Færslur í flokknum: 'Uppskriftir'
Dyggir lesendur vita að Naglinn borðar ekki venjulegar fröllur… aldrei…ekki einu sinni þegar villidýrinu er sleppt lausu. Þessi djúpsteikti viðbjóður hefur ekki snert munnholið síðan á menntaskólaárunum. Þá endaði hefðbundinn sígó bíltúr iðulega í lúgunni á BSÍ og lítill snæðingur, franskar, kokteil og kók sporðrennt, og til að toppa ófögnuðinn pöntuð auka kokteil til að klára upp frönskurnar.
Það er eitthvað velgjuvaldandi í munnvatnskirtlum Naglans við tilhugsunina um sizzlandi, kraumandi djúpsteikingu og transfitubaðið sem innyflin hljóta við innbyrðingu þessa ómetis.
En Naglinn býr sér hinsvegar oft til Naglafröllur, snarhollar en sami „effektinn“ og í þessum óhollu.
1 bökunarkartafla (HRÁ)
skera í tvennt og svo langsum í 1 cm strimla
Pipra eins og vindurinn
Sjávarsalt…. væna klípu
Inn í ofn á 200 °C blástur í 45-50 mín til að fá þær stökkar undir tönn
Hræra sykurskerta tómatsósu út í 5% sýrðan… nú eða tommuna bara allsbera með…. snarvirkar

Fröllur Naglans
Flokkar: Uppskriftir
Eftir öll árin í heimskulega fáfræðis-myrkrinu þar sem bananar voru á bannlista hefur Naglinn gert sitt ítrasta til að vinna upp þennan tapaða tíma með gula sælgæti náttúrunnar.
Að sjálfsögðu er bjúgaldininu gefið gott pláss í morgunhamingju Naglans, en nýjasta grautar-kombóið djammar svo svakalega í munnholinu að bragðlaukarnir verða timbraðir á eftir og alvarleg fráhvörf gera vart við sig um leið og síðasta slikjan hefur verið skafin úr skálinni… með vísifingri hægri handar *roðn*
Naglinn fékk grunnhugmynd að gleðinni hjá drottningunni sjálfri en djassaði kvekendið aðeins upp.
Opskriften:
The same old…..
40g haframjöl
Husk
sjávarsalt
góðkunningjarnir kaniLL og vaniLL
Kokka lufsuna upp á gamla móðinn og henda í ísskáp
Á meðan grauturinn tjillar slakur í ísskápnum hefst þetta skemmtilega
2 tsk Chia fræ hrært saman með oggu vatni og möndludropum, látið slaka á kantinum og bólgna vel út
Banani…helst eldri en sólin
skorinn í sneiðar
PAMA pönnu og skella el banano á funheitt kvikindið – leyfa honum að sólbrenna svolítið, hella þá yfir 1,5 msk af sykurlausu Torani, heslihnetu/vanillu/karamellu virka öll vel í þennan gjörning.
Skúbba bananaklessunni yfir grautinn sem ætti nú að vera orðinn nægilega hlandvolgur til átu.

Bananagrautur
Og já… Naglinn borðar grautinn með gaffli, jafnvel hníf líka….. því þykkari því betra.
Toppurinn í teinóttu er að setja 1 tsk af náttúrulegu hnetusmjöri ofan á herlegheitin….sýra…nostalgía.
ÚFFF…. þvílíkt matarklám og dónaleg nautn sem þessi brjálæðingur ætti eingöngu að vera leyfilegur í fylgd fullorðinna.
Bon appétit mon chéris
Flokkar: Uppskriftir
Aðvörun! það er alls óvíst að þessi færsla klárist sökum ómanneskjulegra harðsperra í hverju einasta atómi líkamans sem gera saklaust lyklaborðspikk að hreinni kvöl og pínu… svona er að fá nýtt prógramm gott fólk :-/
Eníhú… í framhaldi af þurrelsis umræðunni hér að framan vill Naglinn deila með lesendum nýjasta afrakstri úr tilraunahollustueldhúsi Naglans: þvíhíhílíkt gúmmulaði hnetusmjörs-kókos sósubrjálæði.
Þegar þessi dýrð komst í snertingu við gapandi munnholið fór sjálfur heiðinginn að trúa á æðri máttarvöld… getur þetta kvikindi verið 100 % hollt og löglegt???
Jesss sörí Bob…. þaðheldégnú.
Innihald:
ríflega teskeið af 100% náttúrulegu hnetusmjöri (fínmalað passar best í þetta mall)
1 msk sítrónusafi – slurka meira ef of þurr undir hræringi
1 msk sojasósa
1.5 msk sykurlaust Torani Kókoshnetusíróp
Aðferð:
Þetta er eins einfalt og gerist, enda Naglinn ekki með greindarvísitölu í neinar garnaflækjur í matargerð.
Öllu innihaldinu gumsað saman í lítinn pott og svo bara hræra, hræra, hræra… þeir sem eru ekki með harðsperrur hræra hraðar en hinir…. undir vægum hita þar til allt blandað vel saman og sósan orðin vel fljótandi linkind.

