26.8 2010 | 10:03
Kauptu (létt)ölið okkar
Ég er hjartanlega sammála þeim sem bent hafa á þá ósvífni sem áfengisframleiðendur á Íslandi hafa sýnt við að auglýsa vöru sína. Það fór til dæmis ekki framhjá neinum sem horfði á hálfleiki HM á RÚV í sumar.
Á meðan sjálfum leikjunum stóð voru þó enn meiri brot framin á íslenskum lögum en í hálfleiknum. Nægir þar að nefna að HM var í boði Budweiser. Hvílík ósvífni! Veit FIFA ekki að það er bannað að auglýsa áfengi í íslensku sjónvarpi?
HM er því miður engin undantekning. Enski boltinn er jafnvel verri en HM. Gulu spjaldi er varla veifað án þess að áfengisauglýsing sé ekki í bakgrunninum. Sjálfur á ég Liverpool-treyju með Carlsberg auglýsingu framan á. Enski boltinn er trúlega eitt vinsælasta sjónvarpsefni ungmenna á Íslandi. Þarf ekki að gera út sendinefnd á vegum ríkisins til að upplýsa Bretana um þessi svakalegu brot á íslenskum lögum? Sýna þeim gula spjaldið ef til vill?
Það er ekki laust við að sú hugsun læðist að manni að íslensku lögin um bann við áfengisauglýsingum hafi ekki tilætluð áhrif. Ekki síst ef horft er til þess að í tölvum unglinga og erlendum tímaritum í hillum íslenskra bókaverslana, á biðstofum tannlækna, á heimilum barnafjölskyldna og víðar er vín auglýst sem aldrei fyrr.
Hugsunin að baki lögunum er skýr og falleg. Góði viljinn og kærleiksrík hugsunin sem miðar að því að vernda æskuna, draga úr áfengisneyslu og minnka líkur á áfengissýki. En það er eins og það hafi farið framhjá þeim sem komu lögunum um kring að Ísland er ekki eyland þótt eyja sé, ekki gluggalaust, sambandslaust míkrókosmos á sjálfstæðum veltingi í ólgusjó lífsins. Og annað sem farið hefur framhjá höfundum laganna er að það hvers og eins að bera ábyrgð á sjálfum sér, og barna sinna meðan þau eru börn. Sumir virðast halda að með því að banna eitthvað sé hægt að útrýma því. Það er því miður algengur misskilningur. Einhverjir myndu kalla það sjálfsblekkingu en ég ætla ekki að ganga svo langt.
Það er staðreynd að fyrirkomulag áfengismála á Íslandi, ríkiseinokun, gríðarlegur skattur á hvern dropa og umrætt bann við auglýsingum, hefur ekki komið í veg fyrir misnotkun þess. Öðru nær. Neysla áfengis hefur aukist mjög undanfarna áratugi. Árangur meðferðarstofnana er skelfilegur þegar kemur að því að endurhæfa þá sem dottið hafa í ólukkupottinn. Ég man ekki töluna, en innan við 10% af þeim sem fara í meðferðarprógramm bragða ekki áfengi aftur. Er það ásættanlegt? (Þótt ekki sé lítið gert úr þeim sem náð hafa áttum með aðstoð þeirra.)
Góðviljaðri lagasetningu og reglum fylgja ósjaldan afleiðingar sem enginn sá fyrir. Ófyrirséðar afleiðingar af áfengisauglýsingabanninu eru m.a. þær að auglýsingastofur og fjölmiðlar verða af talsverðum tekjum. Það gætu verið aukakrónurnar sem halda auglýsingateiknaranum í atvinnu en ekki atvinnulausum. Eða gerir tímariti kleift að koma út. Eða gerir fjölmiðli kleift að ráða málfarsráðunaut.
Ef einhver þingmaður leggur til breytingar á núverandi fyrirkomulagi verður hann úthrópaður sem „vondi kallinn“ af stjórnlyndum andstæðingum áfengis (þ.e. þeim sem telja sig vita best hvað mér er fyrir bestu). Þingmaðurinn sem hefur í mörg horn að líta, ekki síst nú um stundir, kærir sig ekki um að fá á sig slíkan stimpil í augum kjósenda og kýs að leiða hjá sér málið þótt hann – og vitaskuld flestir sem leiða hugann að þessu – vita að lögin eru marklaus og hafa ófyrirséðar afleiðingar sem eru verri en ef þau væri ekki til staðar.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
6 Ummæli
26.8 2010 kl. 10:46
Er eitthvað að því að reyna að spyrna við áreitinu sem skellur á ungviðinu? Víst eru auglýsingar í erlendum tímaritum og á erlendum sjónvarpstöðvum en með því að viðhalda okkar banni þá erum við að minnka áreitið og mynda einskonar „save haven“ hvað brennivínsdýrkun varðar. Foreldrar vita þá að þeirra uppbyggingarstarf er ekki rifið niður af RUV og íslenskum tímaritum.
Við vitum jú að áfengisauglýsingar eru mjög villandi og lúmskar; Oft er þar mjög fallegt fólk og er að flatmaga á skútu í Karíbahafi og allt leikur í lyndi. Þær sýna ekki þetta sama fólk þar sem það ekur drukkið eða er rekið úr vinnu vegna drykkjuláta. Unglingurinn hefur eðlilega ekki þroska til að meta þessa hluti raunsætt.
26.8 2010 kl. 12:00
Liverpool er laust við áfengisauglýsinguna en fékk fjárfestingabanka í staðinn. Er það betra spyr ég?
26.8 2010 kl. 12:29
Í sjálfu landi bjórsins, Þýskalandi, selja ALLIR sem bjóða bjór áfengislausan bjór 0,0%. Hér er sterkur bjór auglýstur sem léttöl sem er bæði rangt og villandi. Eini sölustaður áfengislauss bjórs, léttöls, á Íslandi er Europrís sem hefur af og til boðið Faxe (non-alcoholic) bjór sem gefur rétta bragðið án áfengis.
27.8 2010 kl. 06:31
Ingibergur
Ég veit ekki betur en að flestar matvöruverslanir á Íslandi selji áfengislausan bjór svo sem Carlsberg og Tuborg og svo auðvitað Pilsner.
6.10 2010 kl. 12:41
Getur þetta veriði?
Fá knattspyrnufélögin ekki ómælda styrki hvert frá sínu sveitarfélagi á þeim forsendum að íþróttin hafi forvarnargildi gegn drykkjuskap?
11.11 2010 kl. 17:01
Nokkuð stabílt drykkjuvandamál er eina leiðin til að þrauka í þvi helvíti sem Ísland er.
Rita ummæli