Ég er að fara að vinna, tek hóp í smá rúnt og göngu í dag. Þetta er fyrsta launaða ferðaþjónustuverkefnið síðan… tja… ég bara man það ekki. Síðan í júní samkvæmt dagatalinu, ef undan eru skilin nokkur transfer sem ég tók á Íslandi í júlí.
Ég ætla ekki að kvarta, ég er svo heppin að vera skuldlaus (fyrir utan LÍN, hefði nú alveg viljað losna við árlegu greiðsluna þeirra nú í vor, það var þungur biti fyrir minn tóma reikning), en mikið óskaplega hlakka ég til að fara í vinnuna. Um leið og ég kvíði alveg ógurlega fyrir líka, en fiðrildið í maganum er nú bara þægilegt. Ég vona að það verði bara svona fiðrildi á morgun fyrir prófið, ekki klumpur.
Lifið í friði.
Kristín Jónsdóttir
Ummæli (4)
ella // 29.11 2009 kl. 10:12
Það er gaman að hafa gaman í vinnunni.
Harpa J // 29.11 2009 kl. 11:23
Frábært – góða skemmtun!
Ásta B // 29.11 2009 kl. 22:29
Ef reynsla þessa hóps í dag hefur verið eitthvað í líkingu við reynslu mína og fjölskyldu minnar af ferðum með þér Kristín, þá er það glaður hópur sem er á leiðinni í háttinn núna.
Veit varla um skemmtilegri fararstjóra en þig.
Gangi þér vel í prófinu á morgun :)
parisardaman // 30.11 2009 kl. 06:25
Takk og takk, allar saman. Ásta, þú yljar mér um hjartarætur. Þau virtust alla vega sæl þegar ég kvaddi.
Rita ummæli