Sigurður Örn Ágústsson

Frelsi með ábyrgð!

Vaknið, VakNIÐ, VAKNIÐ !

16.4 2009 | 15:38 | 22 ummæli

Pólitísk umræða á Íslandi í dag er galin. Snargalin. Umræðan snýst um eitthvað sem skiptir almenning engu máli. Viljum við ekki ræða hver sé framtíð Íslands? Er þetta ekki aðalspurningin sem brennur á allra vörum? Hvaða rugl er eiginlega í gangi? Ég hélt að þau mistök sem gerð hafa verið, af svo mörgum, í gegnum árin væru flestum ljós. Ég hélt líka að það væri einhugur meðal þjóðarinnar að læra af þeim. En umræðan núna er snargalin og í engum takti við þau RISAverkefni sem eru framundan.

Þegar ég tala um snargalna umræðu þá er ég að vísa til styrkjamálsins svokallaða sem hefur einangrast við Sjálfstæðisflokkinn. Þó má segja að ekki  sé eðlismunur sé á þeim styrkveitingum og styrkveitingum og lánum Samfylkingar svo dæmi séu nefnd. Sjálfstæðismenn hafa harðlega gagnrýnt viðtöku styrkjanna og endurgreitt þá. Nýr formaður hefur sýnt styrk sinn með því að ganga fram af meiri skörungsskap í þessu máli en fyrri forystu hefði verið trúandi til. Þetta mál er ömurlegt og með öllu óþolandi. EN það er á ekki að vera aðalmálið í kosningunum. Aðalmálið hlýtur að vera;  HVERNIG ætla stjórnmálaflokkarnir í landinu að leysa þann vanda sem við búum við? Tek hér nokkur dæmi um mál sem vert væri  að ræða, en eru ekki rædd:

-          Gjaldmiðillinn. Hann er ónýtur til lengri tíma litið. Hvað á að taka við? Hvernig ætla flokkarnir sér að halda genginu stöðugu, þannig að vísitalan verði ekki hærri en 150-160 í lok árs? Gjaldeyrishöftin eru ekki að virka. Hvaða stefnu hafa flokkarnir hér?
(Umsókn um aðild að ESB leysir ekki þennan vanda). Hvernig verður málum svo fyrirkomið að hér verði vextir ekki hærri en 5-7% í lok árs?

-          Peningamálastjórnun. Hvernig ætla flokkarnir sér að ná tökum á verðbólgu þannig að hún verði ekki hærri en 4-5% í lok árs 2009?

-          Atvinna fyrir Íslendinga. Atvinnuleysi er í hæstu hæðum. Hvernig, endurtek; hvernig á að skapa störfin? Sjálfstæðismenn hafa bent á að skapa megi um 20.000 ný störf, með m.a. uppbyggingu orkufreks iðnaðar. VG hafa efni á því að sniðganga slíkar lausnir.

-          Afdrif fyrirtækja. Hver á að vera pólitíska línan sem bankarnir eiga að fylgja við ákvörðun um hver fái lán og hver verði sett í þrot. (Dæmið af Pennanum, þar sem ríkið stundar kennitöluflakk og fer í samkeppni við einkageirann…. er þetta það sem koma skal?)

-          Rekstur ríkissjóðs. Er nú með um 170 ma halla. Hvernig á að stoppa í þetta gat? (Skattahækkanir duga hvergi nálægt því til). Hvar og hvernig á að skera niður?

-          Skuldir heimilanna. Hvernig á að vinda ofan af þessu óréttlæti og gera fólkinu í landinu kleyft að búa áfram á Íslandi ?

Ég óska eftir því að  kosningabaráttan fari að að snúast um alvöru mál, sem eru þessi mál. Ekki bara innantóma frasa sem segja ekkert nema að „stefnt sé að“ og „kanna eigi möguleika á“.  Mér sýnist andstæðingar Sjálfstæðisflokksins vera hæstánægðir með að ræða EKKI um lausnir. Það hentar þeim vel því þeir hafa engar lausnir.

