Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir

blogg á eyjan.is

„Sprellandi stráklinga“ burt úr stjórnsýslunni

27.7 2010 | 22:46 | 28 ummæli

Það er með öllu óþolandi að sjá svona orðbragð koma innan úr hinni opinberu stjórnsýslu. Á meðan hópur fólks vinnur skipulega og af miklum heilindum að því að endurreisa trúverðugleika og virðingu stjórnsýslunnar, þá leyfa „skósveinar“ lýðræðiskjörinna fulltrúa sér að vaða þarna um á skítugum skónum. Svona „strákling“  sem leyfir sér slíkt orðbragð í hlutverki aðstoðarmanns menntamálaráðherra þjóðarinnar á að vísa umsvifalaust á dyr. Annars er til lítils að slökkva elda meðan brennuvargar ganga þarna lausir.

Stjórnmálamönnum verður að skiljast að það er almenningur sem á þessa stjórnsýslu, – hann stendur straum af kostnaði hennar og hann gerir kröfu til þess að geta treyst henni og borið virðingu fyrir starfsemi hennar. Þarna bera stjórnmálamenn mikla ábyrgð sem þeir þurfa að standa skil á gagnvart almenningi.

Hér vantar meiri virðingu, meiri reisn og meiri alvöru. Stjórnsýsla án trausts og virðingar er gagnslítil stjórnsýsla.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag
Efnisorð: ,



Ummæli (28)

  •   hilmar // 27.7 2010 kl. 23:03

    Hvað er svona ljótt við að segja : tussufínt ?
    Orðbragð ? Er ekki verið að upphefja þennan líkamspart á hinn jákvæðasta hátt ?

  •   Jóhannes Laxdal // 27.7 2010 kl. 23:07

    Nei, þvert á móti. Það vantar fleiri svona aula sem obinbera fyrir alþjóð hvað stjórnsýslan er að bralla á bak við tjöldin. Hvaða hálfvita dettur í hug að íslenska „fucking great“ sem tussufínt? Ef ég væri menntamálaráðherra myndi ég gera meiri kröfur….

  •   Margrét Sig // 27.7 2010 kl. 23:08

    Sammála. En af hverju í ósköpunum ganga brennuvargarnir enn lausir?

  •   JR // 27.7 2010 kl. 23:20

    Er þetta eina dæmið úr íslenskri stjórnsýslu í dag, sem gera má athugsemdir við ?

    Því miður er íslenska stjórnsýslan gerspill og handónýt, og búin að vera lengi !

    Hvernig má það vera að fólkið, sem vinnur í þessari stjórnsýslu, getur ekki unnið skammarlaust að undirbúningi laga frá alþingi ???

    Eina orðið sem þar er brúkað, látum reyna á þetta !!!!!!!!!!!!!!!!!!

  •   Einar Jónsson // 27.7 2010 kl. 23:31

    Svona orðbragð á að sjálfsögðu ekki að sjást eða heyrast og er viðkomandi til vansa.

    En ef þetta er stærsta vandamálið í íslenskri stjórnsýslu værum við afar vel sett.

  •   Balzac // 27.7 2010 kl. 23:31

    Hann hefði kannski heldur átt segja ,,algjör gersemi“ sem þýðir það sama en lætur betur í eyrum hispursmeyjanna.

  •   Sævar Óli Helgason // 27.7 2010 kl. 23:37

    Sigurbjörg…
    Heyr… Heyr…!

  •   Heiða // 27.7 2010 kl. 23:44

    Merkileg þessi umræða um stjórnmál á Íslandi. Hér eru sjö ummæli að framan um dæmalausan tölvupóst frá aðstoðarmanni menntamálaráðherra. Í ummælunum snýst allt hjá ykkur um orðið „tussufínt“ en sjálft innihald tölvupóstsins gleymist. Aðstoðarmaður mennta- og fjölmiðlaráðherrans er hér staðinn að því að reyna að hafa áhrif á fjölmiðlaumræðuna með því að afvegaleiða fjölmiðla landsins. Vissulega stórmál en hvað gerið þið ? Jú þið talið bara um smekklausa orðið “ tussufínt“

  •   kristbjörn árnason // 27.7 2010 kl. 23:47

    ég er algjörlega sammála Sigurbjörgu. Aðstoðarmaður menntamálaráðherra verður að gæta orða sinna. Hræddur er ég um, að ef ég væri svona orðanotkunn í mínu starfi sem grunnskólakennari fengi ég að fjúka.

    Menntamálaráðherrann er yfirmaður skólamála á Íslandi

  •   Balzac // 27.7 2010 kl. 23:54

    Ehemm.

    Takk fyrir góða ábendingu, Heiða mín.

    Meðal annarra orða, vildi aðstoðarmaðurinn afvegaleiða fjölmiðla
    að eigin frumkvæði?

    Eða kannski að undirlagi ráðherrans?

    Hmm.

  •   Anna B. // 28.7 2010 kl. 00:06

    Þetta er kjánaleg ekki-frétt og þeir eru kjánalegastir sem heimta afsögn aðstoðarmannsins út af orðbragði í óopinberum tölvupósti.