Hnetusmjörskókoshamingja
Hverjir ætla svo að halda áfram að borða þurrelsi með kökk í hálsi og uppgjöf í póstkassanum?
Flokkar: Uppskriftir
Er ekki kominn tími á eins og eina opskrift í skammdeginu? Það held ég nú…
Eins og margoft hefur komið fram svolgrar Naglinn í sig eggjahvítur samhliða grautargleðinni á morgunsárið. Egg eru besti prótíngjafinn, meira að segja svo góður að þau eru notuð sem viðmið fyrir gæði annarra prótíngjafa. Þau innihalda allar átta nauðsynlegar amínósýrurnar fyrir byggingu og viðgerð vöðvanna og mikilvæg vítamín og steinefni: B12, ríbóflavín, zink og járn. Eggjahvítur eru nær algjörlega fitusnauðar, en rauðan inniheldur 5 g af fitu en aðeins 1.6 g þar af er mettuð fita.
Naglinn sogaðist inn í Hrekkjavöku-maníuna hér í København um daginn og fjárfesti í graskeri algjörlega útúr allri rökhugsun, því þegar heim var komið voru góð ráð dýr…. hvernig átti nú að elda þetta appelsínugula flykki sem starði á Naglann á eldhúsborðinu? Eftir yfirlegu á alheimsvefnum og ráðleggingar frá sér vitrara fólki var bráðin sneidd í fjögur stykki, snarað í ofn í 45 mínútur. Kjötið skafið úr hýðinu og skúbbað í blandara með smá vatni og hrært í mauk. Þetta hefur svo nýst svona ansi skemmtilega í pönnsurnar, gerir þær þykkar og „flöffí“.
Naglinn gerir alltaf alltaf alltaf morgunverðarpönnsu kvöldið áður, sá verknaður tekur ekki nema 15 mínútur samhliða öðrum eldhúsverkum. Við fótferðartíma er hungrið gjörsamlega tryllt innan í galtómu svartholinu að hvatinn til að malla saman í pönnsu er álíka mikill og að mæta nakin í fermingarveislu.
Því minni fyrirhöfn, því líklegri erum við til að borða hollt, ekki satt?
Hrekkjavökupannsa
4-6 eggjahvítur + 1 heilt egg (valkvæmt)
1 msk graskersmauk (ath! má nota tilbúið í niðursuðudós)
the usual suspects: 1 tsk af hverju: kotasæla + lyftiduft + hörfræ
Naglinn notar Capella Pumpkin Pie dropa en fyrir þá sem luma ekki á slíkri gersemi þá blífa gömlu góðu vanilludroparnir fínt hér líka.
Hrært í blandara í góðar 5-10 mínútur – hér fer Naglinn að vaska upp og vesenast á meðan
Hellt á vel heita PAM-aða pönnukökupönnu
Lækka strax undir í millihita þegar hræran er komin á pönnuna.
Þegar lumman er orðin vel þurr á mallanum er henni snúið á bakið og leyft að ylja sér í 1-2 mín.
Úr þessum skammti koma um 2-3 stykki.