Beitum skynsemi og skoðum hvaða lausnir boðið er upp á.

Sigurður Örn Ágústsson

Höfundur skipar 6. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og er í miðstjórn.

 

Flokkar: Stjórnmál og samfélag



Ummæli (22)

  •   GVald // 16.4 2009 kl. 16:11

    Hvaða lausnir eru svo í boði íhaldsins ?Sjálfsstæðisflokkurinn hafnar lýðræðislegum umbótum.

    Sjálfsstæðisflokkurinn boðar 50% afslátt af afborgunum lána í 3 ár. Sem er ávísun á nýja kreppu að 3 árum liðnum.

    Sjálfsstæðisflokkurinn boðar 20þús ný störf og predikar gamla atvinnustefnu Framsóknarflokksins frá 1995. Sem var góð þá en á ekki við í dag.

    Sjáflsstæðisflokkurinn hefur enga peningamálastefnu og boðar enga peningamálastefnu aðra en að passa upp á fjármagnseigendur.

    Sjálfsstæðisflokkurinn vill tekjutengja allar bætur og stórhækka jaðarskatta og draga þannig úr hvatanum til vinnu.

    Ég er sammála beitum skynsemini og skoðum hverjir boða lausnir og hafa lagt fram tillögur um framtíðina fyrir komandi kosningar.

  •   Jón H // 16.4 2009 kl. 16:15

    Heyr Heyr Sigurður….Gott innlegg í umræðuna og vonandi fara menn og konur að taka þessar umræður á annað stig SÉRSTAKLEGA fjölmiðlar á Íslandi sem lifa á slúður fréttamennsku ….Óþolandi.

  •   Bobbi // 16.4 2009 kl. 16:50

    Það er eitt af mikilvægustu málum næstu ríkisstjórnar að uppræta mútuþægni og spillingu í Íslenskum stjórnmálum. Skiljanlegt að þið SjáLfstæðisFLokksmenn viljið ekki að þau mál séu í umræðunni.

  •   Einar Örn // 16.4 2009 kl. 16:50

    „Gjaldmiðillinn. Hann er ónýtur til lengri tíma litið. Hvað á að taka við? Hvernig ætla flokkarnir sér að halda genginu stöðugu, þannig að vísitalan verði ekki hærri en 150-160 í lok árs? Gjaldeyrishöftin eru ekki að virka. Hvaða stefnu hafa flokkarnir hér?
    (Umsókn um aðild að ESB leysir ekki þennan vanda).“

    Það er ágætt að þú hefur afgreitt ESB aðild svo auðveldlega útaf borðinu. Ég hefði haldið að hún myndi akkúrat leysa þennan vanda, sem þú talar um.

    Má ég spyrja, víst að ESB aðild leysir ekki vandann, hvaða tillögur hefur þú þá?

  •   Jón Frímann // 16.4 2009 kl. 17:05

    Umsókn leysir ekki neitt, enda það bara hálf leiðin. Innganga í ESB leysir hinsvegar gjaldeyrisvandann upp að marki.

    Ef Íslendingar ganga í ESB, þá er hægt að tengja krónuna við evruna á föstu gengi í gengum ERM II samstarfið. Það er fyrsta skrefið í að fá að taka upp evru og þurfa Íslendingar að fara í ERM II áður en evran verður tekin upp.

    Það mun taka tíma að ná stöðugleika í Íslenska efnahagskerfinu. Ein af grunnforsendum þess að ná þessum stöðugleika er innganga í ESB og endanleg upptaka evru.

  •   sigurður j hafberg // 16.4 2009 kl. 17:06

    Sæll nafni. Þú berð bara fram spurningar. Hvaða lausnir bjóðið þið Einar kristinn okkur Vestfirðingum t.d. ?Hvaða lausnir hefur Einar Kristinn boðið upp á síðustu árin, spyr sá sem ekki veit.
    kv sig haf

  •   Steinar Sörensson // 16.4 2009 kl. 17:28

    Sæll Siggi minn gaman að heyra í þér og sjá hérna á blogginu, það verður að segjast eins og er að ég var ekki hrifinn af stjórn Samf og Sjáfstæðisflokks hér i Haust, og hélt nú að eitthvað myndi lagast með nýrri stjórn, það verður samt að segja sem er að stjórn Samf og VG er engu betri, gera lítið annað en að ausa sandi í augu almennings.