    Komst þessi ríkisstjórn ekki til valda í byltingu þar sem Helvítis fokking fokk var aðal slagorðið?

  •   Frestur // 28.7 2010 kl. 00:57

    Ha ?
    Brennuvargur gengur laus og kveikir í „tussufínum“ endurbótum stjórnsýslunnar ?

    Er hún að tala um bankaleyndina, tilmæli til frekara gengistrygginar ofbeldis, icesave bullið, allt undir borðum gagnsæjið, skjaldborgina um glæpamenn og glæpafyrirtæki, eyða heilu sumri í ESB umsókn gegn vilja Íslensku þjóðarinnar og heimilin brenna á meðan, og að AGS ráðskast með ríkisstjórnina og svikarar sitja í stjórnum og uppgjöri ónýtra banka sem eiga að fá að blóðmjólka Íslensku þjóðina ?!!

  •   Frestur // 28.7 2010 kl. 00:58

    Ég spyr af því að ég geri mér ekki alveg grein fyrir þessu hvað sé málið með innihald tölvubréfsins, hvað er það sem hann gerði vitlaust fyrir utan orðalagið því hann virðist hafa sagt það sama og kom fram á blaðamannafundinum ?

    Er það sem steini og jóga sögðu bara blekking sem hefur ekkert á bak við sig ?
    Er málið það að ráðherra þarf að tilkynna til magma með afgerandi hætti að sölugjörningurinn sé ÓLÖGMÆTUR og ef ekki þá heldur ferlið bara áfram eða hvað ?!
    Ég held samt ekki því að ráðherra verður að gefa leyfi fyrir kaupunum annars eru þau í bið ?

  •   vulva buena // 28.7 2010 kl. 01:06

    æji plís

  •   Ari // 28.7 2010 kl. 01:32

    Þetta er í raun ekki opinbert. Þetta lak og er óopinbert plagg þar sem menn nota orð sem þeir fíflast með dagsdaglega. Heldur þú virkilega að fólk noti sömu orð við vini síni og að þeir nota opinberlega?

  •   Ásgeir H // 28.7 2010 kl. 02:21

    Hvað er gróft orðbragð? Tökum tvö dæmi:

    Dæmi eitt: tussufínt – í upphafi tölvupósts, ekki beint að neinni ákveðinni manneskju – óheflað vissulega, en ekki ætlað að særa neinn.

    Dæmi tvö: „stráklingur“ notað niðrandi um þrítugan mann – notað mjög úthugsað til þess að draga úr trúverðugleika hans, manns sem aldrei er nafngreindur í færslunni. Já, ég veit að Steingrímur J. notaði þetta fyrst en það afsakar ekki hvernig Sigurbjörg notar það.

    Það er nefnilega fullkomlega réttlætanlegt að skamma Elías – honum varð sannarlega á í messunni – en ansi bratt að gera það með jafn yfirlætislegum hætti og hér er gert og falla svo miklu dýpra í sömu gryfju og vísað er í. Ef það vantar meiri virðingu í stjórnsýsluna þá hlýtur að vera lykilkrafa að tala ekki um ungt fólk sem ratar þangað inn sem „stráklinga“ og „stelpugálur“, frekar en að við sem erum í kringum þrítugt séum stöðugt að uppnefna okkur eldra samstarfsfólk sem karluglur og kerlingarálftir.

  •   bjarni // 28.7 2010 kl. 02:40

    Algjörlega sammála Heiðu hér að framan. Málið er að aðstoðarmaður ráðherra ákveður að afvegaleiða umræðuna, væntanlega með samþykki ráðherra. Það er aðalmálið og það eina sem skiptir máli.

    En „spriklandi stelplingurinn“ Sigurbjörg ákveður að afvegaleiða umræðuna með því að hengja sig í aukaatriði málsins en ekki aðalatriði. Þannig kaus hún að gera orðalagið að meginatriði síns pistils, en ekki aðalatriðið, sem var að háttsettur aðili innan stjórnsýslunnar kaus að ljúga að almenningi, í gegnum fjölmiðla, og þannig afvegaleiða umræðuna.

    Spriklandi stelplingurinn Sigurbjörg er auðvitað engu skárri en dónakallinn með tussutalið, en virkar óneitanlega aðeins virðulegri. En meira hrós á hún ekki skilið.

  •   Hólmfríður Bjarnadóttir // 28.7 2010 kl. 02:45

    Talsmáti aðstoðarmanns ráðherra sem notar klámfengið götumál til að koma skilaboðum á framfæri, er að mínu álit ekki í lagi.

  •   Frestur // 28.7 2010 kl. 02:57

    Burt séð frá talsmátanum, hvað var að því sem hann sagði og hverju laug hann ??

  •   Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson // 28.7 2010 kl. 07:58

    Menntamálaráðherra, Katrínu Jakabosdóttur, þykir Elías Jón Guðjónsson greinilega tussufínn aðst0ðarmaður. Það sýnir væntanlega frábæra dómgreind þeirrar konu. Burt með þá Stalínspíku segi ég!

