnuðu að gefnu tilefni.

    Þessar mótsagnir eru yfirgengilegar. Svo yfirgengilegar að manni sýnist helst þið þessir Davíðs-dindlar vera haldnir meinloku og afneitun á svo háu stigi að það jaðrar við að teljast sjúklegt.

  •   Sig. St. // 3.12 2009 kl. 09:54

    Fréttamaður náhirðarinnar á öfgavefnum amx.is, Óli Björn Kárason, tekur saman ummæli annarra í bók.

    Er það líklegt til að vera sanngjarnt, heiðarlegt og vandað?

    Nei, ég held ekki.

  •   SigG // 3.12 2009 kl. 09:58

    Sannleikanum verður hver sárreiðastur er það eina sem kemur í hugann eftir að hafa kíkt í þessa bók, alveg frábær lestur.
    Gott að geta haft svona bók við höndina þegar vinstri menn reyna að klóra í bakkann með Steingrím!

  •   Bjarni Kjartansson // 3.12 2009 kl. 10:04

    Óli Björn á þakkir skildar fyrir framtakið.

    Einnig er athygliverrt, hve hljótt er um bókina í Baugsmiðlunum.

    Einnig hjá RUV þar sem Krati er Stjórinn og kommatittir fréttastjórar og því um líkt.

    En sem einhverskonar svar við hugleiðingum síðuhaldara, vil ég benda áeinfaldan sannleik.

    ,,ef Steingrímur hefði staðið við allt það samráð, sem þarna var lofað.“

    Það er ofætlan, að ætla kommum, að standa við nokkurn skapaðan hlut, nema að mismuna gróflega eftir Orwellskum setningum ,,sumir eru jafnari en aðrir“

    Miðbæjaríhaldið
    treystir ekki Kommum eða Krötum.

  •   Ævar // 3.12 2009 kl. 10:09

    Það er gaman að sjá hve síðuritara tekst að halda í kraft æskunnar. Hér er á ferð sextugur maður sem skrifar af rökfestu og yfirvegun sextán ára unglings.

    Að hampa bók sem ritstjóri AMX skrifar um stjórnmál er auðvitað bara brandari. Hver myndi lesa þetta eða leggja nokkuð út af þeim skrifum annar en innmúraður sjalli?

    Ætli tilvitnunin í Davíð þar sem hann hrópar þrefallt húrra fyrir Samson hafi ratað í bókina?

  •   Hrímfaxi // 3.12 2009 kl. 10:28

    Er búinn að glugga í bók ÓBK og óttast að hlutlægni hans sé ábótavant. Ef athyglisverðar tilvitnanir Helga hér að ofan er að finna í bókinni mun ég éta hatt minn og staf – eða þannig.

  •   Þórður Þ. Sigurjónsson // 3.12 2009 kl. 10:48

    Tilvitnun í ummæli Helga:

    Ummæli Davíðs um Landsbankann og Icesave í tímaritinu Monocle í febrúar 2008:

    innstæður eru öruggar aðallega í Landsbankanum. Landsbankinn var stofnaður fyrir 120 árum.
    Hann er virtur og gengur vel hér á landi og annars staðar.
    Ég myndi ekki segja annað en að það væri góð ákvörðun að nýta sér þá möguleika
    að leggja sparifé sitt inn í Landsbankann.

    Eða þessi:

    Ég held að íslenski bankar hafi áttað sig á því fyrir tveimur árum að þeir ættu að fara þá leið
    frekar en að endurfjármagna sig á markaði. Það var eðlilegra að gera slíkt með innlánum
    og það hefur gengið vel. Ég held að við ættum að hrósa þeim fyrir það en ekki refsa þeim.

    Svo segir Skapti að Davíð hafi verið forspár????? Þvílíkt bull.

  •   Rósa // 3.12 2009 kl. 11:31

    Þessi bók er gott framtak.

    Lygin blasir við.

    Forsetinn og Steingrímur – ja hvað skal segja? Eru þessir menn mórallausir?

    En ég tek undir með öðrum hér. Um Davíð Oddsson má segja margt en að telja hann „framsýnan“ er í meira lagi undarlegt.

    Ábyrgð hans á þessum ósköpum blasir við öllu sæmilega hugsandi fólki.

    Hann bjó til skrímsli og þrátt fyrir virðingarverða viðleitni til að ráðast gegn þessu sköpunarverki hans og Framsóknarflokksins mistókst það algjörlega.

  •   Ævar // 3.12 2009 kl. 11:31

    Það er spurning hvort „fólk“ eins og Skapti trúi í raun lygavaðli sínum eða sé meðvitað að reyna að breiða út ósannindi um þátt DO í hruninu.