    Það sem lagt hefur verið fram hingað til í þágu heimilanna og fyrirtækjanna er hlægilegt og í raun ágæstis leið fyrir VG og Samf til að segja við fólkið í landinu að það sé fífl.

    En ég vildi nú helst til heilsa upp á þig hérna og óska þér góðs gengis, sjálfur er ég í 10 sæti á framboðslista Borgarahreyfingarinnar í Suðurkjördæmi, ( ekki kannski miklar líkur á að það sæti reynist þingsæti :) )

    kv
    Steinar

  •   Siggi Óla // 16.4 2009 kl. 17:31

    Umsókn um aðild að EU leysir ekki gjaldmiðilsvandann, en hún myndi auka líkurnar á því að lausnir finndust. Í kjölfar umsóknar mætti festa gengi krónunnar við Evru með aðstoð og velvild Evrópska Seðlabankans. Það þarf að skapa tiltrú á landi og þjóð upp á nýtt, en eins og staðan er núna þá er álíka auðvelt fyrir Íslendinga að fá fyrirgreiðslu erlendis og fyrir Steingrím Njálsson að fá vinn við baðvörslu. Umsókn myndi auka trú manna á því erlendis að einhver vitglóra leynist í kollum Íslendinga.

  •   Pétur // 16.4 2009 kl. 17:38

    Telur þú í alvöru að siðferði stjórnmálamanna skipti almenning engu máli – eftir hrunið – og það hvort mönnum er treystandi og hverjir þeirra bakhjarla eru? Hvar í heiminum eru menn ekki að ræða slík mál? Þvert á móti þá er pólitísk umræða á Íslandi fyrst nú að færast yfir í heilbrigðar áttir þar sem GRUNDVALLARATRIÐI á borð við fjármögnun stjórnmálaflokka og kaup og sala stjórnmálamanna en ekki teknókratía eru til umræðu.

  •   Sigursteinn Másson // 16.4 2009 kl. 17:47

    Hvaða rugl er þetta? Hvaða LAUSN halda menn að séu í stöðunni?? Þetta er ekki svona einfalt. Það að byggja þetta samfélag upp úr þeim rústum sem misvitrir stjórnmálamenn og fjárglæframenn hafa komið því er ekkert hókus pókus mál. Já, VAKNIÐ!

  •   Sveinn Arnarsson // 16.4 2009 kl. 17:57

    Sæll Sigurður. Þú ert í framboði fyrir flokk til Alþingiskosninga. Endilega svaraðu þessum spurningum fyrir mig. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki svarað spurningum þínum til þessara kosninga. Ég er ánægður að Sjálfstæðismaður skuli vilja fá þessa umræðu hjá sínum eigin flokk.
    Gangi þér sem allra best, þú ert greinilega einn af fáum Sjálfstæðismönnum sem vilja tala um pólitík.
    Ég er þér hjartanlega sammála að fáir flokkar hafa viljað tala hreinskilið við þjóðina!

  •   Steinunn Aldís // 16.4 2009 kl. 18:23

    Tilvitnun tekin úr sögu sjálfstæðisflokksins á heimasíðu hans í dag.
    „Stöðugleiki, aukinn hagvöxtur, lækkun skatta, bætt umhverfi fyrirtækja
    Í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokksins tók íslenskt efnahagslíf stakkaskiptum. Horfið var frá atvinnulífi sem bundið var á klafa ríkisafskipta og miðstýringar og í staðinn skapað umhverfi þar sem frjáls viðskipti og athafnasamir einstaklingar og fyrirtæki fengu að njóta sín. Hagvöxtur jókst og kaupmáttur hefur aldrei vaxið jafnmikið á Íslandi og hann gerði á síðari hluta tíunda áratugar 20. aldar. Áhersla var lögð á stöðugleika, minnkandi ríkisumsvif og bætt starfsumhverfi fyrirtækja, m.a. með lækkun skatta. Þau áherslumál gengu öll eftir. Kjördæmaskipan landsins var breytt, kjördæmum fækkað og atkvæðavægi jafnað á milli þeirra.