Kanarígul í skammdeginu
Þessi brjálæðingur framkallar svo heiftarlega sleftauma í munnvikið að lyklaborðið er ónýtt. Gleymdu því að þú sofir dúr nóttina áður… þú verður eins og krakki á leið í Tivoli í fyrsta sinn kvíðablandin spennuþrungin eftirvænting hríslast um kropinn alla nóttina.
Flokkar: Fróðleikur · Uppskriftir
Naglinn hefur misst úr stóra búta af svefni sökum undanfarnar vikur vegna „eftirátstilhlökkunar“ eins og góð kona orðar það. Svefnleysið er líka henni að kenna. Grautarprófanir og pönnsubrjálæði hafa beðið alsaklaus í eldhúsinu eftir að Naglinn spretti á fætur fyrir dögun og malli upp þvílíkar dásemdir að regnbogans litir verða skærari og graðgi svo kræsingunum í smettið undir englasöng.
Gulrótarkökubrjálæðið er dæmi um kombó þar sem farið er útúr líkamanum í alsælu og Nirvana, gengið á vatni og himnarnir opnast en á sama tíma er kvíðahnútur í vélindanu yfir að þessari stund muni brátt ljúka og 24 tímar í næsta graut.
Kvöldið áður:
Raspa hálfa gulrót og setja í lítið box eða poka.
Blanda saman hreinu skyri (Naglinn notar kvark) við 1 tappa vanilludropa eða vanillukorn (fyrir þá sem ERU í álnum… sjúklegum álnum).
Geyma hvoru tveggja í ísskáp yfir nótt hina löngu hnífa.
Hakka pekanhnetur – geyma í boxi eða eggjabikar eins og Naglinn
Setja í pott:
Haframjöl (magn eftir smekk og þörf)
Husk
1 tsk kanill eða brúnkökukrydd
1 tsk sjávarsalt
Rúsínur í pylsuendann (aftur er magn eftir þörf og smekk)
Um morguninn fagra:
Henda rifnu gulrótardúllunni í pottinn með haframjölsblöndunni ásamt slurk af vatni og 2 töppum af vanilludropum og kokka upp grød.
Hella í skál og dreifa pekan yfir. Kæla í 5 mín í ísskáp og hita upp pönnsu á meðan.

Gulrótarkökugrautur
Snætt með vanillu-skyr-hræringnum til að fá kökukremsfílinginn og að sjálfsögðu kanil-hvítu-pönnsu á kantinum til að fá prótín í skrokkinn eftir næturföstuna.
Svo sóðalega, asnalega gott að það er útúr kortinu og úti á túni.
Flokkar: Uppskriftir
Matur hefur átt allan hug Naglans undanfarið. Bæði er skonsan stöðugt að troða í vömbina eins og ali grís á leið til slátrunar en að auki skulu orð standa og mallakút boðið upp á reglulegar nýjungar og gúrmeti. Það er nefnilega náttúrulögmál að til að endast á heilsubrautinni þurfa litlu laukarnir í munnholinu að komast reglulega á djammið.
Hinar ýmsu múnderingar, pælingar, spögúleringar og alls konar -ingar eiga sér því stað í eldhúsinu þessa dagana, enda lítur það oftar en ekki út eins og átakasvæði í Mið-Austurlöndum. Hvernig ein manneskja getur notað jafn mikið af eldhúsáhöldum, hnífapörum, glösum og diskum á einum degi er rannsóknarefni vísindasamfélagsins. Enda eru þær orðnar drykklangar stundirnar við eldhúsvaskinn, uppþvottavélaeign væri mikill munaður og unaður.
Útúr allri þessari tilraunastarfsemi er komið eitt „farðu-úr-bænum- svo-fáránlega-gott“ kotasælu-möndlu-kombó sem að sjálfsögðu er ofur einfalt fyrir aumingja eins og Naglann og krefst lágmarks fyrirhafnar.
150-200g kotasæla (Naglinn notar 1% sælu sem er reyndar hætt að framleiða á landinu Ísa)
1 tappi möndludropar
2 tappar vanilludropar
slurkur kanill
Öllu hrært saman.
Möndlur með hýði (magn eftir smekk og þörf)

Möndlur hakkaðar í mél
Möndlurnar hakkaðar í drasl með kníf…. „tungum kníf“
1 tappi rommdropar
slurkur kanill og múskat
Allt sett í skál og hrært vel saman og hellt út í kotasælubrjálæðið.

Farðu-úr-bænum- kotasælubrjálæði
Inn í ísskáp í nokkra klukkutíma ti að leyfa bragðdropunum að kjassast vel út í sæluna.
Alveg eins og ris a la mande…. jeraðsegjaykkurða…. úrvals næring fyrir svefninn með hæglosandi prótín og góðu fitunni svo kerfið er í rífandi fíling alla nóttina.
Flokkar: Uppskriftir
Eftir nokkra mánuði af niðurskurði og 12 kg tætt af túttunni er kominn tími á að bæta aftur kjöti utan á skrokkinn. Nú fer í hönd gott uppbyggingartímabil þar sem lyftingar verða í hrikalegum jötunmóð, maskínan stríðalin með ofgnótt af fóðri og þjóhnappar bólstraðir með meiri mör sem kemur sér vel í vetrarhörkunum framundan.
Naglinn hét sjálfri sér því að losa sig við einstefnugleraugun í fæðuvali þegar byggingarvinnan hæfist, því það skal alveg viðurkennast að matarvenjurnar vilja stundum verða einhæfari en færibandavinna í hraðfrystihúsi, sérstaklega í niðurskurðartímabili túttunnar en einhæfni er afkvæmi Satans. Fjölbreytni er ekki eingöngu nauðsynleg fyrir líkamann til að fá inn öll næringarefni, steinefni, snefilefni og vítamín heldur er sama fæða dag eftir dag ávísun á óhamingju, depurð, frústrasjón og að lokum uppgjöf eða epískt átkast.
Fyrsta markmið Naglans er að rokka upp grautinn + pönnsurnar á hverjum morgni með nýju trommusólói og lúftgítar – innblásin eldmóði og hugmyndum frá drottningunni sjálfri.
Í morgun var eitt það svaðalegasta kombó kokkað upp og graðgað í sig á ólympískum hraða svo elsku myndavélin náði aldrei í neinn radíus við dásemdina. Nett svekkelsi gerði vart við sig þegar vísifingur hafði skafið skálina að innan svo ekki einasta arða af mat var eftir.
Þessum gómsæta Friðfinni er hér með deilt með ykkur elsku blómin mín.
Kvöldið áður:
Epli skorið í teninga – sett í skál og kanildufti stráð vel yfir – bakað í eldföstu móti í 20 mín við 200°.
Möndlur hakkaðar – hrærðar með tappa af rommdropum og kanill.
Hvoru tveggja geymt í dollum til morguns.

