25.11 2009 | 22:18
Kastljósið
Skoða ummæli
Kastljósið kom í heimsókn í dag og fjallaði svo um prjónadiskinn góða og hvað þetta er nú allt dásamlegt… Prjónína fékk líka smá prómó, enda afskaplega þokkafull kind og framleiðir þessa fínu ull fyrir mig. Ljúflingurinn hún Ragnhildur Steinunn sagði: „Með prikum og bandspotta má skapa nánast hvað sem er og að sögn Ragnheiðar Eiríksdóttur er prjón hinn mesti galdur. Hún óttast að brátt verði hún komin með kindur út í garð í miðri höfuðuðborginni en prjónakúnstir eiga hug hennar allan. Við litum í heimsókn í Kjalarlandið þar sem nóg var af garni og prjónum.“ Hér er hægt að sjá atriðið.
Ragnheiður Eiriksdóttir
2 Ummæli
26.11 2009 kl. 0:24
Það er allt í lagi að vera með nokkrar kindur í garðinum hjá sér inn í miðri borg. Merkir menn eins og Jamie Lerner (http://en.wikipedia.org/wiki/Jaime_Lerner) hafa gert þetta.
26.11 2009 kl. 11:29
Afskiptaleysi RUV af alvoru malum er til skammar…. algj0rlega til skammar.
Teir eru gjorsamlega obsessed med rollur tessa dagana.
Rita ummæli