    Íslendingar í fremstu röð
    Ríkissjóður hefur verið rekinn hallalaust í mörg ár og skuldir hans greiddar niður. Stoðir efnahagslífsins hafa verið styrktar, efnahagsbatinn verið festur í sessi, kaupmáttur og hagur almennings batnað stórkostlega, ekki síst þeirra sem lökust kjör hafa, atvinnulífið er fjölbreyttara en nokkru sinni fyrr og tækifæri einstaklinga og fyrirtækja fleiri en áður. Sjálfstæðismenn, með sjálfstæðisstefnuna að leiðarljósi, eru stoltir af því að hafa átt hvað drýgstan þátt í þessum miklu framförum: að bæta lífskjör íslensku þjóðarinnar og koma henni í fremstu röð í flestu tilliti.

    Lækkun skatta
    Sjálfstæðisflokkurinn hafði forystu um að ríkisstjórnin sem tók við eftir alþingiskosningar árið 2003 hefði að einu meginviðfangsefna sinna að lækka skatta á almenning. Búið var að gera skattaumhverfi atvinnulífsins samkeppnishæft við það sem best gerist erlendis og nú var röðin komin að einstaklingunum. Eignaskattur var lagður niður og tekjuskattur lækkaður í áföngum. Niðurfelling eignarskatts kemur sér einkar vel fyrir þá sem skulda lítið eða ekkert í íbúðarhúsnæði sínu en margir eldri borgarar eru í þeim hópi. Tekjuskattslækkun eykur ráðstöfunartekjur allra launþega og er því sú kjarabót sem kemur flestum til góða.

    Útrás atvinnulífsins
    Þegar horft er til atvinnulífsins hafa fyrstu ár nýrrar aldar m.a. einkennst af miklum eignatilfærslum og útrás íslenskra fyrirtækja á erlendri grund. Atvinnulífið hefur nýtt sér til fulls það frelsi til athafna sem stjórnvöld komu á í lok 20. aldar og starfssvæðið er heimurinn allur. Ítök stjórnmálamanna og opinberra aðila í atvinnulífinu hafa aldrei verið minni og fyrirtækin aldrei verið öflugri.“
    Er eitthvað af þessum gæðum, sem þið lýsið þarna, eftir og hvenær megum við búast við, að við fáum að njóta þeirra aftur ef þið komist til valda? Allur þessi hagvöxtur sem lýst er þarna, var hann ekki bara tekin að láni, og lifað flott á láninu þar til kom að gjalddaga og þá kom úps við eigum bara ekki fyrir þessu, allir verða að borga til baka gæðin sem við færðum ykkur. Af hverju eigum við að trúa því að þið getið þetta betur núna en þá? Ég veit að það voru bankar og auðmenn sem fóru fyrir, en þeir spiluðu í lagaumhverfi sem þið bjugguð til, af hverju eigum við að trúa því að þið séuð flinkari við lagasetningar núna en þá? Aftur tilvitnun í sögu sjálfstæðisflokksins: „Í 22 ríkisstjórnum af 31
    Flokkurinn hefur frá stofnun verið sú stjórnmálahreyfing landsins sem notið hefur mests fylgis og komið að landsstjórninni í 22 af þeirri 31 ríkisstjórn sem mynduð hefur verið frá stofnun hans og veitt 15 þeirra forystu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur líka átt mikinn stuðning í bæjar- og sveitarfélögum eða tæplega 45% meðalfylgi frá stofnun og kjörnir fulltrúar hans hafa látið verulega að sér kveða á þeim vettvangi. Í Reykjavík hafði flokkurinn hreinan meirihluta um áratuga skeið, allt til 1978 og aftur 1982 til 1994.“ Mér sýnist þið hafa að mestu leiti stjórnað þessu landi síðan 1939 samkvæmt þessari sömu sögu sem ég hef vitnað í. Svo enn og aftur af hverju eigum við að treysta ykkur? Bara af því að hinir eru verri eða, af því að þið vitið hvað þið eruð að gera? Og ef þið vitið hvað þið eruð að gera, hvaðan kom sú þekking á ca. 6-7 mánuðum. Eruð þið kanski bara að vona að þið vitið hvað þið eruð að gera? Það væri gaman að sjá svör við einhverju af spurningum mínum t.d. hér á síðunni þinni. Ég viðurkenni alveg að ég er bæði reið við ykkur og mjög hrædd um hvað á eftir að gerast fleira, því ég treysti því ekki að allt sé komið sem kemur í kjölfar þessa hruns. Ég er ekki viss um að vandamálin væru neitt nær því að leysast þó þið væruð að stjórna landinu, en ég held að þið séuð voða heppnir að vera í stjórnarandstöðu og geta sagt að svo væri.