Pannsan:
4-5 eggjahvítur + (1 heilt egg -valfrjálst)
1 tsk hunangskökukrydd (má nota brúnkökukrydd)
1 tsk kotasæla (1%)
1 tsk mulin hörfræ
1 tsk lyftiduft
Aðferð sjá hér
Grauturinn:
40-50g haframjöl
2-3 tsk Husk
1 tsk sjávarsalt
1-2 tsk kanill
2 tappar vanilludropar
Allt sett í skál með vatni og kokkað upp á gamla móðinn (má gera í örra- þið sem eigið slíka nútíma græju).
Þegar grautur er klár til átu er c.a helming af kaniluðu ofnaeplunum hrært útí.
Öllu gumsað í skál og möndlum dreift yfir herlegheitin - hent í ísskáp í 5-10 mínútur – grauturinn verður aðeins þéttari og brennir heldur ekki litla tungubroddinn.
Restinni af eplunum raðað með reglulegu millibili ofan á pönnsu og snætt með því að rúlla vænum bita af pönnsu utan um eplið og jafnvel smá graut ofan á….úff…. tíminn stöðvaðist, englar með hörpur birtust og Naglinn var skyndilega stödd á grænu engi með litlum læk og gulum fiðrildum.
Éraðsegjaykkurþað… eins og að borða eplaköku og það um háskaðræðistímann…það verða sko blautir draumar um þetta kombó þar til næste gang.
Flokkar: Uppskriftir
Það verður seint sagt að Naglinn sé mjög tæknivædd þegar kemur að farsímaeign. Gamall og traustur Nokia hefur í mörg ár sinnt hlutverki vekjaraklukku sem fær einstaka sinnum símtöl og þá aðallega frá þremur einstaklingum: móður, föður og eiginmanni.
En nýlega áskotnaðist túttunni splunkunýtt fjarskiptatæki með myndavél, videovél, blátönn, internettengingu og ég veit ekki hvað og hvað… og á svipstundu komin jafnfætis öllum hinum sem spígspora á tækniöld.
Af þessu tilefni langar Naglann svo rosalega mikið að gera myndapistil þar sem einstök færnin í notkun blátannar að færa myndir frá síma á tölvu fær að skína.
Nýjasta kombóið til að hljóta fullt hús rokkstiga í munnholinu er prótínbúðingur en í spánnýjum félagsskap. Naglinn er nefnilega skrýtin skrúfa sem fær velgju og viðbjóð af kaffi en þykir kaffibragð samt gott. Þetta er líklega rannsóknarefni fyrir skynjunarfræðinga.

Súkkulaði mokka prótín

Torani karamellu síróp og instant kaffi
Ein skófla af súkkulaði mokka dufti skellt út í mulinn klaka ásamt 100 ml af vatni og hrært á hægri stillingu. Þegar byrjað að hrærast vel er einni teskeið af instant kaffi og matskeið af Torani karamellu síróp bætt út í og hrært þar til klakinn er allur leystur upp í búðingnum. Þessir tveir félagar saman stuðla svo sannarlega að auknu serótónín flæði í heilanum.
Annað hrikalegt kombó í þessum geira er súkkulaði-mintu duft hrært með instant kaffi…. sóðalegur Sæmundur anyone??
Hvoru tveggja dónalega gott með hnetusmjöri, hökkuðum pekanhnetum, möndlum eða banana/jarðarberjum. Svo ekki sé talað um eftir æfingu með muldum hrískökum/maískökum, Special K eða Rice Krispies út í búðinginn.
Heldur manni sannarlega á mottunni þegar svona góðgæti er „leyfilegt“ um háskaðræðistímann.
Flokkar: Fæðubótarefni · Mataræði · Naglinn · Uppskriftir
Í dvöl sinni í Noregi uppgötvaði Naglinn saltfisk aftur í lífinu sem frændur vorir kalla reyndar ‘klippfisk’. Þessi gómsæta íslenska þjóðargersemi hafði einhverra hluta vegna farið framhjá bragðlaukunum á fullorðinsárum, kannski vegna þess að hér í denn var hann snæddur á gamla móðinn – soðinn með kartöflum – sem vekur ekki upp neitt sérstakt Pavlov viðbragð í munnholinu.

