Sigurður Örn Ágústsson

Frelsi með ábyrgð!

Færslur fyrir: ágúst 2009

„Nei, en við eigum til gaddavír“

13.8 2009 | Engar athugasemdir

Fyrirsögnin er fengin að láni frá þeim mikla snillingi Atla í pakkhúsinu, sem svaraði með þessum hætti konu nokkurri sem spurði hann hvort ekki væri til klósettpappír. Var honum heldur í nöp við konuna.

Ég held að svar okkar Íslendinga við Icesave samningsnefnu ríkisstjórnarinnar sé á sömu leið.“ Nei „- en kannski kurteislegar en fyrirsögnin.

Fáir, sem eru mótfallnir Icesave samningnum eins og hann liggur fyrir, eru þeirrar skoðunar að Ísland eigi ekki að standa við skuldbindingar sínar, að Ísland eigi ekki að borga neitt. Sem betur fer. En meðan uppi er minnsti vafi um hverjar þær skuldbindingar eru, þá er fráleitt að samþykkja þennan samning. Að viðurkenna greiðsluskyldu án þess að hún sé klár eru landráð. Um það snýst málið. Annað ekki.

Því er svarið auðvitað (til Breta og Hollendinga): „Við samþykkum ekki þennan samning, teljum réttaróvissu um hver okkar skuldbinding er, en munum borga það sem ok1kur ber – að því gefnu að við höfum bolmagn til“. Eitthvað á þessa leið er svarið – og þetta hefur legið fyrir lengi. Jafn fráleitt og það kann að hljóma þá hafa þingmenn (sem hafa af því atvinnu að gæta hagsmuna landsmanna) virst furðu staðir almennt að skoða þetta mál og hafa á því skoðun.  En þeim til vorkunnar hefur JÓSTEINN (les ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms) haldið á þessu máli af slíkri vankunnáttu og fáráðshætti að með ólíkindum er. Margir hafa rakið þá sögu. (Ætli sá sem stakk upp á afdankaða pólitíkusinum Svavari Gestssyni, að semja um Icesave, sé skyldur þeim sem stakk upp á pappalögguátakinu um árið?).

Samtök, einsog InDefence og fleiri, hafi náð að hafa áhrif með skoðunum sínum og áróðri. Það er magnað að þverpólitískt apparat eins og InDefence skuli verða allt að því leiðandi í umræðu um þetta mál.  

Allt tal um fyrirvara við þennan samning er tóm þvæla (en hefur verið gagnlegt til að velta upp hvaða áhrif þessi samningur hefur), gagnaðili  samningsins verður auðvitað að samþykkja þessa fyrirvara. Eins og þeir liggja nú fyrir (í umræðunni) er ekki um að ræða minniháttar orðalagsbreytingar heldur efnislegar grundvallarbreytingar á þessu „glæsilega samkomulagi“. Til að sanngirni sé gætt, þá voru aldrei líkur á öðru en að samningurinn yrði vondur. Aðstæður eru þannig.

Nokkur atriði sem þingmönnum ber að hafa i huga við Icesave atkvæðagreiðslu – sem hlýtur að nálgast óðfluga:

  •  Þingmenn greiða atkvæði sitt um þetta mál – ekki hvort ríkisstjórnin lifir eða deyr.
  •  Hvort útgreiðsla annars hluta láns AGS til Íslands er tengt þessu máli, eða ekki, er aukaatriði. Ef lánveitingin er skilyrt, þá er búið að ljúga okkur full margoft með yfirlýsingum um að AGS lán og Icesave séu óskyld mál og alþjóðasamfélagið er að reyna að þvinga okkur.
  •  ESB umsókn. Ef hún tengist þessu máli eitthvað er það einsýnt að í ESB munum við aldrei ganga, sama hversu mjög Evrópusinnar telja veðrið hér batna við það. (Tek fram að mér persónulega finnst sjálfsagt að fá að vita hvernig samningi við getum náð við ESB).

Það er svo annað verkefni, en samt þessu tengt, að það verður auðvitað að fara að taka fastar á þeim fámenna hópi sem kom landinu á hvolf. Bæði aðalpappakössunum og ekki síður handbendum þeirra (lögmönnum og endurskoðendum sem virðast hafa haft það hlutverk eitt að blekkja almenning með uppáskriftum sínum).

Annars er þessi lýsing bróður míns á þessari nöturlegu atburðarrás líklega lýsandi um vanhæfni þeirra sem að hafa komið:

„Afdankaður pólitíkus leiðir hóp manna sem hafa mismikinn bakgrunn (sumir engan) í milliríkjasamskiptum og milliríkjasamningum og á þetta að vera okkar samninganefnd.Þessi nefnd mætir úrvalsliði Breta og Hollendinga í Icesave samningalotum. Íslenska samninganefndin hefur þau fyrirmæli að ná samningum hvað sem það kostar. Samninganefndir UK og Hollands vita þetta – enda er núverandi ríkisstjórn Ísland mynduð um umsókn í ESB sem háð er samþykki m.a. UK og Hollands.

Ég held því fram að landsliðið í lyftingum hefði náð sambærilega „glæsilegum“ árangri fyrir okkar hönd og Svavar Gests og co.“

Ég tel reyndar að lyftingalandsliðið hefði náð betri árangri.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag