Sigurður Örn Ágústsson

Frelsi með ábyrgð!

Færslur fyrir: maí 2009

Færeyjar, here we come !

12.5 2009 | Ein athugasemd

IFC er knattspyrnufélag fyrir knattspyrnumenn sem eru „formlega“ búnir að leggja skónum (sökum aldurs eða meiðsla) en hittast þó vikulega og spila þá á „sínum“ hraða. Í liðinu eru margir kappar og þó menn séu almennt að tapa hraða, þá eru leikgleði og eldmóður enn til staðar. IFC fer nú í víking til Færeyja og spilar þar leik gegn þarlendum kempum á þjóðarleikvangi Færeyja næstkomandi laugardag kl 16.00.

En hvernig kom þetta til?

Efnahagshrunið hefur verið mál málanna síðan síðastliðið haust og á okkur hafa dunið eintómar neikvæðar fréttir um afglöp, sviksemi, græðgi og siðleysi íslenskra viðskiptamógúla – auk ráðaleysis stjórnmálamanna. Mikil þörf hefur verið, og eftirspurn, eftir jákvæðum fréttum. Einkennilegt var hve margar af „vinaþjóðum“ Íslands virtust ófúsar til aðstoðar á erfiðum tímum. Sérstaklega var því tekið eftir vinarbragði frænda okkar frá Færeyjum sem tilkynntu Íslendingum þann 28. okt. 2008 að Færeyska landstjórnin myndi veita Íslendingum 300 milljónir danskra króna í gjaldeyrislán. Þetta gerðu þeir óumbeðið og af góðum hug.

IFC félagskapnum fannst þetta drengskaparbragð frænda okkar í Færeyjum merkilegt og vildum, þó að í litlu væri, koma því á framfæri við Færeyska þjóð að þetta væri vel metið. Úr varð að fara til Færeyja, setja upp knattspyrnuleik til gamans við Færeyskar kempur og láta allan ágóða renna til góðgerðamála í Færeyjum. Hefur þetta tiltæki vakið lukku í Færeyjum og fengið nokkra fjölmiðlaumfjöllun, sjá t.d. hér og hlusta á hér. Ekki svo að skilja að ferðalag okkar til Færeyja greiði lánið að fullu, en vonandi kemst til skila sú almenna ánægja Íslendinga með þetta ráðslag Færeyinga.

Við erum auðvitað ekki fulltrúar neinna nema okkar sjálfra og vildum einfaldlega láta Færeyinga vita að hinn almenni Íslendingur hugsar til þeirra á jákvæðan hátt. Annað getum við ekki gert. Annars eru meðlimir nýju ríkisstjórnarinnar, „Jósteins“ velkomnir með, hafi þeir á því áhuga.

Í heimsókn okkar til Færeyja munum við leika gegn firnasterku liði Færeyinga, sem flestir hverjir hafa spilað á Íslandi. Um kvöldið hefur svo Færeyska knattspyrnusambandið boðið okkur til kvöldverðar ásamt færeysku leikmönnunum. Fæstir IFC manna hafa komið til Færeyja og tilhlökkunin því mikil.

Lið IFC í Færeyjum: Arnar Már Arnþórsson, Bjarni Sindri Bjarnason, Eyjólfur Sverrisson, Finnur Kolbeinsson, Guðbjartur Haraldsson, Hallsteinn Ingvar Traustason, Hermann Arason,

Jörundur Kristinsson, Kristinn Tómasson, Matthías Sigvaldason, Pétur Arason, Rútur Snorrason, Sigurður Örn Ágústson, Sverrir Sverrisson, Tómas Ingi Tómasson, Veigur Sveinsson &Þorsteinn Sveinlaugur Sveinsson.

Plakat með auglýsingum vegna leiksins má sjá hér

Lið Færeyinga verður þannig skipað:

Jens Martin Knudsen              (Leiftur)

Kai Leo Jóhannesen               (HB-Tórshavn)

Hans Fróði Hansen                (Fram, Breiðablik)

Jens Christian Hansen            (B36-Tórshavn Ayr Utd.)

Uni Arge                                 (Leiftur,IA)

Sámal Joensen                         (Leiftur)

Jens Erik Rasmussen              (Leiftur)

John Petersen                          (Leiftur)

Alan Mørkøre                         (IBV)

Allan Joensen                          (Skallagrímur)

Pól Tortsteinsson                     (Valur)

Gunnar Mohr                           (HB-Tórshavn)

Øssur Hansen                          (B68 (Toftir)

Jákup Eli Olsen                        (B68- Toftir)

Kári Reynheim                         (B36-Tórshavn)

Magni Jarnskor                        (Gí-Gøta)

Bjarki Mohr                            (B71-Sandoy)

Jákup S. Simonsen                  (B36- Tórshavn)

Páll Á Reynatúgvu                   (B71-Tórshavn)

Flokkar: Dægurmál · Íþróttir · Lífstíll