    En Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, sem illa þolir stráklinga, skilur ekki að þeir eru ekki aðalvandamálið.

    Það er til karlfauskur nokkur sem lýgur meira en hann mígur á ífallandi fundi í Brussel í miðju sumarleyfi ESB. Svo ekki sé minnst á gamla, reitta A-lessu og þreyttan VG-skaufa að norðan, sem gera meira til að halda í ráðherralaunin en að vinna fyrir þjóðina og fara að vilja hennar.

    Ríkisstjórn, sem sankar að sér tussustrákum og öðru rugluliði, sýnir okkur að hún virðir þjóðina að vettugi. Þjóðin vill ekki lengur að Bolshjoj fjölleikahúsið stjórni landinu. Konan með skeggið, dæmalausi dvergurinn, Eurotrúðurinn og hinir artistarnir eru ekki lengur í tísku. Fjölleikahús Rauðu Stjörnunnar getur ekki bjargað málum á Íslandi.

  •   kristbjörn árnason // 28.7 2010 kl. 08:34

    Hvað þýðir orðið ,,tussufínn“??

  •   Balzac // 28.7 2010 kl. 09:09

    Það þýðir ,,algjör gersemi“ og fleira í sama dúr, Kristbjörn minn.

    Þetta muntu skilja betur þegar þú verður stór.

  •   Einar Guðjónsson // 28.7 2010 kl. 10:31

    “ Á meðan hópur fólks vinnur skipulega og af heilindum við að endurreisa trúverðugleika og virðingu stjórnsýslunnar“ Þetta fólk hefur greinilega farið fram hjá mér. Geturðu ekki nefnt einhver dæmi um hvar það er að finna?

  •   Sérhver // 28.7 2010 kl. 11:20

    Aðalatriði málsins eru þessi:

    1. Það er rétt hjá Sigurbjörgu að það á ekki að líða svona orðbragð í stjórnsýslunni. Við viljum vandvirka fagmenn, ekki galgopa.

    2. Friðrik Þór Guðmundsson hefur farið yfir tölvupóst „stráksins“ og kemst að þeirri niðurstöðu að í raun sé ekki verið að afvegaleiða neinn, heldur sé verið að draga fram aðalatriði málsins, sjá nánar hér: http://blog.eyjan.is/lillo/2010/07/27/var-umraedu-stjornad-med-tussufina-lekanum/. Sending tölvupóstsins var greinilega klaufaskapur og ekki sá fyrsti á opinberum vettvangi.

    Svo vaða menn elginn hér að ofan með sínum séríslenska aulahætti. Svo mun verða á meðan land byggist.

  •   Sigríður Lára Sigurjónsdóttir // 28.7 2010 kl. 12:07

    „Spurning hvernig við prjónum þetta“ fer mest í taugarnar á mér í þessum tölvupósti.
    M.ö.o.hvernig á nú að nota fjölmiðla til að blekkja þjóðina?

    Er Íslandi enn stjórnað af PR-liðinu?
    Erum við ekki búin að sjá hvernig það fer?
    Hvernig væri að henda „upplýsingaliðinu“ út eins og það leggur sig og láta þá sem eiga að stjórna í ráðuneytunum leggja það á sig að segja sannleikann, í staðinn fyrir að vera alltaf búin að „prjóna“ eitthvað kjaftæði til að dreifa huganum frá aðalatriðum málanna?

    Þjóðin fær ekki aðgang að umræðunni á meðan hún er byggð á lygum, ýkjum, úrdrætti og „prjóni“.

  •   Anna B. // 28.7 2010 kl. 13:33

    Eitt af hlutverkum aðstoðarmanna ráðherra er að hafa samskipti við fjölmiðla. Hluti af samskiptum við fjölmiðla er að reyna að hafa áhrif á umfjöllun þeirra. Þetta gera allir upplýsingafulltrúar fyrirtækja, almannatenglar, talsmenn, markaðsfólk og aðrir sem starfa að einhverjum hætti við upplýsingamiðlum og kynningarmál.

    Maðurinn var ekkert að „afvegaleiða umræðuna.“ Hann laug nákvæmlega engu, kæra Sigríður Lára. Ef þú vilt halda öðru fram skalt þú benda á lygarnar, annars ert þú einfaldlega lygari sjálf. Hann benti á aðalatriði væntanlegs blaðamannafundar í þessu uppkasti að texta sem var í tölvupóstinum og þar var engu logið.

    Gleymum okkur ekki í móðursýkinni. Almannatengsl eru ekki glæpur.

  •   Íslendingur // 1.8 2010 kl. 22:28

    Er mönnum í stjórnsýslunni á Íslandi alveg fyrirmunað að vinna af viti og alvöru fyrir þjóðina? Hvað hafa þeir lært í langskólanáminu sem flestir þeirra hafa lokið?
    Er Menntamálaráðuneytið marktækt yfirhöfuð?

  •   Guðrún Ægisdóttir // 18.2 2011 kl. 00:38

    Það á ekki að líða galgopahátt hjá manni í þessari stöðu. Punktur.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og fjórum? Svar: