Ragga Nagli

blogg á eyjan.is

Hver er þín afsökun??

18.1 2010 | 15:39 | 10 ummæli

Naglinn sá ófríska konu í ræktinni áðan…sem er ekki í frásögur færandi nema….hún var í hjólastól OG hún var að LYFTA.   Naglinn fylgdist auðvitað með túttunni full aðdáunar og hún tók bara nokkuð vel á því miðað við ástand sitt.

Ekki veit Naglinn ástæðu þess að aumingja stúlkan er í hjólastól, en gæti trúað að það tengist meðgöngunni, hún gat labbað nokkur skref óstudd og studdist við hækjur til að koma sér úr stólnum í tækin.

Í stað þess að hanga heima og vorkenna sér, drífur þessi skonsa sig af stað í ræktina og líður örugglega eins og milljón dollurum fyrir vikið.  Sem leiðir hugann að því hversu margir menn og konur einsamlar fóru ekki í ræktina í dag og ganga á tveimur jafnfljótum??

Hér er myndband sem Naglinn hefur reyndar birt áður en góð vísa og allt það… þetta er tileinkað öllum þeim sem fundu sér einhverja ömurlega afsökun fyrir að fara ekki í ræktina í dag

„>What\’s your excuse

Flokkar: Bölsót · Hvatning · Lífstíll | Facebook



Ummæli (10)

  •   Berglind // 18.1 2010 kl. 16:01

    Ömurlegar afsakanir já :)

    Margir hafa ýmsar afsakanir fyrir því að fara ekki í ræktina, en margir fara líka í ræktina þótt þeir í raun hafi ekkert þangað að gera og ættu að taka því rólega :) Sumir djöflast líka endalaust í ræktinni – allt of mikið :)

    En mikið samt er hægt að dást að fólki sem tekur líkamsræktinni og þeirri vellíðan sem hún færir, með bros á vör og mætir alltaf. Eitt sinn sagði góður læknir við mig þegar ég átti erfitt tímabil og var ekki að sinna neinu. „Veistu, það sem þú þarft að vita og skilja núna er í raun bara eitt. Besti, já allra besti vinur þunglyndis og depurðar er hreyfingarleysi. Drífðu þig í ræktina, taktu lítil skref í einu. Farðu kannski bara á brettið eða hjólið fyrst. En mættu á staðinn og gerðu eitthvað. Smám saman finnurðu hvað þetta lyftir þér upp. Komdu svo til mín aftur eftir 3 vikur og við förum þá yfir stöðuna.“ Ég fór eftir þessum ráðum og mætti á hverjum degi eitthvað í ræktina. Bara smástund kannski. Byrjaði á korteri. En það var djöööööf…..erfitt korter, fannst allir glápa á mig og allt eftir því. En eftir nokkra daga varð þetta auðveldara og auðveldara. Mitt sálartetur varð léttara og eftir 3 vikur fór ég til læknisins aftur og leið betur. Ég hélt áfram í ræktinni og get nú haldið daglanga fyrirlestra – og geri hahaha – um mikilvægi þess að hreyfa sig. Ekki bara til að halda líkamanum í lagi, heldur síðast en ekki síst til að halda sálartetrinu í lagi :)

    Ég var einmitt í ræktinni í morgun og hitti konu, örugglega um sextugt. Hún er búin að fara 3x í viku í 12 ár, alltaf í sömu stöðina, alltaf á sama tíma. Missir aldrei úr. Svo dugleg. Þetta er hennar lífsstíll. Dásamlegt.

    Upp með jákvæðnina :) Allir að hreyfa sig :)

    Kv. Berglind

  •   Fannar Karvel // 18.1 2010 kl. 16:04

    Þetta er án efa eitt af flottustu „in your face“ myndböndum sem ég hef séð! Á klárlega eftir að stela því þegar B.Sc blúsinn kemur yfir mig.

  •   Hólmfríður Gestsd. // 18.1 2010 kl. 17:16

    Þetta er frábært myndband og hvetur mig endalaust til dáða! :) Æðislegt að sjá svona sögur af duglegu fólki, hvetur mann þvílíkt áfram!

  •   Anna // 18.1 2010 kl. 19:31

    Ja hérna, horfði að vísu ekki á myndbandið en sat hér við tölvuna einmitt að „ákveða“ að fara ekki í ræktina vegna gríðarlegrar þreytu…las það sem þú skrifaðir og Takk Ragga eins og alltaf bara æði:)
    farin á æfingu, bless í bili

  •   Ásta // 19.1 2010 kl. 09:12

    Svona fólk á maður að taka sér til fyrirmyndar =D Og minna sig á að maður getur þetta sjálfur – henda mastersgráðunni í afsökunum út um gluggan „med det samme“! :)

    Takk fyrir að hrissta upp í litla heilabúinu mínu ;) .. kemur sér vel þegar maður er að koma sér afstað aftur í ræktina ;)

  •   Ella Helga // 19.1 2010 kl. 10:07

    Vont veður og þreyta eru héðanífrá ógildar afsakanir fyrir ræktarleysi!
    Stundum spáir maður ekkert í því hvað maður er í raun heppinn…
    …þessi klippa er afbragðs spark í rassgatið!

  •   Kristín Klara // 19.1 2010 kl. 12:32

    Frábært myndband… maður hefur gott af því að skoða það reglulega til að minna sig á að nota þessa heilbrigðu skanka sem maður hefur ;o)
    Finnst samt að fólk megi líka athuga það að ekki þarf alltaf að druslast í gymmið, heldur bara vera actífur almennt í lífinu, þramma á fjöll og hjóla etc
    Stel þessu myndbandi og pósta á fésið ;o)
    Bestu kveðjur til ykkar í dk
    KKG

  •   Alli Steinn // 20.1 2010 kl. 13:26

    Í isometric vöðvasamdrætti, þegar kraftur er framleiddur á meðan vöðvinn er eki í hreyfingu, verður þá einhvert niðurbrot í vöðvanum? Ef maður er búinn að repsa kannski 6 sinnum og í síðasta repsi gerist ekki neit, lóðin fara ekki upp sama hvað maður rempist, er maður þá að stuðla að vöðvavöxt með því að reyna að lyfta lóðinu eða ætti maður að taka bara lættara og klára settið?

  •   Gunnhildur // 20.1 2010 kl. 21:35

    fjúkket ég fór út að hlaupa í morgun og tók vel á.. Engin afsökun hér ;)
    Upp fyrir hreyfingu sem lífsstíl en ekki eitthvað leiðinlegt tímabil til að losna við aukakílóin … Heldur lífsstíl til að viðhalda andlegri og líkamlegri heilsu !!!!

  •   ragganagli // 22.1 2010 kl. 11:00

    Alli Steinn! Ertu að tala um hvort þú stækkir með að klára vöðvann í hverju setti? Þá er svarið nei, það er ekki nauðsynlegt að fara „to failure“ til að stækka vöðvann.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):