En eins og með allt annað hráefni er saltfiskur eins og strigi málarans – hvítur og nakinn og tilbúinn til skreytingar.
Naglinn hefur unnið ötullega að því að mastera Sóðalegan Sæmund og það með góðum árangri… að eigin sögn.
Innihald:
Saltfiskflak (má nota ósaltaðan, berrassaðan þorsk)
Hvítlauksrif
Laukur
Paprika
2-3 tsk tómatpúrra
2-3 tómatar úr dós
1 tsk Smoke flavour vökvi (ef fæst ekki á landinu bláa má nota reykt papriku duft)
salt + pipar
chili á hnífsoddi (valfrjálst)
Aðferð:
Láta fiskinn liggja í vatni ef hann er brimsaltur – annars er hægt að kaupa saltfisk kláran til átu úr fiskbúðum.
Hræra Smoke kraft (eða reykta papriku) og pipar út í tómatpúrru.
Merja hvítlauksrif, skera lauk og papriku og skella öllu saman á pönnu. Krydda til með chili, sjávarsalti og pipar eftir smekk.
Leggja fiskinn, tómatpúrru og tómata ofaná grænmetið.
Má ekki hræra þá verður rétturinn að fangelsis kássu, hrista frekar varlega af og til með trésleif.
Kokka þar til grænmetið er mjúkt– c.a í 15 mínútur.
Dásamlegt með splunkunýjum karpellum.
Flokkar: Uppskriftir
Það eru fáar stundir gleðilegri hjá Naglanum en þegar snæðingur er í gangi og nær allar máltíðir valda ofvirkni í munnvatnskirtlum og hamingju í hjarta. Slíkir eru fagnaðarfundirnir við fæðuna að erfitt reynist að einskorða stefnu matarins við gapandi munninn og ekki óalgeng sjón að túttan sé með matarslettur á kinn, höku, fötum.
Það er búið að dókúmentera og bókfæra þau matvæli sem eiga ekki upp á pallborðið hjá Naglanum en hér eru hinsvegar þær hollustumáltíðir sem fær grjótharðan Naglann til að skæla af gleði ofan í diskinn. Athugið í engri sérstakri röð.
Teryiaki lax með hýðisgrjónum (roðið geymt til síðast…save the best for last)
Prótinbúðingur (+Neskaffi og Torani karamellu síróp)+ hnetusmjör á kantinum
Hafragrautur með vanilludropum / möndludropum/ Capella dropum/ banana + jarðarberjum / bláberjum / hindberjum / kirsuberjum.. semsagt allur hafragrautur
Eggjahvítupönnsur með Capelladropum (sérstaklega French Toast) / kanil + vanilludropum / smákökukryddi
Rækjugleði
Roast beef + ofnbakaðar sætar kartöflur með reyktri papriku + sjávarsalti
1 % Kotasæla með jarðarberja prótini + hökkuðum bönunum og möndlum
Bacalao Naglans – nýlega uppgötvaður saltfiskréttur – uppskrift væntanleg
Stappað avocado með sjávarsalti, sítrónupipar og sítrónusafa
Prótínbúðingur með brytjuðum jarðarberjum + banana útí

Kanilristaðar möndlur
Kebab kryddaður kjúlli + ofnbakaðar kartöflur með sítrónupipar + grillkryddi
Þorskur með paprikusinnepi + sítrónupipar
Blóðug nautasteik með bakaðri kartöflu + tzatziki
Erluréttur + möndlur, gúrka, tzatziki + hýðisgrjón
Austurlenskt kúskús (uppskrift væntanleg)
Eftir æfingu kolvetni:
Beygla með kotasælu + sykurlausri sultu
Cheerios
maískökur
hrískökur
Lucky Charms
Special K
Sykur + fitusnauður ís
Flokkar: Mataræði · Naglinn · Uppskriftir