  •   Andri // 16.4 2009 kl. 18:42

    Já hey allir, gleymum bara því sem Sjálfstæðisflokkurinn er (Auðvalds, spillingar og valdaflokkur) og förum að hugsa um það sem „skiptir máli“. Það sem skiptir mestu máli er að reka Sjálfstæðisflokkinn úr landi.

    Hvort er annars LÍÚ deild innan Sjálfstæðisflokksins eða FLokkurinn deild innan LÍÚ?

    Ef þú ætlar að taka til, byrjaðu þá heima hjá þér, í þínu garði. Svo kannski þegar þú hefur áunnið þér raunverulegt traust en ekki gervi traust sem keypt hefur verið með sjónvarpsauglýsingum, er hægt að taka mark á ykkur aftur. Kannski.

    Það hefur ekkert breyst í Sjálfstæðisflokkum. Sama gamla ruglið.

  •   Þór // 16.4 2009 kl. 19:01

    Ég er vaknaður. Takk fyrir að vekja mig til umhugsunar um það að eina leið okkar til þess að komast aftur í samband við umheiminn er innganga í ESB.
    Burt með ónýta krónu og annar gjaldmiðill en evra er ekki inn í myndinni. Þetta segja allir þeir sem eitthvað vit hafa á peningamálum. Einhliða upptaka annars gjaldmiðils er heldur ekki raunhæfur. Útrætt og ótækt.

  •   Ásta B // 16.4 2009 kl. 19:42

    Sæll
    Ég er alveg ótrúlega vel vakandi og er búin að vera það frá því í október 2008. Reyndar þegar ég hugsa mig betur um þá er ég búin að vera vakandi mun lengur vegna þess að það voru svo mörg viðvörunarljós sem blikkuðu.
    Þess vegna treysti ég ekki þeim sem ollu hruninu með ótrúlegu sinnuleysi og gáleysi á öllum sviðum til að koma okkur á réttan kjöl.
    Þess vegna mun ég ekki kjósa Sjáfstæðisflokkinn.

  •   JR // 16.4 2009 kl. 19:48

    Alveg merkilegt að sjá skrif sjálfstæðismanna í dag.
    Hvers vegna á eg að borga eitthvað sem sjálfstæðisflokkurinn skuldar ?
    Skuldir mínar í dag eru skuldir þínar og sjálfstæðisflokksins !
    Ekki vera að reyna að skrifa um eitthvað annað !
    Mundu að það varst þú og þínir flokksfélagar sem stofnuðu til þeirra skulda sem þú ætlar að reyna kenna öðrum um !

  •   Páll Valur Björnsson // 16.4 2009 kl. 21:17

    Hættu þessu bölvaða röfli Sigurður minn það tekur ekki nokkur maður mark á þessari mafíu srem þú leggur lag þitt við. Sjálfstæðismenn eiga að hafa vit á því að halda kjafti á meðan fólk og flokkar sem hafa hagsmuni þjóðarinnar allrar eru að hreinsa upp eftir þá skítinn. Hin gjörsamlega snarbilaða stefna ykkar og framkvæmd hennar kom okkur á kaldann klaka. Það eru sem betur fer flestir að opna augun fyrir því hverslags stofnun þessi FL-okkur er og það verður mikill sigur fyrir þjóðina ef fylgi hans fer undir 20% í vor.