    Ég hallast að því fyrra. Skrifin sem birtast á þessarri síðu eru með þvílíkum ólíkindum að þau geta einungis verið skrifuð af manni sem gengur um með bæði augun lokuð.

  •   IceViking // 3.12 2009 kl. 11:52

    Allt mjög réttsýnt eins og vanalega hjá Ólaf Birni. Hann er greinilega ennþá helmengaður af villum bólunnar.

    Kannski hann vitni í sálfan sig þegar hann sagði að íslenska OMX hlutabréfavísitalan hefði náð botninum í janúar 2008! Geir Haared var mættur og sagði botninum er náð í Maí 2008 !

    Óli Björn er kolrangur maður til að týna fram efni í svona bók.

  •   Ólinn // 3.12 2009 kl. 11:55

    Jakob:

    Það er sem sagt í lagi að Denni J. ljúgi, fyrst að Dabbi kóngur og náhirð lugu svona mikið…

    Það er nákvæmlega útaf þessu sem að pólitík á Íslandi er vangefin, þegar hún ætti undir þessar kringumstæður að vera manngefin. Meira skítapleisið.

  •   gaui // 3.12 2009 kl. 12:27

    Það hefði verið gaman að fá svona bók eftir óvilhallan mann eða konu. En að Óli Björn velji ummælin er eins og hver annar brandari.

  •   Breiðfjörð // 3.12 2009 kl. 13:01

    Hvar kemur fram að þetta sé „bók ársins“? Á amx?
    Amx áróður Óla Björns – tekur einhver mark á honum aðrir en náhirðin?

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.12 2009 kl. 13:07

    Alltaf dýrmætt og hressandi að fá aðara eins mannvitsbrekku og talsmann Jóns Ásgeirs Jóhannssonar, bótoxblaðamanninn Jakob Bjarnar Grétarson, svona sem lokaskrautið, kissuberið á hnallþóruna.

    Hann hlýtur að eiga mörg gullkornin í bókinni.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.12 2009 kl. 13:10

    Breytast ummæli Steingríms raðlygara og annara mikið við hverjir hafa þau eftir þeim og það orðrétt?

    Svar bótoxblaðamannsin og fleiri af hans kaliberi hér á síðu:

    KLÁRT JÁ! (O:

  •   Jakob Bjarnar // 3.12 2009 kl. 13:21

    Ólinn minn!

    Fyrst þú ert að ávarpa mig sérstaklega… Þú fellur kylliflatur í þá gröf sem þú varst að taka sjálfur! „Það er sem sagt í lagi að Denni J. ljúgi, fyrst Dabbi kóngur…“ Einmitt ekki! Hvar segir eitthvað um það í mínum orðum? Sérð þú eitthvað sem öðrum er hulið? Ég er enginn aðdáandi þessarar ríkisstjórnar sem nú situr. Hef aldrei verið áhangandi neins stjórnmálaflokks og ætla ekki að verja neina stjórnmálamenn – hvað þá að reyna að maka yfir það ef þeir reynast ljúga. En að þessir áhangendur Davíðs, sem fyrir þremur árum göluðu á torgum að „góðærið“ væri einum, og aðeins einum, manni að þakka, og hann héti Davíð Oddsson, láti nú sem hann hafi hvergi komið nærri, hafi varað við, verið forspár (en gerði samt ekkert þó hann héldi um stjórnartaumana og sé arkítekt að því béfaða dýki sem við erum nú öll í) er ekki bara ósvífið: Það er svo galið og fullt æpandi mótsagna að maður fær ekki orða bundist. Hvernig dettur mönnum til hugar að bjóða uppá þetta rugl? Hvernig væri nú bara að skammast sín?

    Lestu nú þessi sítöt sem Helgi er að leggja til málanna.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.12 2009 kl. 14:08

    Núna er lag fyrir Bótoxblaðamanninn Jakob Bjarnar að setjast niður með aðalritsjóranum sínu Jóni Ásgeir og lemja saman aðra bók sem er þeim báðum hugnanleg. Eða var Bótoxblaðamaðurinn og aðalritstjórinn með eins slíka í smíðum en of seinir, og þess vegna sigað til að gelta hér?

  •   HJH // 3.12 2009 kl. 15:07

    Rósa skrifar: Ábyrgð hans á þessum ósköpum blasir við öllu sæmilega hugsandi fólki. Þar er átt við D.O. Guðmundur 2 og aðrir sjálfstæðismenn reynið nú að fara að vera allavega sæmilega hugsandi, og hætta að líta á DO sem e.h. Guð.

