Færslur með efnisorðið 'Óflokkað'

8.12 2009

Jólakúlunámskeið

Knitting Iceland heldur æsispennandi námskeið í jólakúlugerð – hekli og þæfingu – fimmtudaginn 17. desember kl. 19-22. Verð 5500 – garn og glys innifalið. Kennarar eru Ragga E og Edda Lilja (52 húfur á 52 vikum) . Námskeiðið verður haldið í kjallara Bústaðakirkju, þar sem bókasafnið var áður. Hafið samband á ragga@knittingiceland.com til að skrá [...]

26.11 2009

Hvar fæst diskurinn?

Nú er aldeilis hringt og meilað og sms-að og spurt um prjónakennsludiskinn Prjónum saman. Skilaboð berast úr öllum áttum og alla langar í eintak. Ístex dreifir DVD disknum  til sinna söluaðila – svo það er hægt að nálgast diskinn á sömu stöðum og lopann góða út um allt land. Diskurinn er kominn í fullt af [...]

25.11 2009

Kastljósið

Kastljósið kom í heimsókn í dag og fjallaði svo um prjónadiskinn góða og hvað þetta er nú allt dásamlegt… Prjónína fékk líka smá prómó, enda afskaplega þokkafull kind og framleiðir þessa fínu ull fyrir mig. Ljúflingurinn hún Ragnhildur Steinunn sagði: „Með prikum og bandspotta má skapa nánast hvað sem er og að sögn Ragnheiðar Eiríksdóttur [...]

25.11 2009

Prjónum saman

Ég ætla nú ekki að segja að mér líði eins og eftir fæðingu… kannski eins og eftir fæðingu á DVD disk sem væri nú örugglega ekkert mál! En jú, það er ótrúlegur léttir að diskurinn sé kominn út í heiminn og fram að þessu hafa viðbrögðin verið alveg frábærlega jákvæð. Það var góð stemmningin í [...]

23.11 2009

Velkomin í útgáfuhófið

Guvðséossnæstur diskurinn er mættur á svæðið! Hamingja og gleði. Ég er afskaplega ánægð með hann enda frábært fólk sem vann að verkefninu með mér. Svo er ég líka agalega þakklát þeim sem styrktu en það eru Ístex, Ikea, Epal, Nálin og Nakti apinn.
Á morgun verður frumsýning í Norræna húsinu kl. 17 og þangað eru prjónarar [...]

6.11 2009

DVD á leiðinni

Þá er fyrsti DVD prjónadiskur Íslandssögunnar aaalveg að verða tilbúinn. Ekki nema 2 vikur hérumbil í frumsýningu. Á disknum kenni ég ýmis prjónatrikk og hvet prjónara til dáða í sköpuninni. Honum fylgja líka 3 sætar prjónauppskriftir.  Spenntir prjónarar sem vilja tryggja sér fyrstu eintökin geta haft samband á netfangið ragga@knittingiceland.com. Sendið upplýsingar um nafn, heimilisfang og [...]

30.10 2009

Peysan Lóa

Peysan Lóa er létt og hlý laskapeysa sem prjónuð er að ofan. Þannig er byrjað á hálsmálinu, axlastykkið prjónað, búkurinn kláraður og að lokum ermarnar. Mér finnst þessi aðferð til að prjóna peysur miklu betri en sú hefðbundna þar sem byrjað er neðst. Að minnsta kosti var ég algjörlega glataður peysuprjónari þar til ég tileinkaði [...]

23.10 2009

Loksins! Prjónablogg á Eyjunni

Jæja, það var kominn tími til að flytja upp á Eyju með prjónablogg. Hér verður fjallað um prjón, prjónamenningu og ýmislegt sem hægt er að gera með bandi og prikum. Húrra fyrir prjóninu!