6.11 2009 | 21:17

DVD á leiðinni

Skoða ummæli

Þá er fyrsti DVD prjónadiskur Íslandssögunnar aaalveg að verða tilbúinn. Ekki nema 2 vikur hérumbil í frumsýningu. Á disknum kenni ég ýmis prjónatrikk og hvet prjónara til dáða í sköpuninni. Honum fylgja líka 3 sætar prjónauppskriftir.  Spenntir prjónarar sem vilja tryggja sér fyrstu eintökin geta haft samband á netfangið ragga@knittingiceland.com. Sendið upplýsingar um nafn, heimilisfang og símanúmer. Þeir sem gera það fá sína diska afhenta áður en almenn dreifing hefst. Í kringum útgáfuna verður efnt til skemmtilegra prjónaviðburða… fylgist með!



17 Ummæli

  • Ég hlakka rosalega mikið til þess að fá að sjá öll trixin og læra nýja hluti! Mátt setja mig á pantlista.

  •   Drífa
    6.11 2009 kl. 23:36

    Jesú almáttugur herregud ! Gjöööðveikt prjónalag – þvílíkt hugmyndaflug að láta sér detta prjónalag í hug… Hver syngur annars, þú ert ekki svona djúprödduð

    Bjargaðir deginum :)

    Gúd lökk !

    Drífa

  • Þvílík snilld þetta lag, búin að bjarga deginum hjá mér og klukkan bara tíu. Fæ örugglega karlinn til að prjóna eftir að hafa heyrt þetta lag.

    Hlakka til að fá nýja diskinn þinn glóðvolgan í hendurnar, verð örugglega prjónasnillingur eftir þann lærdóm .

  •   Katie holms
    7.11 2009 kl. 18:21

    Hann er sko komin á jólagjafalistann fyrir löngu…!!

  •   amalia
    7.11 2009 kl. 21:58

    Bara frábært,flott lag,hlaka til.

  •   Sallý
    7.11 2009 kl. 22:10

    Frábært!
    Þetta er örugglega Högni söngvarinn í Hjaltalín, ekki satt?

  •   Ragnheiður Eiriksdóttir
    7.11 2009 kl. 23:11

    Jú Sallý þú hittir naglann á höfuðið! Takk fyrir öll skemmtilegu ummælin… ég lofa bitastæðu efni fyrir prjónara. Trikk og huggulegheit í hvívetna.

  •   Guðbjörg
    8.11 2009 kl. 11:19

    Ég næ ekki að hlusta á lagið :(

  • Spennandi!

  •   Signý
    8.11 2009 kl. 21:35

    Hæ Ragnheiður.
    Hvar fæst Angora garn eins og er notað í jólasveinahúfuna?

  •   Ragnheiður Eiriksdóttir
    8.11 2009 kl. 22:30

    Hvíta angórugarnið er frá BC garn og fæst í Nálinni – ég er samt ekki viss um hvaða litir fást núna. Ég hef prjónað húfuna úr ýmsu öðru svo ef þú átt eitthvað hvítt og djúsí garn er bara spurning um að prófa það.

  •   Signý
    9.11 2009 kl. 14:29

    Ég á rest af hvítu Kitten Mohair, gæti það komið í staðinn?

  •   Ragnheiður Eiriksdóttir
    9.11 2009 kl. 19:17

    Jájá ekki spurning. Notaðu það bara tvöfalt ef það verður eitthvað aumingjalegt…

  • Hlakka til að fá diskinn eftir alla umræðuna um hann á rósaleppanámskeiðinu :)

  • ‘Eg hlakka til,ætla að fá 1 st takk.

  •   Guðrún G Matthíasdóttir
    18.11 2009 kl. 9:09

    Sæl gaman er að sjá hvað eru margir farnir að prjóna ég hef áhuga á dvd hjá þér það er frábært sem þú ert að gera kveðja G.G.M

  • Að koma út úr skapnum…

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):