26.11 2009 | 15:57
Hvar fæst diskurinn?
Skoða ummæli
Nú er aldeilis hringt og meilað og sms-að og spurt um prjónakennsludiskinn Prjónum saman. Skilaboð berast úr öllum áttum og alla langar í eintak. Ístex dreifir DVD disknum til sinna söluaðila – svo það er hægt að nálgast diskinn á sömu stöðum og lopann góða út um allt land. Diskurinn er kominn í fullt af prjónabúðum, einhverjar Hagkaupsverslanir, Krónubúðir og Kost. Söluaðilar Ístex geta haft samband beint þangað en ef einhverjir aðrir eru spenntir, t.d. bókaverslanir, matvörubúðir, plötubúðir, raftækjabúðir eða bara barnafatabúðir – er hægt að hafa beint samband við Knitting Iceland sem gefur diskinn út á ragga@knittingiceland.com
Meira rokk, meira prjón!

Ragnheiður Eiriksdóttir
2 Ummæli
26.11 2009 kl. 20:20
Meiri háttar !
15.2 2010 kl. 15:18
Normally, some teachers want to check out the literature term paper writing ability of some their students, nevertheless not all good students can to write professionally just because of a job or other things. Therefore, a sociology essay writing service is able aid to write the comparison contrast essay very fast.
Rita ummæli