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.12 2009 kl. 16:05

    HJH. Er ekki Sjálfstæðismaður frekar en nokkurs flokkskvikindi. Hef ekki kosið neinn slíkan í um 3 áratugi. Síðan þá hef ég nöldrað um spillinguna fylgjandi öllum flokkum, og auðvitað hlustaði enginn. Það er aðeins mig uppá að klaga, á nákvæmlega sama hátt og öllum „eftirrásnillingunum“ varðandi hrunið. Get ómögulega gert greinarmun á hver kúkurinn í klósettinu er öðrum merkilegri.

    Hef sérstaklega gaman af Skafta og að hann leggi í að hoppa ofan vinstraskólpið sem flæðir um Eyjuna, og að sjálfsögðu er honum mætt á þann eina veg sem þeir sem þar dvelja treysta sér til „rökræðna“. Skítkasti. Hann er gott mótvægi við forheimskuna sem „saklausir“ hrunverjar reyna að halda fram, og ótrúlega tilburði götudómstóls Baugsfylkingarinnar „saklausu“ og vinstrimanna, sem hika ekki við að taka menn af lífi, í boði Baugs og Baugsfylkingarinnar. Að væla núna yfir bók um beinartilvitnanir í alla „snillingana“ vegna þess að höfundurinn gæti hugsanlega „gleymt“ setningum Davíðs Vonda, er svo skemmtilega kauðskt að hálfa væri nóg. Núna hafa auðrónarnir staðið á bak við bókaskrif þar sem höfundar erumeð Davíðsheilkennið á lokastigi, og halda þeim út sem föstum pistlahöfundum, sem og heilu dagblaðaútgáfum sem hafa ítrekað og nánast stanslaust hamrað á öllu „vafsömu“ sem tengist meintum fantinum. Minnist þess ekki að Bótoxblaðamaðurinn hafi haft miklar áhyggjur af slíku. Menn eins og Ólaf Arnarson, Jóhann Hauksson, Vilmund Gylfason, Reyni Traustason, Hreinn Loftsson (undir dulnefnum), Karl Th, Birgisson, Jón Kaldal, Gunnar Smári Egilsson ofl. Allt aðilar nátengdir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og flestir ef ekki allir á hans framfæri nú sem áður. Menn sem bera gríðarlega ábyrgð á og að villa um fyrir almenningi fyrir hrun, auðrónunum tilheilla og Baugsflokkinn, og ekki síður eftir hrun

  •   Andrýnir // 3.12 2009 kl. 18:59

    Þessi bók í pakkann minn. Og bók Styrmis ef einhver er að pæla í jólagjöf handa mér. Mikið á ég eftir að hlægja að öllu bullinu í SJS og Baugsliðinu.
    Eru ekkert annars snjallyrði Hannesar í bókinni?

  •   Jakob Bjarnar // 3.12 2009 kl. 21:11

    Ég held að Guðm. 2 geri ómælt gagn með skrifum sínum. Honum tekst með þráhyggju, einfeldningslegum og hatursfullum útúrsnúningum, betur en flestum að opna augu fólks fyrir því á hvaða plani umræðan er þegar Skrímsla- og Sullenbergdeildin er annars vegar. Sá sem á hann að vini þarf enga óvini. Guðm.2 er fíflið sem hleypur berrassaður inná völlinn, grípur boltann og reynir að fá einhvern til að elta sig. Mönnum finnst þetta sniðugt í u.þ.b. 2 mínútur en þá fer þolinmæðina að þrjóta og gamanið að grána.

  •   JR // 3.12 2009 kl. 21:42

    Á þessi bók að vera svar við öllum filmubútunum sem búið er að sýna með náhirðinni ?

    Hvað sýnir útgáfa þessarar bókar okkur ?

    Jú, hægri öfgamenn og náhirðin þurfa kennslu í útgáfumálum !

    Eða , finnst engin filmubútur til að sanna tilvist þeirra orða sem bókin segir frá ?

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.12 2009 kl. 22:15

    Jakob „Bótoxblaðamaður“ Baugslygaveitunnar.
    Verðuru ekki að reyna eitthvað betra en þetta fyrir alla peningana sem Jón Ásgeir borgar þér fyrir að gelta og það á næturvinnulaunum?

    Taktu eftir að ég leggst ekki í æluna úr Náskerinu sem þú baðar þig í og kalla þig fífl. (O:

  •   Alma Jenný Guðmundsdóttir // 4.12 2009 kl. 17:29

    Manni dettur einna helst í hug hér á þessari síðu að menn liggji í einhverjum drykkjuskap eða öðru ámóta – og baði sig í viðeigandi skít.

    Væri ég pistlahöfundur – myndi ég ekki kæra mig um jábræður sem Guðmund 2. Gunnarsson.

  •   Julianna Weitkamp // 8.11 2010 kl. 21:50

    Nice info. Thank you, you describe the topic very well

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og fimm? Svar: