Ég mætti skjálfandi í merkingarfræðitímann. Hafði legið yfir öllum glósum og námsefninu og horft á verkefnið þar til ég varð rangeygð og sjálfsálitið komið niður fyrir 0. Var í alvöru talað að spá í að skrópa, ég kveið svo fyrir að sitja þarna og horfa á hina ræða verkefnaúrlausnirnar á gáfulegum nótum, keppast við að rétta upp hönd, skiptast á skoðunum um vafaatriðin. Og ég bara lítill hálfviti úti í horni með óleyst verkefni.
Kennarinn byrjaði á því að biðjast afsökunar á því að hafa ekki svarað meilum (ha? getur maður sent henni meil þegar maður er ekki viss á verkefninu? aldrei myndi ég þora) en það hefðu bara komið svo margir meilar og með svo miklum grunnspurningum að hún hefði strax séð að enginn hefði skilið upp eða niður í verkefninu. Svo hún sæi að hún yrði að endurtaka tímann frá því í síðustu viku. Og við fórum aftur í gegnum þetta. Hægt. Og. Rólega. Ég held ég hafi skilið eitthvað. Samt ekki alveg allt. En kannski kemur það.
Ég reyni að fletta orðum upp, en það gengur lítið og skýrir þá ekkert. Þó datt ég niður á meistararitgerð úr íslenskudeild sem mér sýnist fjalla um svipað efni og við erum að eiga við. Hún er bara svo fjandi löng að ég hef varla tíma til að lesa hana alla. Og íslenskan hjálpar mér svosem ekkert, því prófið verður á frönsku. En það hjálpar samt allataf að skilja blessuð hugtökin á móðurmálinu. Fróun að sjá að jafnvel Frakkarnir skilja þau ekki, en samt ekki gott því það eykur ekki líkurnar á því að ég nái því.
Annars er allt í góðu hérna. Allir við hestaheilsu og ýmislegt spennandi framundan. Ég er að fara að sækja um tvær vinnur. Svona bara af því ég hef ekkert að gera. Eða jú. En samt. Já, það er ekki að lífinu að hæða.
Svo vil ég bara taka undir með þeim gagnrýnisröddum sem upp hafa komið varðandi lélega nýtingu íslenskra karlmanna á kampavíni. Hvernig er það, ætlar plebbagangnum aldrei að linna?
Lifið í friði.
Kristín Jónsdóttir
Ummæli (7)
baun // 9.11 2009 kl. 23:21
Það hefur löngum loðað við fólk í ýmsum stéttum að fara illa með kampavín. Hef t.d. séð þessu grýtt í skip, svo maður tali nú ekki um menn sem lenda í því að panta kampavín þótt þeim finnist það vont.
ella // 9.11 2009 kl. 23:37
Gáðu bara að því að brauðstritið á það til að slíta í sundur fyrir manni daginn.
hildigunnur // 10.11 2009 kl. 08:33
Gaurinn toppaði þetta alveg með því að koma upp um arfalélegan vínsmekk sinn…
Spennandi að heyra af vinnumálum og skólamálum og öllu saman.
Harpa J // 10.11 2009 kl. 09:22
Þú ert svo miklu klárari en þú heldur! Ég hef oft sagt það áður – og alltaf haft rétt fyrir mér – athugaðu það ;-)
parisardaman // 10.11 2009 kl. 15:50
Ég er að spá í að búa til lítið fræðslumyndband um kampavínsdrykkju, þetta bara gengur ekki hvernig fólk sveiflar þessum flöskum og brýtur eða lætur narra sig til að kaupa, ó afsakið að stolið sé af kortinu þeirra fyrir fokdýru platkampavíni, hvílíkur plebbagangur. Vantar alla estetík í umgengni við kampavín.
Ella og Harpa, ég veit, ég veit… en samt veit ég það ekki…
Sigurbjörn // 11.11 2009 kl. 20:14
Kampavín er fyrir kerlingar!
Frú Sigurbjörg // 11.11 2009 kl. 21:13
Ummm – kampavín!
Rita ummæli