25.11 2009 | 8:24
Prjónum saman
Ég ætla nú ekki að segja að mér líði eins og eftir fæðingu… kannski eins og eftir fæðingu á DVD disk sem væri nú örugglega ekkert mál! En jú, það er ótrúlegur léttir að diskurinn sé kominn út í heiminn og fram að þessu hafa viðbrögðin verið alveg frábærlega jákvæð. Það var góð stemmningin í Norræna húsinu í gær á frumsýningunni – kertaljós, piparkökur og prjón. Síðdegisútvarp Rásar 2 mætti á staðinn og fjallaði um Prjónum saman í beinni. Hér er þátturinn - viðtalið við mig er undir lokin. Fram að mánaðarmótum verður hægt að panta diskinn hjá mér á kynningarverði, 3000 kr. Almenn dreifing hefst innan skamms. Ístex dreifir á alla sína sölustaði en aðrir áhugasamir endursöluaðilar geta haft samband við mig á ragga@knittingiceland.com
Hér er umfjöllun fréttablaðsins í dag.

Ragnheiður Eiriksdóttir
1 Ummæli
25.11 2009 kl. 21:57
Þetta var virkilega fín kynning og gaman að koma. Hefði notið þess að setjast niður og prjóna en litla 2 ára kallinum mínum finnst það ekki gaman.
Svo var líka þessi flotta kynning í kastljósi í kvöld. Þú ert greinilega ein af þessum ofurkonum.
Gangi þér vel.
Rita ummæli