  •   Björn Ólafsson // 16.4 2009 kl. 21:33

    Hvernig væri að þú kæmir sjálfur með lausnir? t.d. í peningamálum. Hvað er með ykkur sjálfstæðismenn og evruna? er málið að ríghalda í krónuna svo þeir efnameiri geti leikið sér með hana og grætt? Þið hafið enn ekki lagt til neina raunhæfa leið, komið með eitthvað sem leiðir til þess að þjóðin og svo ekki sé talað um umheiminn, fái traust á efnahagsáætlun landsins.

  •   Viðar Ingvason // 16.4 2009 kl. 22:04

    Sæll Sigurður Örn.
    Það eru engar aðferðir þekktar sem duga til að leysa þennan vanda. Við erum gjaldþrota. Skuldirnar getum við aldrei greitt að fullu. Frumskilyrði fyrir endurreisn er ákvörðun um að borga engar erlendar skuldir.

  •   Váfir // 17.4 2009 kl. 00:41

    Tek hér nokkur dæmi um mál sem vert væri að ræða, en eru ekki rædd (hér):

    1. ESB
    2. Kvótakerfið
    3.Tengsl hvers atkvæðis við framvindu þjóðmála næstu 4 árin
    4. Merkingin að baki slagorðinu ‘Nýtum auðlindir landsins’ á talmáli

  •   Magnús Björn Ólafsson // 17.4 2009 kl. 03:35

    Vá, úff takk fyrir að vekja mig. Ég held ég sé loksins vaknaður til meðvitundar. Þú ert svo rökfastur að neistarnir hrökkva af hverju orði og sannfæringin syngur milli línanna.Hvílíkur Pistill Sigurður! Þessi lesning sannfærði mig um að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Mér líður vel. Ég ætla að kjósa fólkið sem lýsti fyrir mína hönd yfir stuðningi við innrásina í Írak, fólkið sem neitar að fordæma þjóðarmorð í Palestínu, fólkið sem rústaði sveitinni minni og hefur það á stefnuskránni fyrir komandi kosningar að virkja allt landið á bólakaf, fólkið sem er svo siðlaust að það heldur að orðspor þess lagist við það að eitt að skila mútufé, fólkið sem hangir í hugmyndafræði sem hefur hrunið á heimsvísu, fólkið sem skuldsetti mig fram í gráa ellina, fólkið sem sá til þess að hér verður ekkert gert næstu áratugi nema þrífa skítinn eftir það, fólkið sem er svo forhert að það getur ekki beðist afsökunar…

    Þú átt að hafa vit á því að halda kjafti og tyggja karamellur Sigurður Örn!

    Risti ég átta ása, nauðir níu, þursa þrettán, hverjir þjaki þinn búk með illri skitu og kveisu! Pojj!

  •   Axel Axelsson // 17.4 2009 kl. 09:08

    Sæll Sigurður.
    Þetta er góður og löngutímabær pistill. Það virðist ekki vera nokkur leið til þess að fá vinstra liðið til að tala um stjórnmál. Það er orðið svo fast í leðjupyttinum að það nær sér ekki upp á bakkann.
    Flest svör vinstrimanna ganga út á að ata Sjálfstæðismenn auri, kalla þá fífl, glæpamenn, hálvita og aumingja. Þannig málflutningur sést ekki frá Sjálfstæðismönnum um andstæðinga sína, enda sýnir þetta þvílíka málefnaþurrð, að það hálfa væri nóg.
    Haltu áfram að reyna að koma alvöru málefnum á dagskrá og láttu þessi svokölluðu svör (flest) ekkert trufla þig.
    Kveðja,
    Axel.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og átta? Svar: